Morgunblaðið - 16.09.2010, Side 30
30 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
8
2 7 6 9
9 2 4
7 2 9 5 3
8 4 9
3 7 4
5
7 8
3 6 5
1
2 9
6 3 4 9
5 6 9
7 3 4 2
2 1 6 3
7 3 2
3 5
9 6 5
1 7
6 2
8 5 9 7
8 2 1
3 1 4 6
8
4
4 6 7
7 1 4 3 5 2
8 2 5 7 6 4 3 1 9
3 6 4 5 1 9 7 2 8
1 9 7 8 3 2 5 4 6
7 4 2 1 9 6 8 5 3
9 3 1 2 5 8 6 7 4
5 8 6 4 7 3 2 9 1
2 1 9 3 8 5 4 6 7
6 5 8 9 4 7 1 3 2
4 7 3 6 2 1 9 8 5
6 9 8 7 5 2 1 4 3
1 5 7 6 4 3 2 9 8
2 3 4 8 9 1 7 5 6
5 2 6 3 7 9 4 8 1
7 4 9 2 1 8 3 6 5
3 8 1 4 6 5 9 2 7
4 7 5 9 3 6 8 1 2
9 1 2 5 8 7 6 3 4
8 6 3 1 2 4 5 7 9
8 6 4 3 7 2 5 1 9
9 2 5 8 1 4 6 3 7
1 7 3 5 6 9 2 8 4
3 4 2 7 5 1 8 9 6
6 5 9 2 3 8 4 7 1
7 1 8 4 9 6 3 5 2
4 8 7 1 2 5 9 6 3
2 3 6 9 8 7 1 4 5
5 9 1 6 4 3 7 2 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 16. september,
259. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Því að ekkert er hulið,
sem eigi verður opinbert, né leynt, að
eigi verði það kunnugt og komi í ljós.
(Lk. 8, 17.)
Víkverji er ánægður með þáspennu, sem hlaupin er í úr-
valsdeild karla í knattspyrnu. Lið
KR er farið að minna á David
Wottle, sem varð ólympíumeistari í
800 m hlaupi árið 1972. Wottle var
aftastur í upphafi hlaups og nokkuð
langt á eftir aftasta manni, en smátt
og smátt seiglaðist hann fram úr
hinum hlaupurunum og eftir ólík-
indalegan endasprett tókst honum á
síðustu metrunum að stinga sér
fram fyrir þá alla og hrifsa gullið.
x x x
Tímabilið hófst ekki gæfulega hjáKR-ingum. Eftir fimm umferð-
ir var liðið í þriðja neðsta sæti með
þrjú stig, hafði tapað tveimur leikj-
um og gert þrjú jafntefli. Nú hefur
dæmið snúist við hjá liðinu. Það er í
fjórða sæti með 34 stig og aðeins
þremur stigum á eftir Breiðabliki,
sem er í fyrsta sæti. KR leikur í dag
við Breiðablik og ef Blikarnir blikna
komast KR-ingar upp að hlið þeirra.
Á sama tíma taka Selfyssingar á
móti ÍBV, sem er í öðru sæti, og
Stjarnan á móti FH-ingum, sem eru
í þriðja sæti. Sigri KR og ÍBV og FH
sömuleiðis gætu Eyjamenn endur-
heimt efsta sætið í deildinni. Margir
eru þeirrar hyggju að ÍBV sé lík-
legra en FH til að tapa stigum á
lokasprettinum. FH-ingar máttu
þakka sínum sæla að fara með þrjú
stig úr Vesturbænum í næstsíðustu
umferð og sömuleiðis að hirða öll
stigin í viðureigninni við Selfoss í
síðustu umferð. Meistaraheppni?
spyrja sumir.
KR-ingar geta vissulega orðið
meistarar, en þeir gætu líka þegar
upp er staðið verið að greiða götu
annarra. ÍBV datt úr efsta sætinu
eftir tap gegn KR í Eyjum. Í dag
gæti KR kostað Breiðablik efsta
sætið. Í leikslok gæti staðan jafnvel
verið sú að KR greiddi götu FH að
titlinum og myndi mörgum stuðn-
ingsmönnum KR þykja súrt í broti
eftir afhroðið í bikarleiknum gegn
Hafnarfjarðarliðinu. Víkverja finnst
hins vegar KR-ingar komnir á svo
hálan ís í umræðu um dómarann í
þeim leik að hann skammast sín fyr-
ir að vera KR-ingur. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 blettur, 4 á hesti, 7
smáöldum, 8 tröllum, 9 töng-
um, 11 blóma, 13 drepa, 14
brúkar, 15 kjaft, 17 sjófugl,
20 snjó, 22 nytjalöndin, 23
málgefin, 24 rjóða, 25 af-
komandi.
Lóðrétt | 1 atgervi, 2 hluta,
3 sárt, 4 sorg, 5 vatnsfalla, 6
deila, 10 kærleikurinn, 12
elska, 13 augnalok, 15 fæði,
16 konu, 18 um garð gengið,
19 mannsnafn, 20 venda, 21
kindin.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 lystisemd, 8 lagin, 9 engil, 10 inn, 11 sorps, 13 dorma,
15 skraf, 18 ómerk, 21 jól, 22 lynda, 23 grunn, 14 ruglingur.
Lóðrétt: 2 ylgur, 3 Túnis, 4 stend, 5 magur, 6 glás, 7 elda, 12
púa, 14 orm, 15 sýll, 16 runnu, 17 fjall, 18 ólgan, 19 efuðu, 20
kunn.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Rf3 b6
5. Bg5 Bb7 6. Rd2 Rc6 7. e3 Re7 8.
Bxf6 gxf6 9. Db3 Bxc3 10. Dxc3 Rg6
11. e4 De7 12. O-O-O e5 13. d5 c6 14.
Kb1 O-O-O 15. g3 Kb8 16. h4 Hc8 17.
Df3 Hhd8 18. Bh3 Rf8 19. Hc1 cxd5 20.
cxd5 Db4 21. De3 Ba6 22. a3 Db5 23.
Ka2 Da4 24. b3 Da5 25. Kb2 Hxc1 26.
Hxc1 Hc8 27. Hxc8+ Kxc8 28. b4 Da4
29. Df3 Rg6 30. Dxf6 Bd3
Staðan kom upp á franska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í
Belfort. Etienne Bacrot (2720) hafði
hvítt gegn Andrey Sokolov (2596). 31.
Dc6+! Dxc6 32. dxc6 Kc7 33. Bxd7
Re7 34. Kc3 Bb5 35. Rf3 f6 36. Rh2
Bxc6 37. Bxc6 Kxc6 38. Rg4 Rg8 39.
a4 a6 40. Re3 og hvítur innbyrti vinn-
inginn skömmu síðar.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Hvít lygi.
Norður
♠Á96
♥1096
♦1094
♣ÁKG2
Vestur Austur
♠2 ♠D10873
♥KG3 ♥872
♦D8765 ♦KG2
♣7654 ♣93
Suður
♠KG54
♥ÁD64
♦Á3
♣D108
Suður spilar 3G.
Góð vörn byggist á heiðarlegu sam-
tali, en annað slagið koma upp stöður
þar sem hvít lygi er lífsnauðsyn. Í und-
anúrslitum bikarkeppninnar voru 3G
spiluð á öllum borðum. Útspilið var tíg-
ull upp á kóng og dúkkað. Nú sýndu
Austmenn, allir með tölu, þá framsýni
að spila ♦2 um hæl, frekar en gos-
anum. Sú sannleiksfölsun er nauðsyn-
leg, því annars getur sagnhafi enda-
spilað vestur í tígli og fengið sendingu
upp í hjartagaffalinn.
En það tekur á að skrökva. Eftir
ósannsöglina í tíglinum gátu Austmenn
ekki lengur hamið sig og sögðu satt og
rétt frá hálitunum: hentu kallspili í
spaða í þriðja laufið, svo frávísandi
hjarta í það fjórða. Tveir sagnhafar
trúðu því augljósa og svínuðu í spaða
frekar en hjarta.
16. september 1944
Bandarísk flugvél af gerðinni
B-17, sem nefndar voru fljúg-
andi virki, brotlenti á Eyja-
fjallajökli. Tíu manna áhöfn
komst til byggða við illan leik.
Meira en hálfri öld síðar fund-
ust hlutar úr flugvélinni.
16. september 1963
Lyndon B. Johnson, þáverandi
varaforseti Bandaríkjanna,
kom í opinbera heimsókn til
Íslands og var vel fagnað. Í
ávarpi sagði hann: „Íslend-
ingar standa með þeim sem
vilja frelsi og frið.“ Rúmum
tveimur mánuðum síðar tók
hann við forsetaembættinu
þegar John F. Kennedy var
myrtur.
16. september 2004
Mikið tjón varð í óveðri sunn-
anlands og austan og ferða-
menn lentu í hrakningum.
Skriður lokuðu Hvalnes-
skriðum, þak fauk af hóteli í
Skaftafelli, tré klofnuðu og
kornakrar skemmdust.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Fjörið sem alltaf var á þessum böllum er eftir-
minnilegast. Það var mikið dansað,“ segir Rúnar
Guðjónsson, húsvörður og rokksöngvari, þegar
hann rifjar upp gamla tíma. Rúnar verður sjötugur
í dag. Hann hefur reynt að verjast ásókn barna
sinna um að halda upp á afmælið en sýnist að niður-
staðan verði sú „að fjölskyldan sameinist um að
hylla kallinn á einhverju heimilinu“.
Rúnar byrjaði að syngja með hljómsveitum átján
ára gamall og kom víða við á ferlinum. Hann hætti
um 1980. „Ég var að syngja á Röðli og Klúbbnum
þegar ég gekk út frá 100 laga prógrammi, sagði
bless strákar, ég kem aldrei aftur. Þeir trúðu því ekki en ég stóð við
orðin,“ segir Rúnar. Hann hefur þó ekki staðist áskorunina þegar
haldnar hafa verið rokkhátíðir og syngur enn í brúðkaupum og við
ýmsar athafnir enda röddin óbiluð.
Rúnar vann alltaf aðra vinnu, var prentari og stöðvarstjóri á bensín-
stöðvum og er nú húsvörður í Skúlagötu 20. „Ég stekk um allt eins og
tvítugur maður,“ segir hann og nefnir vin sinn og jafnaldra, Ómar
Ragnarsson, í því sambandi, segir ekki leiðum að líkjast. Kona Rúnars
er Birna Magnúsdóttir. Hann á fjögur börn og fjölskyldan er orðin stór.
Rúnar Guðjónsson rokksöngvari sjötugur
Alltaf fjör á böllunum
Nýirborgarar
Reykjavík Halen Alexand-
er fæddist 7. mars kl. 18.35.
Hann vó 3.820 g og var 55,9
cm langur. Foreldrar hans
eru Tami A. Horvath-
Símonarson og Gissur Sím-
onarson.
Flóðogfjara
16. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.02 2,9 6.09 1,5 12.51 3,0 19.22 1,6 6.54 19.52
Ísafjörður 2.08 1,5 8.20 0,9 15.12 1,7 21.54 0,8 6.57 19.59
Siglufjörður 4.54 1,1 10.31 0,7 16.55 1,2 23.39 0,6 6.39 19.43
Djúpivogur 2.53 0,8 9.50 1,7 16.15 1,0 22.01 1,5 6.23 19.22
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Láttu engan segja þér fyrir verkum
en hlustaðu samt á þær raddir sem tala til
þín af vinarhug. Rannsakaðu sjálfan þig.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er engin ástæða til þess að láta
hugfallast, þótt á móti blási um stund.
Slepptu takinu og láttu aðra um sig.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Nú er komið að því að þú reynir
eitthvað sem þú hefur aldrei upplifað áður.
Vertu óhræddur við að segja þína meiningu
því annað leiðir bara til vandræða.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú átt erfitt með að gera það upp við
þig hvort þú eigir að setja sjálfa/n þig eða
aðra í forgang í dag. Láttu ekkert komast upp
á milli þín og vinar þíns.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú þarft að kafa til botns í hverju máli í
stað þess að skoða bara yfirborðið og reyna
að leysa málin með þeim hætti. Notaðu tæki-
færið til að vinna að hugarefnum þínum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Nú er rétti tíminn runninn upp til að
inna af hendi eitt og annað sem þú hefur látið
reka á reiðanum. Geymdu stórinnkaup sem
tengjast vinnunni þar til á morgun.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þér verður óvenju vel úr verki þessa dag-
ana og afköstin eru eftir því. Athugaðu hvort
ekki má einfalda málin.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Samræður ættu að verða
ánægjulegar í dag, en munu samt sem áður
koma á óvart á einhvern hátt.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú hefur mjög oft verið í betra
sambandi við sjálfan þig. Ekki til að verða
betri manneskja, heldur skilur þú að með því
að kenna lífinu um allt, rætast engir draumar.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú munt hugsanlega játa ein-
hverjum ást þína í dag. Reyndu að vera
viðbúinn eins og kostur er svo að þú getir
dregið úr afleiðingunum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Heilinn í þér þarfnast þjálfunar,
rétt eins og líkaminn. Taktu því aðfinnslum
vinar þíns vel, en mundu hverjir eru viðhlæj-
endur og bíða þess eins að þér mistakist.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er eðlilegt að þér líði illa þegar til-
finningar þínar eru dregnar í efa. Af hverju
ekki að gerast ferðamaður í dag?
Stjörnuspá
Gunnar Páls-
son, Skúlagötu
20, Reykjavík,
verður áttatíu og
fimm ára 18.
september næst-
komandi. Ætt-
ingjum og vinum
er boðið að sam-
gleðjast honum
og fjölskyldu hans á afmælisdaginn
frá kl. 14 til 17, í veislusal Hrafnistu
í Hafnarfirði á 5. hæð. Gjafir vin-
samlegast afþakkaðar.
85 ára