Ný saga - 01.01.1998, Qupperneq 35

Ný saga - 01.01.1998, Qupperneq 35
Hernám hugans sjónvarp varnarliðsins og það jafnvel án end- urgjalds.82 Þessi frétt DVsýnir hversu áttavillt umræðan á Islandi var og ber þessi viðleitni keim af áráttu íslendinga til að græða á hern- um. Eins og margoft hefur komið fram var allsendis ómögulegt að bandaríski herinn ræki hér sjónvarpsstöð sem næði til lands- ntanna samhliða íslenskri sjónvarpsstöð. Ógnin kemur að utan Það sem hlaust af leyfi íslenskra sljórnvalda til stækkunar á Keflavíkursjónvarpinu var það að Islendingar eignuðust sína eigin sjón- varpsstöð. Tilvist hennar var ekki að þakka frumkvæði eða framsýni Islendinga, heldur var hún mótleikur gegn sjónvarpsútsending- urn erlends stórveldis sem hafði hreiðrað um sig innan marka lýðveldisins. Vörn en ekki djarfur sóknarleikur. Það sem stendur einna helst upp úr aðdraganda Ríkissjónvarpsins eru kröftug mótmæli menntamanna og stór orð þeirra um þá hættu sem íslenskri þjóð væri búin vegna sjónvarpsútsendinga Banda- ríkjahers frá Keflavík. Sú mynd sem dregin var upp af Islandi í umræðunum um sjónvarpsmálið var oft á líð- um æði fögur og var á stundum látið að því liggja að allt sem frá Islandi kæmi væri gott og blessað, og ívið betra en gerðist erlendis. Enda sáu menn Islandi helst ógnað frá út- löndum, og var það sem talið var þjóðlegt sett upp sem andstæða við það sem var alþjóðlegt. Þannig sagði Sigurður A. Magnússon: „Mönn- um óar við að veita útlendingunt ótakmark- aða heimild til búsetu og atvinnu á íslandi eða veita erlendum aðilum óskoraðan rétt til fjárfestingar og atvinnurekstrar hérlendis. ís- lenskum veiðimönnum er meinilla við ásókn utlendinga í ár landsins. Hvar er samkvæmn- m í þessu?4183 Spyr sá sem ekki veit en augljósl er að Sigurði fannst þessar skoðanir ekki koma heim og saman við þá staðreynd að á sama líma væri verið að flytja inn sjónvarps- tæki til þess að horfa á erlent hermannasjón- varp og taldi hann að menn hefðu í því máli gerst einum of andvaralausir. Þeirri hugmynd var haldið á lofti að íslend- íngar væru á góðri leið með að verða nýlenda Bandaríkjanna, aðeins nokkrunr árum eftir að hafa losnað undan valdi Dana. Geir Gunn- arsson þingmaður Alþýðubandalagsins lýsti þeirri þróun á tilfinningaþrunginn hátt á Al- þingi:84 Baráttan fyrir endurheimt sjálfstæðis ís- lands tók tæp 700 ár, ol'l við sult og hörm- ungar. En frá því að sá sigur vannst, var ekki einn áratugur liðinn, þegar svo var komið, að sú kynslóð, er við sigurlaunun- um tók og lifði í vellystingum, hafði sjálf kallað herlið erlends stórveldis til dvalar á Islandi á friðartímum til frambúðar. I nær 700 ár hafði verið barizt, l'ram á við og til sigurs, en síðan hefur verið hörfað og dregnar lokur frá hurðum. Víðar rnátti sjá tilvísanir til sjálfstæðisbarátt- unnar og þannig sagði Sigurður A. Magnús- son að: „Islendingar hefðu glatað bæði tungu sinni og menningu á öldum danskrar undirok- unar, hefðu Danir fengið svipaða aðstöðu í landinu og Bandaríkjamenn hafa nú.“85 Enn- fremur sagði hann að hlutverk 60-menning- anna væri í ljósi sögunnar skylt hlutverki Fjölnismanna, þó svo að hann væri ekki að jafna þeim saman. En óneitanlega gerði hann það þegar hann sagði: „Enginn skyldi láta sér detta í hug, að Fjölnisntenn liafi hafl meiri- hluta Islendinga á bak við sig þegar þeir hófu upp nrerki þjóðlegs og menningarlegs frels- is.“86 Vísaði Sigurður þarna til fylgismanna Keflavíkursjónvarpsins og minnti á að meiri- hlutinn þyrfti ekki alltaf að hafa rétt fyrir sér. Algengt var að talað væri um að Keflavík- ursjónvarpið væri farið að víkka út landamæri Bandaríkjanna á kostnað íslands og einnig var varað við því að um menningaráhrif úr aðeins einni átt væri að ræða. Meðal þeirra sem það gerðu var Þórhallur Vilmundarson sem taldi óhjákvæmilegt að Keflavíkursjón- varpið mótaði hugsunarhátt manna, viðhorf þeirra og þekkingu. Islendingar yrðu ofur- seldir rnáli og menningu Bandaríkjanna og yrðu smátt og srnátt að heimamönnum í Bandaríkjunum en yrðu um leið þjóðvilltir í eigin landi.87 í umræðunni var aldrei vísað til þess að slökkva mætti á sjónvarpstækjunum, eða for- eldrar settu börnum sínum reglur um áhorf. Sigurður A. Magnússon sagði t.d. í umræðu- þætti í útvarpinu þann 26. nóvember 1961 að Mynd 17. Þórhallur Vilmundar- son. „íslendingar hefðu glatað bæði tungu sinni og menn- ingu á öldum danskrar undir- okunar, hefðu Danir fengið svipaða aðstöðu í landinu og Bandaríkjamenn hafa nú“ 33
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Ný saga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.