Morgunblaðið - 19.02.2011, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugard. 11–14, sunnud. lokað
Næsta listmunauppboð 7. mars
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband í síma
551-0400, 896-6511 (Tryggvi),
845-0450 (Jóhann)
Erum að taka á móti verkum núna í
Galleríi Fold við Rauðarárstíg
Dýrt að stytta leigutímann
Samorka varar við áformum um að „vinda ofan af“ löglega gerðum samningum
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Í ályktun aðalfundar Samorku, sem haldinn var í
gær, er varað við áformum stjórnvalda um að
„vinda ofan af“ löglega gerðum samningum við
einkaaðila á sviði orkunýtingar og bent á að slík-
ir gjörningar geti fælt frá áhugasama fjárfesta.
Enn fremur að aukin gjaldtaka, í formi auðlinda-
gjalda eða skatta, myndi ekki skapa ný verð-
mæti heldur þvert á móti leiða til hærra orku-
verðs. Það sama gildi um styttingu á leigutíma
orkuauðlinda.
Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Samorku, segir augljóst mál að fjárfestar
hljóti að veigra sér við að koma með fjármagn
inn í geira þar sem óvissa ríkir um leikregl-
urnar. „Menn hljóta eðlilega að hugsa sig tvisv-
ar um þegar þeir heyra yfirlýsingar um að það
eigi að gera óvirka samninga sem búið er að
gera á löglegan hátt,“ segir Gústaf.
Hvað varðar samningaviðræður stjórnvalda
og Magma um styttri leigutíma orkuauðlind-
anna segir hann Samorku ekki hafa tekið neina
afstöðu til þeirra. „Okkur þykir hins vegar
ekki gott að það sé verið að beita okkar fé-
lagsmenn svona þrýstingi og það er augljóst að
Magma átti ekki frumkvæðið að þessum við-
ræðum.“
Hann segir augljóst að ef samningar tækjust
með ríkinu og Magma myndi það eitt og sér
ekki þýða hærra orkuverð en það myndi tví-
mælalaust hafa áhrif ef sá samningur markaði
stefnubreytingu í þá átt að semja almennt um
styttri leigutíma. „Styttri leigutími þýðir ein-
faldlega hærra orkuverð, þ.e. hærri ávöxtunar-
kröfu og styttri afskriftartíma,“ segir Gústaf.
Morgunblaðið/Ómar
Andri Karl
andri@mbl.is
„Við samtökin þurfum að taka af-
stöðu til þess í samráði við okkar lög-
mann hver næstu skref verða,“ segir
Guðrún Pétursdóttir, formaður
Styrktarsjóðs hjartveikra barna, en í
gær staðfesti Hæstiréttur úrskurð
Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa
frá dómi skaðabótamáli, sem sjóður-
inn höfðaði gegn Landsbankanum og
Landsvaka, dótturfélagi bankans,
vegna tapaðra fjármuna, rúmra 20
milljóna króna, í peningamarkaðs-
sjóðum bankans við hrun.
Styrktarsjóðurinn taldi, að stýring
Landsbankans á fjármunum sjóðsins
hefði verið í ósamræmi við fyrirfram
samþykkta fjárfestingarstefnu sem
gerð hafði verið. „Í mínum huga er
það mikið atriði fyrir viðskiptavini
banka að fá á hreint hvort undir-
skrifaður gjörningur af bankanum
sé pappírsins virði eða ekki,“ segir
Guðrún og bætir við að skýr og und-
irskrifaður samningur um fjárfest-
ingarstefnu hafi verið þverbrotinn.
„Og svo sleppur bankinn á þeirri for-
sendu að menn taka ekki afstöðu til
málsins.“
Málið talið vanreifað
Hæstiréttur vísaði til forsendna
úrskurðar héraðsdóms um að mála-
tilbúnaður styrktarsjóðsins hefði
verið óskýr og hann ekki getað skýrt
út hvert nákvæmt tjón hans gæti tal-
ist. Meðal annars af þeim ástæðum
var ekki lagður efnisdómur á aðal-
kröfuna.
Þá var styrktarsjóðurinn ekki tal-
inn hafa afmarkað saknæma og ólög-
mæta háttsemi sem varakrafan um
viðurkenningu skaðabótaskyldu
byggðist á. Var ekki heldur lagður
efnisdómur á hana.
Styrktarsjóður verður af
rúmum 20 milljónum króna
Formaður sjóðsins segir að næstu skref verði skoðuð
Morgunblaðið/Golli
Banki Málinu var vísað frá dómi.
Nokkuð er um að
lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu
sé kölluð út
vegna ósættis um
tölvunotkun ung-
linga. Geir Jón
Þórisson yfirlög-
regluþjónn segir
að lögregla
bregðist við út-
köllum sem þess-
um enda þótt hún hafi í nógu öðru
að snúast. Hann segir ekki merki
um aukið ósætti inni á heimilum,
þrátt fyrir aukið atvinnuleysi, bæði
meðal yngra fólks og eldra.
Í tilkynningu frá lögreglunni í
gær segir að hún hafi verið kölluð
að heimili í borginni vegna ágrein-
ings um tölvunotkun. Þar hafi
mæðgin átt í útistöðum vegna
tölvunotkunar sonarsins. Móðirin
taldi að tölvunotkunin bitnaði á
náminu en pilturinn var á öðru
máli. Lögregla reyndi að miðla mál-
um áður en hún fór af vettvangi.
Hvattir til að setja mörk
Geir Jón segir að margir for-
eldrar hafi áhyggjur af tölvunotkun
barna sinna. Af hálfu stjórnvalda
hafi verið hvatt til þess að foreldrar
fylgist með tölvunotkun barna
sinna og stilli henni í hóf. Ýmsar
hættur séu líka á netinu. Það sé
e.t.v. ekki eitt af skylduverkum lög-
reglu að miðla málum í slíkum deil-
um en Geir Jón minnir á að lög-
regla sinni ótal verkefnum sem séu
strangt til tekið ekki á hennar
könnu. Í mörgum þessara tilvika
eigi fólk þó ekki í önnur hús að
venda. Lögregla sé jú á sólar-
hringsvakt.
Ef unglingar hafi tekið hliðarspor
út af beinu brautinni sé einnig al-
gengt að foreldrar óski eftir því að
hann ræði við þá og segi þeim m.a.
til hvers slík feilspor geti leitt. Lög-
regla líti á viðtöl sem þessi sem
hluta af skyldum sínum enda séu
forvarnir einn mikilvægasti þátt-
urinn í hennar starfi.
Geir Jón segir að útköll vegna
netnotkunar séu tiltölulega ný af
nálinni. Á móti komi að ýmsum öðr-
um verkefnum sem tengist ung-
mennum hafi fækkað, t.a.m. sé ekki
sama mannmergðin og unglinga-
drykkja í miðbænum um helgar og
áður og ekki sú hópamyndun í
hverfum sem áður tíðkaðist.
runarp@mbl.is
Lögregla
miðlar mál-
um í deilum
Geir Jón
Þórisson
Umdeild tölvunotkun
Platan Go, sem Jón Þór Birgisson, Jónsi, sendi frá sér á síðasta ári, hlaut í
gærkvöldi Norrænu tónlistarverðlaunin, sem veitt voru í Ósló, fyrir bestu
norrænu plötu síðasta árs. „Þetta kom mér virkilega á óvart, ég átti ekki
von á þessu,“ sagði Jónsi við blaðamann Morgunblaðsins eftir að úrslitin
voru tilkynnt „Ég ætlaði að fara í rómantíska helgarferð til Óslóar. Ég vissi
lítið um þessi verðlaun en vissi þó að Ólöf Arnalds og Robyn hefðu verið til-
nefndar.“ Verðlaunin voru veitt í fyrsta skipti í ár. Upphaflega voru sextíu
plötur tilnefndar en tólf voru svo valdar í endanlegt úrtak.
Jónsi hlaut Norrænu tónlistarverðlaunin
Scanpix