Morgunblaðið - 11.01.2011, Blaðsíða 11
Áhugasmiðir Þeir Eyjólfur og Karl áætla að sjósetja kajakana í vor.
til grind sem síðan eru strengdir
listar utan á. Grindin er formið á
bátnum og síðan eru sagaðir niður
timburlistar og strengdir utan á.
Settir á flot í vor
„Svo er pússað mikið þessa
dagana og svo í áframhaldinu setj-
um við fiberglass-dúk yfir og loks
þrjú lög af epoxí-vatnsvörn. Við
erum því rétt hálfnaðir eins og
stendur. Nú er þetta hobbí en í
fyrravetur litum við svolítið á
þetta eins og vinnu og vorum
nokkuð duglegir daglega. En svo
liðu margir mánuðir núna í sumar
og fram á haustið sem við gerðum
ekki neitt. Við þessir fjórir erum
allir skrifstofumenn þannig að
okkur finnst rosalega gott að
koma í annað umhverfi og gera
eitthvað allt annað. Gleyma pólitík,
Icesave og öllu heila galleríinu.
Svo verður sjósetning einhvern
tímann þegar vorar vonandi og
námskeið þurfum við að fara á til
að læra að sigla. Það er ekki nema
einn í hópnum sem hefur siglt eitt-
hvað. Svo er ég búinn að lofa kon-
unni minni því að ég ætli að smíða
annan fyrir hana þannig að þetta
er rétt að byrja. Ég hef ekki gefið
út lokadag á því verki,“ segir Eyj-
ólfur.
Grænlandslag
Eyjólfur og Karl eru að smíða
svokallaðan grænlenskan kajak en
til eru margar tegundir af kajök-
um. Eyjólfur segir efniskostnað
reiknast um 150-200.000 krónur en
þeir meta ekki vinnuna til fjár.
Hann segir að sjósetningin verði
gerð með stæl, þeir muni sjósetja
allir í einu og gera eitthvað úr því.
Eyjólfur segir óþreyjuna við smíð-
ina helst vera þá að þeir séu að
gera þetta í frítímanum en vildu
helst geta verið að alla daga. En
það sé aldrei að vita nema þeir
geti haslað sér völl á þessum
starfsvettvangi síðar meir.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2011
Fosvallarétt en ekki
Lögbergsrétt
Í viðtali við Jens Pétur Högnason
fjárbónda í Fjárborgum í Morgun-
blaðinu þann 5. janúar var rangt far-
ið með þegar sagt var að fé hans
gengi á Hellisheiði. Hið rétta er að
hann eins og aðrir fjáreigendur í
Fjárborg sleppir fé sínu í afrétt Sel-
tjarnarneshrepps hins forna, sem
fjárbændur úr Reykjavík, Kópavogi
og af Seltjarnarnesi nýta. Til gam-
ans má geta þess að nú koma
Reykjavík og Kópavogur eingöngu
við sögu því að fjárlaust hefur verið
á Seltjarnarnesi í 45 ár. Þetta er
svæði norðan Sandskeiðs. Sennilega
er Reykjavík eina höfuðborg í heimi
sem á hlutdeild í afrétti.
Einnig var farið rangt með þegar
sagt var að kindum Jens Péturs væri
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fallegar Þessar gimbrar frá Jens
Pétri koma til með að ganga á af-
rétti Seltjarnarneshrepps hins
forna í sumar.
smalað í Lögbergsrétt, en hið rétta
er að afréttur Seltjarnarneshrepps
hins forna er smalaður til Foss-
vallaréttar á Fossvöllum, skammt
ofan við Lögberg og Lækjarbotna.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
þessum rangfærslum og þakkar
ábendingar um hið rétta.
LEIÐRÉTT
„Grænlenskur kajak er eins og
sjófugl á sundi, hann liggur í öld-
unni og hreyfist mjúklega með
henni. Ef þú hendir plastflösku í
sjóinn þá hoppar hún og skoppar
án mýktar. Þetta er munurinn á
steyptum kajak og grænlenskum
kajak með grind. Í grænlenskum
báti er grindin alltaf bundin,
aldrei skrúfuð og enn síður
steypt, þetta er það sem gefur
kajaknum líf,“ sagði Baldvin
Kristjánsson, kajakframleiðandi
og kajakleiðsögumaður, í viðtali í
Morgunblaðinu síðastliðið sum-
ar.
Eins og sjó-
fugl á sundi
GRÆNLENSKUR KAJAK
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Þegar búið er að skrifa niður og gera
opinbert fyrir fjölskyldunni hvaða
metnaðarfullu markmiðum á að ná á
hlaupabrautinni árið 2011 er fátt ynd-
islegra en að gleyma sér við lestur
hlaupadagskrárinnar fyrir árið 2011
sem má finna á vefnum hlaup.is.
Í einni svipan má sjá hlaupaárið
fyrir sér, hvenær maður kemst í
næsta keppnishlaup, hvenær kvöld-
vaktirnar á fréttadeildinni þvælast
fyrir keppnisferlinum, hvenær maður
þarf nauðsynlega að grátbiðja um
vaktaskipti og hvert fjölskyldan á að
fara í sumarfrí – því áfangastaðirnir í
sumar fara að sjálfsögðu að verulegu
leyti eftir því hvar boðið er upp á
skemmtileg hlaup.
Fram til vors eru ýmsir fastir lið-
ir á dagskrá eins og Powerade-
vetrarhlaupin í Elliðaárdal en einnig
ýmsar nýjungar, s.s. ný hlauparöð í
Hafnarfirði. Þar standa FH og Atl-
antsolía fyrir þremur 5 km keppn-
ishlaupum sem haldin verða síðasta
fimmtudag í janúar, febrúar og mars.
Hlaupin hefjast kl. sjö á kvöldin sem
er fínn tími fyrir barnafólk sem getur
skotið börnunum í pössun til ættingja
á meðan það rennur sprettinn. Ef
ættingjarnir búa t.d. í Hafnarfirði eða
nágrenni verða börnin væntanlega
södd og ánægð þegar þau eru sótt og
jafnframt nægur tími til að koma
þeim í háttinn fyrir klukkan átta. Til-
tölulega lítið hefur verið um 5 km
keppnishlaup og því er þetta fín við-
bót við hlaupaflóruna. Víðavangs-
hlaup ÍR eru sömuleiðis spennandi
kostur en of mörg flott hlaup eru á
dagskránni til að hægt sé að telja þau
öll upp.
Vorar á góðum tíma
Vormaraþon Félags maraþon-
hlaupara er óvenju seint á ferðinni
þetta árið, líkt og páskarnir, og því
hafa menn enn betri tíma en ella til
undirbúnings, bæði fyrir heilt og hálft
maraþon. Vor- og haustmaraþon FM
standast alþjóðlegar kröfur um
keppnishlaup og duga t.d. fyrir þá
sem þurfa að ná tilteknum tíma til að
komast í Boston-maraþonið, en það er
furðualgeng þráhyggja hjá hlaup-
urum að þeir þurfi endilega að ná
Boston-lágmarkinu, jafnvel þótt þá
langi ekkert sérstaklega til að hlaupa
í Boston. Klikki það í vor má reyna
aftur í Mývatnsmaraþoninu sem er
haldið í lok maí, svo í Akureyrarmara-
þoninu, svo í Reykjavíkurmara-
þoninu …
Fjölmörg utanvegahlaup verða í
boði í sumar líkt og fyrr. Laugavegs-
hlaupið er á sínum stað og stendur
ávallt fyrir sínu en í ár taka gildi
strangari keppnisreglur og stífari
kröfur um skráningu og undirbúning
hlaupara. Margir eru þegar byrjaðir
að sperra sig fyrir Laugavegshlaupið
á þar til gerðum bloggsíðum.
Hlauparöð 66°N heppnaðist sér-
deilis vel í fyrra er haldin aftur. Nú
mun Úlfljótsvatnshlaupið reyndar
heita Grafningshlaupið. Fyrir þá sem
búa í borginni er Grafningshlaupið af-
ar hentugt þar sem það er svo stutt
frá bænum. (Hið sama á við um
Tindahlaupin í Mosfellsbæ). Andinn
sem svífur yfir vötnum við Úlfljóts-
vatn er þægilega afslappaður; mátu-
leg blanda af kæruleysi og keppn-
isskapi. Vanir Úlfljótsvatnslauparar
láta nafnbreytinguna ekki setja sig úr
jafnvægi enda eru þeir vanir því að
leiðin breytist árlega og breytingin
gefur fyrirheit um að hún breytist
enn í ár. Það hefur komið fyrir að leið-
arbreytingar valdi villum hjá fremstu
mönnum, sem er auðvitað kostur því
slíkt gefur hinum skreflatari smá von,
þó það sé bara um tíma.
Sumarfríið liggur fyrir
Sá sem þetta skrifar hljóp öll hin-
hlaupin í 66°N-seríunni í fyrra, nema
Þorvaldsdalsskokkið, og getur mælt
með þeim öllum. Það er ekki mögu-
legt að gera upp á milli Vesturgöt-
unnar, Jökulsárhlaupsins og Barðs-
neshlaupsins, allt eru þetta snilldar-
hlaup og hafa hvert sinn sjarma. Í
fyrra var hægt að stilla sumarfrí fjöl-
skyldunnar af miðað við þessi þrjú
hlaup því þau voru haldin með viku
millibili og því þægilegt að taka fjöl-
skylduna með í keppnisferðalagið. Nú
hefur Jökulsárhlaupið verið fært aft-
ur um tvær vikur, til að jafna álagið á
Ásbyrgi þar sem hlaupið ber upp á
annasamasta ferðamannatímann. Sá
sem þetta ritar á þó erfitt með að
sætta sig við þessa breytingu og
minnir á að meðal þeirra sem eru á
ferðalagi á annasamasta ferðamanna-
tímanum eru einmitt hlauparar.
En hlaupadagskráin er fjöl-
breytt og um að gera að byrja að æfa!
Hlaupadagskráin 2011 komin á hlaup.is
Lesið hlaupadagskrána og
sjáið hlaupaárið fyrir ykkur
Morgunblaðið/G.Rúnar
Vorboðar Brautin í vormaraþoni liggur frá Elliðaárdal út á Ægissíðu.
lofaði að gera mig að meistara í ól-
sen-ólsen,“ segir Auður. „Ég stefni
á gullið og það má segja að Gunnar
sé búinn að vera lærifaðir minn. Við
erum eiginlega búin að spila ólsen-
ólsen í gegnum ritstjórnina á þess-
ari bók.“
Sérstaklega ætluð fjöl-
skyldufólki
Auður skrifar meirihlutann af
efninu, Páll Jökull sá um uppsetn-
inguna og Gunnar sá um að útvega
viðmælendur. „Bókin er fyrir alla
veiðimenn en við vildum sérstaklega
ná til fjölskyldufólks, verða þess
valdandi að fjölskyldurnar færu
saman að veiða og væru saman. Við
förum hringinn í kringum landið og
fjöllum um veiðivötn allan hringinn.
Þeir sem eru að fara í sumarfrí
hringinn í kringum landið geta því
haft bókina með sér og fundið veiði-
staði við hæfi,“ segir Auður.
Upplýsingar og uppskriftir
Markmiðið var að skrifa bók
sem veitti upplýsingar um alla þætti
veiðinnar en gæti jafnframt nýst
sem handbók í ferðalaginu. „Í upp-
hafi bókarinnar eru upplýsingar um
veiðiaðferðir, allan útbúnað og síðan
förum við í þau vötn sem er hentugt
fyrir fjölskyldur að veiða í. Svo til að
auka áhuga barna þá fylgja með
sögur af krökkum sem hafa veitt
sinn maríulax og upplifun þeirra.
Frásögnunum fylgja svo upplýs-
ingar um árnar sem börnin veiddu
sinn lax í.“
Fjallað er um fjölmargt annað,
svo sem fiskitegundir, mismunandi
gerðir veiða og fluguhnýtingar auk
uppskrifta. „Það er hægt að skoða
uppskriftir í bókinni og grilla feng-
inn strax á árbakkanum í lok veiði-
ferðarinnar. Við reyndum að hugsa
fyrir öllum þáttum.“
Á allra færi Auður og Páll sæl og glöð með heljarinnar lax.
Bókin er fyrir alla
veiðimenn en við vild-
um sérstaklega ná til
fjölskyldufólks, verða
þess valdandi að fjöl-
skyldurnar færu sam-
an að veiða og væru
saman.