Morgunblaðið - 18.06.2011, Side 14
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2011
Krókur 220,-
Héraeyra 220,-
Black Gnat 220,-
Nobbler Svartur 290,-
Dýrbítur 290,-
JW Nymph 290,-
Randy Candy 390,-
Colburn Special 390,-
Hairy Mary 390,-
Sunray Shadow 390,-
Black Eyed Prawn 450,-
Black Eyed Prawn 450,-
Bjarni Rauði 220,-
Watson´s Fancy 220,-
Black Flying Ant 220,-
Alda 290,-
Hólmfríður 290,-
Nobbler 290,-
Green Collie Bitch 390,-
Nagli 390,-
Fransis 390,-
HKA Sunray/Bismo 450,-
Fransis 450,-
Black Sheep 450,-
Brassi 220,-
Tailor 220,-
Peacock 220,-
Black Ghost 290,-
Rektor 290,-
Heimasætan 290,-
Munroe Killer 390,-
Fransis 390,-
Black Sheep 390,-
HKA Sunray/Bismo 450,-
Snælda 450,-
Fransis 450,-
Latexpúpa rauð 220,-
Bleik og blá 220,-
CDC Winged 220,-
Flæðarmús 290,-
Supertinsel 290,-
Black Ghost 290,-
Hairy Mary 390,-
Stekkur Blá 390,-
Haugur 390,-
Skógá 450,-
Snælda 450,-
Dark Side of the Moon 450,-
Í sérverslun fluguveiðimannsins á netinu, Flugan.is, f
ærðu á
fjórða hundrað gerðir af vönduðum, vel hnýttum og v
eiðnum
flugum. Flestar þeirra færðu einnig í Veiðihorninu, Síð
umúla 8.
BESTU FLUGURNAR!
JÁ, ÞÚ FÆRÐ ALLAR BESTU FLUG
URNAR
Á BETRA VERÐI HJÁ OKKUR
KANNASTU VIÐ ÞESSAR?
Fransis, Snælda, Blue Charm, Avatar, Collie Dog, Green Butt, Bismo, Flæðarmús, Hairy Mary, Peacock, Killer, Sunray Shadow,
Kötturinn, Green Brahan, Black & Blue, Skröggur, Rusty Rat, Randy Candy, Mýsla, Leonardo, María, Colburn Special, Black Ghost,
Krókur, Black Labrador, Héraeyra, Skógá, Green Highlander, Kolskeggur, Blue Sheep, Undertaker, Iða, Hólmfríður, Haugur, Gray
Ghost, Nagli, Nobbler, Super Tinsel, Red Butt, Black Sheep, Dimmblá, Rektor, Crossfield, Laxá Blá, Dýrbítur, Þingeyingur, Alder,
Montana, Black Gnat, Dark Side of the Moon, Stardust, Alda, Dentist, Silver Sheep, Munroe Killer, Rocket, Alma Rún, Watson Fancy
SÍÐUMÚLI 8 - SÍMI 568 8410
ís fyrir sjómenn, „Opnunartími fer
alveg eftir þörfum sjómanna og
jafnvel allan sólarhringinn ef sú
staða kæmi upp,“ segir Axel en slík
þjónusta hefur ekki verið í boði við
höfnina. Fiskmarkaðurinn hefur
setið einn að löndun og þjónustu við
Sandgerðishöfn og hefur m.a. tak-
markað opnunartímann hjá sér, t.d.
með lokað nú um helgar. Það er því
væntanlega kærkomin viðbót fyrir
sjómenn að fá fyrirtækið Löndun og
þjónustu í bæinn með þjónustulund-
ina að vopni.
Á þessu ári eru 100 ár frá
stofnun Háskóla Íslands. Í tilefni
þessara merku tímamóta verður
mikið um dýrðir. Háskólasetur Suð-
urnesja í Sandgerði er tengiliður við
Háskólalestina sem verður partur
af dagskrá Sandgerðisdaga þar sem
skemmtileg kynning fer fram á hinu
fjölbreytta starfi sem fram fer í há-
skólanum. Allskonar efnafræði-
tilraunir eru viðhafðar og má þar
nefna sprengjugengið sem hefur
vakið mikla athygli, eldorgel og
stjörnuhvolfið, auk þess sem boðið
verður upp á stutta fyrirlestra um
forvitnileg mál. Í Grunnskóla Sand-
gerðis verður háskóli unga fólksins.
Ný þjónusta í Sandgerði.
Tónaflóð, fyrirtæki í vefsíðugerð og
ýmiskonar tölvuþjónustu, heldur úti
vinsælli fréttasíðu, 245.is, um bæj-
arlífið hér í Sandgerði. Nú hefur
fyrirtækið komið sér upp prent-
aðstöðu og hannar og prentar alls-
konar bæklinga fyrir viðskiptavini
sína.
Sandgerði á vafasömum toppi
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Opnun Ósk Valdimarsdóttir klippir á borða við vígslu á 18 holu Kirkju-
bólsvelli, líkt og hún gerði þegar 9 holu völlur var tekinn í notkun um árið.
ÚR BÆJARLÍFINU
Reynir Sveinsson
Sandgerði
Það eru ekki góðar fréttir sem
Tíund, fréttablað ríkisskattstjóra,
birti um atvinnuleysi. Þar kemur
fram að 20,3% íbúa Sandgerð-
isbæjar töldu fram atvinnuleys-
isbætur á skattframtölum sínum
fyrir árið 2010 og bæjarfélagið trón-
ir á toppnum yfir hlutfall íbúa sem
töldu fram slíkar bætur. Það er von-
andi að Sandgerðingar verði ekki
lengi í efsta sæti á þessum lista.
Um þessar mundir heldur
Golfklúbbur Sandgerðis upp á 25
ára afmæli sitt. Klúbburinn var
stofnaður hinn 26. apríl 1986. Í til-
efni af þessum tímamótum og form-
legri opnun 18 holu vallar bauð GSG
til afmælis- og opnunarhátíðar laug-
ardaginn 11. júní, þar sem elsti
klúbbfélaginn, Ósk Valdimarsdóttir,
opnaði völlinn formlega með því
klippa á borða og slá upphafshögg á
1. teig (hún sló líka fyrsta höggið
þegar 9 holu völlurinn var opnaður
1986). Starf golfklúbbsins hefur
verið blómlegt alla tíð.
Samkeppni komin við Sand-
gerðishöfn. Nýtt löndunarfyrirtæki,
Löndun og þjónusta, hóf starfsemi
1. júní. Eigandi er Axel Már Wal-
tersson, hann verður með aðsetur
að Vitatorgi 9. Axel verður með tvo
lyftara og átta tonna vörubíl, kassa
fyrir sjómenn til að flokka aflann og
knattspyrnu, sem tekist hefðu með
ágætum. Vegna þessa hefði Skag-
firðingum verið falið þetta mótshald
nú, þeir hefðu tekið dæmið að sér og
leyst öll mál varðandi það með ágæt-
um.
Leikið á Króknum og Hofsósi
Stefán Vagn Stefánsson, yfirlög-
regluþjónn á Sauðárkróki, sagði
þetta hafa verið ánægjulega daga,
hér hefðu 180 leikmenn karlaliða frá
öllum Norðurlöndunum fimm og
kvennaliða frá öllum löndunum
nema Íslandi átt skemmtilega daga í
keppni og leik og hefði enga skugga
borið á þennan tíma.
Að sögn Stefáns var leikið á aðal-
völlunum á Sauðárkróki, en einnig
fóru fimm leikir fram á Neistavell-
inum á Hofsósi. Þá var samið við
knattspyrnudeild Tindastóls um að
annast dómgæslu á leikjunum og
Sauðárkrókur | Líflegt hefur verið á
íþróttavöllum Skagafjarðar undan-
farna viku undir blaktandi fánum
Norðurlandaþjóðanna, en knatt-
spyrnumóti lögreglumanna og lög-
reglukvenna frá þessum löndum
lauk þar í gær. Höfðu Danir sigur úr
býtum í karlaflokki og Norðmenn í
kvennaflokki.
Að sögn Óskars Bjartmarz, for-
manns Íþróttasambands lögreglu-
manna, gekk mótið frábærlega á all-
an hátt og höfðu hinir erlendu gestir
sérstaklega orð á hversu skipulag
allt og aðbúnaður hefði verið góður.
Óskar sagði að hugmyndin hefði
komið upp á þingi sem haldið var á
Akranesi í fyrra, þ.e. hvers vegna
fjölþjóðleg mót eins og þetta væru
ekki haldin úti á landi. Þá hefði
Sauðárkrókur komið inn í myndina,
enda hefðu þar verið haldin lands-
mót lögreglumanna í innanhúss-
einnig fenginn einn dómari sem
dæmir í efstu deildum Íslandsmóts-
ins.
Stefán sagði liðin nokkuð áþekk
að styrkleika og meira jafnræði með
þeim en oft áður; þannig hefði ekki
verið séð á næstsíðasta degi mótsins
hvernig þjóðirnar röðuðust til úr-
slita. Mót sem þetta sagði Stefán
vera haldið á fjögurra ára fresti og
því ljóst að 20 ár líða á milli mótanna
hérlendis. Þess vegna væri það sér-
staklega mikill heiður og líka
ánægjulegt fyrir Sauðárkrók að fá
tækifæri til að halda mót sem þetta.
Allt virtist hafa tekist eins vel og
að var stefnt, nema það að veðráttan
hefði verið mun kaldari og hryss-
ingslegri en menn hefðu gert sér
vonir um. Þrátt fyrir það hefðu allir
gengið kátir og ánægðir frá mótinu
eftir góða daga, sagði Stefán Vagn
Stefánsson að lokum.
Norrænar löggur öttu
kappi í knattspyrnu
Norðurlandamót heppnaðist vel í köldum Skagafirðinum
Ljósmynd/Kristján Örn
Fótafimi Lögregluþjónar frá Íslandi og Finnlandi í byrjunarleik mótsins á Sauðárkróki, þar sem Finnar unnu 3:0.