Morgunblaðið - 11.01.2011, Síða 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2011
Elsku Einar mág-
ur minn, mig langar
til að kveðja þig með
nokkrum orðum.
Við erum búnir að
vera samferða í
meira en hálfa öld, frá því að ég
var 10 ára og þú komst inn á
heimili foreldra minna í Köldu-
kinn 3 í Hafnarfirði til að búa með
systur minni henni Sólveigu
(Dollý).
Þú hafðir strax áhrif á líf mitt
og uppvöxt á mínum yngri árum.
Þú útvegaðir mér dvöl í sveit frá
10 ára aldri hjá móðurfólki þínu í
Stafholtstungum í Borgarfirði og
þar undi ég hag mínum vel til 15
ára aldurs. Þessi fimm ára dvöl
mín í Melkoti bjó mig vel undir
lífið.
Þið Dollý bjugguð uppi á lofti í
Köldukinn 3 í sambúð með for-
eldrum mínum og mér í mörg ár
og þar óluð þið upp elstu börnin
ykkar. Þú stundaðir sjómennsku á
þessum árum, en hvalveiðin heill-
aði þig alltaf mest.
Þegar ég var um tvítugt og far-
inn að heiman voru þið Dollý búin
að fá lóð ofar í Köldukinninni og
ákveðin í að fara að byggja ykkur
hús. Þið þurftuð að byggja hús
með kjallara en ætluðuð að láta
ykkur nægja efri hæðina. Þá datt
þér í hug að ég kæmi inn í þetta
með ykkur og kjallarinn yrði
minn hluti í húsinu. Þó ég væri
skítblankur og ætti ekki einu
sinni skóflu var ég þó að læra
smíðar og með góðra vina hjálp
tókst mér að koma kjallaranum
upp og þið tókuð síðan við að
byggja ykkar hæð ofan á. Síðar
þegar ég hélt utan til frekara
náms gat ég selt kjallarann og
greitt fyrir námið mitt í Svíþjóð.
Það má því segja að þú hafir átt
stóran þátt í því að ég fékk tæki-
færi til að mennta mig og fyrir
það verð ég ævinlega mjög þakk-
látur.
Einar minn, þú varst ekkert að
taka hlutina of alvarlega, varst
jafningi allra og náðir góðu sam-
bandi við alla sem þú kynntist,
glettinn, einlægur og gerðir létt
grín að sjálfum þér. Þegar börn
okkar systkinanna komu saman
voru gjarnan sagðar grínsögur af
þér sem þú hlóst mest að sjálfur.
Mig langar að segja eina hér. Hún
segir af því þegar þú fórst í af-
mæli til tvíburanna hennar Heiðu
systir og hittir þá úti á götu fyrir
utan húsið og kysstir þá til ham-
ingju með daginn, allt í lagi með
það, en þetta voru bara ekki réttir
tvíburar, þessir áttu heima í
næsta húsi! Það var mikið hlegið
að þessu og þú ekki síst.
Ég veit að ég tala fyrir hönd
allra í okkar fjölskyldu þegar ég
segi, þú varst yndislegur maður
Einar minn og við eigum eftir að
Einar
Gunnarsson
✝ Einar Gunnarssonfæddist á Ísafirði
22. mars 1929. Hann
lést á heimili sínu 19.
desember 2010.
Útför Einars fór
fram frá Víðistaða-
kirkju í Hafnarfirði
28. desember 2010.
sakna þín mjög.
Þegar þú komst í
heimsókn til okkar
hjóna fyrir um tveim
vikum hress og kát-
ur heilsaðir þú mér
með kossi og með
þessum orðum: Mér
hefur alltaf þótt svo
vænt um þig Mummi
minn. Mig langar að
segja að lokum við
þig, Einar minn, að
mér hefur líka alltaf
þótt mjög vænt um
þig. Minningin um
þig verður alltaf í hjarta mínu og
bið ég góðan Guð að taka vel á
móti þér.
Elsku systir og fjölskylda, and-
lát elskulegs eiginmanns og föður
bar skjótt og óvænt að, en hann
sjálfur hefði ekki viljað hafa þetta
neitt öðruvísi, ekkert vesen eins
og hann sagði oft sjálfur. Hann
kvaddi þennan heim á sama hátt
og hann lifði í honum, hæglátlega
og hljótt.
Ég votta ykkur öllum mína
dýpstu samúð.
Guðmundur S. Guðmundsson.
Mig langar að minnast með
nokkrum orðum fyrrverandi
tengdaföður míns og þess besta
og traustasta vinar sem ég hef
átt. Við Einar kynntumst fyrir um
14 árum þegar ég og Málfríður
hófum samband. Fljótlega varð
með okkur mjög góður kunnings-
skapur og áttum við sama áhuga-
mál, sjóinn og það sem sneri að
sjávarútvegi. Þegar ég reri frá
Reykjavík, þá spurði Einar alltaf
um aflabrögð, veðráttuna og ann-
að sem sneri að sjómennskunni
sem mér þótti alltaf vænt um. Við
ferðuðumst mikið með Einari og
Sólveigu og minnisstæðust er
ferðin til Barcelona þar sem við
sátum á besta stað í stúkunni og
sáum sigurleik, og ferð okkar í
Hvalfjörðinn sl. sumar þar sem
við Einar og krakkarnir mínir
skoðuðum hvalstöðina og hann
sagði mér í smáatriðum hvernig
þetta allt fór fram þegar hann
stundaði hvalveiðarnar. Einnig
þau ævintýri sem hann lenti í í
tengslum við veiðarnar. Einnig
eru mér ofarlega í huga allar ferð-
irnar í sumarbústaði víða um land
og á Vestfirðina, tókum við þá
reglulega bryggjurúntinn og var
nánast undantekningarlaust farið
fyrst á bryggjuna í því bæjar-
félagi sem við komum í, og oftar
en ekki tekið röltið og spurt um
aflabrögð og fleira. Ég hafði ekki
síður gaman af því en Einar og
við höfðum stuðning frá hvor öðr-
um til að taka þessa frábæru
bryggjurúnta, þó svo að krakk-
arnir og konurnar hafi stundum
mótmælt.
Núna síðustu árin (allt of sjald-
an þó) fórum við Einar og með
krakkana mína bryggjurúntinn
hér í Reykjavík, fyrst niður
Laugaveginn þar sem hann sagði
mér alltaf sögur af gamalli tíð
þegar hann bjó í miðbænum og
þeim ævintýrum sem hann lenti í
þar og síðan var haldið niður á
Granda þar sem hvalbátarnir eru
og þar komu fleiri sögur tengdar
sjómennsku og hvalveiðunum sem
hann stundaði, við tókum okkur
þann tíma sem þurfti til og oftar
en ekki var spjallað við þá sem
þarna voru að landa eða að vinna
um borð í fiskibátum eða á
bryggjunni, rúntinn enduðum við
svo yfirleitt á pulsu, kók og ís.
Einar kenndi mér margt sem
snéri að veðurfari til sjós og lands
og ekki síst ýmis örnefni á Vest-
fjörðunum sem hann vissi meira
um en mörg landakort gátu sagt
manni.
Ég kveð þig, kæri vinur, og
sakna þess að geta ekki átt með
þér fleiri bryggjurúnta og spjall
um landið og miðin. Megi Guð
vaka yfir þér.
Þór Sigurðsson.
Það eru blendnar tilfinningar
að kveðja hann Einar bróður,
annarsvegar sár söknuður og
hinsvegar gleði yfir að hann fékk
að fara eins og hann óskaði,
snögglega og á undan henni Dollý
sinni. Mér fannst svo undur vænt
um hann bróður minn, reyndar
held ég að öllum sem kynntust
honum hafi þótt vænt um hann.
Hann var þessi ljúfi góði og glaði
maður sem sagði aldrei ljót orð
um nokkurn mann, og ef hallað
var á einhvern tók hann upp
hanskann fyrir viðkomandi.
Einar var sautján ára og farinn
suður þegar ég fæddist, og þó svo
að við Einar ælumst ekki upp
saman áttum við gott og hlýtt
samband. Mikið fannst okkur
Sævari vænt um þegar Einar og
Dolly tóku helgarrúnt í Keflavík
og höfðu gjarna Svenna eða eitt-
hvert annað barnabarn með.
Við vorum búin að ráðgera ferð
til Kanarí í febrúar með þeim en
Einari var ætlað annað og stærra
ferðalag. Hann var hamingjusam-
ur maður hann bróðir minn, átti
sína góðu konu og elskuleg börn
og barnabörn og allt sitt fólk elsk-
aði hann skilyrðislaust. Ég hef þá
trú að betri arfleifð sé ekki hægt
að skilja eftir sig. Þegar ég lít til
baka og læt hugann reika kemur
æði oft upp í hugann, Einar að
segja skemmtilegar sögur af sam-
ferðafólki í gegnum tíðina og hlát-
urinn og gleðin sem fylgdi með.
Við kveðjum elskulegan bróður
og mág með þakklæti og virðingu.
Ólöf Hafdís Gunnarsdóttir
(Lóa systir) og Jón Sævar
Sigurðsson.
Það var okkur mikil harmafrétt
er andlát góðs vinar okkar Einars
Gunnarssonar barst okkur til
eyrna. Einar hafði starfað hjá
okkur við fellingu á netum í yfir
30 ár, ásamt starfi sínu í Straums-
vík. Sá dugnaður og sú samvisku-
semi sem hann sýndi í starfi sínu
varð öðrum til eftirbreytni.
Vinnuálagið á Einar var oft
mikið á vertíðum en aldrei kvart-
aði hann og alltaf skilaði hann af
sér óaðfinnanlegri vinnu.
Oft kom upp sú staða að hann
þyrfti að bjarga okkur um net
þegar hann hafði nýlokið vakt í
Straumsvík og næsta var skammt
undan. Alltaf gátum við treyst því
að netin yrðu tilbúin á réttum
tíma.
Einar reyndist okkur góður vin-
ur og félagi og gladdi okkur oft
með nærveru sinni, þrátt fyrir að
hann væri hættur að vinna. Við
munum sakna þeirra stunda sem
við áttum í spjalli við hann um
daginn og veginn, auk þess sem
hann miðlaði af reynslu sinni,
bæði sögum og fróðleiksmolum.
Það er við hæfi að kveðja góðan
dreng með eftirfarandi ljóði eftir
Jón Trausta:
Guð blessi þig! Þú blóm fékkst grætt,
og bjart um nafn þitt er.
Og vertu um eilífð ætíð sæll!
Vér aldrei gleymum þér.
Við biðjum Guð að blessa góðan
dreng og vottum fjölskyldu hans
okkar dýpstu samúð.
F.h. Starfsfólks Útvíkur hf.,
Þorsteinn Svavarsson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, sonur okkar, faðir,
tengdafaðir, bróðir, mágur, fósturfaðir og afi,
JÓN BRAGI BJARNASON
prófessor,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 14. janúar kl. 13.00.
Ágústa Guðmundsdóttir,
Bjarni Bragi Jónsson, Rósa Guðmundsdóttir,
Sigurrós Jónsdóttir, Kári Árnason,
Sigríður Dröfn Jónsdóttir, Andrés Þór Gunnlaugsson,
Bjarni Bragi Jónsson, Hólmfríður Hartmannsdóttir,
Ólöf Erla Bjarnadóttir, Sigurður Axel Benediktsson,
Guðmundur Jens Bjarnason, Vigdís Sigurbjörnsdóttir,
Ingibjörg Ýr Pálmadóttir, Ásgeir Ásgeirsson,
Anna Theodóra Pálmadóttir, Guy Aroch,
Guðmundur Pálmason, Sigrún Gísladóttir
og barnabörn.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug og studdu okkur og styrktu við
andlát ástkærs unnusta míns, sonar, bróður,
barnabarns og tengdasonar,
BRYNJARS ÞÓRS INGASONAR,
Fjarðarstræti 2,
Ísafirði.
Guð blessi ykkur öll.
Rannveig Jónsdóttir,
Ingi Þ. Guðmundsson,
Almar Þór Ingason,
Fannar Þór Ingason,
Birta Kristín Ingadóttir,
Óttar Gunnarsson,
Pálína Þórarinsdóttir,
Margrét Gunnarsdóttir, Jón Sigurpálsson.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu hlýhug,
ást og umhyggju við andlát og útför elsku móður
minnar og tengdamóður,
RANNVEIGAR ÞORBERGSDÓTTUR,
áður Fögruvöllum,
Garðabæ,
Háahvammi 7,
Hafnarfirði.
Margrét Gunnarsdóttir, Hafþór Hafdal Jónsson.
Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur
samúð og hluttekningu við fráfall sonar okkar og
bróður,
RUNÓLFS VIÐARS STURLUSONAR.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Lóa Ingólfsdóttir, Sturla Bjarnarson,
Sunna, Sandra, Sólrún Björk og Kjartan Már.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SIGURJÓNS JÓHANNSSONAR
skipstjóra,
Laugarvegi 15,
Siglufirði.
Ásdís Gunnlaugsdóttir,
Kristín Sigurjónsdóttir, Þórður M. Sigurðsson,
Jóhann Sigurjónsson, Shirley Sigurjónsson,
Herdís Sigurjónsdóttir, Erlendur Örn Fjeldsted,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og
samúð við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður, tengdaföður, sonar, bróður, mágs og
afa,
HARÐAR INGVALDSSONAR,
Naustabryggju 2,
Reykjavík.
Sigrún Hallsdóttir,
Tinna Harðardóttir, Brynjar Þór Bjarnason,
Jens Harðarson, Aleksandra Pantic,
Ingvaldur Rögnvaldsson, Helga Hafdís Gústafsdóttir,
Þóra Ingvaldsdóttir, Pétur Kristjánsson,
Haukur Ingvaldsson, Henny Kartika,
Barði Ingvaldsson, Valgerður Ragnarsdóttir,
Eyrún Ingvaldsdóttir, Sigurður Scheving Gunnarsson,
Emma Sif Brynjarsdóttir,
Arnar Freyr Brynjarsson.