Morgunblaðið - 18.06.2011, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2011
Þú getur fengið ýmsar gagnlegar
upplýsingar sendar í símann
Viðvörun ef staðan fer niður fyrir ákveðna upphæð • Staða reikninga • Tilkynning þegar
greitt er inn á reikninginn • Gengi gjaldmiðla ... og fleira í Netbanka einstaklinga
Ís í brauði á
1.020 krónur?
* ef þú greiðir inn á reikninginn næsta virka dag eftir að þú fórst yfir. Gildir fyrir einstaklinga.
Það er auðvelt að losna við FIT-kostnaðinn**
Það geta allir lent í því að fara yfir á reikningum. Íslandsbanki hefur því ákveðið að
fella niður FIT-kostnaðinn ef þú greiðir inn á reikninginn næsta virka dag eftir að þú
fórst yfir.
Og til að þúmissir ekki af þessu tækifæri þá getur þú skráð símanúmerið þitt í Netbank-
anum og við sendum þér SMS um leið og þú ferð yfir á reikningnum.
Skráðu þig í FIT viðvörun í Netbankanum.
Þú færð nánari upplýsingar á www.islandsbanki.is.
**Kostnaður af innistæðulausum tékkum – sjá verðskrá Íslandsbanka.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
1
-1
0
9
3
+ FIT kostnaður 750 kr.
270 kr.
samtals 270 kr.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
1
-1
0
9
3
Í sumar ætla írönsk stjórnvöld að
senda geimfar með apa innanborðs
út í geim. Forseti landsins, Mah-
moud Ahmadinejad, kynnti í febr-
úar endurskoðaða geimferða-
áætlun landsins, sem auk ferðar
apans felur í sér að koma fyrir í
geimnum nokkrum gervitunglum á
þessu ári. Áður hafa Íranir sent
nokkur smádýr á sporbaug um
jörðu, m.a. rottu, skjaldböku og
orma.
Fyrsta íranska gervitunglið fór
á loft árið 2009. Nýverið var einu
gervitunglinu enn komið fyrir í
geimnum og er yfirlýst hlutverk
þess að mynda jörðina.
Yfirmaður írönsku geim-
ferðastofnunarinnar, Hamid Fa-
zeli, segir að markmiðið sé að
senda að lokum mannað geimfar
frá jörðu en samkvæmt geim-
ferðaáætluninni á það að eiga sér
stað árið 2020.
Stjórnvöld vestrænna ríkja hafa
lýst yfir áhyggjum af brölti Írana í
geimnum og telja það tengjast
kjarnorkuvopnaáætlun þeirra.
Þessu hafa írönsk stjórnvöld stað-
fastlega neitað. sunna@mbl.is
Íranskur api
kannar geiminn
Reuters
Stefna hátt Íranir senda nú hvert
gervitunglið á fætur öðru út í geim.
BAKSVIÐ
Sunna Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
Nokkur ríki í Afríku hafa gripið til
ýmissa ráða til að reyna að hindra
notkun netsins, aðallega bloggs og
samskiptasíðna, telji þau öryggi
landa sinna ógnað. Þetta er niður-
staða nefndar blaðamanna sem ásamt
tölvurisanum Google söfnuðu upplýs-
ingum frá fjölda afrískra frétta-
manna. Ríkisstjórnir t.d. Rúanda og
Úganda óttast að mótmæli sem skek-
ið hafa lönd í Norður-Afríku blossi
upp og hafa því lokað samskiptaas-
íðum, s.s. Facebook og Twitter, til að
reyna að koma í veg fyrir að fólk geti
tekið sig saman og skipulagt aðgerð-
ir. Segja stjórnvöld að með þessu séu
þau að „vernda borgara sína“.
Í Rúanda var bloggsíðu lokað og
bloggarinn í kjölfarið dæmdur í
tveggja ára fangelsi fyrir að móðga
forsetann Paul Kagame með skrifum
sínum.
Í Svasílandi gengu stjórnvöld enn
lengra og lokuðu fyrir sendingar smá-
skilaboða vegna mótmæla í aprílmán-
uði.
Tæknibyltingin
En þessar aðgerðir eru nokkuð
„gamaldags“ miðað við það sem
stjórnvöld í Tansaníu og Súdan hafa
nú tekið upp á. Þar er notast við kerfi
sem Kínverjar hafa beitt með umtals-
verðum árangri, er síar út af vefsíðum
efni það sem stjórnvöld telja óæski-
legt. Með nokkurri einföldun má
segja að um sé að ræða njósnaforrit
sem er nokkurs konar vírus er „sogar
til sín efni“ og getur auk þess klónað
vefsíður og blekkt notendur. Klónuðu
síðurnar eru það nákvæmar að erfitt
er að greina á milli. Stjórnvöld í Tan-
saníu hafa m.a. verið talin beita þess-
ari klónun til að trufla samskipti á
JamiiForums, systursíðu Wikileaks
þar í landi. Og yfirvöld hafna ekki
þessum ásökunum en staðfesta held-
ur ekkert.
Forsvarsmenn Google telja að Afr-
íkubúar ættu að vera meira á tánum
gagnvart misnotkun stjórnvalda á
netinu.
Google hefur oft orðið fyrir barðinu
á aðgerðum kínverskra stjórnvalda
sem hafa lengi haldið leitarvélinni
niðri. Ory Okolloh, ein af fram-
kvæmdastjórum Google, segir að
mótmælin í Mið-Austurlöndum og
Norður-Afríku hafi sýnt fram á vax-
andi þörf fólks til að nota vefinn til að
tjá sig og safna upplýsingum. Víða
hafa stjórnvöld vald yfir „leiðslum og
vírum“ netsins, segir Okolloh.
Þá vekja blaðamennirnir athygli á
því að stjórnvöld hafa ennfremur oft
og tíðum umsjón með símkerfum og
geta, tæknilega séð, auðveldlega
fylgst með hvert fólk er að hringja og
hvaða vefsíður það skoðar í gegnum
snjallsíma sína.
Afríkuríki
taka netið
úr sambandi
Reuters
Mótmælt Ráðamenn nokkurra
Afríkuríkja óttast frekari mótmæli.
Mótmælaalda kynti undir tortryggni
Glæpir á neti
» Úganskur bloggari var hand-
tekinn og settur í fangaklefa í
heila viku fyrir að hafa á bloggi
sínu skrifað „óæskileg“ um-
mæli.
» Glæpurinn í augum úg-
andskra stjórnvalda er sá að
bloggarinn dró í efa í einni
færslu að sómalskir íslamistar
hafi verið á bak við sprengju-
árás í höfuðborginni Kampala í
fyrra. Hann á nú yfir höfði sér
fangelsisdóm.