Morgunblaðið - 11.01.2011, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2011
Gunnar Rögnvaldsson birti afláts-bæn ungs sænsks stjórnmála-
manns:
Þá var ég ráðinnhjá Liberala
ungdomsförbundet
og sem heilsdags
evrusinni. Samt
minnist ég þess ekki
að við ræddum
stjórnmál nokkru sinni. Þess í stað
þeystum við um landið og deildum út
ókeypis baðboltum, kaskeitum,
lyklahringjum og Guð veit hverju
fleira með „Já við evru“ boð-
skapnum á. Allar auglýsingatöflur í
landinu voru þaktar með boð-
skapnum frá okkur. Við eyddum
meiri fjármunum í evru-lógó-
auglýsingar í tímaritum en nei-
sinnar eyddu í alla baráttu sína.
Nei-sinnar höfðu á hinn bóginn
dálítið annað; þeir höfðu rökin. Á
meðan við píptum um evru sem frið-
arverkefni þá kynntu nei-sinnar al-
vöru og þekkta hagfræðinga fyrir
þjóðinni og sem vöruðu við evrunni.
Við romsuðum upp tilbúin og gegn-
um tuggin rök, en vantaði í flestum
tilfellum þekkingu á málefninu. Þess
utan réðum við yfir ótakmörkuðu
fjármagni. Við réðum til og með fólk
til starfa til að spjalla í netheimum á
meðan ólaunaðir nei-sinnar festu
með teiknibólum upp A4 blöð á til-
kynningatöflur bæjarfélaga. Þar
sem peningarnir streymdu inn foss-
aði gáfnafarið út. Á þessum mán-
uðum komst Svíþjóð mjög nálægt
pólitískri geðsýki.
Ég skammast mín fyrir þátttöku
mína í þessari herferð og ég vona að
þeir sem fjármögnuðu hana skamm-
ist sín líka.“
Gösta Torstensson
Skyldi þetta vera það sem Íslend-inga bíður? Ekki ósennilegt. En
því má ekki gleyma að allur
hræðsluáróðurinn, og peningaaust-
urinn dugði ekki til í Svíþjóð. Þar
var sagt Nei. Og þar voru hagfræð-
ingarnir betur að sér í fræðunum en
þeir sem helst láta heyra í sér hér.
Gunnar
Rögnvaldsson
Þá munaði litlu,
nú eru Svíar fegnir
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 10.1., kl. 18.00
Reykjavík -3 skýjað
Bolungarvík 0 snjóél
Akureyri -4 snjókoma
Egilsstaðir -8 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. -5 skýjað
Nuuk -2 heiðskírt
Þórshöfn 1 skýjað
Ósló 0 skýjað
Kaupmannahöfn 1 skýjað
Stokkhólmur 2 léttskýjað
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 0 skýjað
Brussel 2 skýjað
Dublin 7 skúrir
Glasgow 2 skýjað
London 7 léttskýjað
París 6 skýjað
Amsterdam 2 heiðskírt
Hamborg 2 heiðskírt
Berlín 2 heiðskírt
Vín 3 alskýjað
Moskva 1 alskýjað
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 5 skúrir
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 13 léttskýjað
Aþena 11 skýjað
Winnipeg -15 alskýjað
Montreal -7 skýjað
New York -1 heiðskírt
Chicago -2 skýjað
Orlando 20 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:04 16:08
ÍSAFJÖRÐUR 11:39 15:43
SIGLUFJÖRÐUR 11:24 15:24
DJÚPIVOGUR 10:41 15:30
Björn Björnsson
bgbb@simnet.is
Þann 4. janúar síðastliðinn voru 120
ár liðin frá andláti Konráðs Gísla-
sonar, prófessors við Kaupmanna-
hafnarháskóla. Í tilefni þessa af-
hjúpuðu félagar í Rotaryklúbbi
Sauðárkróks veglegan minnisvarða
um Konráð á áningarstað Vegagerð-
arinnar á þjóðvegi 1 þar sem vegur-
inn liggur um land Löngumýrar rétt
austan Varmahlíðar í Skagafirði, en
á Löngumýri var Konráð fæddur ár-
ið 1808.
Í tilefni þessarar afhjúpunar fóru
Rótaryfélagar blysför frá Löngu-
mýri til varðans þar sem „Konráðs-
nefndin“ afhjúpaði hann. Forseti
klúbbsins, Jón Daníel Jónsson, gerði
grein fyrir sögunni sem lá að baki
ákvörðun klúbbsins varðandi það að
reisa Konráð Gíslasyni minnisvarða
og hvernig að því hefði verið staðið.
Þá tók til máls Hjalti Pálsson og
rakti í stórum dráttum sögu Kon-
ráðs Gíslasonar, og störf hans.
Fram kom í máli Hjalta að Konráð
hefði fæðst að Löngumýri, en slitið
barnsskónum að Skörðugili og
Húsabakka og ef til vill fleiri stöðum
í Skagafirði og verið smali hjá föður
sínum fram til 18 ára aldurs er hann
var sendur suður á Nes til sjóróðra.
Áður hafði Konráð numið nokkuð í
dönsku, reikningi og latínu hjá Jóni
Konráðssyni, prófasti á Mælifelli, og
reynst afburðanámsmaður.
Fanatískur Íslendingur
Við sjóróðrana komst Konráð í
kynni við Hallgrím Scheving, kenn-
ara á Bessastöðum, og um haustið
innritaðist hann í Bessastaðaskól-
ann.
Frá þeim skóla brautskráðist
Konráð árið 1831 og sigldi sama
haust til Kaupmannahafnar og inn-
ritaðist í háskólann þar. „Hann kom
aldrei síðan til Íslands, en var þó
nánast fanatískur Íslendingur í
Danmörku a.m.k. fyrri hluta ævinn-
ar, en þess gætti minna eftir að
hann varð embættismaður við há-
skólann.“ Konráð hóf útgáfu tíma-
ritsins Fjölnis ásamt félögum sínum
þeim Tómasi Sæmundssyni, Brynj-
ólfi Péturssyni og Jónasi Hallgríms-
syni árið 1835 og var Konráð að
sögn ótvíræður merkisberi þeirrar
málhreinsunarstefnu er tímaritið
boðaði.
Konráð vann markvisst að mál-
fræðirannsóknum og orðabókargerð
sem styrkþegi Árnasafns, og gaf út
sitt fyrsta málfræðirit, Um frum-
parta Íslenskrar tungu, sem telst
vera ótvírætt brautryðjandaverk í
íslenskum málvísindum, árið 1839.
Heimleiðis stefndi Konráð árið
1846 og hafði hlotið kennarastöðu
við Lærða skólann á Íslandi, en
missti þá heitmey sína um sumarið
og varð afhuga því að fara til Ís-
lands, og sótti um lektorsstöðu í
fornnorrænu við Kaupmannahafn-
arháskóla. Var honum síðan veitt
prófessorsnafnbót 1862 og gegndi
hann þeirri stöðu allt til 1886 er
hann lét af störfum.
Í lokaorðum sínum sagði Hjalti
Pálsson: „Konráð Gíslason yfirgaf
Ísland 23 ára gamall árið 1831, og
átti ekki afturkvæmt í lifanda lífi.
En nú – 180 árum síðar – er hann
aftur í Skagafirði. Velkominn heim.“
Síðasti Fjölnis-
maðurinn loks
kominn heim
Minnisvarði um Konráð Gíslason
afhjúpaður við Varmahlíð í Skaga-
firði 4. janúar voru 120 ár liðin frá
andláti síðasta Fjölnismannsins
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Rotarymenn Konráðsnefndin svonefnda ásamt listamanninum, fv. Árni
Ragnarsson, Hjalti Pálsson, Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson og Ágúst Guð-
mundsson, við athöfn í tilefni afhjúpunar minnisvarðans í Skagafirði.
Það mun hafa verið á ferð fé-
laga í Rotaryklúbbi Sauðár-
króks um Íslendingaslóðir í
Kaupmannahöfn haustið
2004 sem sú hugmynd
kviknaði að verðugt væri að
reisa Konráð Gíslasyni, sein-
asta Fjölnismanninum,
minnisvarða í heimabyggð
hans Skagafirði. Fljótlega
eftir heimkomuna kaus
klúbburinn „Konráðsnefnd“
sem í sátu Ágúst Guð-
mundsson, Árni Ragnarsson
og Hjalti Pálsson til að
hrinda þessari hugmynd í
framkvæmd. Nefndin tók skjótt til starfa og fjallaði um hvar og hvernig
væri best að standa að þeirri ákvörðun sem tekin hafði verið. Varð að
lokum sú niðurstaðan að reistur skyldi minnisvarði sem næst fæðing-
arstað Konráðs og tók Árni Ragnarsson arkitekt að sér að hanna minn-
isvarðann, sem er skagfirskur stuðlabergsdrangur á stöpli.
Listamaðurinn Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson mótaði mynd Konráðs
sem síðan var steypt í brons af Pétri Bjarnasyni, myndhöggvara í Garða-
bæ. Félagar í klúbbnum önnuðust uppsetningu varðans og aðkomu að
honum, en síðan mun bíða vors að ganga endanlega frá umhverfi hans á
þessum áningarstað Vegagerðarinnar við þjóðveg 1.
Hugmyndin kviknaði
í Kaupmannahöfn
FERÐALÖG LEIÐA MARGT GOTT AF SÉR
Minnisvarði Blysför var gengin að minnisvarð-
anum um Konráð Gíslason neðan við Varmahlíð.