Morgunblaðið - 11.01.2011, Blaðsíða 12
ÚR BÆJARLÍFINU
Guðrún Vala Elísdóttir
Borgarnes
Jólahaldinu lauk á Seleyrinni með þrett-
ándabrennu seinnipartinn á sunnudag, en
gleðinni hafði verið frestað vegna veðurs.
Björgunarsveitin Brák hafði veg og vanda af
brennunni og glæsilegri flugeldasýningu.
Mjög kalt var í veðri og nokkur vindur af
norðri svo að rafmagnskeflin sem nyrst stóðu í
kestinum voru lengi að brenna. En allt fór
þetta vel fram og notalegt var að hlusta á
harmonikkuleik Steinunnar Pálsdóttur á með-
an flugeldasýningin stóð yfir. Enginn vill
missa af þrettándagleðinni sem er fastur liður
á hverju ári, enda létu menn norðanvindinn
ekki á sig fá og komu heim með flottar epla-
kinnar!
Lionsballið svokallaða er líka árvisst og af
mörgum talið einn aðalviðburður samkvæm-
islífisins í Borgarnesi, en Lionsklúbburinn
Agla heldur ballið. Það er haldið fyrstu helgina
í janúar og er jafnan mikið lagt í skemmti-
atriðin. Þau eru heimatilbúin, leikir, glens og
gaman, en einnig sýndu dansarar frá Dans-
skóla Evu Karenar snilli sína auk þess sem
Ingi „uppistandari“ Tryggvason lögræðingur
tróð upp. Margrét Maack frá Rás 2 var með
sýnikennslu í magadansi, en síðan þeytti hún
ásamt Óla Palla skífum fram á rauða nótt. Ekki
var annað að sjá en að ballgestir skemmtu sér
konunglega og allt fór þetta vel fram.
Það er merki um nýtt og spennandi ár
þegar námsvísir Símenntunarmiðstöðvarinnar
á Vesturlandi berst inn um lúguna. Sjaldan
hefur eins margt spennandi verið í boði og á
þessari önn sem gengin er í garð. Má telja alls
kyns heilsueflandi námskeið, tómstunda-
námskeið og starfstengt nám, svo ekki sé
minnst á námskeið þar sem fólk getur nýtt list-
ræna hæfileika sína. T.d. verður framhald á
myndlistarnámskeiði þar sem kennt er að mála
með olíulitum. Borgnesingar sem og aðrir
Vestlendingar eru hvattir til að kynna sér
námsvísinn rækilega og skrá sig á námskeið
hjá www.simenntun.is.
Háskólinn á Bifröst verður efldur sem
sjálfstæður háskóli og fallið hefur verið frá
hugmyndum um sameiningu við aðra háskóla.
Þetta var ákveðið í desemberlok og Borgfirð-
ingar anda léttar. Unnið verður að því að
renna styrkari stoðum undir starfsemi skól-
ans, bæði fjárhagslega og faglega. Athygli vek-
ur að nýr stjórnarformaður skólans er Guð-
steinn Einarsson, kaupfélagsstjóri í
Borgarnesi, þannig að Bifröst virðist nálgast
uppruna sinn og tengingu við samvinnuhreyf-
inguna. Bryndís Hlöðversdóttir var skipuð nýr
rektor við skólann þann 5. janúar sl. Það verð-
ur áhugavert að fylgjast með þróun skólans,
eflingu hans og sérstöðu.
Vegagerð ríkisins í Borgarnesi átti
hundrað ára starfsafmæli á liðnu ári, en árið
1910 fluttist Guðjón Bachmann, brúarsmiður
og verkstjóri, þangað og hóf störf við vega-
gerð. Í tilefni af afmælinu var opið hús í Safna-
húsinu þann 21. desember og afhenti stofnunin
Byggðasafni Borgarfjarðar líkan af gömlu
Hvítárbrúnni til varðveislu. Hvítárbrúin hefur
löngum þótt mikið stórvirki og héraðsprýði og
ánægjulegt að líkanið sé nú til sýnis í Safna-
húsinu.
Jól kvödd með harmon-
ikkuleik og flugeldum
Morgunblaðið/ Guðrún Vala Elísdóttir
Afraksturinn Nokkur olíumálverk sem máluð voru á námskeiði hjá Símenntun.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2011
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Húsaleiga hjá Félagsbústöðum hf. í
Reykjavík og Brynju, hússjóði Ör-
yrkjabandalagsins, er vísitölubundin
og hefur hækkað á sama tíma og
kaupmáttur almennings hefur rýrn-
að. Bæði félögin fjármagna húsnæði
sitt með verðtryggðum lánum og
verðtryggja leigusamningana með
því að vísitölubinda þá. Leigjendur
hjá Félagsbústöðum eru undir skil-
greindum tekju- og eignatakmörk-
um og öryrkjar leigja hjá Brynju,
hússjóði Öryrkjabandalagsins.
„Það er fyrst og fremst hjá Ör-
yrkjabandalaginu og Félagsbústöð-
um, þar sem húsaleiga hækkar eftir
vísitölu, sem húsaleiga er að hækka,“
sagði Vilborg Oddsdóttir, félagsráð-
gjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar.
Hún taldi að húsaleiga á almennum
markaði hefði lækkað fyrst eftir að
kreppan skall á haustið 2008. Eink-
um átti það við um leigu á stökum
herbergjum sem var orðin mjög há.
Neytendasamtökunum bárust í
fyrra 414 fyrirspurnir vegna húsa-
leigumála en árið 2009 voru slíkar
fyrirspurnir 218 talsins. Aukningin
var því um 90% á milli ára. Fyrir-
spurnirnar varða húsaleigumarkað-
inn almennt. „Það er ekkert laun-
ungarmál að það hefur borið á
talsvert mikilli aukningu vegna vísi-
tölutengingar hjá Félagsbústöðum,“
sagði Jóhannes Gunnarsson, for-
maður Neytendasamtakanna, um
húsaleigukvartanirnar.
Ástæðan er verðtryggð lán
Sigurður Kr. Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Félagsbústaða hf.,
sagði að leigan hjá þeim breyttist
ársfjórðungslega með neysluverðs-
vísitölunni. Hann sagði eðlilegt að
fólk fyndi fyrir hækkun leigunnar
þegar kjörin stæðu í stað eða jafnvel
versnuðu og kaupmáttur rýrnaði.
Þeir sem ættu sitt húsnæði fyndu
einnig fyrir þessu.
Félagsbústaðir hf. eru í eigu
Reykjavíkurborgar og eiga 2.150
íbúðir. Sigurður sagði að fjármagns-
kostnaður væri langstærsti þáttur-
inn í rekstrinum. „Við erum fjár-
magnaðir af Íbúðalánasjóði og það
eru verðtryggð lán,“ sagði Sigurður.
Hann sagði að leigjendur Félagsbú-
staða stæðu mjög vel í skilum. Árið
2008, þegar þyngja fór undir fæti,
voru vanskil um 1%. Þau hækkuðu í
2% á árinu 2009 og voru um 3% árið
2010.
Sigurður sagði að 600-700 íbúðir
hefðu komið inn á almenna leigu-
markaðinn í ársbyrjun 2009. Við það
lækkaði húsaleiga þar og um 20 íbúð-
ir Félagsbústaða stóðu tómar að
jafnaði, aðallega 4-5 herbergja íbúð-
ir. Í fyrra voru allar íbúðir Félagsbú-
staða komnar í leigu og ásókn jókst,
einkum í stórar íbúðir. Sigurður taldi
þetta vera til merkis um að fólk sem
hefði farið annað í leiguhúsnæði væri
að koma til baka. Félagsbústaðir
fjölguðu ekki íbúðum í fyrra og hitt-
eðfyrra. Sigurði sýnist að leiguverð á
almenna leigumarkaðinum hafi verið
að hækka frá því í febrúar 2010.
Hærri leiga en sömu bætur
Brynja, hússjóður Öryrkjabanda-
lagsins, á rúmlega 700 íbúðir víða um
land. Flestar eru í Reykjavík, 485
íbúðir. Björn A. Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Brynju, sagði að leigj-
endur hefði fundið fyrir mikilli
hækkun 2008, þegar vísitalan hækk-
aði um tæp 18%, og um 6% árið 2009.
„Við erum með mun lægri leigu en
önnur leigufélög,“ sagði Björn. Hann
nefndi til dæmis að tveggja her-
bergja íbúð í Hátúni væri leigð á
tæpar 51 þúsund krónur. Þar til frá-
dráttar koma húsaleigubætur sem
eru 18 þúsund kr. hjá flestum.
Greiðslubyrðin er því 33 þúsund
krónur á mánuði. Björn benti á að
örorkubætur ættu að fylgja verðlagi
en ekki væri gert ráð fyrir neinni
hækkun í fjárlögum fyrir árið 2011.
Verðbólga upp á 3-4% myndi því
valda kaupmáttarrýrnun hjá öryrkj-
um sem henni næmi auk þess sem
leigan hækkaði.
Húsaleiga vísitölubundin
Leiga hjá Félagsbústöðum hf. í Reykjavík og hjá hússjóði öryrkja hækkar stöðugt
Morgunblaðið/Ásdís
Félagslegar íbúðir Langflestar íbúðir Félagsbústaða, eða 54%, eru tveggja herbergja. Íbúðunum fækkar eftir því sem þær eru stærri. Langflestir á biðlista
eftir húsnæði eru einstaklingar. Þeir eru yfirleitt í einstaklings- eða tveggja herbergja íbúðum. Fólk með börn fær hærri húsaleigubætur en barnlausir.
Meðalverð mánaðarleigu hjá Félagsbústöðum
samkvæmt grunni húsaleigubóta í nóvember 2010
Leigan er án hita og rafmagns
160.000
140.000
120.000
100.000
80.000
60.000
40.000
20.000
0
Le
ig
uv
er
ð
(k
r.)
Húsaleigubætur og sérstakar húsaleigubætur
Greiðslubyrði leigutaka
Heimild:
Félagsbústaðir hf.
66.244
82.223
104.845
119.742
139.885
147.554
Einstakl.
íbúð
2 herb.
íbúð
3 herb.
íbúð
4 herb.
íbúð
5 herb.
íbúð
6 herb.
íbúð
64.626
64.772
61.623
53.531
40.370
36.255
29.989
41.853
51.314 58.119
75.113
82.928
Breytingar á vísitölu neysluverðs frá 2008
380
340
300
260
Janúar 2008 Desember 2010
282,3
366,7
(29,9% hækkun)
Heimild: Hagstofa Íslands
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Verkefnisstjóri
starfshóps sem
ætlað er að kanna
möguleika á að
sameina skóla,
leikskóla og frí-
stundaheimili í
Reykjavík hefur
átt fundi með ríf-
lega 120 skóla-
stjórnendum og
umsjónarmönnum frístundastarfs frá
því hópurinn var settur á laggirnar í
nóvember.
Oddný Sturludóttir, formaður
menntaráðs Reykjavíkur, segir að
hópurinn muni skila tillögum sínum í
febrúar og að til sameiningar komi
strax í haust enda sé í fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar gert ráð fyrir að
sameiningar og samvinnu leiði til
sparnaðar.
Starfshópurinn hittist vikulega og
fjallar m.a. um spár um nemenda-
fjölda, um nýtingu húsnæðis, mörk
skólahverfa og fleira. Verkefnisstjór-
inn mun skila inn upplýsingum sem
byggjast á viðtölunum, sem hann tek-
ur í trúnaði, hópurinn mun líta til
þeirra ábendinga sem berast um sér-
staka ábendingagátt á vef borgar-
innar og framundan eru fundir með
fulltrúum foreldra og kennara í leik-
og grunnskólum borgarinnar.
Skólum ekki lokað
Oddný segir að hópurinn sé ekki
byrjaður að ræða breytingar á starf-
semi einstakra skóla. Sums staðar
blasi við að hægt sé að sameina og
auka samvinnu en annars staðar sé
minna svigrúm til slíks.
Aðspurð segir Oddný að hún sjái
ekki fyrir sér, a.m.k. ekki í fljótu
bragði, að einstökum skólum verði
lokað. „Með sameiningu erum við að
tala um sameiningu í yfirstjórn. Af
því hlýst ýmiskonar hagræðing, í
starfsliði, innkaupum, áætlanagerð
og svo framvegis. Áfram verða öll
þessi börn í borginni og við þurfum á
öllum þessum húsum að halda. En við
nýtum þau öðruvísi,“ segir hún. Sums
staðar komi til greina að nýta hús-
næði grunnskóla undir leikskóla-
deildir. „Með sameiningu erum við
aldrei að tala um að loka heldur sam-
eina yfirstjórn þannig að færri takist
á við stærri verkefni,“ segir Oddný
Sturludóttir.
Sameining
þýðir ekki
lokun skóla
Fundir með yfir 120
skólastjórnendum
Oddný Sturludóttir
Húsaleigubótum má skipta í
tvennt: Annars vegar almennar
húsaleigubætur, sem fjármagn-
aðar eru af ríki og sveitar-
félögum nokkurn veginn til
helminga.
Hins vegar eru sérstakar
húsaleigubætur sem Reykjavík-
urborg og nokkur önnur sveitar-
félög greiða úr sínum sjóðum.
Leigjendur hjá Félagsbústöð-
um hf. fá húsaleigubætur og
sérstakar húsaleigubætur.
Almennar og
sérstakar
HÚSALEIGUBÆTURNAR