Morgunblaðið - 11.01.2011, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2011
Virðing
Réttlæti
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK
S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Verður haldinn á Hilton Reykjavik Nordica hotel í
kvöld kl. 19.30.
Dagskrá:
Lagabreytingar.
Önnur mál.
Tillögur til breytinga á lögum VR liggja frammi á
skrifstofum félagsins.
Félagsmenn hvattir til að mæta.
Framhalds-
aðalfundur VR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Ekki undanþegnir rannsókn
Stjórnvöld fullvissuð um að rannsókn á skjalaleka fari fram í samræmi við lög
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Líkur eru á að Alþjóðaþingmannasambandið muni
á mánudag fjalla um stefnu bandarískra stjórn-
valda gegn Twitter þar sem krafist er aðgangs að
samskiptum sem Birgitta Jónsdóttir, þingmaður
Hreyfingarinnar, hefur átt í gegnum Twitter-vef-
inn, að sögn Helga Bernódussonar, skrifstofu-
stjóra Alþingis. Alþingi hefur óskað álits sam-
bandsins á stefnunni og réttarstöðu Birgittu.
Þingmenn njóta þinghelgi samkvæmt íslenskum
lögum. Í 49. grein stjórnarskrárinnar segir að með-
an Alþingi sé að störfum megi ekki setja alþing-
ismann í gæsluvarðhald eða höfða mál gegn honum
án samþykkis þingsins nema hann sé staðinn að
glæp. Ekki megi heldur höfða mál gegn þingmanni
vegna einhvers sem hann hefur sagt á Alþingi
nema með leyfi Alþingis. Ítarlegri er greinin ekki.
Helgi segir að í þessu tilfelli sé tekist á um málið
fyrir bandarískum dómstólum en íslensk lög um
friðhelgi þingmanna gildi ekki í Bandaríkjunum,
ekki fremur en bandarísk lög gildi hér á landi. Þá
séu á Íslandi í gildi lög sem heimili lögreglu að
gera kröfu um að netfyrirtæki afhendi tiltekin
gögn og Helgi segir að þingmenn séu ekki und-
anþegnir þeim ákvæðum laganna. Helgi minnti á
hinn bóginn á að til þess að slík gögn yrðu afhent
hér á landi yrði eigandi þeirra að vera grunaður
um refsiverða háttsemi. „Jafnframt verður að hafa
í huga að alþingismenn njóta sérstakrar verndar
samkvæmt stjórnarskrá og sakamálalögum,“ segir
hann.
Luis Arreaga, sendiherra Bandaríkjanna, var í
gærmorgun kallaður til fundar í utanríkisráðu-
neytinu vegna málsins. Í kjölfar fundarins sendi
Laura J. Gritz, talsmaður bandaríska sendiráðsins
á Íslandi, frá sér yfirlýsingu. Í henni segir að ís-
lensk stjórnvöld hafi verið fullvissuð um að rann-
sókn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna fari
fram í samræmi við bandarísk lög og lúti öllum við-
miðunum um réttarreglur og sanngjarna máls-
meðferð sem bundnar eru í stjórnarskrá Banda-
ríkjanna og viðeigandi alríkislögum.
Fyrir liggur úrskurður dómstóls í Virginíu-ríki í
Bandaríkjunum um að Twitter afhendi bandaríska
dómsmálaráðuneytinu upplýsingar um samskipti
sem Birgitta og fleiri sem tengjast eða tengst hafa
starfsemi Wikileaks hafa átt. Í úrskurðinum kem-
ur fram að beiðnin sé sett fram vegna sakamála-
rannsóknar en hvergi kemur fram hver sé meintur
þáttur Birgittu, eða annarra, í því sakamáli. Ekk-
ert segir heldur um hvers eðlis sakamálarann-
sóknin sé eða hvaða broti hún beinist að. Twitter
og þeir sem nefndir eru í úrskurðinum berjast nú
fyrir því að fá honum hnekkt. Talsmaður banda-
ríska dómsmálaráðuneytisins vildi ekki tjá sig um
rannsóknina í gær þegar Morgunblaðið leitaði eft-
ir því.
Alþingismenn njóta sér-
stakrar verndar sam-
kvæmt stjórnarskrá og
sakamálalögum.
Helgi Bernódusson Fjórða endur-
skoðun efnahags-
áætlunar Íslands
og Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins var
samþykkt í
stjórn AGS í
gærkvöldi. Með
henni opnast ís-
lenskum stjórn-
völdum aðgangur
að síðustu hlutum
gjaldeyrislána áætlunarinnar.
Með endurskoðuninni stendur
stjórnvöldum til boða lánafyrir-
greiðsla sjóðsins að fjárhæð tæplega
19 milljarðar kr. Einnig öll sú lána-
fyrirgreiðsla sem Norðurlöndin höfðu
boðið í tengslum við áætlunina og
verður dregið á þau lán eftir því sem
nauðsyn krefur.
Árni Páll Árnason, efnahags- og
viðskiptaráðherra, segir að samþykki
fjórðu endurskoðunar Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins sé traustyfirlýsing.
Efnahagsáætlunin sem samþykkt
var 2008 gerir ráð fyrir að AGS láni
Íslendingum allt að 2,1 milljarð
Bandaríkjadala og önnur ríki veiti
þrjá milljarða. Samsvarar þetta rúm-
um 600 milljörðum á gengi dagsins.
Gert er ráð fyrir því að samstarfinu
við AGS ljúki í lok ágúst nk.
Í tengslum við fjórðu endurskoð-
unina sendu stjórnvöld sjóðnum end-
urnýjaða viljayfirlýsingu þar sem
fram kemur að efnahagsleg endur-
reisn er í góðum farvegi.
Síðustu
lánin eru
nú til reiðu
AGS Höfuðstöðvar
AGS í Washington.
AGS samþykkir
fjórðu endurskoðun
Vegna anna við að sinna öðrum mál-
um sem bundin eru tímafresti, hefur
embætti ríkissaksóknara ekki getað
sinnt könnun á málefnum eftirlits-
sveitar bandaríska sendiráðsins við
Laufásveg í Reykjavík.
Í skýrslu ríkislögreglustjóra frá
desember sl. kom fram að svör
sendiráðsins við spurningum rík-
islögreglustjóra um eftirlitssveitina
voru ófullnægjandi og skilaði könn-
un ríkislögreglustjóra fyrir vikið
ekki niðurstöðu hvað varðar hugs-
anleg brot gegn íslenskum lögum.
Ögmundur Jónasson, innanrík-
isráðherra, sendi því embætti rík-
issaksóknara málið til þóknanlegrar
meðferðar með bréfi dagsettu 14.
desember 2010.
Ekki kannað
eftirlitssveit
Frostkaflinn undanfarna daga hefur sett mark sitt á ár og fossa. Þótt að-
eins hafi losnað um í Elliðaánum er vatnið sem rennur yfir Elliðaárstífluna
enn í klakaböndum. Þar sem vatn og frost koma saman verður oft til ný-
stárlegt og síbreytilegt landslag sem vegfarendur sjá aðeins einu sinni. Út-
lit er fyrir að frost verði á meginhluta landsins næstu daga, minnst sunnan
til, þar til á föstudag að rauðar tölur fara að sjást aftur.
Frostið setur ár og fossa í klakabönd
Morgunblaðið/Ómar
Bergþóra Jónsdóttir,
blaðamaður við
Morgunblaðið, lést í
gær, eftir erfið veik-
indi, 52 ára að aldri.
Bergþóra fæddist í
Reykjavík 24. sept-
ember 1958. Hún ólst
upp á miklu tónlistar-
heimili og var elst
fimm systra sem all-
ar hafa lært og starf-
að við tónlist. For-
eldrar þeirra eru
hjónin Kristín Ólafs-
dóttir, fyrrverandi
tónlistarkennari, og
Jón Hallsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verk-
fræðinga.
Bergþóra lærði á fiðlu og fleiri
hljóðfæri sem barn og
stundaði nám við Tón-
listarskólann í Reykja-
vík. Hún menntaði sig
síðan í tónlistar- og
kennslufræðum í Ill-
inois-háskóla í Urbana-
Champaign í Banda-
ríkjunum og lauk það-
an meistaraprófi. Hún
vann sem þáttagerðar-
maður hjá Ríkisút-
varpinu og var fram-
kvæmdastjóri
Íslenskrar tónverka-
miðstöðvar um árabil.
Bergþóra starfaði
sem blaðamaður við Morgunblaðið
frá árinu 2001 en hafði þá um skeið
skrifað tónlistargagnrýni fyrir blað-
ið. Hún skrifaði alla tíð um menn-
ingu og listir, sérstaklega tónlist.
Árið 2006 dvaldi hún í þrjá mán-
uði á eyjunni Naxos í gríska Eyja-
hafinu og liggur meðal annars eftir
hana útvarpsþáttaröð um dvöl
hennar þar sem Ríkisútvarpið út-
varpaði.
Tónlistin var helsta áhugamál
Bergþóru og tók hún meðal annars
þátt í að halda Blúshátíð í Reykja-
vík. Þá var hún að skrifa sögu Eddu
Heiðrúnar Backman, leikkonu og
leikstjóra, þegar hún veiktist.
Bergþóra lætur eftir sig dóttur,
Úlfhildi Flosadóttur, íslenskunema
við Háskóla Íslands.
Morgunblaðið þakkar Bergþóru
Jónsdóttur fyrir farsæl störf og vin-
áttu og sendir dóttur hennar og
öðrum ástvinum innilegar samúðar-
kveðjur.
Andlát
Bergþóra Jónsdóttir