Morgunblaðið - 11.01.2011, Side 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2011
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Þjóðarsorg var í Bandaríkjunum í
gær vegna skotárásar sem kostaði
sex manns lífið í Tucson í Arizona
um helgina. Lögreglan sagði að
fram hefðu komið vísbendingar um
að 22 ára karlmaður, sem var
ákærður fyrir árásina, hefði ætlað
að myrða Gabrielle Giffords sem
særðist lífshættulega í árásinni.
Giffords er demókrati og á sæti í
fulltrúadeild Bandaríkjaþings.
Árásin hefur því vakið umræðu um
hvort rekja megi árásina til hat-
rammra deilna í Arizona milli
demókrata og hægrimanna í Repú-
blikanaflokknum. Clarence W.
Dupnik, lögreglustjóri Pima-sýslu,
sagði að hatursfull stjórnmálaum-
ræða í Arizona hefði stuðlað að
árásinni. „Allt talið um hatur, van-
traust á stjórnvöldum, sjúkleg tor-
tryggni gagnvart því hvernig
stjórnvöld starfa … hefur áhrif á
fólk, einkum þá sem eru truflaðir á
geðsmunum fyrir,“ sagði lögreglu-
stjórinn. „Arizona er orðin að
mekka fordóma og ofstækis.“
Lögreglustjórinn segi af sér
Dupnik er demókrati og vinur
Giffords sem náði endurkjöri á
liðnu ári með naumum sigri á repú-
blikana sem naut stuðnings hægri-
manna í Teboðshreyfingunni svo-
nefndu. Repúblikanar í Arizona
vísuðu orðum lögreglustjórans á
bug, sögðu það ósanngjarnt að
bendla flokk þeirra eða Teboðs-
hreyfinguna við slík ódæðisverk.
Nokkrir þeirra kröfðust þess að
lögreglustjórinn segði af sér.
Þingmenn repúblikana for-
dæmdu árásina og þingfundum
fulltrúadeildarinnar var frestað.
„Árás á einn þingmann er árás á
alla þingmennina,“ sagði John
Boehner, sem var kjörinn forseti
fulltrúadeildarinnar eftir að repú-
blikanar náðu meirihluta í henni í
kosningunum í nóvember.
„Ég skipulagði fyrirfram“
Jared Loughner, sem var hand-
tekinn eftir árásina, var leiddur
fyrir dómara í gær og ákærður fyr-
ir morð og morðtilraun. Saksóknari
sagði að Loughner hefði farið á
fund sem Giffords hélt í ágúst 2007
og í peningaskáp á heimili hans
hefði fundist bréf frá þingkonunni
þar sem hún þakkaði honum fyrir
að mæta á fundinn. Í peninga-
skápnum fannst einnig umslag sem
innihélt handskrifaða miða: „Ég
skipulagði fyrirfram“, „morðið
mitt“ og „Giffords“ stóð á miðun-
um.
Reuters
Sorg Maður kveikir á kerti við sjúkrahús í Tucson til minningar um þá sem biðu bana í skotárásinni um helgina. Sex manns létu lífið og 14 særðust.
Afleiðing pólitísks haturs?
Lögreglustjóri segir að rekja megi árásina í Arizona til hatursfullrar stjórn-
málaumræðu en repúblikanar vísa því á bug Þjóðarsorg vegna blóðbaðsins
Mikil kjörsókn
hefur verið í
þjóðaratkvæða-
greiðslu í Suður-
Súdan um sjálf-
stæði landshlut-
ans.
Atkvæða-
greiðslan hófst á
sunnudag og
henni lýkur á
laugardaginn
kemur.
Þótt framkvæmd atkvæðagreiðsl-
unnar þyki hafa tekist vel fram að
þessu hafa blossað upp átök í olíu-
héraðinu Abyei þar sem minnst 33
hafa beðið bana síðustu þrjá daga.
Atkvæðagreiðslan er haldin í sam-
ræmi við friðarsamkomulag sem
náðist árið 2005 og batt enda á 22
ára borgarastríð sem er talið hafa
kostað um tvær milljónir manna líf-
ið, auk þess sem fjórar milljónir
þurftu að flýja heimkynni sín.
Verði sjálfstæði Suður-Súdans
samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni verður stærsta ríki Afríku skipt
í tvennt. Úrslitin verða ekki ljós fyrr
en í byrjun febrúar.
Mikil
kjörsókn
í S-Súdan
Yfir 30 manns féllu í
átökum í olíuhéraði
Á kjörstað í Suður-
Súdan.
Tom DeLay, fyrr-
verandi leiðtogi
repúblikana í full-
trúadeild Banda-
ríkjaþings, var í
gær dæmdur til
þriggja ára fang-
elsisvistar fyrir
þátt sinn í pen-
ingaþvættismáli í
tengslum við öfl-
un fjár vegna
kosningabaráttunnar í Texas árið
2002.
Kviðdómur sakfelldi DeLay og fé-
laga hans í nóvember fyrir að beina
ólöglegum fjárframlögum fyrirtækja
upp á 190 þúsund dali í kosningasjóð.
Dómari í Austin í Texas dæmdi þing-
manninn fyrrverandi nú í þriggja ára
fangelsi fyrir samsæri en fimm ára
skilorðsbundið fangelsi að auki fyrir
peningaþvætti. DeLay sagði af sér
þingmennsku vegna málsins 2006 en
neitar að hafa brotið lög.
Tom DeLay
dæmdur í 3
ára fangelsi
Laus Tom DeLay
áfýjar dómi sínum.
Flestir þeirra sem verða fyrir skoti í höfuðið af stuttu
færi deyja áður en hægt er að koma þeim á sjúkrahús en
læknar telja að þingkonan Gabrielle Giffords kunni að
reynast ein af þeim fáu heppnu sem lifa slíka árás af.
Læknarnir eru hóflega bjartsýnir á að hægt verði að
bjarga henni en segja að of snemmt sé að segja til um
hvort hún nái sér.
Hetjuleg viðbrögð bráðaliða, lækna og fólks á staðnum
eru talin hafa átt stóran þátt í því að hægt var að koma
Giffords lifandi á sjúkrahús. Daniel Hernandez, lærlingi
í starfsliði þingkonunnar, hefur verið lýst sem hetju eftir
að hann hljóp til hennar – og nær árásarmanninum –
andartaki eftir skotárásina. Hann þrýsti að sárinu til að
stöðva blæðinguna og togaði Giffords að kjöltu sinni til
að koma í veg fyrir að hún kafnaði. Bráðaliðar fluttu
hana síðan á nálægt sjúkrahús og hún var komin inn í
skurðstofuna um 38 mínútum eftir árásina.
Skurðlæknirinn Peter Rhee, sem stjórnaði aðgerðinni,
sagði að Giffords hefði verið heppin að kúlan skyldi að-
eins hafa farið í gegnum vinstra heilahvelið en ekki það
hægra eða í miðju heilans. Skurðlæknarnir þurftu ekki
að fjarlægja mikið af dauðum heilavef.
Bólgan getur orðið hættuleg
Eins og gert hafði verið ráð fyrir olli kúlan bólgu í heil-
anum og hún getur valdið jafnmiklum skaða og kúlan
sjálf, að sögn The Washington Post. Búist er við að bólg-
an nái hámarki eftir nokkra daga og hjaðni síðan á rúmri
viku. „Heilabólgan getur versnað hvenær sem er,“ sagði
taugaskurðlæknirinn Michael Lemole. „En ég er hæfi-
lega bjartsýnn.“
Giffords er haldið að mestu í svefndái til að hvíla heil-
ann og hún getur því ekki talað. Hún hefur þó gefið til
kynna að hún skilji einföld skilaboð og það þykir góðs viti
þar sem vinstra heilahvelið gegnir lykilhlutverki í mál-
skilningi og skemmdir á því geta komið fram sem erfið-
leikar við að skynja og skilja talað mál.
Lemole varaði þó við of mikilli bjartsýni og sagði að
liðið gætu margir mánuðir, eða jafnvel ár, þar til þing-
konan næði sér.
Hetjuleg viðbrögð urðu
þingkonunni til bjargar
Skot í heilann oftast banvæn en Giffords var heppin
KÚLAN FÓR Í GEGNUM VINSTRA HEILAHVELIÐ
Heimildir: Læknamiðstöð Tucson-háskóla,
fréttir bandarískra fjölmiðla
Tvísýnt er um líf bandarísku þingkonunnar Gabrielle Giffords eftir að hún
fékk byssukúlu í höfuðið í skotárás manns í Tucson í Arizona um helgina.
Kúlan fór aðeins í gegnum annað heilahvelið og læknar sögðu það vekja
von um að Giffords lifði af og næði sér. Bólga í heilanum vegna kúlunnar
getur þó valdið heilanum jafnmiklum skaða og kúlan sjálf, auk þess sem
hætta er á sýkingu og meiri blæðingu
Vinstra heilahvel
Sendir hreyfiboð til hægri hluta
líkamans og í flestu fólki
stjórnar það talhreyfingum og
gegnir mikilvægu hlutverki í
málskilningi
Hér fór kúlan út
Kúlan var 9 mm
og fór út fyrir ofan
vinstri augabrún
Hægra
heilahvel
Hér fór kúlan inn
Byssukúlu var skotið aftan í
höfuðið og hún fór í gegnum
vinstra heilahvelið án þess að fara í
það hægra eða í miðju heilans
Lögreglustjórinn Clarence Dup-
nik lauk lofsorði á 61 árs gamla
konu, Patriciu Maisch, sem sýndi
mikið hugrekki þegar skotárásin
var gerð. Maisch var að bíða eftir
því að mynd yrði tekin af henni
með Giffords þegar árásarmað-
urinn hóf skothríðina. Maisch
þreif í byssuna til að koma í veg
fyrir að maðurinn gæti hlaðið
hana aftur og er talin hafa afstýrt
enn meira blóðbaði. „Þetta er ein
mesta hetju-
dáð sem ég hef
nokkru sinni
séð,“ sagði
Dupnik.
Á meðal
þeirra sem dóu
var níu ára
stúlka, sem
fæddist 11.
september 2001, þegar hryðju-
verkin voru framin vestra.
Afstýrði enn meira blóðbaði
61 ÁRS KONA SÝNDI MIKIÐ HUGREKKI
Giffords