Morgunblaðið - 11.01.2011, Side 29
DAGBÓK 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
AFMÆLI SNÚAST UM MEIRA
EN BARA KÖKUR OG NAMMI
ALLT Í LAGI,
ÞETTA ER RANGT
HJÁ MÉR
ÞÚ ERT SVO
MIKILL GRALLARI
AF HVERJU ER
BARÞJÓNNINN Í
TRÚÐABÚNING?
HANN LANGAÐI AÐ LÍFGA UPP
Á STAÐINN, HONUM FANNST ALLIR
EITTHVAÐ SVO ÞUNGLYNDIR
ÉG
BJÓST VIÐ AÐ
EIGNAST ÖÐRU-
VÍSI BRÓÐUR
ÉG BIÐST FORLÁTS
HÁÆRUVERÐUGA SYSTIR.
ÉG MUN GERA ALLT SEM Í
MÍNU VALDI STENDUR TIL
AÐ BREYTA MÉR Í HINN
FULLKOMNA LITLA BRÓÐUR
LITLIR BRÆÐUR FÆÐAST
MEÐ MARGRA ÁRA
REYNSLU Í KALDHÆÐNI
MÉR SKILST AÐ
GÖMLU BEKKJARFÉLAGAR
MÍNIR SÉU AÐ ENDURNÝJA
KYNNIN Á FACEBOOK
ERTU
EKKI Á
FACEBOOK?
EN ÞAÐ ERU
ALLIR Á
FACEBOOK!
EKKI
ALLIR
ALLIR
NEMA ÞÚ
ÉG
ÆTTI
KANNSKI AÐ
SKRÁ MIG
LÍT ÉG ÚT
FYRIR AÐ VERA SÚ
MANNGERÐ SEM FER
Í LEIKHÚS?
NEI,
GLEYMDU
ÞESSU
BARA
ÉG MYNDI FREKAR
VILJA HANGA HÉR OG
GEFA DÚFUNUM
ÞAÐ ER ÁLÍKA GAMAN AÐ TALA VIÐ
ÞIG EINS OG AÐ LÁTA RÍFA ÚR SÉR JAXL!
Prjónasett tapaðist
Hefur einhver rekist á
þetta prjónasett, sem
samanstendur af
tveimur pörum af
vettlingum, húfu og
trefli? Týndist frá
Lynghálsi.
Finnandi vinsam-
legast beðinn um að láta vita í síma
557-3173 eða 898-3174.
Ruglið hjá RÚV
Ég get ekki lengur orða bundist yfir
ruglinu í stjórnendum RÚV. Nýver-
ið keyrði um þverbak er útvarps-
stjórinn gerði tilraun til yfirtöku á
yfirverði á sýningarrétti á HM í
handbolta af Stöð 2. Eftir að hafa
rekið tugi frétta- og dagskrárgerð-
arfólks að undanförnu vill hann
bruðla með tugi milljóna í handbolta.
Er það hlutverk RÚV að kaupa
kappleiki á meðan nánast engin
þjónusta er við stóran hluta landsins
og innlend dagskrágerð er í skötu-
líki? Á sl. ári voru svæðisstöðvar
RÚV á Vestfjörðum og
Austurlandi nánast
þurrkaðar út þrátt fyr-
ir að íbúar þessara
landsvæða greiði um
230 milljónir í nef-
skatt. Íþróttadeild
RÚV kostaði á þriðja
hundrað milljónir á
sama tíma. Lands-
byggðin greiðir alls
um 1,3 milljarða í nef-
skatt árlega og er svo
sinnt með hangandi
hendi svo ekki sé fast-
ara að orði kveðið.
Aðrir fjölmiðlar eru
svo sem ekki hótinu
skárri, en þeir inn-
heimta þó ekki nefskatt.
Á hvaða plánetu-póstnúmeri
hundraðogeitthvað þrífast þessir
stjórnendur Ríkisútvarpsins? Og
svo klykkir þetta lið út með fras-
anum „útvarp allra landsmanna“.
Það er dapurlegt að við greiðum
þessu liði svo laun með nefskatti
okkar. Ég hvet landsbyggðarfólk
sem og aðra til að láta í sér heyra,
því þögn er sama og samþykki.
Langþreyttur nef-
skattsgreiðandi á
landsbyggðinni.
Ást er…
… að reyna að bæta sam-
bandið, barnanna vegna.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9,
handavinna kl. 12.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Myndvefnaður, út-
skurður, línudans, handavinna.
Dalbraut 18-20 | Handavinna kl. 9, fé-
lagsvist kl. 14.
Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8, vídeó
kl. 14.
Fella- og Hólakirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Súpa og brauð í safnaðarheimili eft-
ir stundina.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák
kl. 13, félagsvist kl. 20.
Félag kennara á eftirlaunum | EKKÓ-
kórinn æfir í húsi KHÍ við Stakkahlíð kl.
16.30. Nýjar raddir velkomnar.
Félag kennara á eftirlaunum | Tölvu-
starf í Ármúlaskóla kl. 15.
Félagsheimilið Boðinn | Handavinna
m/kennara kl. 9, félagsvist kl. 13 ef
næg þátttaka fæst.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl.
9.15, handavinnustofa, gler- og postu-
lín kl. 9.30, jóga kl. 10.50, alkort kl.
13.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9, jóga/myndlist kl. 9.30,
ganga kl. 10. málm/silfurs., canasta kl.
13, jóga kl. 18.
Félagsmiðstöðin Aflagranda | Nám-
skeið: Kristín Jónsd. fjallar umVöluspá,
hefst mán. 31. jan. kl. 16 og verður tvo
næstu mánudaga á sama tíma. Upplýs-
ingar í síma 411-2700.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 12.10. Bútas. og karla-
leikfimi kl. 13, botsía kl. 14, Bónusrúta
kl. 14.45, línudans kl. 16.15. Innritun í
leikfimi- og tómstundanámskeið er lok-
ið. Jónshús er opið 9.30-16.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
kl. 9, glerskurður/perlusaumur, staf-
ganga kl. 10.30. Á morgun kl. 10 leik-
fimi, sungið og dansað.
Grafarvogskirkja | Opið hús kl. 13.30.
Helgistund, handavinna, spil og spjall.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, qi-gong
og myndmennt kl. 10, leikfimi kl. 11.30,
brids kl. 12.30, gler/myndm. kl. 13.
Þorrablót 22. janúar.
Hvassaleiti 56-58 | Lífsorkuleikfimi kl.
8.30, 9.30 og 10.30. Bútasaumur kl. 9.
Myndlist kl. 13. Helgistund kl. 14 séra
Ólafur Jóhannsson. Stólaleikfimi kl. 15.
Hæðargarður 31 | Hringborðið/
kaffitár kl. 8.50, listasmiðja kl. 9, búta-
s., skartgripagerð, perlus. o.s.frv. Fram-
haldss. kl. 10.50. Hláturjóga kl. 13.30,
Bónus 12.40. Bókabíll kl. 14.15. Gáfu-
mannakaffi kl. 15. Perlufestin kl. 16,
spænska/skák/tónlistarhópur; skrán.
hafin, s. 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð | Línudans hóp. I
kl. 14.40, hóp. II kl. 16.10, hóp. III kl.
17.40. Versalir: Ganga kl. 16.30.
Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikf. kl.
9.30, bingó á morgun kl. 13.30.
Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9.15,
spurt/spjall/leshópur kl. 13, spilað kl.
14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Bútasaum-
ur og glerbræðsla kl. 9, morgunstund
kl. 9.30, upplestur kl. 12.30, handa-
vinnustofa e. hád. Félagsvist kl. 14.
Hjálmar Freysteinsson færðirökstuðning með kröfugerð
vegna vangoldinna launa fundarrit-
ara lánanefndar Landsbankans
gamla í bundið mál:
Fundargerð ef færði sá
um fund sem aldrei haldinn var,
er skítt hann ekki skyldi fá
þau skáldalaun er honum bar.
Davíð Hjálmar Haraldsson lyftir
grettistaki í snjónum fyrir norðan:
Tek ég á skóflu svo tognar á örmum,
traustabrest nem ég í hryggjarlið 7.
Lófarnir sárna og loft fer úr þörmum.
Líklega verð ég þó búinn um 2.
Hundurinn Elvis gleður gjarnan
húsbónda sinn Sigurð Ingólfsson
með kveðskap úr tilveru ferfætling-
anna. Hann orti í vikunni:
Mig dreymdi ég hefði æðislegan
yndisþokka
með líkama sem Adonis
og ljúfa lokka.
Svo vaknaði ég og viti menn,
ég var það enn.
Sigurður hafði þetta að segja um
kveðskapinn: „Hundurinn er nars-
issískur í besta falli.“
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af skóflu og skáldalaunum
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is