Morgunblaðið - 16.09.2010, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2010
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Sjálfskaði er athöfn semmanneskja fremur á sjálfrisér í þeim tilgangi að hjálpasér. Þetta er ekki leið til
sjálfsvígs heldur er þetta tilraun til
að koma í veg fyrir sjálfsvíg. Þetta
er meðvituð athöfn í þeim tilgangi að
valda skaða, á eftir kemur tímabil
yfirvegunnar.
Sjálfskaði er ólíkur því sem per-
sóna gerir sér án þess að vera með-
vituð um að hún sé að skaða sjálfa
sig til langs tíma litið eins og ofát,
reykingar og ofdrykkja. Algengustu
leiðirnar til sjálfskaða eru að skera
sig, brenna sig, beinbrjóta sig,
stinga sig með nálum, naga negl-
urnar og þetta er allt gert til að tak-
ast á við annarskonar sársauka,“
segir DeChello beðinn um að út-
skýra sjálfskaða í stuttu máli.
DeChello er virtur á sínu sviði
og er höfundur 28 bóka og fjöl-
margra greina á sviði geðheilbrigð-
ismála. Það eru Félag íslenskra for-
varna og vímuefnaráðgjafa, Félag
íslenskra uppeldis- og meðferða-
úrræða og Lausnin sem standa fyrir
námskeiði og fyrirlestri DeChello
hér á landi.
Losar um endorfín
Sjálfskaði er fíkn og hefur svip-
uð áhrif á heilann á sekúndum og
tekur vikur eða mánuði með lyfjum
og telur DeChello það meðal annars
vera ástæðuna fyrir þessum vaxandi
vanda.
„Það virðist sem sérstaklega
unglingar hafi fundið út hvernig
sjálfskaði virkar á heilann. En sjálf-
skaði gerir það á sex sekúndum sem
tekur heróín sex mínútur að gera og
þunglyndislyf sextíu daga að gera.
Þetta er að verða stórt vandamál því
þetta virkar. Sjálfskaði virkar þann-
ig á heilann að hann losar endorfín
eins og fíkniefni og því getur skaðinn
auðveldlega orðið ávanabindandi
eins og fíkniefni. Skaðinn verður líka
aðalleið þessara einstaklinga til að
takast á við lífið. Sumir borða, aðrir
drekka, þetta fólk sker sig. Sjálf-
skaði er fíkn, á sama hátt og alkóhól-
isti hugsar um næsta drykk hugsar
sjálfskaðasjúklingur hvernig hann
getur skorið sig næst,“ segir DeC-
hello.
Jafnalgengt og lystarstol
DeChello segir sjálfskaða al-
gengastan meðal ungmenna í iðn-
ríkjunum.
„Hæsta tíðni sjálfskaða er í
Sjálfskaði er þögul
farsótt og fíkn
Sjálfskaði er oft kallaður anorexía nútímans, hin þögla farsótt. Sjálfskaði er fíkn
og alls ekki síður ávanabindandi en lyf sem eru misnotuð. Á morgun heldur dokt-
or Patric DeChello námskeið hér á landi um sjálfskaða þar sem fjallað verður um
eðli, tilgang og orsök sjálfskaða og meðferð við honum. Hann mun einnig halda
fyrirlestur á laugardaginn um fíkn og aðstandendur.
Doktor DeChello hefur þrjátíu ára starfsreynslu á geðheilbrigðissviðinu.
Á haustin gera margir sér ferð út í
náttúruna til þess að tína sveppi til
að eiga í matargerð. Margir íslenskir
sveppir sem vaxa villtir úti í nátt-
úrunni eru hið mesta hnossgæti og
þá má ýmist nota ferska eða þurrk-
aða, jafnvel sjóða til frystingar.
En ekki eru allir sveppir ætir, sumir
eru jafnvel eitraðir. Til að þekkja þá
góðu frá þeim slæmu, þá er tilvalið
að fara inn á vefsíðu Flóru Íslands og-
fræðast heilmikið um ótal tegundir
sveppa sem vaxa hér á landi en
þekktar eru um 2000 tegundir ís-
lenskra sveppa.
Á síðu þessari eru nöfn sveppa í
stafrófsröð og þegar hakað er við
hvern þeirra kemur upp mynd af við-
komandi svepp, upplýsingar um í
hverskonar landslagi hann er helst að
finna og hvort hann er ætur eður ei.
Drífa sig svo út í sveppaleit!
Vefsíðan www.floraislands.is/sveppaval.htm
Morgunblaðið/Sverrir
Góðir Sveppir sem vaxa í íslenskri náttúru eru sumir hverjir herramannsmatur.
Allt um sveppina á Íslandi
Um næstu helgi verður tilvalið að
skreppa austur fyrir fjall, að Flúðum í
Hrunamannahreppi og njóta helj-
arinnar uppskeruhátíðar sem blásið
hefur verið til. Á föstudagskvöldið
verða blústónleikar á Útlaganum með
Vinum Dóra og Stone Stones en á
laugardagsmorgun fer hátíðin form-
lega af stað með þakkargjörðar-
messu í Hrunakirkju. Klukkan 13-17
verður markaðurinn Matarkistan í fé-
lagsheimilinu á Flúðum og þar kennir
margra grasa, matvæli úr sveitinni,
grænmeti, kjöt, fiskur, konfekt og
hunang svo fátt eitt sé nefnt. Fjöl-
breytt handverk frá heimafólki verð-
ur þar líka sem og ljósmyndasýning.
Opið hús verður heima á nokkurm
bæjum þar sem fólk býr til handverk
og sumstaðar léttar veitingar í boði.
Leikir verða fyrir ungu kynslóðina í
félagsmiðstöðinni Zero, götuleikhús
og teymt undir börnum sem langar á
hestbak. Golfmót verður á Efra -Seli
og listakokkarnir Beggi og Pacas
ætla að töfra fram grænmetisrétti á
Kaffi Grund af sinni alkunnu glað-
væru snilld. Á Hótel Flúðum verður
gestum boðið í garðinn milli kl. 14-16
og þar verður hægt að smakka fría
grænmetissúpu undir ljúfum tónum.
Hótelið verður með uppskerutilboð á
gistingu og þriggja rétta kvöldverð
sem og morgunverðarhlaðborð.
Tónleikar á Útlaganum og Félags-
heimilinu um kvöldið.
Endilega...
...farið á uppskeruhátíð
Morgunblaðið/Eggert
Börn sem tóku þátt í heilsupró-
grammi í skólanum sínum þegar
þau voru í sjötta bekk voru léttari
í áttunda bekk en hópur af börn-
um sem tóku ekki þátt í
heilsuprógramminu. Þetta kemur
í ljós í bandarískri rannsókn sem
var kynnt nýlega.
Eitt af því sem kom ljós í rann-
sókninni, og þótti mjög ánægju-
legt, var að í báðum hópunum
minnkuðu tilvik offitu og of-
þyngdar og eru líkur leiddar að
því að offita bandarískra barna
fari loksins minnkandi. Þetta er í
fyrsta skipti sem þessar tölur
lækka í rannsóknum sem ná yfir
sama stóra hópinn af börnum í
nokkurn tíma. Rannsóknin náði
yfir 4500 nemendur, helming-
urinn tók þátt í heilsuprógrammi
í skólanum. 30% prósent af börn-
unum, í báðum hópunum, voru of
feit þegar rannsóknin hófst. Í átt-
unda bekk hafði sú prósenta
lækkað í 24,6% hjá heilsuhópn-
um og í 26,6% hjá hinum.
Heilsa
Offituprósentan lækkar hjá
bandarískum börnum
Reuters
Hlaupið Forsetafrúin Michelle Obama setti
af stað átak þar sem hún berst gegn offitu
bandarískra barna og hvetur þau til að
hreyfa sig meira.
Bónus
Gildir 16. - 19. sept. verð nú áður mælie. verð
SS slátur ósoðin lifrapylsa .............. 461 692 461 kr. kg
SS slátur ósoðinn blóðmör............. 419 639 419 kr. kg
KF nýtt kjötfars, 620 g ................... 239 259 385 kr. kg
Ali ferskar grísakótilettur ................ 898 998 898 kr. kg
Fe ferskt grísagúllas ...................... 898 998 898 kr. kg
Fe ferskt grísasnitsel ...................... 898 998 898 kr. kg
My heimilisbrauð, 385 g................ 119 145 309 kr. kg
Euroshopper ostapizzur, 3x300 g.... 698 898 775 kr. kg
Bki gullkaffi, 250 g........................ 178 198 712 kr. kg
SS grísalundir koníakslegnar .......... 1.798 2.598 1.798 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 16. - 18. sept. verð nú áður mælie. verð
Svínakótilettur úr kjötborði ............ 998 1.398 998 kr. kg
Nautabuff úr kjötborði................... 1.698 2.098 1.698 kr. kg
Hamborg.r m/brauði, 2x115 g ....... 358 438 358 kr. pk.
Móa kjúklingaleggir kryddaðir ........ 667 889 667 kr. kg
Ali kjötbollur lausfrystar ................ 1.198 1.498 1.198 kr. kg
Ali kjúklingasnitsel lausfrystar........ 1.198 1.498 1.198 kr. kg
FK jurtakryddað lambalæri ............ 1.398 1.568 1.398 kr. kg
FK Bayonneskinka ........................ 1.098 1.373 1.098 kr. kg
Hagkaup
Gildir 16. - 19. sept. verð nú áður mælie. verð
Íslandsnaut ungnauta ribeye ......... 2.771 3.695 2.771 kr. kg
Íslandsnaut ungnauta T-bone ........ 2.771 3.965 2.771 kr. kg
New Orleans BBQ svínarif.............. 1.039 1.598 1.039 kr. kg
Boston skinka .............................. 998 1.798 998 kr. kg
Baby pork grísalæri ...................... 699 998 699 kr. kg
Baby pork grísabógur.................... 599 798 599 kr. kg
Amerískir kleinuhringir, skreyttir ..... 109 179 109 kr. stk.
Amerískir kleinuhr./kókos, 2 í pk.... 215 349 215 kr. pk.
Krónan
Gildir 16. - 19. sept. verð nú áður mælie. verð
Ungnauta mínútusteik .................. 1.749 3.498 1.749 kr. kg
Ungnauta piparsteik ..................... 1.749 3.498 1.749 kr. kg
Lambalærissneiðar í raspi ............. 1.265 1.698 1.265 kr. kg
Lambakótilettur í raspi .................. 1.265 1.698 1.265 kr. kg
Núðlur með kjúkling...................... 699 898 699 kr. kg
Núðlur chinese wok & grísakjöt...... 699 898 699 kr. kg
Goða blóðmör ósoðinn, 4 stk. ....... 489 798 489 kr. kg
Goða lifrarpylsa ósoðin, 4 stk. ....... 589 848 589 kr. kg
Kornbrauð ................................... 249 349 249 kr. stk.
Gillette mach 3 rakblöð, 8 stk........ 1.998 2498 1.998 kr. pk.
Nóatún
Gildir 16. - 19. sept. verð nú áður mælie. verð
Korngrís grísalundir....................... 1.698 2.298 1.698 kr. kg
Korngrís grísahnakki úrb................ 998 1.698 998 kr. kg
Korngrís grísabógur ...................... 498 598 498 kr. kg
Korngrís grísakótilettur .................. 998 1.498 998 kr. kg
Korngrís grísasnitsel ..................... 1.189 1.698 1.189 kr. kg
Korngrís grísagúllas ...................... 1.189 1.398 1.189 kr. kg
Korngrís grísasíður........................ 559 798 559 kr. kg
Ungnauta Rib Eye......................... 3.499 3.898 3.499 kr. kg
Plokkfiskur................................... 989 1.359 989 kr. kg
Steinbakað kornbrauð .................. 339 489 339 kr. stk.
Þín Verslun
Gildir 16. - 19. sept. verð nú áður mælie. verð
Ísfugls kjúklingur heill ................... 682 975 682 kr. kg
Egils kristall/ blóðappelsínu .......... 189 265 189 kr. ltr
Hatting smábrauð gróf, 12 stk. ...... 359 445 30 kr. stk.
Kjörís tilboðsís, súkkul./vinilla. ...... 249 365 249 kr. ltr
Herrljunga Cider Original ............... 295 349 295 kr. ltr
Pågen bruður heilhveiti, 400 g....... 385 489 963 kr. kg
Pågen kanilsnúðar, 260 g ............. 349 475 1.343 kr. kg
Lambi salernisrúllur, 6 stk. hvítur ... 498 619 83 kr. stk.
Létt smurostur m/skinku, 250 g .... 325 359 1.300 kr. kg
Palmol. sturtusápa, 200 ml........... 465 585 2.325 kr. ltr
Helgartilboðin
Morgunblaðið/Eyþór
Í viðtalið við Sigrúnu Sverrisdóttur sultugerðarkonu í Mývatnssveit í blaðinu
í gær sagði að hún væri prestur í Reykjahlíðarkirkju. Sigrún er ekki prestur
og er beðist velvirðingar á þessum misskilningi.
Leiðrétting
Ekki prestur