Morgunblaðið - 07.10.2010, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Una Sighvatsdóttir
Kristján Jónsson
„Ég hefði aldrei trúað því að ég ætti
eftir að fara þarna. Mér leið ömur-
lega, en það var rosalega vel tekið á
móti mér,“ segir einstæð, þriggja
barna móðir, sem leitaði í fyrsta sinn
til Fjölskylduhjálpar í gær.
Óvenjumargir sóttu matarúthlut-
anir í gær, miðað við hve stutt er frá
mánaðamótum, eða um 550 fjöl-
skyldur til Mæðrastyrksnefndar og
510 til Fjölskylduhjálpar. Hópurinn
er jafnan stærstur í lok mánaðar
þegar laun og bætur eru uppurin.
„Yfirleitt hefur þetta sloppið hjá
mér fram í síðustu viku mánaðarins
en um leið og einhver aukaútgjöld
bætast við þá gengur dæmið ekki
lengur upp,“ segir einstæða móðirin.
Hún er atvinnulaus og fleytir sér
áfram á bótum, 140 þúsund krónum
á mánuði. Hún segist eiga góða að og
hún hafi fengið lán hjá fjölskyldunni
en sé hætt því, enda líði henni illa yf-
ir að láta aðra halda sér uppi.
„Ástæðan fyrir því að ég þurfti að
gera þetta núna var að ég borgaði
íþróttir fyrir börnin um mánaðamót-
in. Það er ekki hægt að láta þetta allt
bitna á börnunum. Það verður eitt-
hvað að fara að gerast í þessu landi
því það er orðið svo ófjölskylduvænt
að vera hérna. Bara matvælaverðið
veldur því að ekki hafa allir kost á
sömu tækifærum lengur.“
Í gær leitaði einnig í fyrsta skipti
til Fjölskylduhjálpar 64 ára kona
sem býr ein. Hún segir að erfitt hafi
verið að taka þetta skref, en ekki
hafi verið síður erfitt að sjá hve
margt fólk var í röðinni sem náði
langt út á götu. „Maður er hálf-
klökkur þegar maður sér þetta, hvað
það er mikið af ungu fólki þarna, það
finnst manni agalegt, sumir voru
með tvö eða þrjú börn,“ segir hún.
„Maturinn sem ég fékk er brauð og
efni í heitan mat sem endist mér í
nærri viku og svo er þarna verslun
sem selur föt á þokkalegu verði, þar
keypti ég buxur á 500 krónur í sum-
ar.“
Konan er þroskaþjálfi en hefur
mjög lítið getað unnið síðastliðin ár
vegna veikinda. Hún er á örorkubót-
um og fær auk þess lífeyrisgreiðslur.
Niðurlægjandi að leita hjálpar
„Þetta eru um 130 þúsund krónur
á mánuði útborgaðar. En þetta hef-
ur verið að rýrna og á sama tíma
hefur húsaleigan hækkað í 86 þús-
und krónur.“
Hún á fimm börn og sjö barna-
börn. „Ég á góð börn og þau hafa
komið sér vel fyrir. Þau vita ekki að
ég leitaði mér aðstoðar núna. Þau
styðja mig að mörgu leyti en mér
finnst það svo niðurlægjandi.“
Ætlar hún aftur á miðvikudaginn?
„Það kemur bara í ljós en ég
hugsa að ég geri það.“
Margir fá hjálp í fyrsta skipti
Yfir 1.000 fjölskyldur þiggja mat
„Sárt að láta aðra halda sér uppi“
Morgunblaðið/Ernir
Röðin Í gær úthlutaði Fjölskylduhjálp mat til 510 fjölskyldna. Þá var í
fyrsta skipti fenginn matarbíll sem úthlutaði heitum pylsum og drykk.
„Þetta eru ellefu íbúðir og allur
pakkinn til sölu í einu lagi,“ segir
Jóhannes Einarsson hjá Nes-
eignum, en hann hefur umsjón með
sölu fjölbýlishúss á Raufarhöfn.
Hann segist þegar hafa fengið fyr-
irspurnir um eignina, sem er 915
fermetrar og var byggð árið 1981.
Ásett verð á húsinu er 55 millj-
ónir, og yfirtaka áhvílandi láns
möguleg. Íbúðirnar, sem eru
tveggja til fjögurra herbergja, fást
því á fimm milljónir króna stykkið
að meðaltali. Seljandi segir það
jafnframt koma til greina að skipta
á húsinu og íbúðarhúsnæði á höf-
uðborgarsvæðinu. Jóhannes segir
flestar íbúðirnar í útleigu. „Þetta er
stórsniðugt fyrir einhvern sem vill
flytja í eina íbúðina og leigja rest-
ina út. Þórshöfn er í korters akst-
ursfjarlægð og þar er vöntun á hús-
næði,“ segir hann.
einarorn@mbl.is
Ljósmynd/Neseignir
Til sölu Áhugasamir geta fest kaup
á þessu fjölbýlishúsi í heilu lagi.
Fjölbýlis-
hús selt í
heilu lagi
Seljandi segir eigna-
skipti koma til greina
Tunnur voru barðar af miklum móð á Aust-
urvelli í gærkvöldi þegar mótmælendur komu
þar saman þriðja daginn í röð.
Fimm konur stóðu að mótmælunum og söfn-
uðu saman tugum tómra tunna sem voru barðar,
en tilefni mótmælanna var meðal annars að í
gær voru liðin tvö ár frá falli Glitnis. Ásta Haf-
berg, einn skipuleggjenda mótmælanna, sagði
markmiðið m.a. að vekja athygli á því að Alþingi
væri vanhæft og að heimilin gætu ekki tekið við
meiri byrði. Hátt í 200 mótmælendur létu í sér
heyra við Alþingishúsið þegar mest lét í gær.
Var nokkrum eggjum kastað en lögregla sá ekki
ástæðu til að hafa nein afskipti af mótmælunum
sem fóru fram með friðsamlegum hætti.
Morgunblaðið/Ómar
Á annað hundrað mótmælendur á Austurvelli í gær
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
„Við erum ekki að fara að funda með ráðherrum í
ríkisstjórn sem er á rangri leið á mörgum svið-
um,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins.
Hann segist ekki ætla að þekkjast boð á fund
fimm ráðherra um skuldavanda heimilanna sem
haldinn verður í dag, en stjórnarandstöðuflokk-
unum var síðdegis í gær boðið að senda fulltrúa á
fundinn.
„Samráð gengur ekki þannig fyrir sig að rík-
isstjórnin velji þau mál sem hún er í mestum vand-
ræðum með hverju sinni, og er ófær um að leysa,
og boði stjórnarandstöðuna til fundar við sig til
þess að draga athyglina frá eigin getuleysi á öðr-
um sviðum,“ segir Bjarni. Samráð við ríkisstjórn-
ina sé ekki það sem þurfi til að takast á við vand-
ann sem upp sé kominn. „Það þarf hreinlega nýja
stefnu.“
Þór Saari, talsmaður Hreyfingarinnar, segist
efast um það að fundurinn í dag skili nokkru. „Mið-
að við það sem þau lögðu fram [í fyrradag] kemur
ekkert út úr því,“ segir hann. „Það var tilfinning
okkar allra eftir þann fund að það væri verið að
reyna að draga okkur inn í einhverja rústabjörgun
sem ætti svo ekkert að gera með. Við gefum þessu
einn séns enn, og sá séns verður [í dag],“ segir Þór.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarflokksins, tekur í svipaðan streng.
„Þetta minnir mig á hvernig þetta hefur oft verið á
undanförum tveimur árum, þegar Jóhanna eða
aðrir ráðherrar í ríkisstjórninni tala um samstarf
sem svo verður aldrei neitt meira úr. Það eru
kannski haldnir einhverjir fundir, en á þeim gerist
ekkert nýtt. Þeir eru síðan notaðir til þess að segja
að samráð hafi verið haft við stjórnarandstöðuna,“
segir hann. Ríkisstjórninni og málsvörum hennar
hafi jafnframt tekist að fella alla stjórnmálamenn
undir sama hatt, og „þannig dreift athyglinni frá því
að þetta [sé] auðvitað vandræðagangur ríkisstjórn-
arinnar“. Sigmundur segir Sigurð Inga Jóhanns-
son, starfandi þingflokksformann flokksins, munu
mæta á fundinn í dag.
Áhugalitlir um fundarboð
Stjórnarandstaðan hefur efasemdir um boðað samráð allra flokka vegna skulda-
vanda heimilanna Formenn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks mæta ekki í dag
Bjarni
Benediktsson
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Þór
Saari
Karl á fertugsaldri, sem var hand-
tekinn í síðasta mánuði í tengslum
við rannsókn á umfangsmiklu fjár-
svikamáli, var í gær látinn laus úr
gæsluvarðhaldi. Fimm sitja enn í
haldi vegna rannsóknarhagsmuna.
Um er að ræða mál þar sem
sviknar voru 270 milljónir kr. út úr
virðisaukaskattskerfinu. Meðal
þeirra sem eru grunaðir um aðild
að málinu er einn starfsmaður emb-
ættis ríkisskattstjóra. Þá vinnur
dómsmálaráðuneytið að því að fá
framseldan Steingrím Þór Ólafs-
son, sem var handtekinn í Vene-
súela nýlega, en hann er eftirlýstur
vegna fjársvikamálsins.
Einn laus en
fimm í haldi