Morgunblaðið - 11.01.2011, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 1. J A N Ú A R 2 0 1 1
Stofnað 1913 8. tölublað 99. árgangur
SMÍÐA SJÁLFIR
SINN KAJAK
Í BÍLSKÚRNUM
HATURSFULL UM-
RÆÐA ÁSTÆÐA?
KAMELJÓN
OG ÓHRÆDD
VIÐ BREYTINGAR
SKOTÁRÁSIN 15 RIHANNA 32SETTUR Á FLOT Í VOR 10
Þjóðarsorg vegna blóðbaðsins
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Engin niðurstaða fékkst í helstu
ágreiningsmál á löngum þingflokks-
fundi Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, sem stóð samtals í um sjö
og hálfa klukkustund í gær og lauk
fundinum ekki fyrr en um hálftíuleyt-
ið.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins fór mestur hluti fundarins í
umræður um stefnu VG í Evrópu-
sambandsmálum, en einnig var stefna
flokksins í sjávarútvegsmálum rædd,
og varð niðurstaðan sú að fresta frek-
ari umræðum í þingflokknum fram í
næstu viku.
Þingmenn sem rætt var við í gær-
kvöldi sögðu að umræðum um stefn-
una í Evrópusambandsmálum væri
hvergi nærri lokið. Nú tæki við funda-
herferð VG um land allt og í kjölfar
hennar ættu mál að hafa skýrst.
„Það liggur alveg ljóst fyrir, eftir
þennan langa, stranga en góða þing-
flokksfund okkar, að umræðum um
stefnu flokksins í Evrópusambands-
málum er alls ekki lokið,“ sagði þing-
maður VG í gærkvöldi.
Á fundinn hjá VG í gær mættu,
samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins, fulltrúar úr sjávarútvegs-
ráðuneytinu og fulltrúar úr samn-
inganefndum Íslands um land-
búnaðarmál og sjávarútvegsmál og
gerðu grein fyrir stöðu mála, eins og
hún horfir við þeim.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins kom ekki til umræðu á fund-
inum krafa þeirra Atla Gíslasonar, Ás-
mundar Einars Daðasonar og Lilju
Mósesdóttur, um að starfandi þing-
flokksformaður biðjist opinberlega af-
sökunar á ummælum sínum um Lilju
Mósesdóttur, eins og þremenningarn-
ir gerðu kröfu um í greinargerð sinni.
Árni Þór sagði í seinni fréttum sjón-
varps í gærkvöldi að hann hefði ekki
verið beðinn um neitt slíkt.
MEnn ófriðarblikur »4
Enn tekist á hjá VG
Engin niðurstaða á þingflokksfundi Tekist á um ESB og stefnuna í sjávarút-
vegsmálum í yfir sjö tíma í gær Frekari umræðum frestað fram í næstu viku
Mikil umferðarteppa myndaðist í gærmorgun á
Hafnarfjarðarvegi og voru dæmi um að það tæki
ökumenn klukkustund að komast úr Hafnarfirði
að Austurvelli í Reykjavík. Þessi mynd var tekin
af Kópavogsbrúnni niður í Kópavoginn þar sem
bílarnir hlykkjuðust löturhægt eins og risavax-
inn ljósormur í áttina til Reykjavíkur þótt ekki
væru þeir á ljóshraða. Eflaust hefur reynt á þol-
inmæði ökumanna að mjakast svo hægt áfram.
Morgunblaðið/Golli
Morgunumferðin mjakast áfram
Öryrkjabandalagið (ÖBÍ) hefur leit-
að svara hjá Reykjavíkurborg um
hvernig hún hyggst breyta reglum
sínum um sérstakar húsaleigubætur.
ÖBÍ kvartaði til sveitarstjórnarráðu-
neytisins í janúar 2010 yfir því að
borgin hefði ekki greitt lágtekjufólki
sérstakar húsaleigubætur, þeim sem
leigja hjá félags- og líknarsamtökum
frá vorinu 2008. Leigjendur hjá Fé-
lagsbústöðum hf. og á almennum
markaði fá sérstöku húsaleigubæt-
urnar frá borginni auk almennra
húsaleigubóta.
Í svari sveitarstjórnarráðuneytis-
ins frá 18. nóvember 2010 er þeim til-
mælum beint til borgarinnar að
breyta reglum um félagslegar leigu-
íbúðir og sérstakar húsaleigubætur.
Ráðuneytið telur að reglur borgar-
innar mismuni fólki og séu í and-
stöðu við jafnræðisregluna.
Hjá velferðarsviði Reykjavíkur
var bent á að leiguíbúðir Brynju,
hússjóðs Öryrkjabandalagsins, væru
fyrir afmarkaðan hóp fólks en ekki
almenning líkt og Félagsbústaðir.
Auk þess væri leiguhúsnæði Brynju
nú þegar niðurgreitt. Eftir er að
fjalla um álit ráðuneytisins í borg-
arkerfinu og ákveða viðbrögð við því,
að sögn talsmanns velferðarsviðs. »
12
Reykjavík breyti reglum
Reglur um sérstakar húsaleigubætur taldar mismuna fólki
Sérstakar
húsaleigubætur
Janúar – nóvember (í Reykjavík)
2009 2010
Alm.markaður 851 979
Félagsbústaðir hf. 2.067 2.127
Fjöldi notenda
Alm.markaður 166,5 200,1
Félagsbústaðir hf. 439,6 462,0
Samtals: 606,1 662,1
Upphæð (milljónir króna)
Almenn raforkunotkun hefur
minnkað síðustu tvö ár, samhliða
samdrætti í efnahagsmálum, og er
þetta í fyrsta skipti sem notkunin
dregst saman að ráði allt frá
kreppuárunum á fjórða áratug síð-
ustu aldar, eða í 80 ár.
Þetta kemur fram í nýrri raf-
orkuspá, sem raforkuhópur orku-
spárnefndar gaf út í gær. Formað-
ur hópsins, Íris Baldursdóttir, segir
að vísbendingar séu um að raf-
orkunotkun sé að aukast á ný. Spáð
er 6,6% aukningu til 2015. »16
Fyrsti samdráttur
í raforkunotkun
í bráðum 80 ár
Raforkunotkun hefur minnkað í kreppunni.
Nefnd um er-
lenda fjárfest-
ingu þarf að
samþykkja
kaup ástralska
fyrirtækisins
Wasabi Energy
á orkustöð
Orkuveitu
Húsavíkur, sam-
kvæmt upplýs-
ingum frá efnahags- og viðskipta-
ráðuneyti.
Framkvæmdastjóri OH segir að
samningur orkuveitunnar við er-
lenda fyrirtækið feli í sér að það
taki yfir rekstur orkustöðvarinnar,
geri við hana og geri á henni nauð-
synlegar endurbætur. OH geti svo
keypt orkustöðina aftur af erlenda
fyrirtækinu að þeirri vinnu lokinni.
Hún segir að ekki sé verið að selja
OH eða orkulindir. »14
Ekki verið að selja
orkulindir OH
Orkustöð OH.
Sala á áfengi og tóbaki dróst sam-
an á síðasta ári samkvæmt upplýs-
ingum frá Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins, sérstaklega á sterku áfengi.
Alls dróst salan á áfengi saman
um 5,1% milli áranna 2009 og 2010
en þar munar mest um 34% sam-
drátt í sölu á sterku áfengi. Sala á
léttvíni og styrktu jókst hins vegar
um 2,6%. Um milljón lítrum minna
seldist í fyrra en árið áður.
Þá dróst sala á sígarettum saman
um 11,5% á síðasta ári en það er í
samræmi við kannanir sem sýna
fram á að reykingar séu á undan-
haldi hérlendis. Á móti kemur að
sala á neftóbaki jókst um 7,3% árið
2010.
Gjöld á bæði áfengi og tóbak
hækkuðu hinn 1. janúar. Virðis-
aukaskattur hækkaði um 1% og
áfengis- og tóbaksgjöld um 10%. »6
Minna tóbak
og áfengi