Morgunblaðið - 16.09.2010, Blaðsíða 32
32 MENNINGMenning
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2010
Nætskomandi sunnudag
verður hátíðamessa á kirkju-
degi Langholtssafnaðar helg-
uð aldarminningu séra Árel-
íusar Níelssonar. Árelíus var
fyrsti sóknarprestur Lang-
holtssafnaðar og þjónaði
söfnuðinum frá 1952 til 1980.
Brugðið verður upp mynd-
um af Árelíusi, sungnir sálm-
ar og veraldleg ljóð eftir hann
og sýndir munir og myndir
sem tengjast honum og þá sérstaklega þjónustu
hans í Langholtsprestakalli. Kristján Valur Ing-
ólfsson predikar og þjónar ásamt sóknarpresti.
Gradualekór Langholtskirkju syngur undir
stjórn Jóns Stefánssonar, organista.
Prestsminning
Aldarminning Ár-
elíusar Níelssonar
Árelíus
Níelsson
Næstkomandi laugardag kl.
14:00 opnar Hulda Vilhjálms-
dóttir sýningu í Listasal Mos-
fellsbæjar. Á sýningunni, sem
Hulda nefnir Sjálfsmynd/
identity/hidden identity eru mál-
verk, teikningar og skúlptúrar.
Sýningin er opin á afgreiðslu-
tíma Bókasafns Mosfellsbæjar.
Hulda lauk námi frá myndlist-
ardeild Listaháskóla Íslands árið
2000. Hulda hefur sýnt mikið hér
á landi og erlendis. Hún var með Grasrótarsýn-
inguna Grasrótin er villt í Nýló árið 2006 undir
stjórn Andreu Maack, Hugins Þórs Arasonar og Jó-
hannesar Atla Hinrikssonar. Árið 2009 komst
Hulda í undanúrslit fyrir Carnegie-verðlaunin.
Myndlist
Hulda sýnir í Lista-
sal Mosfellsbæjar
Hulda
Vilhjálmsdóttir
Næstkomandi laugardag verð-
ur einleikur Kára Viðarssonar,
Hetja, endurfrumsýndur í
Landnámssetrinu. Verkið var
sýnt í Rifi á Snæfellsnesi fyrr í
sumar, en verður nú fært um
set og sett á svið í Borgarnesi.
Hetja er gamanleikur
byggður á Bárðarsögu Snæ-
fellsáss og fjallar um þá feðga
Bárð Snæfellsás, landnáms-
mann á Snæfellsnesi, og Gest
son hans. Rétt eins og sagan er verkið ýkt og ótrú-
legt og reynir á ímyndunarafl áhorfandans. Hetja
er þroskasaga um feðga, fyrir feðga og alla þá sem
þekkja feðga eða tengjast feðgum á einhvern hátt.
Sýningin er klukkutíma löng.
Leiklist
Hetja flytur sig í
Landnámssetrið
Kári
Viðarsson
Í breska þjóðarsafninu, British Mu-
seum, er grúi merkra gripa. Meðal
þeirra helstu er sívalningur úr leir
sem kenndur er við Kýrus mikla,
Persakonung og konung Medíu,
sem lagði Babýlon undir sig árið
539 f.Kr. Sá sívalningur fannst á
nítjándu öld og er honum lýst svo
að enginn stakur munur segi eins
ríkulega sögu Mið-Austurlanda.
Eins hefur hann verið talinn fyrsti
vitnisburður þess að menn hafi látið
sig varða mannréttindi, enda er
Kýrus talinn hafa verið sá sem
leyfði gyðingum að snúa aftur út
útlegðinni í Babýlon og eins að
hann hafi komið á trúfrelsi í ríki
sínu, eða það er að minnsta kosti
gefið í skyn á sívalningnum. Fyrir
vikið er eftirmynd sívalningsins til
sýnis á áberandi stað hjá mannrétt-
indaskrifstofu SÞ.
Íranar og Bretar hafa deilt um
eignarrétt á gripnum og þegar
hann var lánaður til Írans 1971
börðust fjölmiðlar í Íran fyrir því
að honum yrði ekki skilað. Fyrir
vikið hafa Bretar verið tregir til að
lána hann þangað aftur, en nú
stendur til að hann verði sendur til
Írans aftur á næstu dögum eftir
fjögurra ára þref. Sívalningurinn
verður síðan til sýnis í þjóðminja-
safni Írans í Teheran fram yfir ára-
mót.
Gersemi Sívalningur Kýrusar.
Sívalningur
Kýrusar til
sýnis í Íran
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Sópransöngkonan Emma Bell verð-
ur í aðalhlutverki á sinfóníutón-
leikum í kvöld, syngur Fjóra síðustu
söngva Richards Strauss sem hann
samdi ári fyrir dauða sinn. Emma
Bell hefur getið sér gott orð ytra,
meðal annars sungið við Metropolit-
an-, Covent Garden- og Glyndebo-
urne-óperuhúsin, en hún er Íslend-
ingum líka að góðu kunn, syngur nú
hér í þriðja sinn. Í þeim heimsóknum
hefur hún einu sinni sungið með sin-
fóníunni, í júní á síðasta ári og söng
þá Knoxville, Summer of 1915 eftir
Samuel Barber við smásögu James
Agee. Þá lét gagnrýnandi Morgun-
blaðsins svo um mælt að hann hefði
aldrei heyrt hana í eins góðu formi:
„Galdurinn öðlaðist líf í hástemmdri
túlkun söngkonunnar. Fegurðin var
slík að mann langaði strax til að
heyra tónsmíðina aftur.“
Ætli þetta sé dauðinn?
Að þessu sinni syngur Emma Bell
Fjóra síðustu söngva Richards
Strauss, Vier letzte Lieder, sem
hann samdi við ljóð eftir Joseph von
Eichendorff og Hermann Hesse.
Söngvarnir voru það síðasta sem
Strauss samdi og fjalla um dauðann,
sem hefur verið honum hugleikinn,
enda var hann þá 84 ára. Í söngv-
unum má greina að Strauss er sadd-
ur lífdaga og sáttur, eins og segir í
einu ljóðanna: Ó, hve við erum veg-
móðir / ætli þetta sé dauðinn? Þegar
ég ber það undir Emmu hvort það sé
ekki meiri dramatík og þungi í
söngvum Strauss en í æskuminn-
ingum Barber / Agee verður hún
hugsi og svarar svo: „Ekki endilega
meiri dramatík,“ segir hún og bætir
við að það sé talsverður tilfinn-
ingaþungi í verki Barbers. „Það er
þó gríðarlegur þungi í síðustu setn-
ingu síðasta söngsins, þar sem
skáldið spyr hvort þessi wander-
müde, vegþreyta, sé dauðinn,“ segir
hún og verður svo hugsi að nýju:
„Kannski vantar mig dramatík í
túlkunina, kannski verður þetta allt
ómögulegt hjá mér,“ segir hún al-
varleg í bragði en skellihlær svo og
greinilegt að hún er að hrekkja mig.
Emma segir að Strauss-söngvarn-
ir hafi fylgt henni að segja alla ævi,
því hún hafi byrjað að hlusta á þá í
kjölfar þess að hún ákvað að verða
söngkona. „Mér hefur ekki þótt ég
vera tilbúin til að syngja þá fyrr en
nú. Þetta er erfitt verk að flytja, erf-
itt að syngja á móti hljómsveitinni,
enda þannig skrifað að hætt er við
því að söngvarinn sökkvi í tónlistina.
Það gekk þó mjög vel á æfingunni og
við sjáum til hvernig gengur.“
Morgunblaðið/Golli
Tilfinningaþungi Sópransöngkonan Emma Bell syngur Fjóra síðustu
söngva Richards Strauss með sinfóníunni á tónleikum í kvöld.
Hugleiðingar
um dauðann
Strauss og Mahler
» Tónleikar sinfóníunnar með
Emmu Bell verða kl. 20 í kvöld
» Auk síðustu söngva Strauss
verður flutt Sinfónía nr. 1 eftir
Gustav Mahler
» Lionel Bringuier stýrir
hljómsveitinni í kvöld
Sinfónían spilar Strauss og Mahler
Fyrstu tónleikar starfsársins í Tónleikasyrp-
unni 15:15 í Norræna húsinu verða næstkom-
andi sunnudag klukkan 15:15. Kammerhóp-
urinn Camerarctica ríður á vaðið og leikur
tónlist fyrir klarínett, strengi og píanó eftir
tónskáld frá Austur-Evrópu; klarínettkvartett
eftir Ungverjann Kókai Rezsö, sem er m.a.
byggður á ungverskum dönsum, og Pólverjann
Krzysztof Penderecki. Á efnisskránni eru einn-
ig stutt einleiksverk fyrir selló og klarínett eftir
Rússana Alfred Schnittke og Igor Stavinskíj og
að síðustu trió fyrir klarínett, fiðlu og píanó eft-
ir armenska tónskáldið Aram Khatsjaturían
þar sem þjóðlagastef og villtir dansar eru
ríkjandi.
Gestur á þessum tónleikum sem bera yf-
irskrifina Tónaljóð og dansar úr austri er Ing-
unn Hildur Hauksdóttir píanóleikari en Ca-
merarctica skipa að þessu sinni Ármann
Helgason klarinettuleikari, Hildigunnur Hall-
dórsdóttir fiðluleikari, Guðrún Þórarinsdóttir
víóluleikari og Sigurður Halldórsson sellóleik-
ari. Efnisskráin sem spannar síðustu öld tekur
um klukkutíma í flutningi og verða tónverkin
kynnt stuttlega á tónleikunum.
Tónaljóð og dansar úr
austri klukkan 15:15
Tónaljóð Camerarctica hópurinn leikur austur-evrópska tónlist
í Norræna húsinu kl. 15:15 næstkomandi sunnudag.
Tónleikasyrpan 15:15 hefst að nýju í Norræna húsinu
Tvær uppfærslur Útvarpsleikhúss-
ins eru tilnefndar til evrópsku verð-
launanna Prix-Europa 2010. Prix-
Europa er stærsta verðlaunahátíð
útvarps- og sjónvarpsefnis í Evrópu.
Í ár voru send í keppnina 108 út-
varpsverk og 40 þeirra, frá 35 lönd-
um, fengu tilnefningu.
Einfarar eftir Hrafnhildi Hagalín
í leikstjórn hennar sjálfrar og hljóð-
vinnslu Einars Sigurðssonar, er til-
nefnt til verðlauna í flokki leikrit-
araða/framhaldsleikrita. Einfarar er
sex þátta röð sem flutt var í
tengslum við sjónvarpsþáttaröðina
Persónur & leikendur.
Blessuð sé minning næturinnar
eftir Ragnar Ísleif Bragason, með
tónlist eftir Önnu Þorvaldsdóttur, í
leikstjórn Símons Birgissonar og
hljóðvinnslu Georgs Magnússonar,
er tilnefnt í flokki stakra leikrita.
Blessuð sé minning næturinnar var
frumflutt um síðustu páska.
Prix-Europa verður haldin vikuna
16. – 23. október næstkomandi. og
eru fjölskipaðar dómnefndir að
störfum alla vikunu. Verðlaunahafar
eru síðan kynntir í lok hátíðarinnar
laugardaginn 23. október.
Leikrit tilnefnd
til verðlauna
Uppfærslur tilnefndar til Prix-Europa
Morgunblaðið/RAX
Röð Herdís Þorvaldsdóttir og Bryn-
dís Pétursdóttir voru meðal Einfara.
Björn vaknar einn
morguninn með horn
á höfðinu. Hann veit ekki af
hverju hann er með horn á
höfðinu 33
»