Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2010 ✝ Magnús ÖrnRagnarsson fædd- ist í Reykjavík 21. jan- úar 1970. Hann lést í Odense, Danmörku, 2. desember 2010. Foreldrar hans eru Ragnar Svafarsson, f. 7. febrúar 1947, og Stella Magnúsdóttir, f. 23. júní 1946. Magnús átti þrjá bræður: Svaf- ar Ragnarsson, f. 23. maí 1967, í sambúð með Svövu Margréti Blöndal Ásgeirs- dóttur, f. 27. janúar 1974, Gunnar Már Ragnarsson, f. 20. maí 1973, giftur Hrafnhildi H. K. Friðriks- dóttur, f. 10. október 1967, og Stefán Ragnarsson, f. 8. júní 1977, í sambúð með Árnýju Láru Karvelsdóttur, f. 14. júní 1981. Magnús sleit barnsskónum í neðra Breiðholti og sótti skyldunámið sitt í Breiðholtsskóla, þaðan fór hann í Fjölbraut í Breiðholti þaðan sem hann útskrifaðist sem stúdent árið 1990. Hóf hann þá nám í við- skiptafræði við Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan sem viðskiptafræð- ingur árið 1995. Flyt- ur út til Danmerkur sumarið 1996 með unnustu sinni Piu Ko- usgaard og giftast þau þar í júlí 1999. Magnús og Pia flytja síðan til Íslands í ágúst 1999 og hefja búskap í Hafna- firði þar sem þau eign- ast börnin sín, Selmu Kousgaard Magn- úsdóttur, f. 27. apríl 2001 og Alex Kousga- ard Magnússon, f. 20. desember 2005. Foreldrar Piu eru Hans Erik Kousgaard, f. 12. mars 1948 og Magda Kousgaard, f. 24. júní 1953. Magnús útskrifaðist sem löggiltur endurskoðandi árið 2002 og vann við fagið hérna heima þangað til fjöl- skyldan flutti aftur til Danmerkur árið 2007 og vann hann við endur- skoðun og lærði til löggildingar í fagi sínu þar, þegar hann lést. Magnús var jarðsunginn frá Fraugde kirke í Danmörku 11. des- ember 2010. Kær vinur okkar Magnús Örn er látinn. Við íþróttaiðkun í hópi landa kom kallið. Ungur maður er skyndi- lega horfinn fjölskyldu og vinum. Ættingjar hans og vinir syrgja góðan dreng og skynja að lífið verður ekki samt aftur, einkum fyrir okkar elsku- legu vinkonu Piu sem misst hefur yndislegan eiginmann og fyrir börn þeirra Selmu og Alex sem misst hafa góðan og ástríkan föður. Leiðir okkar lágu saman fyrir tæp- um þremur árum. Við vorum nýflutt til Danmerkur og sama var að segja um Magnús og fjölskyldu. Tilviljun leiddi okkur saman. Á góðviðrisdegi í mars fórum við með drengina okkar í göngutúr og fyrr en varði vorum við stödd á leikvelli nálægt heimili þeirra. Kom þar að ung kona með tvö börn sín og þegar hún heyrði á tal okkar sagði hún á góðri íslensku: Nú, Ís- lendingar hér. Eftir gott spjall bauð hún okkur í kaffi, stutt væri að fara og eiginmaður hennar væri Íslendingur og vildi gjarnan hitta samlanda sína. Við þáðum boðið og á móti okkur tók brosmildur maður sem bauð okkur hjartanlega velkomin. Frá fyrstu stundu leið okkur vel í návist Magn- úsar. Hann var hlýr og opinn og skemmtilegur í viðræðu og ávallt stutt í gáskafullt brosið. Setið var lengi fram eftir degi og spjallað um lífið og tilveruna. Stoltur sýndi hann okkur húsið þeirra og stóran garðinn sem hann hafði tekið ástfóstri við. Benti hann hróðugur á eplatré sem hann var nýbúinn að gróðursetja. Á þessum fallega sólríka marsdegi þeg- ar tekið var að vora í Danmörku tókst með fjölskyldum okkar góð vinátta. Alla tíð síðan hefur samgangur verið mikill og samheldni. Magnús var einstakur vinur, góð- gjarn og hjálpsamur. Hann var rækt- arsamur við vini sína og oft hittumst við í matarboðum og gjarnan stóð hann við grillið og töfraði fram dýr- indis máltíðir. Hann var góður gest- gjafi og voru þau Pia afar samhent. Eftir góða máltíð brugðu börnin á leik en við foreldrarnir tókum í spil og hljóp þá stundum galsi í mannskapinn og var mikið hlegið. Magnús sýndi þeim verkefnum sem við hjónin unn- um að mikinn áhuga og bauð fram að- stoð sína ef það mætti verða okkur að gagni, hvort heldur það tengdist námi mannsins míns eða minni starfsleit á nýjum slóðum. Jólin síðustu eru okkur minnis- stæð. Þá kyngdi niður snjó í Dan- mörku og við ókum með Magnús, Piu og börn þeirra á lestarstöðina. Ófærð- in var mikil og tafir á flugi en þau létu það ekki á sig fá. Umfram allt var spenna og gleði í lofti. Þau voru á leið heim til Íslands í faðm fjölskyldu hans og vina. En nú réttu ári síðar og á skammri stundu breyttist gleði og eftirvænting vegna komu jólanna í sorg og söknuð. Fyrir örfáum dögum nutum við samvista við Magnús, mann í blóma lífsins, og svo á auga- bragði er hann dáinn, horfinn. Tregi og söknuður lita nú líf okkar en minn- ingin um góðan dreng mun lifa og ylja okkur um hjartarætur. Hjálpsemi hans, góðvild og einlæg vinátta verð- ur okkur ávallt ofarlega í huga. Við sendum okkar elskulegu vin- konu Piu og börnum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur, einnig foreldrum Magnúsar, bræðrum og öðrum ástvinum. Helga Hafdís og Styrmir Freyr. Við vorum harmi slegin þegar við fengum símtal seint á fimmtudags- kvöldi 2. desember um að Maggi hefði látist fyrr um kvöldið. Þetta var svo fjarstæðukennt að drengur á besta aldri væri numinn á brott svona skyndilega, ekki nema nokkrir mán- uðir síðan við fögnuðum saman fer- tugsafmælinu hans. Ekki var mikið um svefn þessa nótt og rifjuðust upp góðar minningar sem okkur áskotn- uðust með Magga, í bland við reiði og biturleika að hrifsa frá fjölskyldu og vinum ungan dreng í blóma lífsins. Okkar kynni hófust fyrir 10 árum. Við fluttumst öll á svipuðum tíma í lítið þríbýli í Hafnarfirði og myndaðist fljótt mikill vinskapur í húsinu, Jakó og Frissi á jarðhæðinni, Maggi og Pía á miðhæðinni og við í risíbúðinni. Mik- ið var um samverustundir, s.s. spila- kvöld, matarboð, gönguferðir og var oftar en ekki kátt á hjalla, börnin á svipuðum aldri, við öll á svipuðum aldri og þótt við höfum búið þröngt þá bjuggum við alltaf í sátt og samlyndi og eigum við margar og góðar minn- ingar þaðan. Það fjölgaði hratt í hús- inu, því þurfti stærra húsnæði, við fórum öll hvert í sína áttina. En vin- skapurinn hélst óbreyttur, þó svo að við hittumst ekki daglega þá voru allt- af regluleg samskipti. Maggi og Pía tóku þá ákvörðun 2008 að flytja til Danmerkur. Þau fluttu þá um sumarið og Pía hóf nám þar og Maggi var ekki lengi að finna sér starf í sínum geira, var undir það síðasta að fá löggildingu í endurskoð- un í Danmörku. Þau voru búin að koma sér vel fyrir í Óðinsvéum og undu sínum hag vel. En þá kemur þetta reiðarslag. En svona er lífið oft ósanngjarnt og hverfult. Maggi var öðlingsdrengur, vinur vina sinna og dugnaðarforkur, allt sem hann tók sér fyrir hendur var gert af kostgæfni og natni. Hann skilaði engum verk- efnum frá sér nema hann væri sáttur við það. Hann var mikill fjölskyldu- maður og ástkær eiginmaður, oftar en ekki var hann í leik með krökk- unum sínum og alltaf að hlúa að. Við erum þakklát fyrir samferðina, þær minningar sem við áttum saman og Maggi mun alltaf lifa í hjörtum okkar. Við viljum votta Píu, Selmu og Alex, fjölskyldu og öðrum aðstand- endum Magga okkar dýpstu samúð og megi algóður Guð styrkja ykkur á þessari sorgarstundu. Þínir vinir, Hlynur Halldórsson og Eva Harpa Loftsdóttir. Kæri vinur. Við kveðjum þig með miklum sökn- uði. Aldrei hefði okkur grunað að þú ættir eftir að verða tekinn svo snögg- lega frá okkur. Að fá þessar fréttir var gríðarlega mikið sjokk, það er eins og eitthvað hafi verið rifið úr sál- inni okkar. Við urðum hissa ekki síst vegna þess að þú varst alltaf einna hraustastur af okkur félögunum og ekki gátum við ímyndað okkur að þú ættir eftir að fara svona. Það er erfitt að skilja af hverju svona góður dreng- ur á besta aldri er tekinn úr þessum heimi. Nokkrum dögum fyrir dánardaginn þinn sáum við á Facebook að þú hefðir verið á undirbúningsnámskeiði fyrir löggildinguna í Danmörku. Þú talaðir um að þú hefðir verið að taka prufu- próf og hefðir rúllað því upp. Við vitum að þú hefðir rúllað þessu öllu upp, Maggi. Þú varst alltaf hress og kátur og við munum ekki eftir því að þú hafir nokk- urn tímann verið í vondu skapi. Já- kvæðni var þér í blóð borin og ef mað- ur var eitthvað að barma sér yfir hlutum sem skiptu ekki máli þá sagðir þú að maður ætti að hætta að kvarta því að maður hefði það svo gott. Þú varst mikill keppnismaður hvort sem það var tengt íþróttum eða vinnu og vildir ná langt í því sem þú tókst þér fyrir hendur. Þegar þú hittir Piu sáum við að þú hafðir fundið þinn sanna lífsförunaut þar sem hamingjan skein úr augunum. Fyrir nokkrum árum fórum við öll saman með börnin okkar í útilegu í Húsafell sem var eftirminnileg ferð. Veðrið lék við okkur og við fundum fal- legan reit uppi í hlíð þar sem við skemmtum okkur alveg konunglega í gönguferðum og leikjum. Þú og Pia voruð með ykkar frábæra tjaldvagn sem við nutum öll góðs af um kvöldið við spil og sprell eins og var alltaf í kringum þig. Þær voru margar góðar stundirnar sem við áttum með þér, og sú síðasta var rétt fyrir jólin í fyrra þegar þú, Pia og krakkarnir komuð til Íslands og hélduð upp á fertugsafmælið þitt í leið- inni. Þá hélstu partí fyrir alla vini þína heima hjá Eiríki vini okkar. Þar var spjallað, skálað og dansað fram á nótt eins og við gerðum oft í gamla daga. Það var gaman að geta glaðst með þér á þessum tímamótum og ekki grunaði okkur að þetta yrði með síðustu skipt- unum sem við myndum hitta þig aug- liti til auglitis. Faðmlög og bros var nokkuð sem þú varst óspar á enda fann maður að vinátta og innileiki þinn kom frá hjart- anu. Þú varst góður vinur okkar vina þinna og einnig bræðra þinna sem þú varst mjög náinn. Fjölskylda þín öll var þér afar mikilvæg og var í fyrir- rúmi þegar stórar ákvarðanir voru teknar. Hugur okkar er hjá fjölskyldu þinni, Piu, Selmu og Alex á þessum erfiðu tímum. Hvíl í friði, kæri vinur. Þínir vinir, Markús Þorkell Beinteinsson, Elsa Bára Traustadóttir, Erlendur Sæmundsson og Helga Magnúsdóttir. Magnús Örn Ragnarsson ✝ Erla Ottósdóttirfæddist í Reykja- vík hinn 6. apríl árið 1945. Hún lést 28. nóvember 2010. Erla var dóttir hjónanna Ottós Guðjónssonar klæðskera, f. 1. ágúst 1898, d. 20. febrúar 1993 og Guðbrandínu Tómasdóttur, f. 31. ágúst 1899, d. 24. mars 1981. Erla átti 6 systkini: Sigurður, f. 25. júlí 1922, d. 9. júlí 1991, Þorbjörg, f. 23. júlí 1924, d. 10. júlí 1991, Andrés, f. 3. apríl 1928, d. 13. febrúar 1993, Guðjón, sem lést ung- ur að árum, Kristín, f. 7. apríl 1929, d. 3. ágúst 1990 og Þórir Hans, f. 13. febrúar 1937, d. 31. maí 2007. Erla giftist Erlingi Stefánssyni framkvæmdastjóra, f. 17. ágúst 1946, 14. maí 1967. Hann er sonur Stefáns Viktors Guðmundssonar, f. 3. febrúar 1912, d. 25. janúar 1993 og Jónu Erlingsdóttir, f. 21. október 1914, d. 20. júní 1997. Erlingur og Erla eiga tvo syni: Andrés Erlingsson, f. 6. mars 1968, giftur Gyðu Sig- urlaugsdóttir, f. 7 desember 1972 og eiga þau 2 dætur, Þorgerði Erlu, f. 1995 og Hrafnhildi Lilju, f. 2001; Guðbrandur Erlingsson, f. 23. nóv- ember 1972, í sambúð með Jessiku Larsson, f. 4. september 1976 og eiga þau 4 börn, Tíbrá Lilju f. 1996, Alex Baldvin, f. 1999, Davíð Frey, f. 2003 og Kristi- an Gimlir, f. 2007. Erla ólst upp í Reykjavík, lengst af á Njálsgötunni. Hún starfaði fyrst við bókband, var lengi hjá Inn- heimtudeild Ríkisútvarpsins, vann hjá Íslandsbanka, Heilsuverndar- stöðinni og síðustu árin var hún hjá Heilsugæslu Reykjavíkur. Jarðarför Erlu hefur farið fram í kyrrþey. Mamma er dáin. Þetta eru erfið orð að segja. Eftir lífshættulegt hjartaáfall var hún komin á beinu brautina og allir héldu að nú yrði framtíðin björt. En örlögin réðu ann- arri för. Hún var snörp og endaði 28. nóvember þegar mamma lést á gjör- gæsludeild Landspítalans á fyrsta degi í aðventu. Margar minningar renna upp þeg- ar maður horfir til baka og hugsar um mömmu. Hún að elda, baka, að prjóna, að gróðursetja, skreyta fyrir jólin, skutlast með mann eða fyrir mann, alltaf var hún boðin og búin til að gera sitt þegar mann vantaði eitt- hvað, „mamma reddar“. Þegar við bræður vorum litlir gutt- ar voru þau pabbi mjög dugleg að fara með okkur í alls konar ferðalög bæði innanlands og utan. Þær eru ófáar ferðirnar sem farnar voru í tjaldútilegur og helst þar sem við gát- um rennt fyrir fisk. Erlendis ferðuð- umst við oft um gjörvalla Evrópu á bílaleigubíl og gistum á mörgum frá- bærum stöðum og áttum ófáar gleði- stundir saman. Þýskaland var þar í sérstöku uppáhaldi, Mósel og Rín og heimsókn til góðra vina í Trier. Mamma elskaði barnabörnin og var tíðrætt um strákana sína þrjá, Alex Baldvin, Davíð Frey og Kristian Gimli, og hana Tíbrá Lilju í Svíþjóð og fannst erfitt að geta ekki umgeng- ist þau eins mikið og hana langaði til. Stelpurnar hér á Íslandi, Þorgerður Erla og Hrafnhildur Lilja, gátu hins vegar ávallt gengið að henni vísri enda stutt á milli heimila. Þegar til ömmu var komið var ávallt nóg fyrir stafni, föndur, litir, púsl og svo mátti alveg kíkja aðeins í tölvuna. Svo var ávallt eitthvert góðgæti í skúffunni til að gæða sér á. Sumarbústaður foreldra okkar bræðra, Erlusel, var sérstakur stað- ur í þeirra augum. Þar undu þau sér best og breyttu auðn í iðagrænan skóg og mamma var öflug við gróð- ursetningu og ræktun landsins. Á meðan mundaði pabbi hamarinn og sögina og bætti við veröndum og auka-rými. Alltaf var jafngott að koma í sveitina til þeirra og ávallt bar mamma fram þvílíkar veitingar að sæmt hefði hverri veislu. Þarna undu barnabörnin sér við leik og gleði og Júlli Labrador átti sitt pláss í stóln- um „sínum“ í stofunni. Mamma var mikið jólabarn. Hún lét pabba skreyta húsið með jólaljós- um og inni fylltist heimilið af jóla- skrauti, föndri, jólagardínum og dúk- um, kertum og jólasveinum af öllum stærðum og gerðum. Hefðirnar voru hafðar í hávegi frá fyrri tíð forfeðr- anna og kveikt var á messu á að- fangadag og borðað klukkan sex al- veg eins og amma gerði alltaf. Þá komu jólin. Það var gott að sækja mömmu heim, hún bar hag manns ávallt fyrir brjósti og þrátt fyrir erfið veikindi síðustu árin þá lét hún alla aðra en sjálfa sig ganga fyrir ef svo bar undir. Við kveðjum mömmu með miklum söknuði og eftirsjá og mamma, það mun loga sérstakt kerti fyrir þig á að- fangadag. Andrés og Guðbrandur. Guðrún Erla Hrafnhildur Ottósdóttir ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURJÓN JÓHANNSSON skipstjóri, Laugarvegi 15, Siglufirði, lést á heimili sínu miðvikudaginn 22. desember. Útför fer fram frá Siglufjarðarkirkju fimmtudaginn 30. desember kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Slysa- varnafélagið Landsbjörg. Ásdís Gunnlaugsdóttir, Kristín Sigurjónsdóttir, Þórður M. Sigurðsson, Jóhann Sigurjónsson, Shirley Sigurjónsson, Herdís Sigurjónsdóttir, Erlendur Örn Fjeldsted, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir mín og amma okkar, JÓHANNA SIGURJÓNSDÓTTIR Ljósmyndari, Dalbraut 27, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 12. nóvember. Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hannes Jón Sigurður Sigurðsson, Theódóra Hannesdóttir, Jens Cleemann, Rebekka Hannesdóttir, Jóhann Benedikt Hannesson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.