Ný saga - 01.01.1998, Page 53
Sískrifandi smiður
miklu kappi og var margur þar fáklæddur
með sveittan skalla. Og margur þreyttur að
kveldi eftir það langa og stranga dagsverk því
þegar átli að móverka var dagurinn tekinn
snemma á morgnana. Farið að vekja íólkið
bráðsnemma, klukkan fjögur til sex árdeg-
is, og vanalegast hætt vinnu klukkan tíu á
kveldin.
Kaffldrykkja til sátta
Alstaðar mátti sjá ótal reyki urn allt fjallið því
allir flokkar höfðu hlóð og hituðu kaffi við
móglóð því mikið var drukkið af því yfir dag-
inn. Og voru það einu hvíldarstundirnar
ásamt matmálstímum. Sumar kerlingar hlupu
þá að nágrannahlóðum til vinkvenna sinna og
fengu sér sopa hjá þeim. Pó þær hefðu máske
áður verið búnar að rífasl útaf þerriplássi,
kaffibollinn var sáttabikar þeirra. Matur var
oít nógur og góður í mógröl'unum og svo þeg-
ar heim var komið var tekinn heima kvöld-
verður sem kalla mátti að væri stórveisla.
Eg minnist þessara tíma sem nú eru horfn-
ir, því heita má að þessum móverkum væri al-
veg hætt úr 1940. Því þá fóru að breytast tím-
Mynd 5.
arnir með allt, þá voru vanalegast næg kol lil póik við mótekju.
hér og svo fóru að korna olíukyndingarnar og
nú koma óðurn rafurmagnsvélarnar í flest
hús. Og allir atvinnuvegir breyttir. Aður fyrr
var lítið um atvinnu og þá mynduðu menn hér
atvinnu með því að vinna að eldsneyti sínu.
En nú er svo mikil atvinna að það kemst eng-
inn til að móverka og svo er mórinn hita-
minna eldsneyti til að hita upp nýju húsin.
Því má bæta við að nú á tímum rnundi
verkalýðssamtökunum hafa þótt lágt verka-
fólks kaupið þar sem karlmenn fengu fjórar
krónur á dag og kvenfólkið tvær krónur og
fæði. Fyrir svo langan vinnudag og erfiðan
sem var oft að jafnaði 16 tímar á dag, þá hefði
þótt ástæða að nefna verkfall. En eftir því
sem árin liðu fór kaupið smá hækkandi.
Þar er nú auðnin ein
Nú um leið og ég er að enda þessar gömlu frá-
sagnir um móverkin á Ólafsvíkurfjalli sem nú
er löngu lokið og fara að falla í gleymsku
nema hjá gamla fólkinu sem er nú óðum að
fækka, þá ætla ég að segja frá göngutúr sem
Margur var
þreyttur að
kveldi eftir það
langa og stranga
dagsverk því
þegar átti að
móverka var
dagurinn tekinn
snemma á
morgnana