Morgunblaðið - 19.02.2011, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Ég er búinn að fá óvenju margar
ábendingar um gangtruflanir í bens-
ínbílum síðan um áramót,“ segir Leó
M. Jónsson véltæknifræðingur í sam-
tali við Morgunblaðið en hann heldur
því fram að olíufélögin flytji inn lé-
legra bensín en áður og gæðaeftirliti
með innflutningi þess sé ábótavant.
Hann segir þessar bilanir kosta bíl-
eigendur stórfé. Samkvæmt sínum
upplýsingum frá bílaumboðum séu
þessar truflanir raktar til eldsneytis-
ins.
Leó, sem skrifar reglulega um bíla-
mál í aukablað Morgunblaðsins,
Finnur.is, hefur komið ábendingu um
þetta á framfæri við FÍB, Félag ís-
lenskra bifreiðaeigenda. Runólfur
Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB,
segir að þetta verði kannað nánar.
Hann tekur undir með Leó að svo
virðist sem brotalöm sé á eftirliti með
innflutningi á eldsneyti.
Leó ritaði einnig um þetta pistil á
vefsíðu sinni, leoemm.com. Þar segir
hann mest bera á kvörtunum um
þetta þegar hlýnar í veðri eftir frosta-
kafla. Vélin drepi á sér vegna þess að
rakamengun í bensíninu, mögulega
eftir sjó, þéttist og verði að vatns-
dropum á botni sogreinarinnar. Þeg-
ar magnið nái ákveðnum mörkum
drepi vélin á sér, oftast í lausagangi.
Annars lýsir Leó þessum gangtrufl-
unum svo:
„Sameiginlegt er að auk þess sem
vélin gengur skrykkjótt, jafnvel með
rykkjum við inngjöf á hún það til að
steindrepa á sér, t.d. á rauðu ljósi, og
tekur ekki við sér í starti. 4-5 mín-
útum seinna rýkur hún í gang. Þetta
getur gerst nokkrum sinnum á dag en
stundum líða dagar á milli.“
Leó segist hafa sannað mál sitt um
lélegra bensín með því að blanda ís-
vara út í bensínið, um 100 ml út í 50-60
lítra af bensíni. Vélin hætti þá oftast
að drepa á sér í tíma og ótíma.
Leó segir hið grátbroslega við
þetta að olíufélögin auki tekjur sínar
um tugi milljóna króna með því að
selja bíleigendum ísvara sem kostar
margfalt lítraverð bensíns.
Hann gagnrýnir jafnframt hið op-
inbera fyrir slælegt eftirlit með inn-
flutningi á eldsneyti. Í gildi séu lög og
reglugerðir sem ekki sé farið eftir.
Runólfur Ólafsson segir nauðsyn-
legt að láta óháðan aðila skoða inni-
hald eldsneytisins. Sér vitanlega fari
slíkt eftirlit ekki fram á vegum hins
opinbera heldur láti olíufélögin, sam-
eiginlega, rannsóknastofuna Fjölver
fara yfir innihald þess sem flutt er
inn. Öll olíufélög taki auk þess inn
birgðir gegnum sama aðilann.
Strangar gæðakröfur
Herbert Herbertsson, tæknisér-
fræðingur hjá N1, segir bensíninn-
flutning fara fram eftir ströngum
gæðakröfum samkvæmt samevr-
ópskum reglum, en bensínið er keypt
inn beint frá Statoil í Noregi. Efast
hann stórlega um að gangtruflanir í
bílum megi rekja til eldsneytisins en
öllum sé velkomið að láta kanna inni-
hald þess nánar sem N1 flytur inn.
Jóhann Þorsteinsson, verkstæðis-
formaður hjá Toyota, segist kannast
við þessar bilanir og þær megi mögu-
lega rekja til eldsneytisins. Hann geti
þó ekki fullyrt um það. Jóhann segir
umboðið ekki hafa fengið marga bíla
til sín út af þessu, innan við tíu.
Veldur gallað bensín bilunum?
Véltæknifræðingur telur gallað bensín valda gangtruflunum í bílum Gæðaeftirliti sé ábótavant
Ábendingu komið á framfæri við FÍB Tæknisérfræðingur hjá N1 vísar gagnrýninni á bug
Bensín Borið hefur á gangtrufl-
unum í bílum í vetur.
Morgunblaðið/Kristinn
Olíufélögunum ber að skila ár-
lega skýrslu til Umhverfisstofn-
unar, fyrir 1. mars, um hvað þau
flytja inn á ári af eldsneyti og
innihald þess, samkvæmt gild-
andi reglugerð um fljótandi
eldsneyti. Athugasemdir eru þá
gerðar ef ástæða þykir til. Ekki
er því um beint neytendaeftirlit
að ræða með innfluttum farmi
hverju sinni, heldur er markmið
með skýrslugjöfinni meira að
fylgjast með umhverfisáhrifum
af innfluttu eldsneyti. Þannig
skoðar stofnunin t.d. ekki hvort
möguleg aðskotaefni hafi áhrif
á gangverk bílanna.
Fær árlega til
sín skýrslu
UMHVERFISSTOFNUN
Borgun er eina fyrirtækið á landinu sem býður
heildarlausn í færsluhirðingu. Fyrirtæki sem
eru með öll kortaviðskipti hjá Borgun njóta
betri kjara og fá betri yfirsýn yfir tekjur með
einu uppgjöri fyrir öll kortaviðskipti.
Hjá Borgun ertu með allt á einum stað.
Ármúla 30 • 108 Reykjavík
Sími 560 1600 • www.borgun.is