Morgunblaðið - 07.10.2010, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 7. O K T Ó B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 234. tölublað 98. árgangur
–– Meira fyrir lesendur
fylgir
með
Morgu
nblaði
nu í da
g
fr
í
ei
DÚETTINN HURTS
KEMUR FRAM
Á AIRWAVES
GJALDEYRIR
LANDSINS
ENDIST ÚT 2015
SIGGI HALL SÉR UM
VEISLUMAT Í MUSTERI
MATARGERÐARLISTAR
VIÐSKIPTABLAÐIÐ Í BOÐI JAMES BEARD Í NY 10EIN BJARTASTA BRESKA VONIN 35
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Dæmi eru um að eldra fólk taki út
sparnað sinn úr bönkum og geymi
hann í bankahólfum. Ástæðan er nei-
kvæðir vextir, hækkandi fjármagns-
tekjuskattur og einnig að fjármagns-
tekjur skerða bætur frá TR.
Helgi K. Hjálmsson, formaður
Landssambands eldri borgara, segist
kannast vel við þetta. Fólk hafi gert
þetta og eins hafi hann orðið var við
að fólk sé að tala um að hætta að
geyma peninga á bankareikningum.
„Fólk sem hefur nurlað einhverjum
peningum saman er í vaxandi mæli að
tala um að taka þá bara út og leigja
sér bankahólf vegna þess að vextir af
þessum peningum eru neikvæðir þeg-
ar þú ert búinn að borga skattinn og
svo ertu skertur af Tryggingastofnun
líka. Þetta er í vaxandi mæli og ekkert
óeðlilegt að þetta sé gert. Þetta er
bara sjálfsbjargarviðleitni.“
Tók allt út úr bankanum
Einn viðmælandi blaðsins tók alla
peninga sína út úr bankanum sínum í
sumar og setti þá í bankahólf. Hann
gerði þetta eftir að hafa fengið endur-
greiðslukröfu frá Tryggingastofnun
upp á meira en 200 þúsund vegna
fjármagnstekna. „Það er alveg eins
gott að geyma þá þar eins og láta ríkið
stela þeim,“ sagði hann.
Ekki er ólöglegt að geyma peninga
í bankahólfi þó það sé gert í þeim til-
gangi að komast hjá skerðingu Trygg-
ingastofnunar. Þetta leiðir hins vegar
til þess að ríkið greiðir hærri bætur og
verður af tekjum af fjármagnstekju-
skatti. Auðlegðarskattur getur einnig
skipt máli þegar málið er skoðað í
heild. „Það að fólk telur betra að taka
peningana sína út úr bankanum og
setja þá undir koddann eða í banka-
hólf lýsir því kannski best hversu mik-
il vitleysa þetta kerfi er,“ segir Helgi.
Með peninga í bankahólfi
Dæmi eru um að eldra fólk geymi peninga í bankahólfi til að forðast að fjár-
magnstekjur skerði bætur almannatrygginga Innlánsvextir eru neikvæðir
MTaka út peningana sína »4
Góðir leikarar geta brugðið sér í allra kvikinda
líki en að leikurum Þjóðleikhússins ólöstuðum
gæti sennilega enginn farið betur með titilhlut-
verk leikritsins Finnski hesturinn en hann
Punktur sem hér sést ganga á sviðið. Punktur
þótti sýna einskæra fagmennsku á æfingu í gær
þrátt fyrir talsverðan hamagang. Þetta mun
vera í fyrsta sinn sem lifandi hestur stígur á svið
Þjóðleikhússins, en frumsýnt verður 15. október.
Ferfættur leikari á fjalir Þjóðleikhússins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Einar Birgir Steinþórsson, skóla-
meistari Flensborgarskólans, segir
starfsfólk skólans telja að persónu-
legir erfiðleikar nemenda hafi auk-
ist. Dregið hefur úr stuðningsþjón-
ustu skólans og því er ekki hægt að
bregðast við þessu sem skyldi.
„Það er ekkert óeðlilegt að eitthvað
fari undan að láta á þriðja ári
kreppu,“ segir Einar.
Aðalheiður Steingrímsdóttir,
formaður Félags framhaldsskóla-
kennara, telur 3% vera hámarks-
niðurskurð í framhaldsskólunum.
Félagið telur að gerð sé atlaga að
kjarasamningum kennara með fjár-
lagafrumvarpinu, en kjarasamn-
ingar eru lausir í lok nóvember.
Már Vilhjálmsson, rektor
Menntaskólans við Sund, segir að
skólinn hafi nú þegar gengið á
grunnþjónustu. Eina leiðin til að
mæta kröfu um sparnað sé að
halda því áfram. „Þetta eru daprir
dagar.“
Nemendahópar hafa víða verið
stækkaðir mikið. Sigríður Huld
Jónsdóttir, aðstoðarskólameistari
VMA, segir að húsnæði skólans
leyfi það ekki áfram. »6
„Þetta eru daprir dagar“
Skólameistarar uggandi um framtíð framhaldsskóla
Framhaldsskólar Busavígsla MR.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Eftir því hefur
verið tekið í
þingsölum síðan
á mánudags-
kvöld að líf-
vörður hefur
fylgt Jóhönnu
Sigurðardóttur
forsætisráðherra
eftir. Samkvæmt
heimildum Morg-
unblaðsins var
það sérsveit Ríkislögreglustjóra
sem lagði til óeinkennisklæddan
lögreglumann, en það er verkefni
embættisins að gæta öryggis ráða-
manna ef tilefni þykir til. Í bús-
áhaldabyltingunni gættu lífverðir
einnig öryggis Geirs H. Haarde, þá-
verandi forsætisráðherra, um tíma.
Lífvörður fylgir for-
sætisráðherra eftir
Jóhanna
Sigurðardóttir
25%
skerðing bóta almannatrygginga
vegna fjármagnstekna
18%
er fjármagnstekjuskatturinn
‹ BÆTUR SKERÐAST ›
»
Velflestir bankar og fjármálafyr-
irtæki á Íslandi bjóða fagfjárfestum
upp á að eiga viðskipti með skulda-
bréf með lágu eiginfjárframlagi,
eða allt niður í 5%. Fagfjárfestar
eru þeir sem geta sýnt fram á yf-
irráð yfir 100 milljónum eða meira
af seljanlegum eignum, hafa starf-
að á fjármálamarkaði og hafa átt í
talsverðum viðskiptum á markaði á
næstliðnu ári.
Telja má líklegt að mikil skuld-
setning á skuldabréfamarkaði hafi
ýkt verðsveiflur síðastliðinna
vikna, en einhver hluti þeirra sem
voru með skuldsettar stöður lenti í
veðköllum, sem geta sett söluþrýst-
ing á markaðinn. »Viðskipti
Mikil skuldsetning á
skuldabréfamarkaði