Morgunblaðið - 11.01.2011, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2011
ódýrt alla daga
Gríms plokkfiskur, 400 g
399kr.pk.
Um helgina var haldið upp á að nýlokið er gagn-
gerri endurbyggingu á Piper Cub-flugvélinni
TF-KAK, en stór hluti atvinnuflugmanna Íslend-
inga lærði að fljúga á henni. Hún var fyrsta Pip-
er Cub-vélin sem flutt var til landsins og var Jón
N. Pálsson heitinn, fyrrverandi yfirskoðunar-
maður Flugfélags Íslands, aðalhvatamaður þess
að kaupa hana til landsins í apríl 1946.
Á hátíðinni var flugvélinni gefið nafnið Ottó
Tynes, en hann var helsta driffjöðrin við endur-
byggingarstarfið og kaupin á flugvélinni. Fleiri
myndir má sjá á www.verslo.is/baldur
Haldið upp á að nýlokið er gagngerri endurbyggingu á Piper Cub-flugvélinni TF-KAK
Ljósmynd/Baldur Sveinsson
Fyrsta Piper Cub-vélin sem flutt var til landsins
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Sala áfengis dróst saman um 5,1% á
milli áranna 2009 og 2010. Í lítrum
talið nemur samdrátturinn um
milljón lítrum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
seldust 18.942 þúsund lítrar af
áfengi í Vínbúðunum í fyrra. Met-
árið 2008 var heildarsala áfengis
20.381 þúsund lítrar.
Mestur samdráttur er í sölu
sterkra drykkja. Til dæmis dróst
sala á ókrydduðu brennivíni og
vodka saman um tæplega 20% í
fyrra. Í einstökum flokkum var
mesta aukningin á milli ára í sölu á
öðrum bjórtegundum en lagerbjór
eða 66%. Sala á jólabjór sló t.d. öll
met fyrir síðustu jól. Sala á lager-
bjór er uppistaðan í sölu ÁTVR og
nam hún tæplega 15 milljónum lítra
í fyrra.
Vínbúðirnar seldu áfengi í fyrra
fyrir 21.363 milljónir króna með
virðisaukaskatti. Er þetta litlu
hærri upphæð en árið 2009, þegar
áfengi var selt fyrir 21.133 milljónir
króna. Virðisaukaskattur hækkaði
1. janúar 2010 í 25,5% úr 24,5%.
Áfengisgjöld hækkuðu um 10% 1.
janúar 2010 á öllum flokkum áfeng-
is, þ.e. léttvíni, sterku áfengi og
bjór.
Samdráttur í sölu áfengis
18,9 milljónir lítra af áfengi seldust 2010 Vínbúðir seldu áfengi fyrir 21,3 milljarða
Sala áfengis árið 2010
Áfengissala Heildarsala Breyting Léttvín Breyting Sterkt áfengi Breyting Bjór Breyting
í þús.lítra áfengis í % og styrkt í % >22% alk. í % í %
<=22% alk
2007 19.555 3.436 892 15.227
2008 20.381 4,2% 3.393 -1,3% 1.099 23,2% 15.889 4,3%
2009 19.957 -2,1% 3.287 -3,1% 919 -16,4% 15.751 -0,9%
2010 18.942 -5,1% 3.371 2,6% 603 -34,4% 14.968 -5,0%
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Munnlegur málflutningur fer fram
í Hæstarétti á morgun í kærumál-
um vegna kosninganna til stjórn-
lagaþings. Kærendum og fulltrúum
landskjörstjórnar og innanríkis-
ráðuneytis gefst ásamt kjörnum
fulltrúum á stjórnlagaþingi kostur
á að draga fram í stuttu máli þau
atriði sem þeir telja að ekki hafi
verið skýrð í skriflegum greinar-
gerðum.
Í gær runnu út frestir aðila til að
gera skriflega grein fyrir sjónar-
miðum sínum vegna greinargerða
annarra aðila málsins.
Þrír hæstaréttardómarar sögðu
sig frá því að úrskurða í kærumál-
unum, þau Ingibjörg Benedikts-
dóttir, Ólafur Börkur Þorvaldsson
og Markús Sigurbjörnsson.
Því liggur fyrir að sex dómarar
munu úrskurða. Það eru Garðar
Gíslason, Árni Kolbeinsson, Gunn-
laugur Claessen, Jón Steinar
Gunnlaugsson, Páll Hreinsson og
Viðar Már Matthíasson.
Fjallað um þrjár kærur
Landskjörstjórn gaf út kjörbréf
til 25 fulltrúa á stjórnlagaþing eftir
kosningarnar sem fram fóru 27.
nóvember. Þrjár kærur bárust til
Hæstaréttar áður en kærufrestur
rann út 17. desember, frá tveimur
almennum kjósendum og einum
frambjóðanda. Meðal kæruefna er
að kosningaleynd hafi ekki verið
tryggð, frambjóðendum hafi ekki
gefist kostur á að skipa fulltrúa við
talningu og að ekki hafi verið rétt
staðið að úthlutun sæta á þinginu.
Munnlegi málflutningurinn fer
fram í dómsal Hæstaréttar og
hefst klukkan 14 á morgun. Hann
er opinn.
Munnlegur málflutningur í
kærumálum stjórnlagaþings
Þrír dómarar
Hæstaréttar sögðu
sig frá málinu
Morgunblaðið/Ernir
Kosning Kjörstaður undirbúinn
fyrir stjórnlagaþingskosningar.
Ríkissaksóknari hefur hafið rann-
sókn á ásökunum Vilhjálms H. Vil-
hjálmssonar hrl. um að lögreglu-
stjórinn á Suðurnesjum hafi beitt
blekkingum með því að upplýsa
ekki að amfetamín sem tveir menn
voru sakaðir um að smygla til land-
ins væri af gerð sem ekki var á
bannlista yfir ólögleg fíkniefni. Vil-
hjálmur sagði í aðsendri grein í
Fréttatímanum 17. desember að
embætti lögreglustjórans hefði
fengið vitneskju um efnisinnihaldið
7. janúar en hvorki greint sakborn-
ingum né Héraðsdómi Reykjaness
frá niðurstöðunni. Þannig hefði
embættið stuðlað að því að menn-
irnir voru ekki leystir úr gæslu-
varðhaldi, eins og eðlilegt hefði
verið heldur sátu áfram inni, ann-
ars vegar til 12. janúar og hins veg-
ar til 19. febrúar.
Efnið sem mennirnir voru sak-
aðir um að flytja inn er svokallað 4-
amfetamín sem er náskylt amfeta-
míni. Efnið, um 3,7 kíló, fannst í
ferðatösku annars þeirra við kom-
una til landsins og við yfirheyrslur
játaði hann að hafa farið utan til að
flytja um kíló af lyktarlausu kóka-
íni til landsins.
Valtýr Sigurðsson ríkissaksókn-
ari sagði að embættið væri byrjað
að afla gagna. Málið væri graf-
alvarlegt, reyndust ásakanir Vil-
hjálms réttar.
Rannsakar ásakanir
gegn lögreglunni á
Suðurnesjum
Sala á vindlingum dróst veru-
lega saman hjá ÁTVR í fyrra eða
um 11,5%.
Alls seldust 1.337.976 karton
af vindlingum í fyrra saman-
borið við 1.511.475 karton árið
2009.
Er þetta í samræmi við kann-
anir, sem hafa sýnt að dregið
hefur úr reykingum undanfarin
ár.
Á sama tíma hefur sala á nef-
tóbaki aukist um 7,3%. Salan
fór úr 23,8 tonnum árið 2009 í
25,5 tonn í fyrra.
ÁTVR seldi tóbak fyrir 10,4
milljarða árið 2010, samanborið
við 10,2 milljarða árið 2009. Í
byrjun árs 2010 hækkaði tób-
aksgjald um 10% og virðis-
aukaskattur hækkaði um eitt
prósentustig.
Minni sala
á sígarettum
NEFTÓBAKIÐ VINNUR Á