Morgunblaðið - 16.09.2010, Page 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2010
til allra hennar ástvina.
Ég dáði þessa konu fyrir svo
margt. Æðruleysið sem hún sýndi í
23 ára veikindum. Óbilandi trúar-
fullvissu, góða skapið. Hugsunar-
semina, – jafnvel fárveik mundi hún
afmælisdaga og viðburði í fjölskyld-
um vina sinna. Auðmýktin, – að
mæta örlögum sínum í trú og kær-
leika.
Við eigum í raun ekkert nema
ævisöguna þegar við kveðjum hér á
jörðu og það eru fjölmargir sem
eiga falleg og ógleymanleg minn-
ingarbrot úr sögunni hennar Unn-
ar.
Elskulegu fjölskyldunni hennar
sem stóð eins og klettur með henni í
blíðu og stríðu sendum við Jón og
okkar fjölskylda innilegar samúðar-
kveðjur.
Guð blessi ykkur öll.
Við erum rík að hafa átt Unni
Ingunni að vini.
Unnur og Jón.
Nú hefur elsku Unnur mín fengið
hvíldina. Hún háði langa og erfiða
baráttu við veikindi sín. Hún sýndi
það og sannaði að ekki er allt sem
sýnist. Hún stóð upp aftur og aftur
þegar við hin héldum að nú væru
kraftar hennar að þrotum komnir.
Unnur var stórkostleg kona. Ég get
alveg sagt að ég hef ekki kynnst
neinni eins og henni – alveg var hún
einstök. Hún hafði það að markmiði
að hjálpa öðrum. Hún var sann-
arlega ekki sjálfselsk og hugsaði
alltaf um aðra fyrst. Hver og ein
einasta manneskja sem kynntist
henni á örugglega eitthvað í fórum
sínum sem var gjöf frá Unni. T.d.
sængurverin, handklæðin – útsaum-
uð með nafni viðkomandi, og ófáar
ljósmyndirnar. Hún var dugleg að
taka myndir og tókst einhvern veg-
inn alltaf að fá fólk til að setja upp
sparibrosið. Þetta var líka hennar
leið að koma á framfæri trú sinni á
Guði. Hún skrifaði gjarnan kort
með hverri gjöf og lét falleg bibl-
íuvers fylgja með. Ég dáðist alltaf
að skriftinni hennar, svo ótrúlega
falleg og stílhrein.
Ég hef þekkt Unni frá því ég var
unglingur og kynntist þremur af
fjórum börnum hennar og Jóns
Williams á Hlíðardalsskóla. Það var
upphafið að sterkri og góðri vináttu
sem aldrei hefur borið skugga á.
Yndislegar samverustundir í öll
þessi ár eru svo ótal ótal margar.
Ég er svo óendanlega þakklát
fyrir að hafa fengið tækifæri til að
kveðja Unni tveimur dögum fyrir
andlát hennar. Það var fallegt að
sjá hvað fjölskyldan hennar er búin
að standa þétt saman, með sama
æðruleysi og hún sjálf í öllum henn-
ar veikindum.
Elsku Jón William, Maggi, Ella,
Steini, Hildur Davíð, Eva, Gutti og
Gulla mín. Mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur til ykkar . Bið góðan
Guð að vera með ykkur og börnum
ykkar sem syrgja ömmu sína sárt.
Það er yndislegt að eiga þá dýr-
mætu vissu að við munum hitta aft-
ur ástvini okkar þegar Jesú kemur
og sækir okkur heim.
Þegar ég leystur verð þrautunum frá,
þegar ég sólfagra landinu á
lifi og verð mínum lausnara hjá –
það verður dásamleg dýrð handa
mér.
Dásöm það er, dýrð handa mér,
dýrð handa mér, dýrð handa mér,
er ég skal fá Jesú auglit að sjá,
það verður dýrð, verður dýrð
handa mér.
Og þegar hann, er mig elskar
svo heitt,
indælan stað mér á himni’ hefur
veitt,
svo að hans ásjónu’ ég augum fæ
leitt það verður dásamleg dýrð
handa mér.
Ástvini sé ég, sem unni ég hér,
árstraumar fagnaðar berast að mér,
blessaði frelsari, brosið frá þér,
það verður dásamleg dýrð handa
mér.
(Þýð. Lárus Halldórsson)
Ollý Smáradóttir.
Hver minning dýrmæt perla að
liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Þetta ljóð á vel við, þegar við
minnumst skólasystur okkar og vin-
konu Unnar Ingunnar Steinþórs-
dóttur.
Það var mikil eftirvænting
ríkjandi þegar við mættum, um 30
ungar stúlkur víða af landinu haust-
ið 1959-1960 á Húsmæðraskólann
Ósk á Ísafirði. Allar ætluðum við að
læra eitthvað gagnlegt fyrir fram-
tíðina. Þar var eldað og bakað,
saumað og prjónað, þvegið og ofið.
Sumar höfðu þá þegar fest sér
mannsefni og Unnur Ingunn var ein
af þeim. Unnusti hennar var Jón
William Magnússon frá Ólafsfirði
og voru þau mjög hamingjusöm
hvort með annað. Allt sem hún
lærði, ætlaði hún að nota til að búa
sér og honum Nonna sínum gott
heimili, og það tókst svo sannar-
lega, þau eignuðust stóra fjölskyldu
sem þau veittu alla sína ást og um-
hyggju.
Vinátta okkar skólasystranna
hefur haldist ætíð síðan. Við hitt-
umst í saumaklúbbum á veturna og
þá var nú mikið spjallað. Ef Unnur
mætti þá kom hún oftast með gjafir
fyrir okkur, og svo voru teknar
myndir sem hún sendi okkur öllum,
eru þetta allt dýrmætar minningar.
Þegar haldið var upp á 40 ára
skólaafmælið þá buðu þau Unnur
og Jón William okkur að koma og
halda upp á það á Hótel Keflavík,
sem þau og fjölskyldan eiga. Allt
var gert til að láta okkur líða vel og
hafa gaman þessa daga og var
helgin okkur öllum ógleymanleg.
Við þökkum gæða konu gjafir
henni frá
og góða helgi í Keflavík afmælinu á.
Ljúfa skóladaga sem liðu alltof fljótt.
Þér líði vel í eilífðinni, sofðu vært
og rótt.
(Jóna Sigurðardóttir)
Unnur Ingunn var einstök mann-
eskja, gjafmildi og góðvild var
henni í blóð borin og hennar mesta
gleði var að geta glatt aðra.
Í mörg ár hefur hún átt við veik-
indi að stríða, hún tókst á við þau
með æðruleysi og trú sinni á Guð.
Þú gengin ert hugglöð á frelsarans
fund
og fagnar með útvaldra skara,
þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver
und.
Hve gott og sælt við hinn hinsta
blund
í útbreiddan faðm Guðs að fara.
Nú kveðja þig vinir með klökkva
og þrá
því komin er skilnaðarstundin.
Hve indælt það verður þig aftur að
sjá
í alsælu og fögnuði himnum á,
er sofnum vér síðasta blundinn.
(Hugrún)
Kæri Jón William og fjölskylda
ykkar, Lára og fjölskylda, sendum
ykkur innilegar samúðarkveðjur,
Guð styrki ykkur öll.
Fyrir hönd skólasystra frá Hús-
mæðraskólanum Ósk Ísafirði vet-
urinn 1959-1960,
Gunnþórunn Gunnarsdóttir.
Sem „lykilhugtak“ eða „samheiti“
þessarar minningar hef ég valið
orðið „gefandi“. Innan ramma þess
hugsa ég og sé fyrir mér önnur já-
kvæð og fögur orð, (svo sem góð,
trygg, áreiðanleg, réttlát, sönn,
kærleiksrík, hugulsöm örlát,
greind, o.s. frv.) sem öll hæfa henni
einnig vel.
Þetta val er engin tilviljun. Alla
áratugina, sem við höfum þekkzt og
umgengizt, hefur hún jafnan verið
með „fangið fullt“ af gjöfum handa
öðrum. Gjafir hennar voru gjör-
hugsaðar, vandaðar, fjölbreyttar og
miðaðar við þarfir þeirra sem
þiggja skyldu, – og þeir voru marg-
ir.
Systir Unnur var sanntrúuð og
traustur þegn kirkju sinnar. Hún
var drottning heim að sækja, mann-
vinur mikill og mátti ekkert aumt
sjá utan úr að bæta sem bezt hún
gat, og það gerði hún meðal annars
með mikilli gjafmildi sinni. Nú er
hún farin og við þökkum allar góðu
gjafirnar hennar.
Kæri vinur, Jón William, og allir
aðrir ástvinir. Guð blessi ykkur og
styrki. Blessuð veri minning Unnar.
Við kveðjum hana með djúpri virð-
ingu og þakklæti.
Sólveig og Jón Hjörleif-
ur Jónsson.
Við andlát kærrar vinkonu okkar,
Unnar Ingunnar Steinþórsdóttur,
leitar hugur okkar fyrst til Jóns,
eiginmanns hennar og fjölskyldu,
sem drúpir höfði í sorg. Í áratugi
höfum við notið traustrar vináttu
þeirra, vináttu sem aldrei hefur
borið skugga á. Saman höfum við
átt margar gleðistundir á heimilum
okkar, í kirkjunni og á ferðalögum
innanlands og utan.
Ógleymanleg er ferð okkar sam-
an um Danmörku og Noreg á sínum
tíma að ógleymdum heimsóknum til
Ólafsfjarðar, sem alltaf kölluðu
fram sérstakt blik í augum þeirra
beggja. Í öllum þessum ferðum
mundaði Unnur myndavélina af
miklu listfengi og gaf okkur ferða-
söguna í myndum. Fyrir það allt og
minningar tengdar þeirri samveru
þökkum við á kveðjustund. Um-
hyggja, gjafmildi og kærleikur ein-
kenndu samskipti Unnar við alla þá
sem hún umgekkst. Óbifanlegt
trúartraust var það akkeri sem hún
byggði líf sitt á. Ófá voru þéttskrif-
uð kortin, sem hún sendi ættingjum
og vinum með uppörvandi ritninga-
versum, sem jafnframt voru vitn-
isburður um trú hennar. Nú er hún
sofnuð og sefur í friðsæld til upp-
risudagsins, þess dags sem hún
þráði svo heitt.
Jóni, börnum hans og öllum ást-
vinum Unnar sendum við innilegar
samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning yndislegrar
vinkonu.
Helga og Reynir.
Það er með aðdáun og þakklæti
sem við kveðjum Unni Ingunni en
hún hefur nú hlotið hvíld eftir ára-
tuga baráttu við illkynja sjúkdóm
sem lagði hana að velli að lokum. Í
þeirri baráttu var ótrúlegt að fylgj-
ast með æðruleysi og staðfestu
Unnar Ingunnar sem þrátt fyrir
vanlíðan og kvalir gerði sitt ýtrasta
til að halda sínu striki og gera það
sem gæti glatt og bætt vini og
vandamenn. Það var líka aðdáun-
arvert að sjá umhyggju og þolin-
mæði ástvina hennar sem sinntu
henni svo vel til síðustu stundar.
Unnur Ingunn tók trú sína alvar-
lega og vildi láta allt vera gert í
samhljóman við það. Hún lifði sína
trú og gerði svo margt til að gleðja
og líkna, bæði persónulega og með
starfi sínu að líknarmálum á vegum
kirkjunnar sinnar.
Líf Unnar Ingunnar einkenndist
af staðfastri trúmennsku og ótrú-
legri elju, sama hvort um var að
ræða fjölskylduna, líknarstörf eða
vini. Hún hefur kennt mörgum svo
margt og verið afkomendum sínum
sönn fyrirmynd. Er hægt að lífa ár-
angursríkara lífi?
Við sendum Jóni, börnunum,
barnabörnunum og öllum ástvinum
innilegar samúðarkveðjur og biðj-
um Guð að styrkja þau öll og hugga
í harmi sínum.
Einar Valgeir og Karen
Elizabeth.
Frá því við fréttum að elsku Unn-
ur hefði kvatt þetta jarðneska líf,
höfum við hugsað mikið til sam-
verustunda okkar með henni og
hennar fjölskyldu og margvíslegar
minningar hafa skotið upp kollinum
í hugum okkar. Minningar sem lifa
um ókomin ár. Unnur var alltaf
boðin og búin að hjálpa öllum sem
þurftu hjálp.
Var einstaklega góð í því að
gleðja alla, kom alltaf færandi hendi
með hina ýmsu hluti fyrir þá sem
þurftu á því að halda. Hún var frá-
bær ljósmyndari, tók alltaf fallegar
myndir af öllum og hafði mikið fyrir
því að stilla öllum upp og gátu það
verið mjög svo broslegar stundir
þegar það þurfti að færa hina og
þessa hluti til og frá. Og eigum við
margar dýrmætar myndir sem hún
tók af okkur fjölskyldunni.
Hún hélt áfram að hugsa um aðra
þrátt fyrir sín eigin veikindi. Hún
sýndi þvílíkan dugnað og baráttu-
þrek í veikindum sínum. Hún var
algjör hetja. Þetta eru góðar og
ljúfar minngar sem milda sorgina
og minna okkur jafnframt á að
njóta litlu stundanna í lífinu í stað
þess að vera alltaf að bíða eftir ein-
hverju stærra og meira.
Við kveðjum þessa fallegu og
glæsilegu góðu konu en minningin
um hana lifir. Við biðjum góðan guð
að styrkja og vaka yfir Jóni William
og fjölskyldu hans og öðrum að-
standendum sem eiga um sárt að
binda.
Óla, Ingvi
og fjölskylda.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og
vináttu við andlát og útför okkar ástkæru,
KRISTÍNAR BJARGAR PÉTURSDÓTTUR,
Laufvangi 14,
Hafnarfirði.
Pétur Laxdal Egilsson,
Pétur L. Sigurðsson, Helga Guðlaugsdóttir,
Ólafur Sólimann Ásgeirsson,
Ívar Pétursson, Telma Hlín Helgadóttir,
Linda Pétursdóttir,
Kristín Björg Pétursdóttir,
Lilja Sigríður Jensdóttir, Jón S. Þórðarson.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar,
móður, tengdamóður, ömmu og systur,
HELENU SVAVARSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks taugalækninga-
deildar B2 við Landspítalann í Fossvogi, fyrir
einstaka umhyggju og aðhlynningu.
Reynir A. Eiríksson,
Linda Sólveig Birgisdóttir, Svan Hector Trampe,
Brynja Björk Birgisdóttir,
Birgir Fannar Birgisson, Dagmar Valgerður Kristinsdóttir,
barnabörn, systkini hinnar látnu og fjölskyldur.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN ALEXANDERSDÓTTIR,
Ási, Hveragerði,
áður Íragerði,
Stokkseyri,
lést miðvikudaginn 8. september.
Útförin fer fram frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn
18. september kl. 14.00.
Jón Hallgrímsson,
Ragnheiður Hallgrímsdóttir, Birkir Pétursson,
Guðný Hallgrímsdóttir,
Alexander Hallgrímsson, Guðbjörg Birgisdóttir,
Helga Hallgrímsdóttir, Jóhann Þórarinsson,
Benedikt Hallgrímsson, Hulda Hjaltadóttir,
Sigríður Hallgrímsdóttir, Brynjar Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Enginn veit og enginn
sér
hver leiðin er né hvert
mann ber
því lífsins braut er
þyrnum stráð
þótt stundum sé hún spott og háð.
Enginn veit og enginn sér
hvar endinn er né hvenær ber
og enginn vill víst vita það
hvenær tími er að leggja af stað.
(S. Pétursson)
Erla Valdimarsdóttir
✝ Erla Valdimars-dóttir fæddist í
Reykjavík 16. ágúst
1926. Hún andaðist á
heimili sínu 6. sept-
ember 2010.
Útför Erlu fór fram
frá Áskirkju 14. sept-
ember 2010.
Ekkert er sjálfsagt í
lífinu. Kærleikur, um-
burðarlyndi og virðing
fyrir öllu því sem lifir
er það sem gefur lífinu
gildi. Þessi orð finnst
mér lýsandi fyrir Erlu
systur tengdamóður
minnar. Mér þótti afar
vænt um hana því hún
var mér alla tíð ein-
staklega góð og hjálp-
söm. Erla hafði þægi-
lega nærveru, var allt í
senn ljúf, létt og kát.
Hún var raunsæ og
hafði heillandi framkomu. Hennar
verður sárt saknað.
Aðstandendum vil ég senda mínar
innilegustu samúðarkveðjur. Minn-
ingin um góða konu lifir í hjörtum
okkar allra.
Guð blessi minningu hennar.
Erla Ólafsdóttir.