Morgunblaðið - 19.02.2011, Qupperneq 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011
Á fimmtu og síðustu tónleikum
starfsárs Kammermúsíkklúbbsins í
Bústaðakirkju annað kvöld, sunnu-
dagskvöld, verða fluttir tveir
strengjaoktettar, eftir Felix Mend-
elssohn og George Enescu.
Felix Mendelssohn varð ekki
nema 36 ára en var bráðger; oktett-
inn op. 20 samdi hann árið 1825, 16
ára að gamall. Þá hafði Mendels-
sohn þegar samið 13 sinfóníur fyrir
strengjahljómsveit og þrjá meiri
háttar píanókvartetta. Oktettinn,
sem mörgum þykir eitt besta
kammerverk Mendelssohns, hefur
hljómað einu sinni áður hjá Klúbbn-
um, í mars 1977.
George Enescu fæddist í Rúmen-
íu 1881, óvenjulegt undrabarn í tón-
list. Með tímanum varð Enescu
heimsfrægur fiðlari, píanisti, tón-
skáld og hljómsveitarstjórnandi;
auk þess var hann annálaður kenn-
ari – meðal nemenda hans voru fiðl-
arinn Menuhin og píanóleikarinn
Dinu Lipatti.
Eftir Ensecu liggja allmörg
kammerverk en einungis hefur eitt
þeirra hljómað áður hjá klúbbnum.
Oktettinn samdi Enescu tiltölulega
nýútskrifaður úr tónlistarháskóla.
Flytjendur á tónleikunum eru
fiðluleikararnir Sigrún Eðvalds-
dóttir, Zbigniew Dubik, Sif Tulinius
og Helga Þóra Björgvinsdóttir, Ás-
dís Valdimarsdóttir og Þórunn Ósk
Marinósdóttir lágfiðluleikarar og
knéfiðluleikararnir Bryndís Halla
Gylfadóttir og Sigurgeir Agnars-
son.
Flytjendurnir Strengjaleikararnir átta sem koma fram annað kvöld.
Oktettar eftir Enescu
og Mendelssohn
Myndlistamennirnir Inga Þórey Jó-
hannsdóttir og Kristinn E. Hrafns-
son taka á morgun, sunnudag, þátt í
leiðsögn um sýninguna Án áfanga-
staðar sem stendur yfir í Hafnarhúsi
Listasafns Reykjavíkur. Leiðsögnin
hefst klukkan 15.
Inga Þórey og Kristinn eiga bæði
verk á sýningunni, ásamt fjölda ann-
arra listamanna, innlendra sem er-
lendra, en Markús Þór Andrésson er
sýningarstjóri. Útgangspunktur
sýningarinnar er ferðahugurinn og
upplifun ferðamannsins á því um-
hverfi sem verður
á vegi hans.
Verkin end-
urspegla hug-
myndir samtíma-
listamanna um
ferðalög, staði og
staðleysur og
beina sjónum að
hinu skapandi og
persónulega sam-
tali sem á sér stað
við upplifun ólíkra staða.
Mörg verkanna tengjast Íslandi.
Fylgja um ferðasýningu
Inga Þórey
Jóhannsdóttir
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Caput-hópurinn, undir stjórn Guðna
Franzsonar, flytur í dag klukkan 14
og 15 nýtt tónverk Hauks Tóm-
assonar, Moldarljós, í Listasafni Ís-
lands. Þar verða einnig til sýnis um
helgina fjögur ný málverk Eggerts
Péturssonar en listamennirnir veittu
hvor öðrum innblástur.
„Þetta hefur verið hátt í tveggja
ára ferli, síðan hugmyndin fæddist,“
segir Eggert þegar hann er spurður
út í verkin og viðburðinn um helgina.
„Við Haukur höfum hist öðru
hverju, sérstaklega síðasta árið og
Gunnlaugur Sigfússon með okkur,
en hann átti hugmyndina að leiða
okkur saman.
Ég reyndi að vera músíkalskari í
málverkinu en ég er vanur að vera,“
segir hann. „Haukur kom með lista
af hljóðfærum sem hann vildi nota
og ég tengdi þau við blóm. Fyrst
datt mér blástjarnan í hug og síðan
duttu fleiri inn, og ég fór að spyrða
saman hljóðfærin og blómanöfn.
Mörg blómanafnanna höfðu eitthvað
með himininn að gera og málverkin
fóru að hanga meira í lausu lofti,
urðu meira abstrakt en ég er vanur.“
Eggert segir að það hafi gert sér
gott að fara í samstarf sem þetta
núna, eftir að hafa verið upptekinn í
nokkur misseri við að ljúka stórum
verkum úr Úthlíðarhrauni sem hann
sýndi í Hafnarborg í haust.
„Ég þurfti að horfa upp í him-
ininn,“ segir hann.
Samstarfið hafði áhrif
„Ég held að samstarfið hafi haft
töluverð áhrif á tónlistina,“ segir
Haukur. Ég hefði ekki samið ná-
kvæmlega svona tónlist nema vegna
þessara mynda. Þar kemur margt
til, jafnvel sjálf blómin og nöfnin á
þeim, fyrir utan myndirnar.“
Hljómsveitina skipa 14 manns og
Haukur segist nota talsvert af björt-
um hljóðfærum, honum þykir það
hæfa myndheimi Eggerts.
Tónverkið, sem er í fjórum hlutum
og um 20 mínútna langt, er gefið út á
geisladiski.
Morgunblaðið/Einar Falur
Eggert og Haukur „Ég reyndi að vera músíkalskari í málverkinu en ég er vanur að vera,“ segir málarinn.
Blómaverk og nýtt tón-
verk mætast á sýningu
Gradualekór Langholtskirkju, undir
stjórn Jóns Stefánssonar, flytur
Krýningarmessuna eftir Wolfgang
Amadeus Mozart á tónleikum í
kirkjunni annað kvöld, sunnudag, og
hefjast þeir klukkan 20.
Allir einsöngvarar utan einn eru
fyrrverandi félagar kórsins. Ein-
söngvarar eru Kristín Einarsdóttir
Mantyla, Arnheiður Eiríksdóttir,
Eggert Reginn Kjartansson og
Andri Björn Róbertsson.
Verkið verður flutt í nýrri útsetn-
ingu kórstjórans fyrir stúlknakór og
leikur fimmtán manna hljómsveit
með. Konsertmeistari hennar er
Ísak Ríkharðsson.
Fleiri verk eru á efnisskránni,
m.a. Stabat mater eftir Pergolesi og
Ave María eftir Eyþór Stefánsson.
Morgunblaðið/Golli
Kór og hljómsveit Gradualekór Langholtskirkju og hljómsveitin á æfingu.
Gradualekórinn flytur
Krýningarmessu
Í minningu Isang
Yun er yfirskrift
tónleika Caput
hópsins í 15:15
tónleikasyrpunni
í Norræna hús-
inu á morgun,
sunnudag, klukk-
an 15.15.
Caput flytur
þá úrval verka
eftir Isang Yun
(1917-1995), sem var helsta tón-
skáld Kóreu á 20. öld. Flutt verða
fjögur tónverka hans, Tríó fyrir
flautu, óbó og fiðlu (1972-1973),
Glissés fyrir selló (1070), Kvartett
fyrir flautu, fiðlu, selló og píanó
(1988) og Kvartett fyrir óbó og
strengi (1994). Þá verður flutt verk
eftir Hosokawa: Memory, í minn-
ingu Isang Yun, en það er píanótríó
frá 1996.
Isang Yun nam við tónlist-
arháskólann í Osaka og tónsmíðar í
Tókýó. Ferill hans var litríkur og
markaður af pólitískum átökum;
eftir að hafa verið rænt árið 1967 af
Suður-Kóreumönnum í Vestur-
Berlín, þar sem hann bjó, var hann
pyntaður og hnepptur í fangelsi.
Honum var sleppt fyrir þrýsting frá
útlöndum en gerður útlægur úr
heimalandinu.
Caput leikur á
15:15 tónleikum
í minningu Yun
Tónskáldið
Isang Yun
Nú um helgina stendur yfir í
Listasafni Íslands sýningin
Moldarljós, laugardag og
sunnudag frá kl. 11-17, aðeins
þessa tvo daga. Eggert Péturs-
son myndlistarmaður og Hauk-
ur Tómasson tónskáld hafa lagt
saman krafta sína fyrir tilstilli
Gunnlaugs Sigfússonar.
Þeir Eggert og Haukur hittust
reglulega, ræddu verkin, og
horfði Haukur á Eggert mála en
Eggert málaði með tónlist
Hauks í eyrum.
Afraksturinn er fjögur mál-
verk á sýningunni og tónverk
sem verður flutt í safninu í dag,
laugardag, kl. 14 og 15.
Stutt sýning
og tónleikar
MOLDARLJÓS Í LÍ
Karlakórinn Heimir Skagafirði
í Njarðvíkurkirkju
föstudaginn 25. febrúar kl. 20:30
í Langholtskirkju
laugardaginn 26. febrúar kl. 15:00
Forsala á tónleikana í Langholtskirkju er hjá Eymundsson í Kringlunni
Helga Rós Indriðadóttir
STJÓRNANDI
Thomas R. Higgerson
PÍANÓ
Jón Þorsteinn Reynisson
HARMONIKA
Efnisskrá fjölbreytt að vanda,
þekktar karlakóraperlur, óperukórar, ástarkvæði og hestavísur.
Einnig flytur Jón Þorsteinn nokkur sígild verk gömlu meistaranna.
www.heimir.is
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.