Morgunblaðið - 19.02.2011, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011
„Umhverfisráðu-
neytið“ hefur nýlega
ungað út enn einni
gæluhugmynd sinni, í
þetta sinn frumvarps-
drögum sem lúta að
breytingu á lögum nr.
44 frá 1999 um nátt-
úruvernd. Frumvarp-
inu er beint gegn stór-
hættulegum plöntum
af ýmsu tagi, gegn ill-
gresi sem borist hafi
inn í sæluríki þjóðlegra alíslenskra
plantna, inn í ósnortið fyrirmyndar
gróðurríki Íslands.
Fram er þá komið eitt af brýnustu
viðfangsefnum ísl. stjórnvalda: að
herja á vondar ágengar útlenskar
plöntur, hefja plöntustríð! Annars
reynast alíslenskar plöntur við nánari
skoðun bæði aðfluttar og ágengar,
komnar hingað á sínum tíma yfir út-
hafið af sjálfsdáðum, án þess að ráðu-
neytið hafi þar um vélað. Að sögn sér-
lega tilkvaddra sérfræðinga
„umhverfisráðuneytis“, liggur hins-
vegar beinlínis þjóðarheill við að hafið
verði hið bráðasta reglulegt lúp-
ínustríð á Íslandi, herjað á allar illa
innrættar fjölærar plöntur, allar
óþjóðlegar trjátegundir bannfærðar
og þeim burtu rutt! Manni skilst að
þar með sé reglulegt salamöndrustríð
að skella á. Nú ætlar „umhverfisráðu-
neyti“ sér að gefa út ein allsherjar ein-
ræðislög (úkas) um bann við vondum
útlendum grösum og svokölluðum
ágengum trjátegundum. Grunlausir
íbúar þessa lands taka nú að spyrja
mann og annan, hvort eitthvert mið-
alda-ofsóknaræði hafi virkilega gripið
um sig hérlendis og brjótist nú út í
ljósum logum í stjórnkerfi þessa
lands. Umrætt ráðuneyti var ekki
beinlínis vinsælt fyrir. – Spyrjið Reyk-
nesinga, Sunnlendinga, spyrjið Þing-
eyinga, Austfirðinga, spyrjið yfirleitt
almenning í landinu. En nú trúi ég þó
að taki steininn úr – fólki ofbýður.
Lagafrumvarp „umhverfisráðu-
neytis“ er fram komið til að binda
sem rækilegast hendur þeirra tug-
þúsunda Íslendinga sem á und-
anförnum áratugum hafa lagt á sig
ómælt erfiði, ómælda fyrirhöfn og
ærinn kostnað við að græða upp með
grösum og trjágróðri örfoka mela,
gínandi moldarflög, grýtt holt og
skriðulönd. Allt það fólk sem fæst við
bráðnauðsynlega uppgræðslu þessa
lands vissi sig þó vera að gera náttúru
landsins til góða eftir aldalanga þrot-
lausa áníðslu og gjöreyðingu gróðurs
af völdum manna og ýmissa nátt-
úruhamfara, hélt sig vera horfa til
framtíðar í grænna, skjólbetra Ís-
landi, í betra landi til búsetu. Sjálf-
skipað náttúruverndarlið hérlendis
hefur greinilega tekið náttúrufar Jan
Mayens til fyrirmyndar: auðnin, ber-
angurinn, ördeyðan lifi og verði gerð
friðhelg. Vilji menn rækta skóg og
græða upp landið er því ætlunin, að
fyrst eigi þá að spyrja
hið alltsjáandi, stranga,
einráða stórmenntaða
og réttsýna bu-
reaucratie í 101 Reykja-
vík hvað gera megi og
hvað alls ekki megi,
biðja allraþénustu-
samlegast um leyfi að
mega t.d. umgangast og
rækta sína eignarjörð að
eigin vild: má lúpína
vaxa þarna, má grafa
skurð hérna, má planta
furu í þennan mel?
Nei, þetta frumvarpsmál er ekki
eins og ætla mætti einhver skrípa-
leikur fáránleikans, þetta eru í raun
tillögur og ætlan ráðuneytis umhverf-
is sem þykist þess umkomið að gefa
út lagaboð og bönn til almennings í
landinu um ræktun og uppgræðslu,
þykist geta kúgað almenning til að
hlíta því sem ráðuneyti þessu er
þóknanlegt. Ráðuneytið sýnir í þessu
máli ótvíræða einræðistilburði, fer
fram með vissum sjálfsþótta valdsins
og óþolandi rembingi gagnvart þegn-
um þessa lands.
Athygli ráðuneytis virðist beinast
helst að birki, fjalldrapa, fléttum og
grámosa en hefur hingað til ekki lýst
áhyggjum sínum af þeim augljósa
usla sem vegalagning hefur þó um
langt árabil valdið í náttúru landsins:
Vegagerðin og undirverktakar hafa
óátalið mátt þjösnast að vild á landinu
með ýtum sínum og gröfum, hafa alls
staðar rist djúp, herfileg sár í landið,
rifið óátalið upp gróðurþekjuna vítt
og breitt. Hervirkið blasir við allra
augum um land allt og flennistór
fleiðrin með tilheyrandi uppblæstri
eru orðin hluti íslenskrar náttúru.
„Umhverfisráðuneytið“ er vænt-
anlega ekki ábyrgðarlaust embætti
(sinekúre) eða hvað?
Nú skal sparað og útgjöld ríkisins
skorin ákaft niður á sem flestum svið-
um eins og skólar og heilbrigðisþjón-
usta hafa jú fengið að finna tilfinn-
anlega fyrir. Nú þykir því mörgum
löngu, löngu tímabært að leggja af
einmitt þetta „umhverfisráðuneyti“
og spara þannig tugi milljóna – losa
fjármuni sem gjarnan mættu þá
renna til fjársveltra sjúkrahúsa og
hjúkrunarheimila úti á landi. Hyrfi
„umhverfisráðuneytið“ af stjórn-
arsviðinu, myndu fæstir taka eftir því
en enginn sakna þess. Til málamiðl-
unar mætti þó vel hugsa sér umhverf-
ismál komin sem deild í innanrík-
isráðuneytið nýja, eins og eitt
skrifborð og fengin hæf kona í hálfu
starfi til að sinna því embætti.
Salamöndrustríðið
Eftir Halldór
Vilhjálmsson
Halldór
Vilhjálmsson
» Athygli ráðuneytis
virðist beinast helst
að birki, fjalldrapa,
fléttum og grámosa ...
Höfundur er kennari og ísl. þegn.
Það er sorglegt að
Össur Skarphéðinsson
skuli viljandi mis-
skilja spurningu mína
– hvort það samræm-
ist ákvæðum 55. gr.
Vínarsamningsins að
sendiráð ESB skipti
sér af innanrík-
ismálum. Utanríkis-
ráðherra ber ríka
skyldu til að svara
þinginu með réttar upplýsingar
þegar eftir þeim er leitað – enda er
það m.a. hlutverk þingmanna að
hafa eftirlitsskyldu með fram-
kvæmdavaldinu. Heykist ráð-
herrann á að svara spurningunni –
býr til nýja og svarar sjálfum sér?
Notar ráðherrann spegilinn – ég,
um mig, frá mér, til mín? Var nótt
er hann leit upp og sá svartnætti?
Af því má ráða að ekki hafi sést
handaskil því í svarinu kemur fram
þessi setning: „Þá myrkvast málið“
– ég sem taldi að Össur hefði hætt
næturgöltri – og bloggum.
Af mikilli „næturvinnu“ við
lyklaborðið hélt ég að ráðherrann
hefði tamið sér tækni veraldarvefs-
ins og tileinkað sér svör Hr. Go-
ogle. Ég varð því ekki hissa er
hann svaraði spurningunni sem
hann sjálfur samdi – að hann vís-
aði í rangan Vínarsamning – Vín-
arsamninginn um stjórnmála-
samband. Tilgangurinn helgar
meðalið. Það vill nefnilega þannig
til að Vínarsamningurinn sem
fjallar um ræðissam-
band kemur fyrstur
upp í Hr. Google er
leitarorðið „Vín-
arsamningurinn“ er
slegið inn. Svo ótrú-
lega vill til að samn-
ingurinn er m.a.s.
vistaður í ráðuneyti
næturbloggarans
sjálfs.
Í 55. gr. samnings-
ins sem ber yfirskrift-
ina „Virðing fyrir lög-
um og reglum
viðtökuríkisins“ stendur:
„1. Öllum þeim sem njóta for-
réttinda og friðhelgi ber skylda til
að virða lög og reglur viðtökurík-
isins, en slík skylda skerðir þó ekki
forréttindi þeirra og friðhelgi.
Þeim er einnig skylt að skipta sér
ekki af innanlandsmálum í því ríki.
2. Ræðisstofnunarsvæðið skal ekki
nota á nokkurn þann hátt sem
ósamrýmanlegur er framkvæmd
ræðisstarfa.“
Næturbloggarinn heldur að við
séum gengin í ESB – svo mikil er
þrá hans eftir nýlenduherrunum
að ekkert annað virðist hafa kom-
ist í koll hans þessa myrkvuðu nótt
en Vínarsamningurinn um stjórn-
málasamband. Augljóslega hefur
bloggarinn tekið upp símtólið og
hringt í löglærða fulltrúa ráðu-
neytisins því í svarinu segir:
„Hvorki löglærðum embætt-
ismönnum ráðuneytisins né ráð-
herra hefur tekist að finna um-
rædda 55. grein í
Vínarsamningnum um stjórnmála-
samband. Fyrirspyrjandi hefur að
líkindum farið samningavillt og er
að vitna til 55. greinar í öðrum
samningi, sem líka er kenndur við
Vín. Sá er frá 24. apríl 1963 og er
um ræðissamband.“ Hversu dimmt
getur orðið í kolli utanrík-
isráðherra? Að lokum rofar til og
næturbloggarinn segir: „Ráðu-
neytið fær hins vegar ekki séð að
aðkoma sendiráðs ESB að
kynningarmálum sambandsins hér
á landi stangist á nokkurn hátt á
við efnisatriði þessara greina.
Segja má á kjarnyrtri íslensku að
sú starfsemi falli að Vínarsamn-
ingnum eins og flís við rass. Svar
ráðherra við fyrrgreindri spurn-
ingu háttvirts fyrirspyrjanda er
því játandi.“
Tekur síðan steininn úr er hann
nefnir sendiráð Bandaríkjanna hér
á landi og telur það vera fordæm-
isgefandi fyrir sendiráð ESB. Öll-
um brögðum er beitt til að koma
hálfsannleik á framfæri.
Já, Össur – nú
myrkvast málið
Eftir Vigdísi
Hauksdóttur » Af mikilli „nætur-
vinnu“ við lykla-
borðið hélt ég að ráð-
herrann hefði tamið sér
tækni veraldarvefsins
og tileinkað sér svör Hr.
Google.
Vigdís Hauksdóttir
Höfundur er lögfræðingur og þing-
maður fyrir Framsóknarflokkinn í
Reykjavík.
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
45
42
3
Sértilboð 8. mars
frá 79.900
Tenerife
Heimsferðir bjóða einstakt tilboð
til Tenerife þann 8. mars í viku.
Veðurfarið er einstaklega milt og
notalegt sem og allt umhverfið.
Verð kr. 79.900
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir
með sköttum.
Frá kr. 109.900
Vime Callao Garden ***
með allt innifalið
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna
í íbúð með einu svefnherbergi í
viku. Sértilboð 8. mars .
Grunnur að góðu lífi : : 535_1000
Aðalheiður Karlsdóttir
lögg. fasteignasali
stakfell.is Fax 535 1009Fasteignasala . Íbúðarhúsnæði . Skúlatún 2 . 105 Rvk
Laugateigur - þrjár íbúðir
232,5 fm parhús sem skipstist í þrjár hæðir. Í húsinu eru nú þrjár
íbúðir ásamt sameign. Gróinn garður með berjarunnum og góðurhúsi.
Frábær staðsetning í rólegu og fjölskylduvænu hverfi, miðsvæðis í
borginni. Stutt í skóla, íþróttaperluna í Laugardal og alla þjónustu.
Verð 48,9 millj.