Morgunblaðið - 11.01.2011, Page 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2011
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Hafnarstræti
107, Akureyri, sem hér segir, á eftirfarandi eignum:
Draupnisgata 7, iðnaður 01-0202 (225-3448) Akureyri, þingl. eig. Björn
Stefánsson, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf.,
föstudaginn 14. janúar 2011 kl. 10:00.
Hafnarstræti 23B, íb. 01-0201 (222-5904) Akureyri, þingl. eig. Þórir
Ágúst Sigurðsson, gerðarbeiðandi Kreditkort hf., föstudaginn
14. janúar 2011 kl. 10:00.
Langamýri 3, einb. 01-0101 (214-8591) Akureyri, þingl. eig. Hjördís D.
Bech Ásgeirsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn
14. janúar 2011 kl. 10:00.
Mánahlíð 4, íb. 01-0201 (214-8988) Akureyri, þingl. eig. ElvarThoraren-
sen og Hrafnhildur Haraldsdóttir, gerðarbeiðendur Akureyrarbær og
Íbúðalánasjóður, föstudaginn 14. janúar 2011 kl. 10:00.
Sjávargata, lóð 152121, Eik geymsla 01-0101 (215-6384) Hrísey, Akur-
eyri, þingl. eig. Guðlaugur Jóhannesson, gerðarbeiðandi
Íslandsbanki hf., föstudaginn 14. janúar 2011 kl. 10:00.
Súluvegur 149595, steypustöð 01-0101 (215-1074) Akureyri, þingl. eig.
þb. Fasteignafélagið Ártún ehf., gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður,
föstudaginn 14. janúar 2011 kl. 10:00.
Súluvegur 149596, verksmiðjuhús 01-0101 (215-1084) Akureyri, þingl.
eig. þb. Fasteignafélagið Ártún ehf., gerðarbeiðandi Akureyrarkaup-
staður, föstudaginn 14. janúar 2011 kl. 10:00.
Vaðlabyggð 1, einb. 01-0101, bílsk. 01-0102, (228-9416) Svalbarðs-
strandarhreppi, þingl. eig. Icefox á Íslandi ehf., gerðarbeiðandi Frjálsi
fjárfestingarbankinn hf., föstudaginn 14. janúar 2011 kl. 10:00.
Vaðlabyggð B 204843, lóð - annað land, Svalbarðsstrandarhreppi,
þingl. eig. Icefox á Íslandi ehf., gerðarbeiðandi Frjálsi
fjárfestingarbankinn hf., föstudaginn 14. janúar 2011 kl. 10:00.
Þingvallastræti 149789, lóð - iðnaðar- og athafnalóð, Akureyri, þingl.
eig. þb. Fasteignafélagið Ártún ehf., gerðarbeiðandi Akureyrarkaup-
staður, föstudaginn 14. janúar 2011 kl. 10:00.
Þingvallastræti 29, eignarhl. íb. 01-0101, bílsk.02-0101 (215-1875) Akur-
eyri, þingl. eig. Guðmundur Karl Óskarsson, gerðarbeiðandi Lýsing
hf., föstudaginn 14. janúar 2011 kl. 10:00.
Öngulsstaðir 3, lóð 194460. einb. 01-0101 (216-0055) Eyjafjarðarsveit,
þingl. eig. Brynja Birgisdóttir, gerðarbeiðendur Eyjafjarðarsveit og
Íbúðalánasjóður, föstudaginn 14. janúar 2011 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
10. janúar 2011.
Halla Einarsdóttir, ftr.
Félagslíf
HAMAR 6011011119 I
FJÖLNIR 6011011119 I
EDDA 6011011119 III
I.O.O.F. Rb. 1 1591118
HLÍN 6011011119 VI
Smáauglýsingar 569 1100
Antík
Antikklukkur og viðgerðir
Sérhæfð viðgerðarþjónusta á
gömlum klukkum og úrum.
Guðmundur Hermannsson úrsmíða-
meistari, ur@ur.is, s. 554 7770 -
691 8327.
Spádómar
ÞÓRA FRÁ BREKKUKOTI
– Spámiðill
Spái í spil og kristalskúlu
Heilunartímar
Fyrirbænir
Algjör trúnaður
Sími 618 3525
www.engill.is
Sumarhús
Sigurhus.is
Kíktu á sigurhus.is og skoðaðu falleg
sumarhús til sölu. Einnig er þar
forvitnilegt myndband sem er þess
virði að skoða. Upplýsingar í símum
899 9627 og 899 9667, e-mail:
siguragust@simnet.is.
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig
á hinum ýmsu byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
C.P. þjónusta. Veiti bókhalds-,
eftirlits- og rannsóknarvinnu alls-
konar. Hafið samband í síma
893 7733.
Bókhaldsstofan ehf. Reykja-
víkurv. 60, Hf. Færsla á bókhaldi,
launaútr., vsk-uppgjör, skattframtöl,
stofnun fyrirtækja. Magnús Waage,
viðurkenndur bókari, s. 863 2275,
www.bokhaldsstofan.is.
Þjónusta
Tek að mér ýmis smærri
verk
Upplýsingar í síma 847 8704
eða manninn@hotmail.com.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Dúnúlpa- Tilboð
Dúnúlpa, 20% afsláttur
þessa viku. St. S-XXL.
Litir; svart, grátt.
Sími 588 8050,
Facebook - vertu vinur.
Tilboð - Tilboð
Þessi og margir aðrir fást í stökum
skálastærðum
D,DD,E,F,FF,G,GG,H,HH á kr. 4.990.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugardaga 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
- vertu vinur
Veiðihúsið í Kjós
Í Veiðihúsinu við Laxá í Kjós
er stór og vandaður veislu-
salur sem tekur allt að 100
manns í sæti og með gistingu
fyrir allt að 40 manns.
Pöntunarsímar:
618 0083 & 437 0083
eða jon@grimsa.is
www.hreggnasi.is
Minimizer kominn aftur !!
Teg. HELENA - mjög haldgóður og
gott snið í D,DD,E,F,FF,G,GG,H
skálum á kr. 7.990,-.
Teg. ASIA - fæst í E,F,FF,G skálum á
kr. 8.770.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugardaga 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
- vertu vinur
Bílaþjónusta
Byssur
SJÓFUGLASKOT ISLANDIA
34 gr, 36 gr og 42 gr sjófuglaskotin
komin. Topp gæði - botn verð. Send-
um um allt land. Sportvörugerðin,
sími 660-8383. www.sportveidi.is
Raðauglýsingar
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
...þú leitar og finnur
Stóri Gunni er núna
farinn á vit ævintýr-
anna, þar sem allt er
fallegt og gott, þó ekki sé hægt að
segja annað en að þar sem hann bjó er
einnig allt fallegt og gott og nóg af æv-
intýrum að finna í sveitinni. Gunni er
maður sem hefur alltaf verið í mínu
lífi, hann hefur alla tíð búið í sveitinni
og þar hef ég verið tíður gestur frá því
að ég fæddist.
Ég á aðeins góðar minningar um
Gunnar, ég mun alltaf muna hve góður
hann var við mig, systkini mín, frænk-
ur og frændur. Mun muna hvað hann
var þolinmóður gagnvart okkur
krökkunum, hvað hann nennti að taka
okkur með í öll þau verkefni sem fyrir
lágu. Fara út í fjárhús, allt sem því
kom við fengum við annað hvort að
hjálpa til við eða fylgjast með. Ég man
hvað ég hlakkaði alltaf mikið til að fara
Gunnar Ellertsson
✝ Gunnar Ellerts-son fæddist 24.
janúar 1965 á Blöndu-
ósi. Hann lést á heim-
ili sínu, Bjarnastöðum
í Vatnsdal, að kvöldi
Þorláksmessu 23. des-
ember 2010.
Gunnar var jarð-
sunginn frá Þingeyra-
kirkju 8. janúar 2011.
að reka kálfana niður á
engi og þegar við vor-
um að fara að reka
hestana upp á Sauða-
dal. Í heyskapnum
kenndi hann mér á
traktor og fékk ég hin
ýmsu verkefni, annað
hvort að rifja eða girða,
þó aðallega að rifja. Ég
mun líka alltaf muna
það hvað það var gam-
an að fara niður að flóði
og draga inn netin og
þegar hann fór með
okkur að veiða á brúnni
við Hnausatjörn. Stóri Gunni gat alltaf
tekið okkur krakkana með, með í allt,
ef ekki öll í einu þá fór hann bara fleiri
ferðir.
Ég á eftir að sakna hans mikið og á
ég örugglega aldrei eftir að venjast því
að koma í sveitina og hann ekki þar.
Ég bað oft okkar góða Guð um lækn-
ingu fyrir hann en hann kaus að fá
hann til sín og hefur örugglega verð-
ugt verkefni handa honum þarna efra.
Ég bið að Guð blessi fjölskyldu
mína og hjálpi okkur í gegnum þessa
erfiðu tíma. Ég þakka fyrir að hafa
þekkt Gunnar og óska þess að ég geti
verið jafn góður maður og hann var.
Efesusbréfið 6:18: „Gjörið það með bæn
og beiðni og biðjið á hverri tíð í anda.
Verið því árvakrir og staðfastir í bæn fyr-
ir öllum heilögum.“
Gunnar Örn
Sigurbjörnsson
Orðstír fagur aldrei deyr,
óhætt má því skrifa
á söguspjöldum síðar meir,
saga þín mun lifa.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Í dag er borinn til grafar mikill og
merkur maður, allavega í okkar aug-
um, ég fékk að vísu ekki langan tíma
með Gunnari enda stutt síðan ég flutti
í Vatnsdalinn en ég hef heyrt þeim
mun meira af verkum hans og vinnu-
brögðum. Gunnar á Bjarnastöðum var
maður sem gott var að hafa sér við hlið
jafnt í smalamennsku og öðru.
Það var gott að leita til hans og það
sem hann gerði var ávallt samvisku-
samlega og vel af hendi leyst. Því var
hægt að treysta. Það var kannski þess
vegna sem hann var kallaður héðan
svona snemma, Himnaföðurinn vant-
aði góðan mann og það strax. Og það
var Gunnar, góður maður, duglegur,
jákvæður, hógvær, ósérhlífinn, sam-
viskusamur og umfram allt vinur vina
sinna.
Það voru mörg haustin sem þeir
Árni fóru saman í göngurnar og mörg
skiptin sem þeir unnu saman við rún-
ing og önnur störf og bar aldrei
skugga á vináttu þeirra og vinskap,
enda með afbrigðum gott að vinna með
Gunnari.
Móðir Árna, Indíana Sigfúsdóttir í
Sunnuhlíð, orðaði það svona:
Allt er verkið ósvikið,
unnið tökum hröðum.
Gott er blanda geði við
Gunnar á Bjarnastöðum.
Þegar fréttir bárust af veikindum
Gunnars á sumri líðandi fannst okkur
að hann hlyti að hrista þetta af sér
fljótlega, þetta gæti bara ekki verið al-
varlegt.
En fréttirnar urðu dekkri og óljósari
þannig að það var óskaplega gott að
hitta Gunnar sjálfan í réttunum í haust,
sæmilega hressan og kátan eða bara
nokkuð líkan sjálfum sér. Síðan hefur
hallað undan fæti og þrátt fyrir óskir
um að fá að lifa jólahátíðina í faðmi fjöl-
skyldunnar fannst þeim sem öllu ræð-
ur að jól í himnaríki gætu ekki gengið
lengur án Gunnars á Bjarnastöðum og
því fór sem fór. Hann er nú „laus úr
veikinda viðjum“ og er örugglega þeg-
ar byrjaður að taka til hendinni þarna
uppi.
Við hin sitjum eftir með autt pláss og
minningu um góðan dreng sem helgaði
líf sitt því að yrkja landið, hugsa um
aðra frekar en sjálfan sig og bæta
mannlífið í kringum sig.
Foreldrum hans, systkinum og öðr-
um ættingum og vinum sendum við
innilegar samúðarkveðjur, megi góður
Guð styrkja ykkur og lýsa í svartnætt-
inu. Það birtir vonandi um síðir.
Minning Gunnars á Bjarnastöðum
lifir í huga okkar
Sigrún Marta og Árni í Sunnuhlíð.
Í dag er til moldar borinn einn af
betri sonum Húnaþings eftir alltof
stutta ævi.
Gunnar Ellertsson var góður
drengur og þarfur okkar litla sam-
félagi því hann gaf af sér hvar sem
hann kom að verki. Hans ævistarf
var bóndastarfið sem átti svo vel við
hann. Ásamt því að reka stórt bú
með fjölskyldu sinni á Bjarnastöð-
um vann hann að rúningi á fé bænda
marga mánuði á ári og fannst okkur
hér í Ási alltaf tilhlökkunarefni vor
og haust þegar hann kom í þau verk.
Hann hafði áhuga og skoðanir á
flestu sem fylgir þessari tilveru en
sérstaklega var mannlífið á hans
heimaslóðum í Vatnsdal og Þingi
honum kærkomið umræðuefni,
bæði um menn og málleysingja, og
þá ætið á léttu nótunum, en ævin-
lega og aldrei talaði hann illa um
neinn.
Leiðir okkar í göngum á heiðum
uppi lágu lengi saman en þar eins og
við annað var hann traustur og dug-
legur og oftast sendur í erfiðustu
göngurnar, enda vel ríðandi. Í nátt-
stað virtist hann skemmta sér allra
manna best, kátur og brosmildur.
Það er mikil eftirsjá af þessum
góða dreng en minning hans mun
lifa og koma í hugann þegar góðs
manns er getið, glaðlegan og víg-
reifan með þrjá hvíta til reiðar.
Við vottum fjölskyldu Gunnars og
öllum aðstandendum innilega sam-
úð.
Jón og Inga.