Ný saga - 01.01.1998, Side 72

Ný saga - 01.01.1998, Side 72
Gotasaga Mynd 5. Kirkja heilagrar Karinar í Visby. kveðið er á um fyrir kirkjurnar. Þeir, sem veittu ekki viðurgerning í það skipti, skulu gera það, þegar biskup kemur aftur á þriðja árinu. Og þeir skulu þá greiða gjald, er fyrra skiptið veittu viðurgerning. Verði ágreiningur, er biskup skal skera úr, skal hann leystur í sama þriðjungi, því að þeir vita bezt, hvað sannast er, sem næst búa. Verði ágreiningurinn ekki leystur, skal honum skotið til allsherjarfundar, en honum eigi vís- að frá einum þriðjungi til annars. Verði þræt- ur og deilumál, sem biskupi byrjar að skera úr, skal hér bíða biskupskomu og ekki fjalla um þau, nema brýna nauðsyn beri til og af- brotið sé svo mikið, að prófastur geti ekki veitt aflausn. Þá skal farið yfir málið milli Val- borgarmessu og Allraheilagramessu, en ekki þar eftir að vetrarlagi fram til Valborgar- messu. Biskupssektir á Gotlandi eru ekki hærri en þrjár merkur. Eftir að Gotar réðu sér biskup og presta og tóku við fullkomnum kristindómi, féllusl þeir á að fylgja Svíakonungi í herferð á sjö snekkj- um gegn heiðnum þjóðum, en ekki kristnum; þó svo, að konungur skal bjóða út leiðangri að loknum vetri og veita Golum mánaðar- frest til leiðangursstefnunnar, en hún skal vera fyrir mitt sumar og ekki síðar. Þá er lög- lega til hennar kvatt, en annars ekki. Gotar hafa þá rétt til að fara í leiðangur, kjósi þeir það, með eigin snekkjur og átta vikna útivist, en eigi lengri. Geti Gotar ekki orðið við kvaðningunni, skulu þeir reiða fram fjörutíu merkur fyrir hverja snekkju, ekki þó fyrr en árið eftir og því ekki sama ár og boðið var út leiðangrinum. Það nefnist leiðangursfall. í þeim mánuði skal eina vikuna skorin upp her- ör og þingi frestað. Verði menn sáttir á að fara í leiðangur, skulu þeir búast til ferðar hálfan mánuð og Ieiðangursmenn síðan vera sjö nóttum fyrir stefnu farbúnir og bíða byrj- ar. Fari svo, að ekki verði byr í þeirri viku, skulu þeir enn bíða stefnunnar sjö nætur. Renni byr ekki á á þeim l'resti, mega þeir að ósekju fara heim, því að þeir gátu ekki kom- izt róandi yfir hafið, heldur siglandi. Verði boðið út leiðangri með minna en mánaðar- fresti, skulu menn hvergi fara, en sitja heima að ósekju. Vilji konungur ekki trúa, að útboð- ið hafi verið ólöglegt eða veður hamlað á til- teknum tíma, skulu sendimenn konungs, sem innheimta skattinn á þingi næstu eftir Sankti Pétursmessu, taka af tólf þar til kvöddum mönnum eið að því, að setið hal'i verið heima við lögleg forföll. Enginn nefndareiður verður unninn á Gotlandi annar en konungseiður. Skuli svo illa að berast, að krýndur kon- ungur verði brolt rekinn af ríki sínu, skulu Gotar ekki reiða af höndum skatt, heldur varð- veita hann í þrjú ár. Og þó skulu þeir leggja á skatt árlega og geyma hann, en afhenda hann að þremur árum liðnum þeim, er þá ræður Svíaríki. Lokað bréf með konungsinnsigli skal sent að öllum konungsrétti og eigi opið. 70
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.