Morgunblaðið - 16.09.2010, Page 5
FRÉTTIR 5Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2010
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hópar áhugafólks í Borgarfirði og
uppsveitum Árnessýslu vinna saman
að því að undirbúa þátttöku í sölu-
ferli Límtrés-Vírnets með það að
markmiði að fyrirtækið komist aftur
í eigu heimamanna. Leitað hefur
verið til íbúa, fyrirtækja og fleiri að-
ila í héruðunum um að leggja fram
hlutafé. Fólk getur meðal annars
skráð sig á vef Samtaka sveitarfé-
laga á Vesturlandi, ssv.is.
Vírnet og Límtré voru sjálfstæð
framleiðslu- og þjónustufyrirtæki,
Vírnet í Borgarnesi og Límtré á
Flúðum og í Reykholti. Þau samein-
uðust og BM Vallá keypti fyrirtæk-
ið. Þegar BM Vallá varð gjaldþrota
eignaðist Landsbankinn fyrirtækið
og rekur það nú. Landsbankinn til-
kynnti snemma í mánuðinum að fyr-
irtækið yrði sett í opið söluferli í
þessum mánuði.
Safna 200-300 milljónum
Mikill áhugi kom fram á opnum
borgarafundi sem efnt var til í Borg-
arnesi á dögunum og var skipaður
vinnuhópur til að vinna að kaupum
félagsins. Jafnframt kom fram áhugi
á Suðurlandi, þar sem félagið er
einnig með starfsemi, og er sam-
vinna með hópunum. Guðsteinn Ein-
arsson, formaður vinnuhópsins, seg-
ir markmiðið að safna nægu hlutafé
til þess að hægt verði að reka fyr-
irtækin með myndarlegum hætti
þannig að þau verði starfrækt og
þróuð áfram á þessum svæðum en
ekki leyst upp og farið út í einhver
ævintýri. Hann tekur það fram að
ætlast sé til þess að eigendurnir fái
arð af sínu fjármagni enda sé at-
vinnusköpun án arðs einskis virði.
Fram kemur á vef Samtaka sveit-
arfélaga á Vesturlandi að talið er að
safna þurfi 200-300 milljónum
króna. Með skráningunni er vinnu-
hópurinn að kanna hversu miklu
hlutafé unnt er að safna heima fyrir,
til að komast inn í söluferlið. Lág-
marksfjárhæð er 100 þúsund krón-
ur.
Reiknað er með að fyrirtækið
verði auglýst á næstunni. Hópurinn
vonast til að fá að taka þátt í ferlinu
og vinna áfram að málinu á grund-
velli þeirra upplýsinga sem veittar
verða um rekstur fyrirtækisins og
stöðu.
Heimamenn vilja
eignast Límtré-Vírnet
Morgunblaðið/Golli
Verksmiðjan Stál og ál er valsað og notað í margskonar klæðningar.
Íbúum gefst
kostur á að leggja
fram hlutafé
Límtré-Vírnet
» Grunneiningar Límtrés-
Vírnets eru naglaverksmiðja í
Borgarnesi og límtrésverk-
smiðja á Flúðum.
» Fyrirtækið er nú með fjöl-
breyttari starfsemi. Það fram-
leiðir stál- og álklæðningar og
yleiningar og rekur verkstæði.
Sjúkraliðafélag
Íslands er eina
félagið innan
BSRB sem ekki
hefur náð samn-
ingum við samn-
inganefnd ríkis-
ins. Samningar
félagsins hafa
verið lausir á
annað ár. Kjara-
deilan er hjá rík-
issáttasemjara og í dag verður
fundað með samninganefndunum.
Kristín Á. Guðmundsdóttir, for-
maður félagsins, segist merkja vilja
til samninga.
Sjúkraliðafélag Íslands dró sig
út úr samningum aðildarfélaga
BSRB við ríkið haustið 2008. Fé-
lagið taldi að samningar sem þá
var unnið að væru ekki viðunandi
fyrir félagsmenn þar sem samn-
ingar hafi ekki skilað þeim jafn-
fætis öðrum sem þeir bera sig sam-
an við. Nú hefur verið samið við
lögreglumenn, slökkviliðs- og
sjúkraflutningamenn og tollverði
sem einnig kusu að standa undan
samflotsins.
Krefjast leiðréttingar
Kristín segir að félagið hafi síðan
reynt að fá samninga þar sem kjör
sjúkraliða yrðu leiðrétt. Hún bend-
ir á mun í launum á milli karla- og
kvennastétta og yfirlýsingar
stjórnvalda um jafnrétti í þeim efn-
um. Þá sé svo komið að fagstéttir
innan opinbera geirans sem hafi
minni menntun og ábyrgð í starfi
en sjúkraliðar hafi hærri laun.
Sjúkraliðafélagið efndi til fé-
lagsfundar um kjaramálin fyrr í
vikunni og var þar einnig fundað
með sjúkraliðum á ríkisstofnunum
um allt land í gegnum fjarfunda-
búnað. Kristín segir að fundirnir
hafi verið fjölmennir og komið hafi
fram mikil samstaða um kröfu um
leiðréttingu launa stéttarinnar nú
þegar.
„Við gerum okkur fulla grein
fyrir stöðunni í þjóðfélaginu. Við
erum ekkert eyland. En við verð-
um að benda á það sem blasir við,
að laun hafa verið að hækka á al-
menna vinnumarkaðnum, umfram
opinbera starfsmenn. Ekki er hægt
að samþykkja þann reginmun og að
hann aukist sífellt,“ segir Kristín.
Bjóða lengri samningstíma
Forysta Sjúkraliðafélagsins hef-
ur fundað sjö sinnum með samn-
inganefnd ríkisins hjá ríkissátta-
semjara. Næsti fundur er í dag.
Kristín vonast til að framhald verði
á umræðum og það takist að semja.
Ríkið hefur rætt um bráða-
birgðasamning sem rynni út í lok
nóvember, eins og aðrir kjara-
samningar. Er því lítill tími til
stefnu. Kristín segir að Sjúkraliða-
félagið hafi boðist til að gera samn-
ing til lengri tíma, ef það mætti
verða til að leiðrétting fengist á
kjörum sjúkraliða.
Sjúkraliðar eru
enn án samnings
Fundað hjá ríkissáttasemjara í dag
Kristín Á.
Guðmundsdóttir