Morgunblaðið - 08.06.2011, Síða 2
í d
við
Þú
greiðir
f.sím
anr.og
aðra
notkun
skv. verðskrá á siminn.is
Notkun
á
Íslandi,100
M
B
innan
dagsins.
Netið í símanum
á 0 kr. fyrir
viðskiptavini
Símans í dag.
Magnaðir
miðvikudagar!
Er eitthvað
nýtt að frétta?
Innlendar fréttir
Skannaðu hérna
til að sækja
0
Barcode
Scanner
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
lagði hald á 2 kíló af marijúana og
nokkrar kannabisplöntur við leit í
bifreið sem stöðvuð var á Suður-
landsvegi á dögunum. Grunsemdir
vöknuðu um fíkniefnamisferli þegar
bíllinn var stöðvaður við reglubund-
ið eftirlit en sterk kannabislykt var
í bílnum.
Karl Steinar Valsson, yfirmaður
fíkniefnadeildar LRH, segir að lög-
reglumenn í hefðbundnu umferðar-
eftirliti séu yfirleitt mjög glöggir að
sjá ef eitthvað er athugavert. „Þeir
veita því fljótt athygli ef það er
eitthvað athugavert þegar þeir hafa
afskipti af fólki út af umferð-
arlagabrotum eða kanna ástand.
Það eru allskyns brot sem koma út
úr því en þetta er með því meira
sem maður hefur séð,“ segir Karl
Steinar um nýlegan fíkniefna-
fund.
Tvær konur á þrítugsaldri,
ökumaður og farþegi bifreið-
arinnar, voru handteknar og
færðar til vistunar. Í bifreiðinni
var einnig ungt barn öku-
mannsins og var barnavernd-
aryfirvöldum gert viðvart
vegna þess.
Í kjölfar fíkniefnafund-
arins var farið í húsleit á
heimili annarrar konunnar.
Sambýlismaður hennar var
handtekinn við heimilið en í
bifreið hans fannst búnaður
sem lögregla ætlar að hafi verið
notaður við kannabisframleiðsl-
una. Við yfirheyrslur viðurkenndi
önnur konan aðild sína að málinu.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Andri Karl
andri@mbl.is
Hættan á að lokað hefði verið fyrir greiðslu-
kortanotkun Íslendinga í kjölfar falls bankanna
í október 2008 var mun meiri en áður hefur ver-
ið greint frá. Alþjóðlegu kortafyrirtækin VISA
og Mastercard héldu neyðarfundi um málefni
Íslands og var íhugað í fullri alvöru að svipta ís-
lensku fyrirtækin Valitor og Borgun leyfum sín-
um. Forstjóri Valitors telur að það hefði haft
geigvænleg áhrif.
Málið var til umfjöllunar á ráðstefnu CAC
(CAC card academy) sem hófst á Hilton
Reykjavík Nordica í gær og lýkur í dag.
Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitors, fór í
erindi sínu meðal annars yfir dagana
eftir bankahrunið. Fyrir hrun greiddu
Íslendingar fyrir um 70% af daglegri
neyslu með kortum en þrátt fyrir það
var ekki endilega litið svo á að sú þjón-
usta skipti sköpum varðandi þjóðarör-
yggi. En var hættan á algjöru hruni
mikil? „Já, mun meiri en fólk held-
ur,“ segir Viðar sem greindi frá því í
erindi sínu að um raunverulega
áhættu var að ræða. „Ég veit að
bæði kortafyrirtækin, VISA og
Mastercard, voru alvarlega að
íhuga að loka fyrir kortanotkun á
Íslandi.“
Mikilvægt hlutverk
Seðlabankans
Viðar hélt því fram í erindi sínu að
áfall sem slíkt á þessum tímapunkti hefði
haft í för með sér mikla ringulreið og upp-
lausn, auk þess sem varaforði bankanna hefði
fljótt klárast og mun verra ástand skapast en
þó gerði. Einnig benti hann á að um tólf þúsund
Íslendingar voru á erlendri grund þegar á
þessu stóð og hefðu án efa lent í miklum vand-
ræðum ef greiðslukortin hefðu hætt að virka.
Að sögn Viðars tókst með samhæfðu átaki að
halda þjónustunni gangandi en kortafyrirtækin,
þ.e. Valitor og Borgun, funduðu fyrst í Seðla-
banka Íslands nokkrum vikum áður en fyrsti
bankinn féll, um óvissu á markaði og gerð áætl-
unar ef bankakerfið hikstaði. „Seðlabankinn lék
mikilvægt hlutverk,
en ekki síður
kortafyrirtækin. Valitor sem er með hátt í 70%
af útgefnum kortum á Íslandi spilaði stóra
rullu, sem og reiknistofan sem var lykilatriði
vegna debetkortanna. Það þurfti því nokkra
til.“
Ekki síst voru það þó VISA og Mastercard,
enda tóku þau þá ákvörðun að loka ekki. En
hvers vegna? „Ég held að það hafi verið vegna
þess að það ríkti mikið traust á milli þessara
kortasamtaka og íslensku fyrirtækjanna. Og ég
held að þau hafi metið stöðuna hárrétt á þess-
um tímapunkti. Þeim er mjög umhugað um sín
vörumerki og þeir mátu það þannig, að það
myndi ekki slettast á þau. Og eins kom Seðla-
bankinn með ákveðna ábyrgð fyrir því að það
væri til nægjanlegur gjaldeyrir til að gera
upp gagnvart þessum félögum.“
Íhugað var alvarlega að
loka fyrir kortanotkun
Fundað var í Seðlabankanum með íslensku kortafyrirtækjunum fyrir hrun
Neyðarfundir voru hjá VISA og Mastercard eftir hrun og ástandið sagt tvísýnt
Nú fer ungt fólk að sjást víða í þéttbýlisstöðum landsins
að fegra garða, runna, umferðareyjar og grindverk.
Fyrstu hóparnir í Vinnuskóla Reykjavíkur taka til
starfa á morgun, fimmtudag, og ætti þá aldeilis að lifna
yfir borginni. Þetta unga fólk málaði kastala á Arnar-
hóli í blíðskaparveðri í gær.
Þeir sem mæta í Vinnuskólann á fimmtudaginn ættu
að hafa í huga að klæða sig vel því þá er spáð aðeins 2
til 8 stiga hita á landinu. Svalast norðaustanlands,
þurrt verður suðvestantil. Á föstudaginn hlýnar lítið
eitt í veðri, spáð er norðaustlægri átt, 5-10 m/s, en
hvassara norðvestantil, rigning verður með köflum, en
úrkomulítið suðvestantil. Veðrið á að verða heldur
hlýnandi og milt um komandi helgi.
Morgunblaðið/Golli
Nú lifnar yfir leiktækjunum
Tekin Ýmislegt kemur í ljós við
hefðbundið umferðareftirlit.
Bifreiðin
angaði af
kannabislykt
Prestar eru gagnrýnir á endurskoð-
aðar tillögur mannréttindaráðs borg-
arinnar um skólastarf og trúar- og
lífsskoðunarmál. Málið var afgreitt til
borgarráðs á fundi mannréttindaráðs
Reykjavíkurborgar í vikunni. Meðal
þeirra reglna sem ráðið leggur til er
að trúar- og lífsskoðunarfélög stundi
ekki starfsemi sína innan veggja leik-
og grunnskóla borgarinnar á skóla-
tíma og á það við allar heimsóknir í
trúarlegum tilgangi sem og dreifingu
á boðandi efni. Skólastjórnendur hafa
þó leyfi til að bjóða fulltrúum hópanna
að heimsækja skólabekki sem lið í
fræðslu um trú. Ekki má samþætta
húsnæði og starfsemi stofnana sem
vinna með börn á vegum borgarinnar
við starfsemi trúar- og lífsskoðunar-
félaga á skólatíma. Fermingarfræðsla
og barnastarf má ekki trufla lögbund-
ið skólastarf og helgistundir sem
tengjast viðbrögðum við áfalli skulu
fara fram utan skólatíma. Í þessari til-
lögu eru jólasálmar og helgileikir
tengdir jólum ekki bannaðir í skóla-
starfi frekar en annað sem tengist
gamalgrónum hátíðum og frídögum
þjóðarinnar.
Sr. Bjarni Karlsson í Laugarnes-
kirkju og fulltrúi Samfylkingarinnar í
velferðarráði borgarinnar segir tillög-
urnar ótækar í bloggi sínu á Eyjunni.
Hann segir að kirkjunni sé bannað að
auglýsa starf sitt eins og öðrum sem
bjóða börnum í félagastarf, horft sé
framhjá aðild sóknarkirknanna að
grenndarkennd og hverfisstemningu
og lokað sé á Gídeonmenn sem hafa í
yfir 60 ár gefið bláa Nýja testamentið.
Sr. Vigfús Þór Árnason prestur í
Grafarvogi er líka undrandi á tillög-
unum. „Þetta getur ekki verið satt,
eftir þúsund ára frið og sambýli krist-
innar trúar og þjóðar. Það hefur alltaf
verið svo gott samstarf við skóla og
skólakerfið. Ég er búinn að vera
prestur í 35 ár og það hafa aldrei orðið
neinir árekstrar, enda erum við ekki
að koma í skóla með trúboð.“
„Þetta getur
ekki verið satt“
Kirkjunni bannað að auglýsa
félagastarf sitt eins og aðrir í skólum
Bjarni
Karlsson
Vigfús Þór
Árnason