Morgunblaðið - 19.02.2011, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Reiði og sorg einkenndi fjöldamót-
mæli í mörgum borgum Norður--
Afríku og Mið-Austurlanda í gær
þegar fólk flykktist út á göturnar
eftir föstudagsbænir í moskunum.
Margir mótmælendanna voru bál-
reiðir yfir blóðugum árásum
öryggissveita á mótmælendur í
Líbíu og Barein fyrr í vikunni.
Gleðin var meiri í miðborg Kaíró
þegar hundruð þúsunda manna söfn-
uðust þar saman til að fagna afsögn
Hosnis Mubaraks, viku eftir að hann
hrökklaðist frá völdum. Um tveir
mánuðir eru liðnir frá því að mót-
mælabylgjan hófst í Túnis eftir að
örvæntingarfullur ungur maður varð
sjálfum sér að bana með því að
kveikja í sér til að mótmæla því að
lögreglan meinaði honum að selja
ávexti og grænmeti. Af þessum
neista varð bál sem hefur þegar orð-
ið til þess að tveir einvaldar hafa
hrökklast frá völdum. Ráðamenn í
öðrum einræðisríkjum nötra þar
sem þeim stendur mikill uggur af
lýðræðiskröfunni sem farið hefur
eins og logi yfir akur um heimshlut-
ann.
Leyniskyttur skutu á fólkið
Í sumum arabalandanna hafa
ráðamennirnir brugðist við mótmæl-
unum með því að stokka upp í ríkis-
stjórnum og lofa efnahagslegum um-
bótum til að draga úr óánægju
fólksins. Í öðrum löndum hafa yfir-
völdin sýnt klærnar og sigað
öryggissveitum á mótmælendur.
Mannréttindasamtökin Human
Rights Watch höfðu í gær eftir
ónafngreindum sjónarvottum að
öryggissveitir hefðu skotið að
minnsta kosti 24 mótmælendur til
bana í Líbíu í fyrradag. Hermt er að
leyniskyttur hafi skotið á fólkið í
borgunum Benghazi og Al-Baida í
austanverðu landinu. Hermenn voru
sendir út á götur Benghazi í gær eft-
ir að þúsundir manna mótmæltu
manndrápum öryggissveitanna.
Mikil reiði er einnig meðal íbúa
Barein eftir að öryggissveitir urðu
minnst fjórum að bana þegar þær
réðust inn á torg í höfuðborginni
Manama til að binda enda á mót-
mæli. Mótmælendurnir eru úr röð-
um sjíta, sem eru í meirihluta í Bar-
ein, og segjast vilja afnema
konungsstjórn súnníta.
Leiðtogar grannríkja við Persa-
flóa, sem eru einnig undir stjórn
súnníta, lýstu yfir fullum stuðningi
við stjórnvöld í Barein og árás
öryggissveitanna á mótmælendur í
Manama.
Frönsk stjórnvöld sögðust í gær
hafa stöðvað sölu á frönskum vopn-
um og öryggisbúnaði til Líbíu og
Barein vegna árásanna á mótmæl-
endur.
Breska stjórnin kvaðst einnig ætla
að endurskoða heimild breskra fyrir-
tækja til að selja yfirvöldum í Barein
vopn og annan búnað sem notaður
hefur verið til að kveða niður mót-
mæli. Breskir fjölmiðlar sögðu að
fyrirtækin hefðu haft heimild til að
selja slíkan búnað síðustu mánuði en
breska utanríkisráðuneytið sagði að
ekki hefðu komið fram vísbendingar
um að breskum vopnum hefði verið
beitt gegn mótmælendum.
Reiði og sorg vegna manndrápa
Reuters
Sorg Fjórir Bareinar, sem öryggissveitir urðu að bana í Manama, voru bornir til grafar í gær. Öryggissveitir beittu
aftur byssum og táragasi þegar mótmælendur reyndu að safnast saman á torgi í miðborginni síðar um daginn.
Hermenn kvaddir út í Líbíu eftir að þúsundir manna mótmæltu drápum á mótmælendum Frakkar
stöðva sölu vopna til Líbíu og Barein Breskum vopnum ef til vill beitt gegn mótmælendum í Barein
Herinn hætti pyntingum
» Amnesty International
hvatti í gær herinn í Egypta-
landi til að hætta að pynta
fanga og sagði að fram hefðu
komið nýjar vísbendingar um
að herinn beitti pyntingum.
» Að sögn mannréttinda-
samtaka ber herinn í Egypta-
landi ábyrgð á pyntingum á
a.m.k. tólf föngum og tugum
mannshvarfa á síðustu vikum.
» Minnst 365 manns biðu
bana og 3.500 særðust í mót-
mælunum í Egyptalandi.
lofthjúpi sólar sem veldur firnamikilli aukningu birtu á
sólinni og straumi hlaðinna gasagna út í geiminn.
Fjallað er um sólblossa og áhrif þeirra á jörðinni á
stjörnufræðivefnum: www.stjornuskodun.is/solkerfid/
solin/solblossar. Þar kemur meðal annars fram að ork-
an sem losnar við öflugustu blossana jafngilti því að
milljónir 100 megatonna vetnissprengjur væru
sprengdar samtímis.
Vísindamenn víða um heim fylgdust í gær með áhrifum
mesta sólblossa sem orðið hefur í fjögur ár. Slíkir bloss-
ar geta truflað gervihnetti, fjarskipti og rafveitunet á
jörðinni. Sólblossar geta einnig valdið mikilli norður-
ljósadýrð og orðið til þess að norðurljós sjáist mun
sunnar en venjulega. Alls urðu þrír sólblossar dagana
13., 14. og 15. febrúar og einn þeirra var sá sterkasti í
fjögur ár. Sólblossar, eða sólgos, eru snögg orkulosun í
1 2 3 4
Alfven-bylgjur
Öflugar segulbylgjur sem
geta flutt orku frá yfirborði
sólar í sólvindinn
Látlaus straumur
hlaðinna gasagna sem
skjótast frá sólinni í allar
áttir
Getur truflað gervi-
hnetti, rafveitunet,
og fjarskipti á
jörðinni
Meðalhraði: 400 km/s
Hiti: 1 milljón gráður
á Celsíus
Sólin
Sólin er að mestu leyti vetni
sem er svo heitt að megnið af
gasinu er rafgas
Jörð
Kóróna
Lithvolf
SÓLVINDUR
Yfirborð
sólar
Segulsvið jarðar verndar hana
gegn sólvindinum, myndar
nokkurs konar bólu og vindurinn
þarf að streyma umhverfis hana
SÓLBLOSSAR
Heimild: NASA Teikning: K. Pong/G. Cabrera/RNGSHlutföll í teikningunni eru ekki rétt
ÞANNIG MYNDAST SÓLBLOSSAR
Átt snúnings
Segulsviðslínur Mark-
punktur
Kórónulykkjur
Segulsviðslínur sólar
liggja frá suðri til
norðurs milli
pólanna
Snúningur sólar verður til
þess að línurnar teygjast,
mest við miðbauginn sem
snýst hraðar en pólarnir
Segulsviðslínur bugðast og
sumar þeirra brjótast að
lokum út frá yfirborðinu
og mynda lykkjur
Þegar segullykkja fer yfir
ákveðinn markpunkt
springur hún frá sólinni og
myndar segulstorm
Sólblossi veldur norðurljósadýrð
–– Meira fyrir lesendur
.
Morgunblaðið gefur út ÍMARK
fimmtudaginn 3. mars og er tileinkað
íslenska markaðsdeginum sem ÍMARK
stendur fyrir en hann verður haldinn
hátíðlegur 4. mars.
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, fimmtudaginn 24. febrúar.
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
ÍMARK íslenski
markaðsdagurinn
S
É
R
B
L
A
Ð
MEÐAL EFNIS:
Viðtöl við fyrirlesara ráðstefnunnar
Viðtal við formann Ímark
Saga og þróun auglýsinga
hér á landi
Neytendur og auglýsingar
Nám í markaðsfræði
Góð ráð fyrir markaðsfólk
Tilnefningar til verðlauna
Hverjir keppa um
Lúðurinn
Viðtöl við fólkið á bak
við tjöldin
Ásamt fullt af öðru
spennandi efni