Morgunblaðið - 04.06.2011, Side 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 2011
Stuttmynd Sigríðar Soffíu Níels-
dóttur, Uniform Sierra, verður
sýnd á kvikmyndahátíðinni Corti &
Cigarettes í Róm í september. Alls
verða 36 íslenskar stuttmyndir
sendar inn í keppnina hér á landi og
fimm valdar til sýninga í „Scand-
inavian Short“-hluta hátíðarinnar á
Ítalíu.
Corti & Cigarettes verður haldin
í fjórða sinn en á hátíðinni í ár er
sérstakur fókus á norðurhluta Evr-
ópu og þá sérstaklega Ísland og
Noreg. Brot úr íslensku myndunum
sem fara til Rómar voru sýnd á
ítölsku menningarhátíðinni sem
haldin var í Salnum í Kópavogi síð-
astliðinn sunnudag.
Uniform Sierra var gerð 2008 og
í henni dansa Benjamin Khan og
Sigríður Soffía. Tónlistina í mynd-
inni samdi tónskáldið Jóhann Frið-
geir Jóhannsson. Uniform Sierra
hlaut fyrsta sæti sem besta dans-
stuttmynd á Actfestivaĺ09 og hlaut
áhorfendaverðlaun á Stutt-
myndadögum í Reykjavík 2008
Myndin hefur nú verið sýnd á
festivölum á Íslandi, Ástralíu, Nor-
egi, Svíþjóð, Spáni & Finnlandi.
Uniform Sierra sýnd í Róm
Neðansjávar Stilla úr mynd Sigríðar, sem gerir sér nú ferð til Rómaborgar.
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Partíið heldur áfram á annarri plötu
gleðibandsins FM Belfast sem kom
út í gær, þremur árum eftir útkomu
frumraunarinnar How to Make
Friends, sem gerði allt vitlaust.
Nýja platan ber titilinn Don’t Want
to Sleep og inniheldur ellefu lög og
hafa smellirnir Vertigo og I Don’t
Want to Go to Sleep Either þegar
hljómað talsvert á bylgjum ljósvak-
ans.
Þegar blaðamaður sló á þráðinn til
Árna Rúnars Hlöðverssonar var
hann í miðri hljóðprufu á tónleika-
stað í París, enda slá fjórmenning-
arnir í sveitinni hvergi af og eru þau
þegar byrjuð að fylgja plötunni eftir
af fullum krafti. „Í gærkvöldi spil-
uðum við í Brussel á alveg frábærum
tónleikum og nú á útgáfudegi spilum
við í París.Við erum á fullri ferð um
Evrópu og stefnum á Bandaríkin í
haust.“ Engir tónleikar eru hins
vegar á dagskrá á Íslandi á næst-
unni en Árni segist búast við „að því
verði kippt í liðinn bráðlega“.
Leiðin stöðugt upp á við
Þau Árni Rúnar, Lóa Hlín Hjálm-
týsdóttir, Árni Vilhjálmsson
og Örvar Þóreyjarson
Smárason ætla
samt að koma
heim til Íslands
eftir rúma viku
til að slaka aðeins
á fyrir komandi
átök, því í júlí
verður keyrt á
fullu stími á tón-
listarhátíðum um
alla Evrópu. Leiðin hefur legið jafnt
og þétt upp á við fyrir FM Belfast
sem sést m.a. á því að nýja platan
kemur út í allri Evrópu í dag, á veg-
um þýska útgáfufélagsins Morr
Music, en í Bandaríkjunum 20. júní.
Tónleikagestir dansa og syngja
„Við höfum verið að „stækka“ í
litlum skrefum í langan tíma,“ segir
Árni Rúnar. „Við finnum vel fyrir
meðbyr núna. Sérstaklega í Frakk-
landi og Þýskalandi þar sem fólk er
búið að fatta að það má sleppa sér al-
veg á FM Belfast-tónleikum, og það
er raun krafa frá okkur að tónleika-
gestir taki fullan þátt í tónleikunum í
dansi og söng.“
Stemningin sem myndast á tón-
leikum FM Belfast er enda nánast
orðin goðsagnakennd og reynslan af
virku tónleikahaldi síðustu ára skilar
sér á nýju plötunni að sögn Árna.
„Platan mótast mikið af tónleikum
og hefur verið í vinnslu í tvö ár. Síð-
asta ár er búið að vera eitt það við-
burðaríkasta sem ég hef upplifað.“
Á tónleikaferðinni í sumar verða,
auk fjórmenninganna sem mynda
kjarna sveitarinnar, fjölmargir
góðir gestir á sviði að sögn Árna
Rúnars. Má þar nefna slagverks-
meistara, dansara, raddþenjara og
kúabjölluleikara. Tónleikagestir
mega því eiga von á miklu fjöri.
Þess verður vonandi ekki langt
að bíða að FM Belfast finni glufu í
dagskránni til tónleikahalds hér á
klakanum en í millitíðinni geta
dansþyrstir Íslendingar hitað sig
upp með því að hlusta á nýju plöt-
una. Hún kemur út bæði á geisla-
diski og vínylplötu en er einnig fá-
anleg í rafrænu niðurhali.
Krefjast þess að fólk sleppi sér
Stuðsveitin FM Belfast gefur út aðra plötu sína Fylgir henni eftir með Evrópu- og Ameríkutúr
„Mikil læti og hressleiki með smápláss fyrir dramatík“ Kippa tónleikum á Íslandi „í liðinn“
„Okkur finnst þetta mjög rök-
rétt framhald. Mikil læti og
hressleiki með smápláss fyrir
dramatík,“ segir Árni Rúnar
spurður hvort ný stefna sé tekin
á Don’t Want to Sleep. Platan
kemur út hér á landi á veg-
um Kimi Records. Meðal
hljóðfæraleikara sem
leggja sveitinni lið á
plötunni má nefna Unn-
stein Manúel Stef-
ánsson úr Retro Stefson
og trðmpetleikarann Eirík
Orra Ólafsson.
Mikil læti
RÖKRÉTT FRAMHALD
Sænsku plötusnúðarnir Joni og
Viktor eru á leið á klakann og
ætla að þeyta skífum á Faktorý í
Reykjavík og Sjallanum á Akur-
eyri helgina 10.-11. júní. Joni er
þekktastur fyrir störf sín með
sænsku elektrósveitinni Slags-
målsklubben en Viktor hefur
mikið verið viðriðinn sænska
jaðartónlist. Forsala miða á
Faktorý hefst þar mánudaginn
6. júní (opið frá kl. 15). Forsala
miða í Sjallann hefst í Imperial
á Glerártorgi mánudaginn 6.
júní.
Heitur Joni úr Slagsmålsklubben.
Sjóðheitir sænskir
skífuþeytarar
FM Belfast Á myndinni eru Björn „Borko“ Kristjánsson, Árni Rúnar Hlöðversson, Örvar Þóreyjarson Smárason, Árni Vilhjálmsson og Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir.
ARKITEKTÚR
HÖNNUN • LISTIR
MIÐLUN • TÍZKA
ALÞJÓÐLEGT
FAGNÁM
Barcelona • Madrid
Firenze • Milano
Roma • Torino • Venezia
Glasgow • London
New York