Morgunblaðið - 11.01.2011, Page 10
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2011
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Við erum bara fúskarareins og þar stendur,áhugamenn um kajak-smíði,“ segir Eyjólfur í
léttum dúr þegar blaðamaður slær
á þráðinn til hans. Hann segir
hugmyndina hafa kviknað fyrir um
einu og hálfu ári. „Þá hittumst við
þrír sem höfðum verið að pæla í
slíkri smíði hver í sínu horninu.
Þannig skapaðist ákveðið and-
rúmsloft og hlóð hugmyndin síðan
utan á sig þannig að í fyrrahaust
vorum við 10 eða 12 sem fórum af
stað. Við ætluðum okkur fyrst að
vera allir á sama stað en tókst
ekki að finna húsnæði á viðráðan-
legu verði svo við enduðum tveir
saman, ég og Karl Snorrason, í
bílskúr og hinir eru svo víðs vegar
um bæinn,“ segir Eyjólfur.
Uppskriftir að kajak
Þeir Karl og Eyjólfur hafa
helst krunkað sig saman með
tveimur öðrum kajaksmiðum úr
hópnum og segir Eyjólfur þá alla
vera á svipuðum stað í smíðinni.
Hann segir hlæjandi að þeir séu
ekki að keppa heldur sé mark-
miðið að klára. Í byrjun nýttu þeir
félagar sér netið til að kanna
hvernig smíða ætti kajak. Þá kom
í ljós að víða erlendis eru margir
að bjástra við þetta sama. Til eru
margar bækur í kringum smíðina
og völdu þeir Eyjólfur og Karl
eina slíka þar sem finna má upp-
skriftir að þremur mismunandi
tegundum af kajak. Þannig náðu
þeir sér í grunn að teikningum
sem þeir færðu síðan yfir í tölvu-
forritið AutoCAD. Það er mikið
notað bæði í hönnun á húsum og
hlutum og þannig voru útbúnar
teikningar. Í kjölfarið á því er búin
Tveir fúskarar
smíða kajak
Í bílskúr á höfuðborgarsvæðinu keppast tveir menn við að smíða kajak. Smíðin er
þeirra áhugamál og er áætlað að sjósetja kajakana næsta vor.
Morgunblaðið/Ernir
Kajaksmíði Mikil vinna liggur í því að pússa viðinn vel og vandlega.
Grænlandskajak Mótið að kajökunum fengu þeir félagar í bók.
Bloggsíðunni Blackbeltmama.com er
haldið úti af hressri bandarískri móð-
ur um þrítugt. Hún vinnur heima, á
tvær dætur og eiginmann, og hefur
mikinn áhuga á karate. Hún vinnur að
því að ná svarta beltinu í okinawan
kenpo og kobudo. Hún segist vera að
ala dætur sínar upp í að verða klárar
og sterkar konur og er sú eldri farin
að æfa danzan-ryu ju-jutsu.
Í desember hóf móðirin að æfa hjá
einkaþjálfara til að taka þjálfun sína
með meira trompi. Hún bloggar mikið
um þjálfun sína og er farin að drekka
próteinhristinga í staðinn fyrir að éta
heilan snakkpoka. Hún er líka farin að
halda þjálfunardagbók til að hjálpa
sér við að ná settu markmiði, sem er
að komast í frábært form. „Einka-
þjálfarinn minn veit hvernig á að
sparka í rassinn á mér; en hann er
líka mjög góður í að hvetja mig og
veita mér innblástur til að ég haldi
áfram,“ skrifar svartabeltismamman
í nýlegri færslu um einkaþjálfarann.
Hún ritar um margt annað en þjálf-
unina, fjölskyldulífið og vinnan eru
henni líka ofarlega í huga. Því er
þetta blogg sem venjulegt fólk ætti
að hafa gaman af að lesa.
Vefsíðan www.blackbeltmama.com
Morgunblaðið/Kristinn
Karate Bandarísk móðir sem er hugfangin af karate bloggar.
Mamma með svarta beltið
Allt í lagi, þú ferð alltaf á hlaupa-
brettið og svo í hot jóga-tíma eða í
göngutúra um þitt nærumhverfi og
svo í sundlaugina.
Hvernig væri nú á nýju ári að prófa
nýja hreyfingu? Vissulega er alltaf
einfaldast að gera það sem maður
þekkir en það getur líka verið gaman
að taka áskorunum og athuga hvað
líkaminn og hugurinn geta. Hvað
veistu nema það henti þér miklu bet-
ur að fara í magadans en hot jóga eða
í pallaleikfimi frekar en að vera alltaf
á brettinu. Það lífgar upp á sálar-
tetrið að prófa eitthvað nýtt og láttu
nú vaða í staðinn fyrir að hugsa
stanslaust um það.
Endilega …
… prófið nýja
hreyfingu
Morgunblaðið/Eggert
Sund Gæti hentað þér betur en sú
hreyfing sem þú stundar núna.
Tilkynnt var um niðurstöðu kosninga
um langhlaupara ársins 2010 á laug-
ardaginn og má sjá úrslitin á vefsíð-
unni Hlaup.is.
Langhlaupari ársins í flokki karla
er Björn Margeirsson en næstir hon-
um komu Gunnlaugur Júlíusson og
Jón Guðlaugsson. Í flokki kvenna
varð Rannveig Oddsdóttir fyrir val-
inu, en næstar henni komu Helen
Ólafsdóttir og Anna Sigríður Sigur-
jónsdóttir.
Að auki voru María Kristjánsdóttir,
María Kristín Gröndal og Sigurbjörg
Eðvarðsdóttir tilnefndar í flokki
kvenna og Guðmundur Sigurðsson,
Höskuldur Kristvinsson og Sigurjón
Sigurbjörnsson í flokki karla.
Hlaup
Morgunblaðið/Eggert
Best Rannveig Oddsdóttir sigraði
í Reykjavíkurmaraþoni 2010.
Langhlauparar
ársins 2010
Ylfa Kristín K. Árnadóttir
ylfa@mbl.is
Þangað til fyrir skemmstuhöfðu hjónin Auður ogPáll Jökull einbeitt sér aðskrifum um garðyrkju.
Þau hafa gefið út bækur um efnið
og auk þess hafa þau lengi gefið út
tímaritið Sumarhúsið og garðurinn.
Einn daginn vatt Gunnar, alvanur
veiðimaður, sér að þeim og lagði til
að þau skrifuðu saman bók um
stangaveiði. Hann náði að sann-
færa þau endanlega eftir að hann
fór með þau í veiðiferð.
„Gunnar fór með okkur í
Kaldá í ágúst 2009 og þar veiddi ég
maríulaxinn minn og þá var ég
komin með bakteríuna. Þetta var
svo mikið fagnaðarerindi. Ég fékk
gæsahúð og það var svo mikil
spenna og þetta var ólýsanleg til-
finning að veiða sinn fyrsta lax.
Eftir það jókst áhuginn mikið,“ seg-
ir Auður.
Stefnir á gull í ólsen-ólsen
Spilið ólsen-ólsen kom líka mik-
ið við sögu. „Gunnar er mikill snill-
ingur í ólsen-ólsen, það er alltaf
stórmót í ólsen-ólsen annan í jólum í
minni fjölskyldu og fékk ég silfrið í
fyrra. Það má segja að þarna í veiði-
ferðinni hafi ég sæst á að fara í
þetta verkefni með honum því hann
Stangaveiði á allra færi
Hjónin Auður I. Ottesen
og Páll Jökull Pétursson
höfðu litla reynslu af
stangaveiði þegar Gunn-
ar Bender, reyndur stang-
veiðimaður og útgefandi
Sportveiðiblaðsins, viðr-
aði við þau þá hugmynd
að gefa út bók um sportið.
Fallist var á það eftir að
Gunnar lofaði að gera
Auði að meistara í ólsen-
ólsen og eftir að hún
veiddi maríulaxinn sinn
varð ekki aftur snúið.
Bókin Á allra færi leit
dagsins ljós fyrir skömmu
og á hún að vera leiðar-
vísir á mannamáli jafnt
fyrir óvana sem þaul-
reynda veiðimenn á öll-
um aldri.
Morgunblaðið/Eggert
Við árbakkann Hjónin Auður I. Ottesen og Páll Jökull Pétursson skrifa nú um fleira en garðyrkju.