Ný saga - 01.01.1998, Síða 99

Ný saga - 01.01.1998, Síða 99
íslensk sauðnautasaga lagi við nokkra aðra sauðnautavini og kom þeini í fóstur á bænum Litlu-Drageyri í Skorra- dal.81 Fontenay sendiherra hafði fylgst með framvindunni, heldur óglaður, og stóðst loks ekki mátið að brydda upp á sauðnautakaup- unum við Tryggva Þórhallsson forsætisráðherra, sem þá tjáði honunr að hann væri enn sem fyrr afar áhugalítill um sauðnautarækt og ófús að kosta meiru til en þegar hafði verið gert.82 Eins og við nrátti búast átti nú að vanda mjög til sauðnautaræktarinnar og var það því einkar heppilegt að borist höfðu ráðleggingar frá Vilhjálmi Stefánssyni í bréfi sem hann rit- aði Búnaðarfélagi íslands og birt var í heild sinni í blaðinu Tímanum. Þar fórust honum svo orð: Mér virðist það einkum þrent, sem ykkur ber að aðgæta. Þið verðið að reyna að varðveita dýrin frá því að vera með öðrum húsdýrum. Það er mögulegt, að sýklar lítt skaðlegir nautpeningi og sauðfé geti orðið sauðnautunum banvænir. Þið verðið að vernda þau fyrir hundum á meðan þau eru ung en það ætti að vera auðveldara á Is- landi en víðast hvar annarsstaðar, því hund- arnir ykkar eru hvorki stórir né grimmir. Þið verðið að umgangast þau daglega, svo að þau verði tamin með aldrinum. Auðvit- að er hægt að fara með þau eins og kúrek- arnir í Ameríku fara með vilta, mannýga naulpeninginn, en betra væri að ala þau upp með lempni og temja þau, ef það get- ur samrýmst skapferli þeirra.83 Alveg áreiðanlega var ekki att hundum á sauðnautin í Gunnarsholti og þau hlutu hinn besta viðurgerning í fóðri og hirðingu. Engu að síður vesluðust þau upp, urðu horuð og ótótleg, og drápust öll sumarið 1931. Það var ekki gerð nákvæm rannsókn á orsökum þess að svona fór, en útlit dýranna og innanmeg- urð þótti benda lil vannæringar þrált fyrir að þau hefðu haft ríkulega vetrargjöf og gotl haglendi sumar sem vetur. Hið eina sem fannst alhugavert við líffæri þeirra voru breytingar á eitlurn, en dýralækni þótti ekki stætt á að álykta um raunverulegt dauðamein út frá því.84 Sauðnautaparið í Skorradalnum, þau Skorri og Flóka, eins og þau voru nefnd, áttu heldur ekki langa lífdaga fyrir höndum. Þau voru 1 % 3 i ■ f 1 rf* oBm m hýst veturinn eftir kornuna til íslands, þrifust vel á töðu og haframjöli, og voru hin bragg- legustu um vorið. Þá var þeim að sjálfsögðu sleppt á fjall eins og öðrum peningi og þau héldu á vit Skarðsheiðarinnar. Eitthvert ó- happ henti Skorra um sumarið, líklega hrap- aði hann niður í gegn um holfönn á lækjargili og lenti í svelti því hann var hrakmagur þegar hann fannst í ágústlok, náði sér ekki, og drapst í september. Flóka var þá flutt í Gunnarsholt þar sem hennar biðu sömu örlög og annarra sauðnauta þar.85 Mynd 16. Skorri hvessir augun framan í Ijósmyndarann. Áforin veiöifélagsins Eiríks rauða uni dýraveiðar á Norðaustur-Græn- landi Þótt hagnaðarvon af sauönautaeldi og vit- neskjan um að dýrunum væri talið hætt við al- dauða væru meginástæður þess að lagt var í kostnað við að afla þeirra til Islands fór ekki hjá því að tengsl Islands og Danmerkur mót- uðu afstöðu íslendinga til sauðnautamálsins. Arsæll Arnason og félagar hans á Gottu höfðu pata af því að dönskum stjórnvöldum væri lítið um Grænlandsferð þeirra gefið: „Það er eins og sambandsþjóð okkar hafi fengið stungu af hvössu sauðnautshorni í kvið „Það er eins og sambandsþjóð okkar hafi fengið stungu afhvössu sauðnautshorni í kvið sér við það, að við skyldum gera þessa ferð“, ritaði Ársæll í frásögn sinni af Gottu- leiðangrinum 97
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.