Morgunblaðið - 24.12.2010, Side 1
F Ö S T U D A G U R 2 4. D E S E M B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 301. tölublað 98. árgangur
www.jolamjolk.is
JÓLAMOGGI
Björk Guð-
mundsdóttir
stendur fyrir
þriggja daga
karókímaraþoni í
Norræna húsinu
á þrettándanum.
Tilefnið er undir-
skriftasöfnun
sem fram fer á
orkuaudlindir.is,
þar sem skorað
er á stjórnvöld að sjá til þess að
náttúruauðlindir landsins verði
áfram í eigu þjóðarinnar.
„Ég er að gefa boltann yfir á þjóð-
ina. Þetta eru lokaskrefin í þessari
syrpu minni sem hófst með Náttúru-
tónleikunum í Laugardal fyrir
tveimur árum þar sem ég söng fyrir
þjóðina. Nú er komið að henni. Ég
vil líka setja smá stuð í þetta. Þetta
getur líka verið gaman, það þarf
ekki að rexa og pexa út í eitt,“ segir
söngkonan m.a. »49
Björk stýrir karókíi
í Norræna húsinu
Björk
Guðmundsdóttir
Núverandi ríkisstjórn er að stela
af eldri borgurum með skerðingum
á kjörum þeirra. Þetta segir Helgi
K. Hjálmsson, formaður Lands-
sambands eldri borgara, sem er
uggandi um hag sinna félags-
manna.
Tekjutenging grunnlífeyris eldri
borgara sé hreinn þjófnaður enda
sé fólk búið að greiða til þeirra eft-
irlauna. Áætlanir fólks um afkomu
á efri árunum séu brostnar. »16
Tekjutenging líf-
eyris er þjófnaður
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Íslenskir námsmenn við erlenda há-
skóla eru nú orðnir fleiri en þeir voru
veturinn fyrir kreppu, en í millitíð-
inni fækkaði talsvert í þeim hópi.
Haustið 2008 héldu margir að sér
höndum og hættu við að sækja um
rándýrt nám í útlöndum á meðan
óstöðugleikinn var sem mestur.
Einnig sáu sumir íslenskir náms-
menn sér ekki annað fært en að
hætta námi og snúa heim vegna
gengisfalls krónunnar.
Metfjöldi í TOEFL-prófi
Haustið 2009 voru því talsvert
færri Íslendingar við nám í útlönd-
um en árin á undan. En þrátt fyrir
að flestir þurfi enn að reiða sig á
námslán og horfi fram á miklar
skuldir að námi loknu hefur þessi
þróun nú snúist við á nýjan leik og
skólaveturinn 2010-2011 stunda
2.484 Íslendingar nám utan land-
steinanna samanborið við 2.341 árið
2007.
Útlit er fyrir að þessi þróun haldi
áfram ef marka má þann metfjölda
sem tók í haust alþjóðlegt stöðupróf í
ensku, TOEFL, sem flestir skólar
sem kenna á ensku krefjast af um-
sækjendum. Metaðsókn var í TO-
EFL-prófið í fyrra en í ár var það
met slegið og þurfti að bæta við
auka-prófdegi nú í desember þar
sem fljótt fylltist í öll sæti.
„Ég held að margir hafi örvænt
fyrst og ákveðið að bíða með að fara
út en nú er eins og fólk sjái tækifæri
til að drífa sig af stað,“ segir Hjördís
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Sam-
bands íslenskra námsmanna erlend-
is. Hún segir að svo virðist sem
margir treysti því að kreppan hafi
náð lágmarki og bjartara sé fram-
undan. SÍNE hafi hins vegar
áhyggjur af fyrirhugaðri breytingu á
úthlutunarreglum fyrir næsta ár, að
sjálfsfjármögnun skólagjalda verði
allt að 30% og að það muni hafa áhrif
á möguleika stúdenta til að sækja
um nám erlendis. Hugsanlegt sé að
það verði þá aðeins á færi efnafólks
að mennta sig utan landsteinanna og
það sé ekki góð þróun.
Mikilvægt að þau komi aftur
„Það hlýtur að teljast jákvætt að
fólk sæki í að mennta sig erlendis.
Íslendingar komast líka almennt inn
í flotta skóla og verða eftirsóttir
vinnukraftar. En þetta fólk kemur
náttúrlega ekki til baka ef aðstæður
bjóða ekki upp á það, þótt Ísland togi
mikið í þá þurfa stjórnvöld að hugsa
hvað við getum gert til að lokka fólk
til baka að loknu námi.“
MFleiri kjósa að mennta sig »9
Sækja í auknum
mæli út í nám
Fleiri Íslendingar eru í háskólum erlendis nú en fyrir
bankahrunið Horfa fram á skuldir en láta sig hafa það
Reuters
Nám Íslendingar eru duglegir að
mennta sig bæði heima og erlendis.
Morgunblaðið/RAX
Gleðileg jól
Undanfarna áratugi hefur sjón-
varpsteiknimynd Walts Disneys um
Andrés Önd og félaga frá 1958 ver-
ið fastagestur á skjám Svía, Norð-
manna og Dana á aðfangadag.
Þátturinn nefnist „Andrés Önd
og vinir hans óska ykkur gleðilegra
jóla“. Svo miklar eru vinsældirnar
að um 40% Svía horfa á hann um
hver jól, mest var áhorfið 1997,
rösklega 50%.
Andrés Önd kemur
Svíum í jólaskapið
TOBBA OG GILLZ Í DAGLEGA LÍFINU
MYNDAGÁTA KROSSGÁTA ÞRAUTIR
RAX Á SUÐURSKAUTSLANDINU