Organistablaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 16
Á þessu ári hafa látist tveir aldraðir kirkjuorganistar íÁrnesprófastdæmi. Skal
þeirra minnst hér í Organistablaðinu nokkrum orðum. Verður það einkum um
starf þeirra að tónlistarmálum, en vart þarf að taka fram, að þar var eingöngu
um áhuga- og hugsjónastarf að ræða og því lítill hluti ævisögu þeirra. Þessi fáu
orð eru enda ekki skrifuð með það í huga að rekja hana til hlítar, heldur til þess að
minning þeirra og stutt ágrip af sögu organistans megi varðveitast í þessu riti.
Ingóifur Þorsteinsson,
organisti,
Merkilandi,
Selfossi.
Ingólfur Þorsteinsson var fæddur í Langholti í Hraungerðishreppi 14. febrúar
1899, næst-elstur systkyna sinna.
Foreldrar hans voru hjónin þar, Helga Einarsdóttir og Þorsteinn Sigurðsson.
Að Ingólfi stóðu þekktar ættir um Suðurland.
Bernsku sína átti Ingólfur í föðurhúsum, en um tvítugt hafði hann lokið námi
í Flensborgarskóla og búnaðarskólanum á Hólum, og um tveggja ára skeið haft á
hendi kennslu í heimabyggð sinni. Eitt ár var hann síðan í Danmörku viðfrekara
nám og starf. Heimkominn gerðist hann trúnaðar- og mælingamaður hjá
Búnaðarfélagi íslands.
Árið 1924 kvæntist hann Guðlaugu Brynjólfsdóttur. Foreldrar hennar voru
hjónin Guðný Jónsdóttir og Brynjólfur Gíslason í Skildinganesi. Guðlaug var
kennaramenntuð og var við kennslustörf áður en hún giítist.
Ingólfur og Guðlaug hófu búskap í Langholti, en jafnframt hafði Ingólfur á
hendi margvísleg störf fyrir samfélagið. Þegar svo Flóaáveitan tók til starfa og
hann varð framkvæmdastjóri hennar, byggðu þau hjónin nýbýli á landi sem þau
keyptu af Laugardælum, skammtfrá M.B.F. - og nefndu Merkilandi. Þar höfðu
þau og nokkurn búskap, lengst af. Aðalstarf Ingólfs var nú við Flóaaáveituna og
sfðar einnig Ræktunarsamband Flóa og Skeiða. Ingólfur var um tíma í
hreppsnefnd Selfosshrepps og ýmsum öðrum nefndum og formaður þeirra
margra.
16 ORGANISTABLAÐIÐ