Morgunblaðið - 11.01.2011, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2011
Skákþing Reykjavíkur hófst í skák-
höll Taflfélags Reykjavíkur sl.
sunnudag. Þetta er í 80. sinn sem
mótið er haldið. Alls taka 69 kepp-
endur þátt og er það meira en verið
hefur síðustu ár. Meðal keppenda
eru skákmeistari Reykjavíkur tvö
síðustu ár og nokkrir alþjóðlegir
meistarar, fide-meistarar og einn
stórmeistari kvenna. Meðal þátt-
takenda eru einnig margir af efni-
legustu krökkum úr barna- og ung-
lingastarfi skákfélaganna í
Reykjavík. Yngsti keppandinn er
aðeins 7 ára gamall. Önnur umferð
mótsins verður tefld annað kvöld.
Skákir efstu manna eru sendar út
beint í hverri umferð og hægt að
fylgjast með þeim á heimasíðunni
www.taflfelag.is.
Eva Einarsdóttir lék fyrsta leikinn.
Skákmót í Reykjavík
Jafnréttisstofa í samstarfi við
Stígamót og fleiri stofnanir og sam-
tök hefur gefið út bækling um mik-
ilvægar upplýsingar fyrir erlendar
konur á Íslandi. Bæklingurinn ber
nafnið Réttur þinn og er gefinn út á
íslensku, ensku, pólsku, spænsku,
taílensku, rússnesku og arabísku. Í
honum má finna ýmsar gagnlegar
upplýsingar varðandi íslenskt sam-
félag og réttarkerfi. Upplýsingar
um jafnrétti kynjanna, dvalarleyfi,
hjónabönd, skilnað forsjármál, um-
gengnismál, fjármál, ofbeldi í nán-
um samböndum og hótanir. Þar má
einnig finna vísanir í frekari upp-
lýsingar um aðstoð, svo sem síma-
númer, heimilisföng og heimasíður
ýmissa stofnana og félagasamtaka.
Bæklingur fyrir
erlendar konur
Á fimmtudag nk. kl. 15-17:30 verð-
ur haldin kynning á Háskólatorgi á
tækifærum og styrkjum í evrópsku
og norrænu samstarfi. Þar gefst
færi á að hitta fulltrúa evrópskra
samstarfsáætlana og þjónustu-
skrifstofa á Íslandi og kynna sér
möguleika á styrkjum og samstarfi
á ölum sviðum menntamála, rann-
sókna, vísinda, nýsköpunar, menn-
ingar og atvinnulífs. Einnig verða
kynntar nokkrar norrænar áætl-
anir. Nánari upplýsingar er að
finna á www.evropusamvinna.is.
Evrópskir styrkir
Hanna Björk
Ragnarsdóttir
viðskiptafræð-
ingur hefur verið
ráðin fram-
kvæmdastjóri
Sparifélagsins,
en félagið hefur
um nokkurt
skeið unnið að
undirbúningi
umsóknar um
viðskiptabankaleyfi.
Að fengnu leyfi fyrir rekstri við-
skiptabanka mun starf fram-
kvæmdastjóra Sparifélagsins
breytast í starf bankastjóra. Stefnt
er að því að bankinn hefji starfsemi
á síðari hluta ársins.
Nýi bankinn mun starfa undir
heitinu Sparibankinn og byggjast á
hugmyndafræðinni um stýringu út-
gjalda og uppbyggingu sparnaðar
og eigna.
Hanna Björk er 47 ára viðskipta-
fræðingur frá Háskóla Íslands og
hefur jafnframt lokið prófi í verð-
bréfamiðlun og diplómaprófi í
mannauðsstjórnun frá EHÍ.
Ráðin framkvæmda-
stjóri Sparifélagsins
Hanna Björk Ragn-
arsdóttir
STUTTSTU T
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Verð áður: Verð nú:
8.900 kr. 4.450 kr.
Útsala
Gerið góð kaup á útsölunni
Bolerojakki
50% afsláttur
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Útsala
str. 38-56
Fjölskylduhjálp Íslands | Eskihlíð 2-4
Sími 551 3360 og 892 9603
fjolskylduhjalpin.net | fjolskylduhjalp@simnet.is
Fjölskylduhjálp Íslands
er fyrir fólkið í landinu,
og rækir skyldur sínar eins og reglur samtakanna segja til um.
Bókhald samtakanna hefur frá stofnun verið opið öllum.
Þeir sem þunga og kaunum eru hlaðnir eru
velkomnir til okkar.
Við störfum meðan fólkið hefur þörf fyrir okkur
BRIDS
SKÓLINN
Námskeið fyrir byrjendur hefst 24. janúar.
Námskeið í framhaldsflokki hefst 26. janúar.
• Byrjendaflokkur: 8 mánudagskvöld frá 20-23.
• Framhaldsflokkur: 8 miðvikudagskvöld frá 20-23.
• Staður: Síðumúli 37 í Reykjavík.
• Hægt að mæta stakur/stök.
• Mörg stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna.
• Sjá nánar á Netinu undir bridge.is/fræðsla.
Uppl. og innritun í síma 898-5427 frá 13-18 daglega.
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
Laugavegi 63 • S: 551 4422
STÓRÚTSALAN Í FULLUM GANGI
ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR
DÚNÚLPUR - ULLARKÁPUR - VATTJAKKAR
skoðið sýnish
.
á laxdal.is
Þorleifur Gunnlaugsson, varaborg-
arfulltrúi VG, segir að meirihluta-
flokkarnir í borgarstjórn geri upp á
milli fólks sem fái fjárhagsaðstoð og
þeir sem taldir séu búa með öðrum
eða hjá foreldrum fái enga hækkun.
Í umræðu um fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árið 2011
sagði Þorleifur m.a. að engin svör
hefðu fengist við því hvers vegna
auka ætti á hlutfallslega skerðingu
hjóna og sambúðarfólks. Miðað við
að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar
færi í 149.000 kr. á mánuði ættu hjón
og sambúðarfólk að fá 238.400 kr.,
en fengju aðeins 223.500 kr. Hins
vegar væru bætur atvinnulausra
hjóna 299.000 kr. Grunnfjárhæð
þeirra sem búa með öðrum eða bera
ekki kostnað vegna húsnæðis yrði
óbreytt eða 125.540 kr. út 2011 og
grunnfjárhæð fyrir einstakling í for-
eldrahúsum yrði áfram 74.500 kr. Í
þessum tveimur hópum væru um
280 manns.
Þorleifur gagnrýnir líka að vel-
ferðarráðherra skuli fyrst í janúar
beina tilmælum til sveitarstjórna um
að þau hækki fjárhagsaðstoð sína en
ekki þegar vinna við fjárhagsáætlun
fari fram. „Það finnst mér vera
ámælisvert,“ segir hann og bætir við
að fátækramörk samkvæmt Hag-
stofunni hafi verið 160.800 kr. í ráð-
stöfunartekjur á einstakling 2009.
steinthor@mbl.is
Sumir fá
enga
hækkun í
Reykjavík
Í frásögn af listsýningunni Ferskir
vindar í Garði í laugardagsblaðinu
var rangt nafn í upphafi málsgreinar
sem brenglaði frásögnina. Upphaf
málsgreinarinnar átti að vera svona:
„Uday Singh frá Indlandi fékk sér
göngutúr í rokinu og kuldanum ber
að ofan, af því að hann varð að prófa
það. Honum varð ekki meint af en er
reynslunni ríkari.“
LEIÐRÉTT
Rangt nafn
Andri Karl
andri@mbl.is
Stjórnunarleg yfirbygging Raunvís-
indastofnunar er óþarflega mikil og
vegna óljósrar ábyrgðar og verka-
skiptingar og skorts á verklags-
reglum og eftirliti er ekki hægt að
fullyrða að skipulag, stjórnun og
rekstur stofnunarinnar stuðli að því
að verkefnum hennar sé sinnt með
hagkvæmum og árangursríkum
hætti. Þetta kemur fram í skýrslu
Ríkisendurskoðunar um stjórnun og
rekstur stofnunarinnar sem birt var
í gær.
Raunvísindastofnun hefur verið
rekin með halla undanfarin ár og í
árslok 2009 nam uppsafnaður halli
48,6 milljónum króna. Rektor Há-
skóla Íslands ber endanlega ábyrgð
á rekstri og starfsemi stofnunarinn-
ar en hingað til hefur skólinn lítið
sem ekkert skipt sér af fjármálum,
verklagi eða öðru í starfsemi stofn-
unarinnar.
Í ábendingakafla skýrslunnar seg-
ir að Raunvísindastofnun verði, í
samvinnu við Háskóla Íslands, að
koma á skýru verklagi, m.a. með
skriflegum verklagsreglum fyrir
meginferla starfseminnar, s.s. inn-
kaup, innra eftirlit, gerð rekstrar-
áætlana og samþykktarferli reikn-
inga.
Í svari Raunvísindastofnunar seg-
ir m.a. að stefnt sé að því að skjal-
festa frekar alla meginferla stofnun-
arinnar, svo sem við innkaup, innra
eftirlit, gerð rekstraráætlana og
samþykktarferli reikninga. Þá verði
áfram unnið að því að lækka upp-
safnaðan halla.
Einnig bárust svör frá mennta- og
menningamálaráðuneytinu og segir í
því að ráðherra hafi á síðasta ári
skipað starfshóp um tengsl Háskóla
Íslands og Raunvísindastofnunar
háskólans. Starfshópurinn hefur það
hlutverk að skoða fyrirkomulag fjár-
veitinga HÍ og Raunvísindastofnun-
ar og gera tillögur um hvernig þeim
verði best fyrir komið. Þetta atriði
mun því sérstaklega verða skoðað í
vinnu starfshópsins sem mun skila
tillögum til ráðherra.
Stefnt að frekari skjal-
festingu meginferla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HÍ Raunvísindastofnun telst sjálfstæð stofnun í fjárlögum þrátt fyrir að vera
innan vébanda HÍ. Hún hefur verið rekin með halla undanfarin ár.
Ríkisendurskoðun
tók út Raunvís-
indastofnun
Raunvísindastofnun
» Raunvísindastofnun er vett-
vangur rannsókna í raunvís-
indum innan Háskóla Íslands.
» Samkvæmt fjárlögum ársins
2011 eru fjárheimildir til rekst-
urs hennar 944,4 m.kr., þar af
nemur framlag úr ríkissjóði
348,9 m.kr. en áætlað er að
sértekjur nemi 595,5 m.kr.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur verið með sérstakt eftirlit und-
anfarna daga með ótryggðum og
óskoðuðum ökutækjum.
Samkvæmt upplýsingum frá emb-
ættinu voru skráningarnúmer fjar-
lægð af um fjörutíu ökutækjum um
helgina og í nokkrum tilvikum var
bæði um að ræða ótryggðar og óskoð-
aðar bifreiðar. Í tilkynningu frá lög-
reglunni segir að trassaskapur sumra
bifreiðaeigenda í þessum efnum sé
með ólíkindum.
Lögreglan mun halda eftirliti sínu
áfram á næstunni og hvetur eigendur
bifreiða og umráðamenn þeirra til að
passa upp á að hafa hlutina í góðu lagi,
svo ekki þurfi að koma til aðgerða.
Skráningarnúmer fjar-
lægð af fjörutíu bifreiðum
ÁSKRIFTASÍMI
569 1100