Morgunblaðið - 07.10.2010, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2010
Eftirlíking af spænsku skipi frá
sautjándu öld, Galleon Andalucia, kom til
hafnar í Manila í gær og Filippseyingur
býður hér skipið velkomið. Skipið er
galíona, þ.e. stórt rásiglt skip sem Spán-
verjar notuðu frá 15. til 18. aldar, með
þremur eða fjórum þilförum og hárri,
vígbúinni lyftingu. Andalucia er 51
metra löng og getur borið allt að 5.000
manns. Skipið fór frá Sevilla á Spáni í
mars og sigldi austur Miðjarðarhafið og
Indlandshaf.
Andalucia boðin velkomin í Manila
Reuters
„Við höfum séð nóg af 15 ára
rússneskum stelpum,“ sagði tísku-
kóngurinn Karl Lagerfeld og and-
varpaði eftir sýningu hans fyrir
tískuhúsið Chanel í fyrradag. Hann
er ekki einn um þessa skoðun því
nokkrir aðrir tískuhönnuðir hafa
látið grindhoraðar fyrirsætur á
táningsaldri víkja fyrir eldri fyrr-
verandi fyrirsætum, konum í góð-
um holdum eða óþekktum konum
sem hafa ekki tekið þátt í tískusýn-
ingum áður.
„Það er komið nóg af þessum
börnum, tískan er ekki bara fyrir
táninga,“ hefur fréttastofan AFP
eftir Lagerfeld sem fékk fyrrver-
andi fyrirsætur til að sýna föt
Chanel, þeirra á meðal fatahönnuð-
inn Ines de la Fressange, en hún
var fyrirsæta á níunda áratugnum.
Tími þroskuðu
konunnar kominn
Breski hönnuðurinn Giles
Deacon tollir líka í tískunni og
blandaði saman þekktum fyrir-
sætum og óþekktum konum á öllum
aldri á sýningu Ungaro á mánudag-
inn var. Svipaða sögu er að segja
um fatahönnuði tískuhússins Balen-
ciaga. Einn þeirra, Nicolas Ghes-
quiere, réð konur sem hafa enga
reynslu af tískusýningum, auk
barnshafandi ofurfyrirsætu,
Miröndu Kerr. Annar, Jean Paul
Gaultier, leitaði til kvenna í góðum
holdum og sá þriðji, John Galliano,
fékk til liðs við sig gamlar fyrir-
sætur á sýningu í París í vikunni.
Grindhoraðar fyrirsætur
víkja fyrir þroskuðum konum
Reuters
Ekki bara fyrir táninga Tískufrömuðurinn Karl Lagerfeld með einni af
fyrirsætum sínum, franska fatahönnuðinum Ines de la Fressange (til hægri).
Gamlar fyrirsætur og konur í góðum holdum komnar í tísku
„Gætt hefur tilhneigingar til þess
að klóna konur og afmá persónu-
leika þeirra,“ sagði Chesquiere.
Hann bætti við að tími þroskuðu og
sjálfsöruggu konunnar væri kom-
inn. „Ég legg áherslu á sérstæðan
persónuleika þeirra. Ég vil sýna
ólíkar konur.“ bogi@mbl.is
Hópur málvísindamanna hefur uppgötvað áður
óþekkt tungumál, sem nefnist koro, á af-
skekktu svæði á Norðaustur-Indlandi.
Málvísindamennirnir segja að mikil hætta sé
á því að tungumálið deyi út þar sem aðeins um
800 til 1.200 manns tali það. Mjög fáir þeirra
eru undir tvítugsaldri þar sem unga fólkið vill
frekar nota tungumál sem fleiri tala, til að
mynda hindí eða ensku.
Málvísindamennirnir segja að tungumálið
hafi ekki verið uppgötvað fyrr vegna þess að
fólkið sem talar það sé að öðru leyti alveg eins
menningarlega og þeir sem tala aka, algeng-
asta tungumálið á svæðinu. „Segja má að þau
hafi verið ósýnileg menningarlega; þau klæðast
eins fötum, borða sama mat og búa í eins hús-
um, en nota bara önnur orð yfir allt,“ sagði einn
málvísindamannanna, K. David Harrison.
Óþekkt tungu-
mál uppgötvað
Óttast að málið deyi út
Fótboltakempan Diego
Maradona hefur skrifað
þingi Noregs bréf og hvatt
það til að beita sér fyrir því
að mannréttindahreyfingin
Ömmur Plaza de Mayo fái
friðarverðlaun Nóbels í ár.
Maradona segir að Ömm-
ur Plaza de Mayo verðskuldi
verðlaunin vegna starfsemi
hreyfingarinnar í þágu
fórnarlamba ofsókna herforingjastjórnarinnar
í Argentínu á hendur stjórnarandstöðunni á
árunum 1976-1983. Hreyfingin hafi fundið 102
börn, sem tekin voru frá foreldrum sínum, og
leiti enn að 400 börnum sem hurfu á þessum
tíma. Talið er að um 15.000- 30.000 manns hafi
beðið bana í ofsóknum herforingjastjórn-
arinnar.
Nóbelsverðlaunanefndin tilkynnir á föstu-
daginn kemur hver hljóti friðarverðlaunin í ár.
Ömmur Plaza
de Mayo fái
friðarverðlaunin
Diego Maradona
Hátt settur klerkur í Íran og rabbíni
í Ísrael eru á meðal nokkurra gesta
sem páfi hefur boðið á kirkjuþing
sem hefst á sunnudag. Er þetta í
fyrsta skipti sem fulltrúar gyðinga
og múslíma sitja sama kirkjuþingið.
200 km
KRISTNI MINNIHLUTINN Í MIÐ-AUSTURLÖNDUM
Benedikt páfi hefur boðað biskupa kaþólsku kirkjunnar á tíu daga kirkjuþing í
Páfagarði til að ræða örlög kristna minnihlutans í Mið-Austurlöndum sem hefur
víða átt undir högg að sækja vegna mismununar og togstreitu milli trúflokka
Heimildir: L’Oeuvre d’Orient, Catholic Hierarchy, CIAWorld Fact Book,
skýrsla bandaríska utanríkisráðuneytisins um trúfrelsi í heiminum, Reuters
Teikning: Fabian Chan* Áætlað hlutfall af heildaríbúafjöldanum
Fjöldi kristinna í Mið-Austurlöndum
Miðjarðarhaf
Persaflói
KÝPUR
SÝRLAND
850.000
(4,5%)
LÍBANON
1,5millj. (35%) ÍRAK
850.000
(3%)
TYRKLAND
85.000 (0,2%)*
SÁDI-ARABÍA
EGYPTALAND
8 milljónir
(10%)
ÍRAN
135.000
(0,3%)
JÓRDANÍA
150.000
(2,4%)
ÍSRAEL
150.000
(2%)
Svæði
Palestínumanna
50.000
(0,8%)
KÚVEIT
Múslíma boðið á kirkjuþing
Þitt sjónarmið á erindi
Framboðsfrestur rennur út á hádegi 18. október 2010
Stjórnlagaþing - Borgartúni 24 – 105 Reykjavík – sími 422-4400 - www.stjornlagathing.is - www.kosning.is - www.landskjor.is
Stjórnlagaþing 2011