Morgunblaðið - 16.11.2010, Qupperneq 36
ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 320. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218
1. Mjög alvarleg líkamsárás
2. Þungt haldinn eftir árásina
3. Sá sig í Google Earth og missti ...
4. Snjógirðingarnar sönnuðu sig
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Fjórða hljóðversplata mektarsveit-
arinnar Ensími, Gæludýr, fær glimr-
andi góða dóma hjá gagnrýnanda
Morgunblaðsins, Ingveldi Geirs-
dóttur. Platan hefur verið lengi á leið-
inni en sú síðasta kom út árið 2002. Í
dómi Ingveldar segir m.a.: „Það er
eins og Ensími-liðar hafi verið í þörf
til að koma saman, skapa tónlist og
spila, það er einhver áþreifanleg
gredda á þessari plötu. Það er eins
og þeir hafi verið við það að springa
og þurft að koma þessu frá sér, og
þessi áhugi og kraftur skilar sér til
áheyrandans.“ »32
Morgunblaðið/Ernir Eyjólfsson
Ný plata Ensími fær
lofsamlega dóma
Á Degi ís-
lenskrar tungu,
sem er í dag,
munu nokkrir
höfundar lesa úr
bókum sínum á
Súfistanum í Máli
og menningu kl.
20. Höfundarnir
sem lesa upp eru
Sigrún Pálsdóttir sem les úr bók
sinni Þóra biskups og raunir ís-
lenskrar embættismannastéttar,
Kristín Steinsdóttir sem kynnir
skáldsögu sína Ljósu, Óskar Magn-
ússon les úr smásagnasafninu Ég sé
ekkert svona gleraugnalaus og Pét-
ur Gunnarsson segir frá greinasafn-
inu Péturspostillu. Þá mun Hjalti
Rögnvaldsson leikari lesa brot úr
Gleðileiknum guðdómlega eftir
Dante. Dagskráin hefst kl. 20 eins
og áður segir og eru gestir og gang-
andi velkomnir.
Upplestur á
Súfistanum í kvöld
Á miðvikudag Norðan 8-15 og snjókoma eða slydda á norðvestanverðu landinu. Annars
hægari breytileg átt og rigning eða slydda, einkum A-lands. Hiti 2 til 7 stig.
Á fimmtudag Norðaustanátt, víða 8-15 m/s. Rigning við S- og A-ströndina, en annars
slydda eða snjókoma. Hiti 0 til 5 stig S- og A-til, en annars nálægt frostmarki.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Stíf austanátt og rigning eða slydda, einkum S- og A-lands, en
lægir og styttir upp að mestu vestantil síðdegis. Hiti yfirleitt 0 til 7 stig.
VEÐUR
Hjörtur Logi Valgarðsson,
knattspyrnumaðurinn öflugi
úr FH, er á leið til Svíþjóðar
í annað sinn á skömmum
tíma í dag, því úrvalsdeild-
arfélagið Helsingborg hefur
ákveðið að fá hann aftur til
skoðunar. Hann mun leika
æfingaleik með liðinu á
morgun. Helsingborg hefur
einnig sýnt Elfari Frey
Helgasyni, leikmanni Ís-
landsmeistara Breiða-
bliks, áhuga. » 1
Helsingborg sýnir
Íslendingum áhuga
Björgvin Páll Gústavsson, landsliðs-
markvörður í handknattleik, samdi í
gær við þýska félagið Magdeburg.
„Íslendingar eru vel liðnir í Magde-
burg og ég ætla að gera mitt til þess
að halda merki okkar á lofti hjá félag-
inu,“ sagði Björgvin
við Morgunblaðið í
gær. Félagið varð á
sínum tíma Evrópu-
meistari með Alfreð
Gíslason við stjórn-
völinn. »3
Björgvin fetar í íslensk
fótspor í Magdeburg
Njarðvíkingurinn Örvar Þór Kristj-
ánsson, sneri heim í „Ljónagryfjuna“
í Njarðvík í gærkvöldi sem þjálfari
Fjölnis. Ungu mennirnir í Fjölni slátr-
uðu Njarðvíkurljónunum og unnu
stórsigur 97:73. Leikstjórnandinn
ungi hjá Fjölni, Ægir Þór Steinarsson,
var í algerum sérflokki í leiknum.
Hann skoraði 24 stig og gaf 8 stoð-
sendingar á samherja sína. »4
Ægir í sérflokki í stór-
sigri Fjölnis í Njarðvík
ÍÞRÓTTIR
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ungmennadeild Blóðgjafafélags Ís-
lands var stofnuð á sunnudag, 14.11
klukkan 14.11, á 57 ára afmæli Blóð-
bankans. Tilgangur félagsins er að
efla vitund ungs fólks um mikilvægi
blóðgjafa. Félagsmenn eru blóð-
gjafar á aldrinum 18-30 ára. Ung-
mennadeildin ætlar að hvetja fólk til
að gefa blóð reglulega frá 18 ára
aldri. „Við ætlum að hafa samband
við helstu æskulýðssamtök og kynna
okkur. Svo ætlum við að taka þátt í
lýðheilsumánuði Háskóla Íslands
eftir áramótin,“ sagði Jón Þorsteinn
Sigurðsson formaður ungmenna-
deildarinnar.
Hann telur að ýmislegt hafi getað
dregið úr blóðgjöfum ungs fólks. Til
dæmis að ekki sé haft samband við
fólk þegar það snýr aftur heim frá
námsdvöl erlendis. Ungt fólk sé
einnig upptekið og geti nám, fjöl-
skylduannir og vinna dregið úr því
að fólk gefi blóð.
„Hjá mér er þetta orðin föst rút-
ína. Eftir ákveðinn tíma veit maður
hvenær á að mæta næst,“ sagði Jón.
Hann segist fara til að gefa blóð á
þriggja mánaða fresti og vera búinn
að færa blóðgjafardagana inn í dag-
bókina. Jón stefnir að því að vera bú-
inn að gefa blóð 100 sinnum eða jafn-
vel 150 sinnum áður en hann nær
sextugsaldri. „Ég ætla ekki að vera
minni en það að ná 150 blóðgjöfum,“
sagði Jón léttur í bragði.
Dvöl í tilteknum löndum gerir
blóðgjafa vanhæfa til blóðgjafar í
ákveðinn tíma eftir heimkomuna.
Eins ef fólk fær sér húðflúr eða fer í
nálastungumeðferð, þá má það ekki
gefa blóð fyrr en eftir tiltekinn tíma.
„Maður heldur bara áfram eftir að
sá tími er liðinn,“ sagði Jón. „Ung-
mennadeildin ætlar að fræða ungt
fólk um gildi þess að gefa blóð og
hversu mikilvægt það er fyrir sam-
félagið.“
Í nýkjörinni stjórn ungmenna-
deildarinnar eru þrjár konur og
tveir karlar. Nokkuð hefur skort á
að konur séu jafnokar karla í blóð-
gjöfum. Jón taldi víst að deildin
mundi vinna að því að konum í hópi
blóðgjafa fjölgaði.
Lýðheilsufélag læknanema hefur
verið með blóðgjafamánuð í Háskóla
Íslands. Einnig hafa framhalds-
skólar verið heimsóttir þar sem
Blóðbankabíllinn fer um. „Við ætlum
að efla þetta og reyna að nýta okkur
bílinn eins og við getum,“ sagði Jón.
Hann segir að viðhorf ungs fólks
til blóðgjafa sé almennt gott. Hins
vegar hafi ungt fólk lítinn tíma og
gleymi oft mikilvægi blóðgjafa í
dagsins önn.
Ungt blóð í Blóðgjafafélaginu
Ætla að hvetja
18-30 ára fólk til
að gefa blóð
Morgunblaðið/Golli
Ungliðar Jón Þorsteinn Sigurðsson er formaður nýrrar ungmennadeildar Blóðgjafafélags Íslands. Deildin ætlar að
hvetja ungt fólk, 18-30 ára, til að gefa blóð. Jón hefur nú þegar gefið blóð tíu sinnum og ætlar að halda því áfram.
„Frændi minn þurfti blóð og mig
langaði að gefa svo hann gæti fengið
blóð,“ sagði Jón Þorsteinn Sigurðs-
son, formaður nýstofnaðrar ung-
mennadeildar Blóðgjafafélags Ís-
lands, um tildrög þess að hann fór að gefa blóð. Hann er í blóðflokki A-,
búinn að gefa blóð tíu sinnum og stefnir að 150 blóðgjöfum fyrir sextugt.
„Þá var ekki hægt að gefa blóð á Sauðárkróki þar sem ég bjó. Ég fór að
vinna að því að fá Blóðbankabílinn norður. Ég fór í gamla Blóðbankann í
Reykjavík til þess að gefa blóð og skapa tengsl við starfsfólkið.
Nú kemur Blóðbankabíllinn tvisvar á ári á Sauðárkrók og þar eru 60-70
virkir blóðgjafar. Ég er mjög ánægður með þann árangur.“ sagði Jón.
Frændinn þurfti blóð
JÓN GEFUR REGLULEGA BLÓÐ