Morgunblaðið - 24.12.2010, Side 24

Morgunblaðið - 24.12.2010, Side 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2010 Það kann að virðast skjóta skökku við en loftslagsfræðingar segja að mikla kulda í Evrópu á þremur af síðustu tíu vetrum megi að miklu leyti rekja til hlýnunar jarðar. Samkvæmt nýrri rannsókn er helsta ástæðan sú að ísþekjan í norðurhöfum hefur minnkað og er það talið þrefalda líkurnar á slíkum vetrarhörkum í Evrópu og norðan- verðri Asíu þegar fram líða stund- ir. Óvenjumiklar frosthörkur gerðu usla víða í Evrópu veturinn 2005- 2006, einkum í Mið- og Austur- Evrópu, auk þess sem mjög snjóa- samt var á Norður-Spáni. Síðast- liðinn vetur var sá kaldasti í Bret- landi í 14 ár og snjókoma og grimmdarfrost hefur víða sett sam- göngur úr skorðum í álfunni á síð- ustu vikum. Við fyrstu sýn virðast vetr- arhörkurnar stangast á við kenn- ingar loftslagsfræðinga um hlýnun jarðar og efasemdamenn segja harðindin staðfesta að full ástæða sé til að draga spár vísindamann- anna í efa. Loftslagsfræðingar svara því til að með slíkum fullyrð- ingum sé verið að blanda saman langtímabreytingum á loftslagi og skammtímaduttlungum í veðri, auk þess sem hafa þurfi í huga stað- bundin frávik frá áhrifum loftslags- breytinga. Stefan Rahmstorf, sérfræðingur við loftslagsrannsóknastofnun í Þýskalandi, segir nýja rannsókn benda til þess að hlýnun jarðar hafi stuðlað að vetrarhörkunum. Hlýn- unin hafi orðið til þess að ísþekjan í norðurhöfum hafi minnkað um 20% á síðustu þremur áratugum. Það hafi orðið til þess að minna sólarljós endurspeglist, þannig að heimshöfin hlýni. Hlýr loftmassi raski loftstraumum og þrýsti mjög köldu heimskautalofti til Evrópu. Skýrt er frá rannsókninni í tíma- ritinu Journal of Geophysical Research. bogi@mbl.is 1 3 4 2 E V R Ó PA H Ö F I N Afleiðingar: 3 köldustu vetrar í Evrópu hafa verið á síðustu 10 árum Hlýnun verður til þess að ísþekjan í norðurhöfum minnkar, svo að minna sólarljós endurspeglast... ... og heimshöfin hlýna. Þetta veldur heitum loftmassa sem raskar eðlilegum loftstraumum ... og þrýstir mjög köldu heimskauts- lofti í átt að Evrópu. HEITT LOFT KALT LOFT Heimild: Journal of Geophysical Research ÁSTÆÐUR ÞESS AÐ HLÝNUN JARÐAR STUÐLAR AÐ KÖLDUM VETRUM Hlýnun sögð stuðla að frosthörkum Starfsmaður setur ljós á stórt snjólistaverk sem sýnt verður á Snjó- og íshátíðinni sem haldin er árlega í kínversku borginni Harbin. Hátíðin hefst 5. janúar næstkomandi og verður það í 27. skipti sem hún er haldin. Tugir þúsunda manna sækja hátíðina þótt frostið geti farið í 35°C á þessum árstíma. Harbin er höfuðstaður Heil- ongjiang, nyrsta héraðs í Kína, og hefur verið nefnd „ísborgin“. Reuters Snjó- og íshátíð undirbúin í Kína Stjórnvöld í Norður-Kóreu sögðust í gær vera að búa sig undir að heyja „heilagt stríð“ og beita kjarnavopn- um. Hermálaráð- herra Norður- Kóreu sagði að landið væri að búa sig undir slíkt stríð vegna her- æfinga í Suður-Kóreu sem hann sagði hafa verið ákveðnar til að undirbúa nýtt Kóreustríð. Her Suður-Kóreu hefur verið gagnrýndur fyrir að hafa ekki svar- að stórskotaárás N-Kóreuhers á suðurkóreska eyju 23. nóvember en forseti Suður-Kóreu, Lee Myung- Bak, sagði í gær að gripið yrði til hernaðaraðgerða gegn Norður- Kóreumönnum ef þeir gerðu slíka árás aftur. Nokkrir sérfræðingar í málefnum Kóreuríkjanna telja að Norður-- Kóreumenn geri aðra árás á Suður- Kóreu, það sé aðeins spurning um tíma. bogi@mbl.is Hóta að nota kjarn- orkuvopn  N-Kóreumenn vara við „heilögu stríði“ Heræfing í S-Kóreu í gær. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur staðfest nýjan START-samning við Rússland um fækkun kjarnavopna og er staðfestingin álitin mikill sigur fyr- ir Barack Obama Bandaríkjaforseta, aðeins sjö vikum eftir að demókratar biðu ósigur fyrir repúblikönum í þing- kosningum. Öldungadeildin samþykkti START-samninginn með 71 atkvæði gegn 26 í fyrrakvöld. Þrettán repú- blikanar greiddu atkvæði með samn- ingnum. Nokkrum vikum áður höfðu nokkrir ráðgjafar Obama ráðlagt for- setanum að fresta því að leggja samn- inginn fyrir öldungadeildina þar sem miklar líkur voru taldar á því að hann yrði felldur. Obama undirritaði í fyrradag lög sem afnámu bann við því að samkyn- hneigðir hermenn segðu frá kyn- hneigð sinni. Lögin voru samþykkt í öldungadeildinni með 65 atkvæðum gegn 31. Þessir sigrar á þinginu hafa gefið Obama byr í seglin, aðeins sjö vikum eftir kosningarnar sem þóttu veikja mjög stöðu forsetans. Hann stendur þó frammi fyrir harðri baráttu við repúblikana eftir að nýja þingið kem- ur saman í janúar. Repúblikanar verða þá í meirihluta í fulltrúadeild- inni og meirihluti demókrata í öld- ungadeildinni minnkar. Obama sagði að skilaboð kjósend- anna í kosningunum í nóvember væru þau að demókratar og repúblikanar þyrftu að vinna saman. Hann kvaðst ætla að beita sér fyrir slíku samstarfi á komandi ári en gera sér fulla grein fyrir því að hann ætti „erfiða baráttu fyrir höndum á næstu mánuðum“. Obama fær byr í seglin  Sneri vörn í sókn á þinginu en á erfiða baráttu fyrir höndum eftir áramótin Reuters Jólafrí Barack Obama kom til Hawaii í gær og dvelur þar um jólin. Ítalska lögreglan leitaði í gær í öll- um sendiráðum og ræðismanns- skrifstofum í Róm eftir að bögglasprengjur sprungu í sendi- ráðum Síle og Sviss í borginni. Starfsmaður svissneska sendi- ráðsins særðist alvarlega og starfs- maður sendiráðsins í Síle var einnig fluttur á sjúkrahús, en meiðsli hans munu ekki hafa verið alvarleg. Roberto Maroni, innanríkis- ráðherra Ítalíu, sagði að lögreglan væri að rannsaka hvort anarkistar hefðu verið að verki. Anarkistar í Grikklandi sendu bögglasprengjur í sendiráð í Aþenu í nóvember og til leiðtoga Evr- ópuríkja, m.a. forsætisráðherra Ítalíu og forseta Frakklands. Bögglasprengjur sprungu í sendi- ráðum Síle og Sviss Lögreglumenn við sendiráð Sviss. ÍTALÍA Vísindamenn við Glasgow-háskóla hafa búið til jóla- kort sem sagt er vera það minnsta í heimi. Kortið er 200x290 míkró- metrar að stærð, en mannshár er 100 míkrómetra breitt. Á vef skólans segir að kortið sjáist ekki með ber- um augum en það er svo lítið að hægt væri að koma 8.276 slíkum kortum fyrir á einu frímerki. Míkrómetri er 1 milljónasti úr metra. Vísindamennirnir notuðu nanó- tækni til að búa kortið til. Raftækja- framleiðendur eru farnir að nýta þá tækni við framleiðslu á skynj- urum og líklegt er að hún verði not- uð við framleiðslu á myndavélum, sjónvörpum og tölvuskjám. Bjuggu til minnsta jólakort heims Á nanó-kortinu er mynd af jólatré. SKOTLAND Dímítrí Medvedev Rússlands- forseti fagnaði í gær þeirri niður- stöðu öldungadeildar Bandaríkja- þings að staðfesta nýja START-- samninginn og kvaðst vona að hann yrði einnig samþykktur á rússneska þinginu. Gert er ráð fyrir því að Dúman, neðri deild rússneska þingsins, samþykki samninginn á næstunni og efri deildin staðfesti hann síðan eftir áramótin. Í nýja samningnum er gert ráð fyrir því að kjarnavopnum Banda- ríkjanna og Rússlands fækki um 30% miðað við markmið sem sett voru fyrir átta árum. Hvort ríki má eiga 1.550 kjarnaodda samkvæmt samningnum sem forsetar land- anna undirrituðu í apríl. Kjarnaoddum fækki um 30% VÆNTIR ÞESS AÐ ÞING RÚSSLANDS STAÐFESTI START

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.