Morgunblaðið - 16.09.2010, Side 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2010
Bækur
Eggjasafn
Gamalt eggjasafn til sölu.
140 stk., 68 tegundir.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Dýrahald
Einstakir Labrador hvolpar
Ættb. HRFÍ. Örm. Heilsufsk.
Uppl. í s. 695 9597.
Whippet strákur Yndislegur
Whippet strákur til sölu. Er 3ja mán.
Ættbók frá HRFÍ. Fullbólusettur og
örm. Uppl. í s. 699 0472.
Garðar
Garðyrkjufræðingurinn Hellulagn-
ir, grjóthleðslur, nýsmíði og endur-
gerð eldri lóða, trjáfellingar. Jóhann
og Mímir garðyrkjufr. S. 869 1600.
Sumarhús
Til sölu bjálkahús
Húsið er 15 fermetra + verönd
Upplýsingar í síma 824-3040 og
893-4609.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig
á hinum ýmsu byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
vefslóð: www.tresmidjan.is.
Eignarlóðir
undir sumarhús til sölu
Í landi Kílhrauns á Skeiðum. 50 mín-
útna akstur frá Reykjavík. Landið er
einkar hentugt til skógræktar og
útivistar. Falleg fjallasýn.
Upplýsingar í símum 824-3040
og 893-4609
Festu þér þinn sælureit í dag.
Verslun
Motivo Selfossi - Sósuskál á
tilboðsverði kr. 4.990
Afmælisgjafir, brúðargjafir og gjafir
handa þér. Motivo, Austurvegi 9,
Selfossi, s. 482-1700, www.motivo.is
Gamaldags og nýmóðins
trúlofunarhringar. Gull, hvítagull,
silfur, titanium, tungsten, rúna- og
höfðaleturshringar á verði við allra
hæfi. Sérsmíði, skart og vönduð úr.
ERNA, Skipholti 3,
s. 5520775, www.erna.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
...þegar þú vilt þægindi
Kr. 6.500,-
Dömu sandalar með frönskum
rennilás. Litir: Ljósblátt, dökkblátt.
Stærðir 36-42.
Bonito ehf. Praxis
Faxafeni 10, 108 Reykjavík
Sími: 568 2878
Opnunartimi: mánud- föstud. kl.
11.00 - 17.00
www.praxis.is
TVEIR SPLÚNKUNÝIR !
Teg. 98880 - létt fylltur og mjög fal-
legur í BC skálum á kr. 4.350,-
Teg. 11864 - spangarlaus
íþróttahaldari í BCD skálum á kr.
4.350,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18.
Laugardaga 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
- vertu vinur
Vandaðir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir og með góðan
sóla.
Stöðugur hæll, 4 - 5 cm
Teg: 7104005
Stærðir: 37 - 42. Litur: svart
Verð: 14.685.-
Teg: 2721
Stærðir: 36 - 42. Litur: svart
Verð: 14.685.-
Teg. 5204
Stærðir: 36 - 41. Litur: svart
Verð: 14.685.-
Sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18.
laugardaga 10 - 14
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR.
Hvert sem er hvenær sem er.
16 manna.
9 manna.
Með eða án ökumanns.
Fast verð eða tilboð.
CC bílaleigan sími 861-2319.
Fellihýsi
Ferðavagnageymsla Borgarfirði
Geymum tjaldvagna, fellihýsi,
hjólhýsi og fleira í upphituðu rými.
Gott verð. S: 899 7012.
E-mail solbakki.311@gmail.com.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
✝ Gísli Ólafs, raf-virkjameistari,
fæddist 3. nóvember
1936 í Reykjavík.
Hann andaðist á
hjúkrunarheimilinu
Eir 8. september 2010.
Foreldrar hans voru
Ólafur B. Ólafs, f. 28.
apríl 1908 í Mýr-
arhúsum á Seltjarn-
arnesi, d. 3. jan. 1945,
og Fríða Kristín Gísla-
dóttir, f. 29. júní 1911,
d. 2. des. 2002. Gísli
var elstur þriggja
bræðra. Hinir eru Björn Ó. Ólafs,
arkitekt, fæddur 9. maí 1939, og Pét-
ur Valur Ó. Ólafs, f. 20. febrúar 1943.
Eftirlifandi eiginkona Gísla er
Ólöf Alda Ólafs, f. 17. nóvember 1940
í Borgarnesi, búsett í Norðurbrú í
Garðabæ. Foreldrar hennar voru
Ólafur Gísli Magnússon, f. 23. sept-
ember 1893, d. 24. mars 1961, og Hlíf
Matthíasdóttir, f. 27. apríl 1899, d.
10. nóv. 1996. Börn
Gísla og Ólafar Öldu
eru Fríða Kristín
Gísladóttir, f. 1959,
Anna Hlíf Gísladóttir,
f. 1963, Bryndís Marsi-
bil Gísladóttir, f. 1965,
Ólafur Gísli Gíslason,
f. 1967, d. 29.5. 1991,
Björn Gíslason, f.
1968. Einnig átti Gísli
soninn Kára Gíslason,
f. 1972. Barnabörnin
eru orðin 10. Aron
Daniel, Andri Ólafur,
Jóel Ólafur Gísli, Indý
Alda, Sindri Snær, Kristín Rós, Há-
kon Máni, Opale Hlíf, Finn Kári og
Magnús Óliver.
Gísli tók sveinspróf í rafvirkjun 20.
júní 1959 og meistarapróf 2. nóv.
1962. Hann var framkvæmdastjóri
hjá Iselco sf.
Gísli verður jarðsettur frá Vidal-
ínskirkju í dag, 16. september 2010,
og hefst athöfnin kl. 13.
Elsku pabbi minn, það er komið
að kveðjustund, stóra stelpan þín
þarf að kveðja þig.
Elsku pabbi, ég dýrkaði þig og þú
varst alltaf hetjan mín. Ég gat alltaf
treyst á þig og fann að ég var um-
vafin öryggi og ástúð. Þér var svo
annt um öryggi okkar og það var
alltaf svo greinilegt að við vorum
elskuð. Þú vildir okkur svo vel, vildir
að við hefðum það svo gott. Það var
að hluta eflaust vegna þess að þú
misstir pabba þinn svo ungur og
þurftir snemma að axla svo mikla
ábyrgð.
Það er stórt verkefni að vera fjöl-
skyldufaðir og þú, elsku pabbi, sinnt-
ir því svo vel. Þú gerðir alltaf við allt
strax og fékkst mig til að hjálpa þér.
Ég var náttúrulega elst og þrátt fyr-
ir að vera stelpa þá dreifst þú mig
með þér í að bera á gluggana, mála
húsið og laga til í bílskúrnum sem
var til fyrirmyndar og öfundaður af
fjölda karlmanna í hverfinu. Þú sást
um öll útiverkin og að draga björg í
bú en þegar inn var komið naust þú
þess að láta stjana við þig.
Elsku pabbi, það var svo notalegt
þegar þú varst að kíkja inn til mín
þegar ég var að lesa uppi í rúmi á
kvöldin til að passa upp á það að ég
hefði nógu góða birtu til að lesa við.
Pabbi minn, þú varst duglegur við
að hlúa að hæfileikum mínum, smíð-
aðir til dæmis handa mér teikniborð
til þess að ég gæti nú hannað við það
og varst með óteljandi hugmyndir
um hvernig mætti breyta þessum
hæfileikum mínum í pening.
Pabbi, nú ert þú loksins laus við
allar líkamlegar þjáningar og ég er
svo þakklát fyrir það að þú fékkst að
fara. Andlát þitt hefur dýpkað skiln-
ingarvitin mín.
Hvíl í friði, elsku pabbi minn, þú
verður ávallt hetjan mín og ég elska
þig.
Þín dóttir,
Fríða Kristín Gísladótttir.
Elsku pabbi minn.
Þú varst alltaf til staðar fyrir
mig, hjálpsamur og gjafmildur og
þú treystir mér alltaf. Við áttum
saman viðskiptin að áhugamáli og
bíladelluna. Ég man brosandi dag-
inn sem ég sá æðislegan bíl og kom
hlaupandi til þín, hvað gerðir þú?
Nú, þú lánaðir mér fyrir bílnum.
Elsku pabbi, þetta er nú bara
dropi í hafið af öllu sem þú gerðir
fyrir mig. Ég elska þig.
Þín dóttir,
Anna Hlíf Gísladóttir.
Elsku pabbi minn.
Loksins fékkst þú hvíldina eftir
löng veikindi, sem þú barðist við
eins og hetja. Þú varst hetjan mín,
alltaf hér þegar ég þurfti á þér að
halda, vinur minn og verndari. Ég
þakka fyrir að þú varst pabbi
minn.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Bryndís Marsibil.
Kæri pabbi minn.
Ég þakka þér kærlega fyrir allar
skemmtilegu veiðiferðirnar og allar
ferðirnar á bílasölur og bílasýn-
ingar. Ég man sérstaklega eftir
þínum fallegu bílum eins og Volvo
240 Gh, Chevrolet Cabric Classic
og Oldsmobile bílnum. Einnig
minnist ég allra skemmtilegu sam-
verustundanna okkar í vinnunni
hjá Iselco. Við ræddum oft um vél-
ar eins og Griggio trésmiðjavélar,
Robland trésmiðja vélar og verk-
færi frá Beta, Vaco, Crescent, Vell-
er og fleiri. Öll þín áhugamál voru
þau sömu og mín.
Ég mun sakna þín mjög mikið,
elsku pabbi minn.
Guð geymi þig, pabbi.
Þinn sonur,
Björn Gíslason.
Gísli Ólafs
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 14. september var
spilað á 16 borðum.
Úrslit urðu þessi í N/S
Júlíus Guðmss. – Óskar Karlsson 380
Sverrir Jónsson – Óli Gíslason 360
Bragi Björnsson – Bjarnar Ingimars 340
Ragnar Björnsson – Pétur Antonss. 333
A/V
Stefán Ólafsson – Jón Ól. Bjarnason 404
Ágúst Stefánsson – Helgi Einarsson 370
Bragi V. Björnsson – Guðrún Gestsd. 358
Kristján Þorlákss. – Haukur Guðmss. 346
Bridsfélag Reykjavíkur
Fyrsta spilakvöld vetrarins var
14. september og sigruðu Jón Ing-
þórsson og Hermann Friðriksson
með yfirburðum.
Lokastaðan var þessi
Jón Ingþórss. - Hermann Friðrikss.
61,7%
Guðm. Baldurss. - Steinberg Ríkarðss.
58,3%
Karen Haslund - Sören Haslund 57,2%
Næst verður spilað fyrsta kvöld
í þriggja kvölda Butlertvímenn-
ingi.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Elsku Ingibjörg.
Mig langar að til-
einka þér þetta fallega
ljóð og þegar ég hlusta
á flutning Buffsins á
ljóði og lagi, þá minn-
ist ég þín:
Jörð, vatn og eldur
undir himnasal.
Út við heimsins ysta haf
gnæfa tindar
gulli roðnir sól.
Leika þar álfar eilífðarlag
landvætta.
Úr helgum lundi heyra má
huldumeyjar bæn um vernd og blessun
þessa lands.
Ingibjörg Sigurðar
Soffíudóttir
✝ Ingibjörg fæddistí Reykjavík, 13.
janúar 1953. Hún lést
á heimili sínu 1. sept-
ember 2010.
Jarðarför Ingi-
bjargar fór fram frá
Hallgrímskirkju 9.
september 2010.
Fyrir þig það er,
þú unga Íslands barn.
Allt sem landið á að gjöf
er í hjarta þínu,
Íslands barn.
Bjargið háa klýfur brim,
blómstrar heiði,
út við ysta haf.
Undir háum himnasal
gnæfa tindar,
gæfu þinnar skjól.
Leika þar álfar
unaðarsöng
eilífðar.
Fyrir þig það er,
þú unga Íslands barn.
Allt sem landið á að gjöf
er í hjarta þínu,
Íslands barn.
Hafðu þökk fyrir allt og allt og far
þú í friði.
Þín systir,
Helga.