Ný saga - 01.01.1998, Síða 38
Hörður Vilberg Lárusson
Af dagskrá
Keflavíkur-
sjónvarpsins
má sjá að hún
var fyrst og
fremst ætluð
bandarískum
hermönnum til
upplýsingar og
dægrardvalar
Af dagskrá Keflavíkursjónvarpsins má sjá að
hún var fyrst og fremst ætluð bandarískum
hermönnum til upplýsingar og dægrardvalar.
Ef litið er á dagskrá Ríkissjónvarpsins til sam-
anburðar má glöggt sjá að því var ekki ein-
ungis ætlað að skemmta heldur einnig að
fræða. Virðist því áhersla manna á að íslenska
sjónvarpið yrði menningartæki sem yrði not-
að til fræðslu hafa skilað sér inn í dagskrár-
stefnu þess. Ekki voru þó allir dagar undir-
lagðir eins mikilli fræðslu og þessi þriðjudag-
ur, og var t.d. léttari dagskrá á föstudögum.
Þá birtist Dýrlingurinn á skjám landsmanna
og var hann einn vinsælasti þáttur sjónvarps-
ins, en það sýndi einnig bandarískar kvik-
myndir og þætti sem áður höfðu verið til sýn-
ingar í Keflavíkursjónvarpinu. Ef hlutfall
dagskrárefnis eftir framleiðslulöndum er
skoðað má sjá að árið 1967 var íslenskt efni
að frátöldum auglýsingum 36,4% en erlent
efni að frátöldum auglýsingum 63,6%. Af er-
lenda efninu var stærstur hluti breskur eða
26% og 20,9% voru bandarísk, 4,9% komu
frá Danmörku, 1,7% frá Noregi, 2,4% frá Sví-
þjóð, 0,8% frá Finnlandi, 3,3% frá Frakklandi
og 1% frá Vestur-Þýskalandi. Hélst þetta að
mestu óbreytt næstu árin.95
Svar Ríkisútvarpsins við Keflavíkursjón-
varpinu var falið í því að við fengum vald
(undir stjórn Alþingis) til að ráða hvað væri
sýnt í okkar eigin landi og hvað ekki. Engin
stórkostleg bylting var gerð á dagskránni og
er ekki að sjá að miðað hafi verið sérstaklega
að því að glæða þjóðernisást íslendinga með
sjónvarpinu. Þó skipti máli að myndir voru
nú textaðar með íslenskum texta og fræðslu-
þættir hljóðsettir með íslensku tali. í hugum
margra hefur tilkoma íslensks sjónvarps því
verið tákn þess að íslendingar væru færir um
að halda uppi menningarstarfsemi á borð við
aðrar vestrænar menningarþjóðir og gætu því
áfram kallað sig sjálfstæða menningarþjóð.
Tilvísanir
1 Þjóðviljinn 8. maí 1951.
2 Valur Ingimundarson, / eldlínu kalda stríðsins: samskipti
íslands og Bandaríkjanna 1945-1960 (Reykjavík, 1996), bls.
227.
3 Gylfi Gröndal, Fró Rauðasandi til Rússíá. Dr. Kristinn
Guðmundsson fyrrum utanríkisráðherra og ambassador rifj-
ar upp endurminningar sínar (Reykjavík, 1974), bls. 136.
4 Einar Olgeirsson, ísland í skugga heimsvaldastefnunnar.
Jón Guðnason skráði (Reykjavík, 1980), bls. 333.
5 Tíminn 27. maí 1954.
6 Benedikt Gröndal, Örlög íslands (Reykjavík, 1991). bls.
200-201.
7 Valur Ingimundarson, í eldlínu kalda stríðsins, bls. 226.
8 ÞÍ. Menntamálaráðuneyti, Ríkisútvarp-Sjónvarp R-20-
III B/1056: A Department of Defense Directorate for Armed
Forces Information and Education. 1942-1962 Twentieth
Anniversary (Los Angeles, 1962) [síðutal vantar].
9 Alþingistíðindi 1951 A, bls. 468-70.
10 Alþingistíðindi 1952 A, bls. 323.
11 Alþingistíðindi 1952 D, d. 205.
12 ÞÍ. Menntamálaráðuneyti, Ríkisútvarp-Sjónvarp R-20-
III B/1056: Hörður Helgason:„Frásögn til ráðuneytisstjóra".
- ÞÍ. Utanríkisráðuneyti, Sjónvarpsstöð varnarliðsins,
Db.Nr. 63.H.003
13 ÞÍ. Utanríkisráðuneyti, Sjónvarpsstöð varnarliðsins,
Db.Nr. 63.H.003: Gunnlaugur Briem, „Greinargerð um afl
sjónvarpsstöðvar varnarliðsins", send utanríkisráðherra 11.
nóvember 1961.
14 Benedikt Gröndal, „Sjónvarp á Islandi", Eimreiðin 77.
árg. nr. 1 (1971), bls. 22.
15 Alþingistíðindi 1957 A, bls. 284.
16 Alþingistíðindi 1957 D, d. 404.
17 Alþingistíðindi 1958 A, bls. 637-39.
18 Alþingistíðindi 1958 D, d. 279.
19 ÞÍ. Utanríkisráðuneyti, Sjónvarpsstöð varnarliðsins, Db.
Nr. 63.H.003.
20 Upplýsingar frá Friðþóri Kr. Eydal, Upplýsingaskrifstofu
varnarliðsins, sendar höfundi þann 21. nóvember 1997.
21 Tíminn 11. nóvember 1961.
22 ÞÍ. Menntamálaráðuneyti, Ríkisútvarp-Sjónvarp R-20-
III B/1056: A Department of Defense Directorate [síðutal
vantar].
23 Alþýðublaðið 9. mars 1962.
24 Segulbandasafn Ríkisútvarpsins, segulband nr. DB-384.
25 Benedikt Gröndal, „Sjónvarp á íslandi", bls. 24.
26 Alþingistíðindi 1961 A, bls. 464-67.
27 Sama heimild, bls. 495-96.
28 Alþingistíðindi 1961 D, d. 337.
29 Sama heimild, d. 355.
30 Sama heimild, d. 361.
31 Sama heimild, d. 345^19.
32 Sama heimild, d. 390.
33 Sama heimild, d. 396.
36