Morgunblaðið - 16.09.2010, Side 34
Fleiri myndir en nokkru sinni áður verða sýndar á RIFF í ár Áherslan er lögð fyrst og fremst á
unga og upprennandi leikstjóra Íslenskar myndir hafa aldrei verið fleiri, 28, stuttar sem langar
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Í gær var blaðamannafundur hald-
inn í tilefni af því að Alþjóðleg
kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF,
hefst eftir viku, 23. september. Í ár
verða sýndar 140 kvikmyndir frá
29 löndum og lýkur hátíðinni 3.
október. Hátíðin var fyrst haldin í
nóvember árið 2004 og voru 18
myndir sýndar á þeirri hátíð. Það
má því segja að henni hafi vaxið
fiskur um hrygg, eða kannski frek-
ar hvalur. Spurð að því hvort há-
marksfjölda mynda væri náð með
hátíðinni í ár svaraði Hrönn Mar-
ínósdóttir, stjórnandi hátíðarinnar,
því til að lengi mætti bæta við og
benti á að allar myndir, stutt-
myndir líka, væru meðtaldar í fyrr-
nefndri tölu, 140. Íslenskar myndir
hefðu aldrei verið fleiri en í ár, 28
talsins.
Hrönn sagði í upphafi blaða-
mannafundar að gríðarleg vinna
stórs hóps lægi að baki hátíðinni í
ár, bæði hér á landi sem erlendis,
og nefndi hún sérstaklega starf
dagskrárstjórans gríska, Dimitri
Eipides. Aldrei hafa jafnmargar
myndir verið á RIFF og í ár og
sagði Hrönn að þakka mætti stuðn-
ingi góðra bakhjarla, m.a. Reykja-
víkurborgar, menntamálaráðuneyt-
isins og fyrirtækja.
Hrönn sagði að mikill uppgangur
hefði orðið í heiminum í heimild-
armyndagerð á seinustu árum, um
pólitísk mál og samfélagsleg, mann-
réttinda- og umhverfismál. Því
hefði nýjum flokki verið bætt við
RIFF, Betri heimi, þar sem mynd-
ir sem fjalla um mannréttindi verða
sýndar. „Þessi samfélagslega og
pólitíska vitund birtist einnig í
leiknum myndum síðustu ára,“
sagði Hrönn og þar mætti sjá
raunsæisleg tök á umfjöllunarefn-
inu, félagslegt raunsæi, og kannski
væru það eftirköst árþúsundamót-
anna, árásanna 11. september 2001,
stríðsátaka í heiminum og umfjöll-
mikið prógramm í kringum þetta
fyrir krakka í grunnskóla og á leik-
skólaaldri líka,“ sagði Hrönn og
bætti við að hátíðin væri fyrir al-
menning en einnig fyrir íslenska
kvikmyndageirann. Fulltrúar frá
stórum dreifingafyrirtækjum og
kvikmyndahátíðum væru vænt-
anlegir til landsins og blaðamenn,
m.a., alls um 200 gestir. Tilgang-
urinn sá að koma íslenskri kvik-
myndagerð á framfæri og mynda
tengsl milli landa. „Að vekja áhuga
á Íslandi sem kvikmyndalandi og
kynna íslenska framleiðslu,“ eins
og Hrönn orðaði það. Meðal þeirra
fyrirtækja sem senda fulltrúa sína
eru Magnolia Pictures, Match Fac-
tory og Fortissimo Films. Kvik-
myndasmiðjan mun svo standa yfir
í fjóra daga og meðal fyrirlesara í
ár eru Valdís Óskarsdóttir, Peter
Wintonick, Cameron Bailey og Jim
Jarmusch.
Menningartengd ferðaþjónusta
En er RIFF komið á hið al-
þjóðlega kvikmyndahátíðakort?
Eru útlendingar að koma sér-
staklega á hátíðina? „Já, það eru
stórir túristahópar að koma, við
höfum verið mjög dugleg að kynna
prógrammið og þessi menning-
artengda ferðaþjónusta hefur verið
að færast í vöxt, ekki spurning, og
við fáum fullt af fyrirspurnum. Ég
veit til þess að það eru hópar að
koma, bæði frá Bandaríkjunum og
Kanada, sérstaklega á hátíðina og
ferðast þá um landið líka,“ svarar
Hrönn og bætir við í lokin að fólk
vilji sjá annað en það sem sé vana-
lega í bíó. Og RIFF verði við þeirri
ósk.
Úr 18 kvikmyndum í 140
Dagskráin Hrönn sýnir þykkan dagskrárbækling hátíðarinnar, nýkominn úr prentsmiðjunni.
unar um umhverfisvanda heimsins
og efnahagshrunið á Vesturlöndum.
Að stíga ölduna
„Ef ég ætti að segja hvort mynd-
ir ársins ættu eitthvað sameiginlegt
þá held ég að það sé einmitt til-
hneiging til að staðsetja okkur í
þessum heimi, að fóta okkur í þess-
um óróa sem nú ríkir og stíga öld-
una. Til þess að taka þátt í því sem
er að gerast í heiminum í dag erum
við t.d. að bjóða upp á fyrirlestur
eins áhugaverðasta samfélags-
gagnrýnanda Bandaríkjanna,
Noams Chomskys, en hann mun
tala í beinni útsendingu frá skól-
anum sínum, MIT, um áhrif hruns-
ins, umhverfismál og margt fleira.
Við fáum líka til okkar bandaríska
leikstjórann Jim Jarmusch sem er
tvímælalaust einn af áhrifamestu
og athyglisverðustu mönnum í
sjálfstæðri kvikmyndagerð í heima-
landi sínu, Bandaríkjunum. En að
vanda verður áherslan fyrst og
fremst á unga og upprennandi
kvikmyndaleikstjóra, fólkið sem
mun móta kvikmyndasýn komandi
ára. Í keppnisflokknum Vitrunum
verða sýndar tólf glænýjar frum-
raunir eftir jafnmarga leikstjóra en
þar er glíman við óreiðu tímans
mjög augljós,“ sagði Hrönn. Þá
yrðu einnig sýndar myndir sem
vakið hefðu mikla athygli á erlend-
um kvikmyndahátíðum undanfarna
mánuði, í tveimur flokkum, Kast-
ljósinu og Fyrir opnu hafi.
Kvikmyndasmiðja, málþing,
barnamyndir og kynning
„Eins og undanfarin ár, og
kannski meira nú í ár en und-
anfarið, þá leggjum við mjög mikla
áherslu á masterklassa og málþing,
erum með mikla áherslu á barna-
myndir í ár og skipuleggjum heil-
Miðasala á RIFF fer fram í verslun
Eymundsson, Austurstræti, og á
þeim stöðum sem myndirnar
verða sýndar á, þ.e. Háskólabíói,
Norræna húsinu, Hafnarhúsi, Iðnó,
Tjarnarbíói og Bíó Paradís.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
34 MENNINGFólk
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2010
ER LÍFIÐ
ÆTTARMÓT?
Ljóð af ættarmóti er ný bók
eftir Anton Helga Jónsson.
Í henni heyrast kunnuglegar
raddir fólks sem fagnar og
gleðst, harmar og skammast,
áfellist og engist um af sam-
viskubiti.
Á RIFF 2010 er myndum skipt í
14 flokka og ber þar keppn-
isflokkinn Vitranir hæst, 12
myndir sýndar og mun ein þeirra
hljóta aðalverðlaun hátíðarinnar,
Gyllta lundann. Hinir flokkarnir
eru Betri heimur, Kastljósið, Fyr-
ir opnu hafi, Heimildarmyndir,
Nýr heimur, Palestína og Afgan-
istan í brennidepli, Sjónarrönd:
Pólland, Sjónarrönd: Svíþjóð,
Tónlistarmyndir, Myndir og mat-
ur, Barna- og unglingamyndir,
Miðnæturbíó og Ísland í brenni-
depli.
Á vef RIFF, riff.is, má finna
upplýsingar um flokkana og
myndir hátíðarinnar.
14 flokkar
FJÖLBREYTT FRAMBOÐ Á RIFF
Heiður Jim Jarmusch kvikmyndaleikstjóri, heiðursgestur hátíðarinnar í ár.