Morgunblaðið - 11.01.2011, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 11. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318
1. Ófríðir hrottar réðust á ...
2. Íslendingur á forsíðu NME
3. Lýst eftir karlmanni
4. Afklæddist á flugvelli
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Í ár verður í fyrsta sinn blásið til
hljómsveitakeppni meðfram Ford-
fyrirsætukeppninni sem haldin verð-
ur þann 4.febrúar. Þetta er því gott
tækifæri fyrir nýjar hljómsveitir og
bílskúrsbönd sem vilja láta í sér
heyra. »32
Hljómsveitakeppni
og fyrirsætukeppni
Árni Hjörvar
Árnason er með-
limur í The Vacc-
ines sem prýðir
nú forsíðu NME
sem er eitt víð-
lesnasta tónlist-
arblað heims.
Sveitinni er spáð
miklum frama í ár
og var í 3. sæti yfir þá listamenn sem
BBC spáir góðu gengi. Var hún efsta
hljómsveitin, söngkona og söngvari
voru þar fyrir ofan.
Íslendingur á forsíðu
NME-tímaritsins
Leiðtogi ensk-íslensku rokkabillí-
sveitarinnar The 59’s, Smutty Smiff,
er óþreytandi við trúboðið og er helj-
armikil rokka-
billíveisla fyrir-
huguð um miðjan
febrúar þar sem
Langi Seli og
Skuggarnir munu
troða upp og svo sveit
Smutty að sjálf-
sögðu. Johnny Cash
Íslands verður einn-
ig valinn.
Hver er Johnny Cash
Íslands!?
Á miðvikudag Norðaustlæg átt, 10-15 m/s NV-til, annars víða 5-10. Víða él eða dálítil
snjókoma, en úrkomulítið sunnan- og vestanlands. Frost 1 til 10 stig.
Á fimmtudag Norðaustanátt, víða 5-10 m/s A-lands en 8-15 V-til. Vaxandi austan- og
norðaustanátt síðdegis, einkum V-til. Snjókoma eða éljagangur og heldur hlýnandi.
VEÐUR
Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir,
landsliðskona í blaki, varð
um helgina norskur bikar-
meistari með liði sínu UiS
Volley. Jóna og félagar sigr-
uðu Oslo Volley eftir æsi-
spennandi rimmu í loka-
hrinunni, 15:13 og var Jóna
kosin besti leikmaður UiS
Volley í leiknum. Jóna er frá
Neskaupstað og var í lyk-
ilhlutverki þegar félagið
varð Noregsmeistari síð-
asta vor. »3
Jóna best í
bikarúrslitunum
Landsliðskonan Dóra María Lárus-
dóttir hefur ákveðið að leika með
sænska úrvalsdeildarliðinu Djur-
gården í Stokkhólmi. Þar hittir hún
fyrir gamlan samherja úr
Val, Guðbjörgu Gunn-
arsdóttur, sem ver
mark liðsins. Guðrún
Sóley Gunnarsdóttir er
auk þess hjá félaginu en
hefur nánast ekkert
leikið frá því á
EM
2009
vegna
höfuðmeiðsla. »2
Dóra María endurnýjar
kynnin við Guðbjörgu
Hið árlega Nýárssund fatlaðra ung-
menna var haldið í Laugardalslaug-
inni á sunnudaginn. Kolbrún Alda
Stefánsdóttir úr íþróttafélaginu Firði
úr Hafnarfirði var heiðruð fyrir að
vinna besta afrek mótsins. Kristinn
Ingvarsson ljósmyndari Morgun-
blaðsins var á mótinu og má sjá af-
raksturinn í myndasyrpu í íþrótta-
blaðinu í dag. »4
Fjölmennt Nýárssund
hjá fötluðum
ÍÞRÓTTIR
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Landsmenn hafa ekki farið varhluta
af kuldatíðinni að undanförnu, eink-
um norðan- og austanlands, með
frosti, snjókomu og éljagangi.
Lægðagangur suður yfir landið hef-
ur verið þrálátur en hvort heim-
skautaveður er í aðsigi telja veður-
fræðingar of snemmt að fullyrða um.
Veturinn hafi þó til þessa verið kald-
ur og óvenjulegur að mörgu leyti.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræð-
ingur hefur fjallað nokkuð um kulda-
tíðina á bloggsíðu sinni (esv.blog.is).
Norðan- og norðaustanáttir með
lægðum á suðurleið hafi verið næsta
fátíðar hér á landi síðustu 10-15 árin.
„Spurning hvort þetta sé tilfallandi
nú þennan veturinn eða að vetrar-
veðráttan sé að skipta um ham.
Þannig að veturinn 2010-2011 verði
vetur straumhvarfa líkt og var 1964-
1965 eða 1995-1996? Tíminn verður
að leiða í ljós hvort sú sé raunin,“ rit-
ar Einar á bloggsíðunni.
Hann segir við Morgunblaðið að
svonefndar fyrirstöðuhæðir með
háum loftþrýstingi hafi verið ríkjandi
síðan um miðjan nóvember, með ým-
ist mjög köldu veðri eða mjög hlýju
líkt og milli jóla og nýárs.
Hin svonefnda N-Atlantshafs-
sveifla, einnig nefnd N-Atlantshafs-
vísitala (NAO), hafi verið neikvæð
frá miðjum nóvember sl. En vísitalan
er einfaldur þrýstimunur á milli Ís-
lands og Azor-eyja. Þegar þrýsti-
munurinn er mikill er sterk vestanátt
á Atlantshafi og mikill lægðagangur.
Þegar þrýstimunurinn er lítill er vísi-
talan neikvæð og lægðagangur lítill.
Einkennilegur og óhefðbundinn
Einar segir að þessu hafi fylgt
kuldi og vetrarríki á meginlandi Evr-
ópu. Nú sé útlit fyrir að NAO verði
jákvæð aftur, sem geti þýtt mildara
loft á meginlandi Evrópu en Íslend-
ingar geti setið uppi með þrálátar
norðan- og norðaustanáttir.
Einar segir við Morgunblaðið að
svo geti farið að þessi vetur verði ein-
stakur fyrir tilviljun, og allt hrökkvi í
sama farið með tilheyrandi hlýindum
líkt og nokkra undanfarna vetur, eða
þá að við séum að sigla inn í nýtt og
kaldara tíðarfar næstu árin.
„Veturinn hefur verið einkenni-
legur að ýmsu leyti og óhefðbundinn,
mikið um stillur og kaldir og hlýir
dagar í bland og úrkoma ekki mikil.
Það hefur verið snjólétt á landinu
þrátt fyrir nokkur köst.“
Trausta Jónssyni veðurfræðingi
hefur á bloggsíðu sinni (trj.blog.is)
einnig orðið tíðrætt um þessa kulda-
polla sem hann hefur gefið nafnið
Snarpur 1, 2, og 3. Í samtali við
Morgunblaðið segir Trausti of
snemmt að spá um hvort einhver
straumhvörf séu að verða í tíðar-
farinu. Þetta sé aðeins annar kaldi
veturinn í V-Evrópu eftir langt hlý-
indaskeið, allt frá 1989. Það muni
sjást eftir 4-5 ár hvort veturinn núna
marki einhver tímamót.
Heimskautaveður framundan?
Veðurfræðingar varkárir með slíkar
spár en veturinn er óvenjukaldur
Morgunblaðið/Theódór K. Þórðarson
Sk
otv
ind
ur
Veik
hæð
Veik
lægð
Milt og
minni hafís
Kalt og
þurrt
„Fyrirstaða“
Kalt og þurrt
Kalt og
meiri hafís
Skotvindur
Öflug
hæð
Öflug
lægð
Hlýtt
Milt og
rakt
Jákvæð mæling
Neikvæð mæling
Norður-Atlantshafssveiflan (NAO)
Hlýtt og rakt
Kaldi og
snjókoma
Skotvindur
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-15, hvassast V-til. Snjókoma eða él um landið norð-
anvert, en annars yfirleitt þurrt. Frost 1 til 10 stig, kaldast inn til landsins.