Ný saga - 01.01.1998, Qupperneq 19

Ný saga - 01.01.1998, Qupperneq 19
Halldór Kiljan Laxness og forn sagnahefð Utivistarmaðurinn Halidór Kiljan Laxness á efri árum. eiga hvergi heima nema í skopsögu, þótt und- irtónn kunni aö vera alvarlegur. Það er ekki sök skáldsins eða blekbóndans. Það eru ein- faldlega skilmálar aldarinnar. Svo að enn sé miðað við íslendingabók, þá er hún skrifuð af mikilli alvöru og viðleitni til að segja eða búa til sögulegan sannleika. Írónían einkennir Innansveitarkroniku og alvöruleysið verður ekki greint frá alvörunni. Enginn vafi er á því að forn sagnahefð ís- lensk hafði margvísleg og djúp áhrif á rithöf- undinn og manninn Halldór Kiljan Laxness, þótt hann sæi framandleika hennar nægilega vel til að reyna aldrei að apa eftir henni. Sem rithöfundi var honum ómetanlegt að vera frá bernsku alinn upp við slíka fágun í frásagnar- list. Þegar sköpunarmáttur hans var mestur og þörfin fyrir að bæta heiminn brennandi, hélt viðmiðunin við fornsöguna aftur af hon- um og átti þátt í að gefa sögum hans form og persónum þann óræða kjarna sem er nauð- synlegastur af öllu. Þegar árin færðust yfir og kenningarnar höfðu brugðist, voru þær leið- arljós í leitinni að þeirri frásögn, sem aldrei verður annað en hugsjón, þar sem bilið milli hlutarins og orðanna verður að engu. Tilvísanir 1 Vitneskja mín um þessa grein og tilvitnunin er fengin úr grein Sveins Skorra Höskuldssonar, „Sambúð skálds við þjóð sína“, Sjö erindi um Halldór Laxness (Reykjavík, 1973), bls. 12-13. 2 Lesendur eru vinsamlegast beðnir að hafa í huga að grein þessi var upphaflega samin sem fyrirlestur með fremur stuttum fyrirvara. Þessi fyrirlestur var fluttur á vegum Hollvinasamtaka heimspekideildar Háskóla íslands á fæðingardegi skáldsins 23. apríl 1998. Þótt bætt hafi verið úr nokkrum yfirsjónum og heimildatil- vísunum aukið við en tilvitnanir lítillega styttar, ber greinin enn ýmis merki fyrirlestrarins. Henni er frem- ur ætlað að vera yfirlit yfir viðhorf Halldórs til forn- sagna, og þá einkum Islendingasagna, en rækileg söguleg eða fræðileg greining á þessum viðhorfum. 3 „Minnisgreinar um fomsögur", Sjálfsagðir hlutir (Reykja- vík, 1946), bls. 65-66. 4 Um afstöðu Halldórs til fornsagna hefur ýmislegt ver- ið skrifað. Auk þess sem fléttast inn í rit um höfund- arferil hans, hafa nokkrir fræðimenn fjallað um þetta efni í sérstökum greinum. Peter Hallberg hefur víða rakið með dæmum hvernig ungæðisleg uppreisn Hall- dórs gegn fornsögunum og frásagnarlist þeirra, þegar hann var um tvítugt, snerist fljótt í aðdáun og leiddi jafnvel til djúptækra áhrifa á hans eigin rithátt, sbr. t.d. Halldór Laxness (Reykjavík, 1975), bls. 179-93, og „Halldór Laxness and the Icelandic Sagas“, Leeds Studies in English. New Series, vol. XIII (1982). Stein- grímur J. Þorsteinsson skrifaði einnig um áhrif forn- sagnanna á skáldsagnagerð og stíl Halldórs og um hugmyndir hans um þessar bækur, sbr. „Halldór Lax- ness and the Icelandic Sagas“, Scandinavica. An Enginn vafi er á því að forn sagnahefð íslensk hafði margvísleg og djúp áhrif á rithöfundinn og manninn Halldór Kiljan Laxness 17
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Ný saga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.