Morgunblaðið - 21.06.2011, Side 23

Morgunblaðið - 21.06.2011, Side 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 2011 ✝ Björn Guð-mundsson fæddist á Húsavík 27. júlí 1919. Hann lést í Hlíð á Ak- ureyri 13. júní 2011. Foreldrar Björns voru Guð- mundur Björns- son, f. í Grenivík, Grímsey, 14. júlí 1886, d. 2. febrúar 1969, og Guðbjörg Sigurgeirs- dóttir, f. í Höfða á Langanesi 3. júní 1892, d. 6. október 1978. Albróðir Björns var Sig- urgeir Guðmundsson, f. 20. júní 1916, d. 3. október 1979. Systkini sammæðra voru El- ínóra Hólm Samúelsdóttir, f. 26. október 1911, d. 13. júní 2011, Sigmundur Pétur Jó- hannsson, f. 2. október 1921, d. 15. október 1949, Jóhann Helgi Jóhannsson, f. 2. októ- ber 1923, d. 3. september 1973, Hólmsteinn Jóhannsson, f. 15. mars 1928, Friðrós Stef- anía Jóhannsdóttir, f. 18. ágúst 1930, Ólafur Randver Jóhannsson, f. 16. janúar 1932, d. 16. október 2004. Haustið 1949 hóf Björn sam- búð með Guðmundu Margréti rúnu Einarsdóttur, f. 30. jan- úar 1939, Hjálmar Húnfjörð Einarsson, f. 3. nóvember 1943. Björn var fyrstu árin hjá foreldrum sínum á Húsavík, þau slitu samvistir þegar hann var tveggja ára og flutti þá móðir hans til Grímseyjar með Sigurgeir með sér en Björn fór í fóstur á Tjörnesi. Níu ára fór hann til systranna Fanneyjar og Kristínar sem bjuggu í Hringveri á Tjörnesi ásamt móður sinni, þar var hann fram yfir fermingu. Árið 1943 flutti hann til Eyja- fjarðar og fór að vinna þar ýmis störf til sjávar og sveita. Var vinnumaður á Botni í Eyjafjarðarsveit í nokkur ár, fór síðan á sjóinn um nokkurn tíma. Vann síðast hjá Slát- urhúsi KEA sem verkstjóri í gæruvinnslu. Þegar tími gafst til frá öðrum verkum hafði Björn mikla ánægju af að bólstra húsgögn og lagði mikla alúð í snúrusaum og hnappa með fallegu hand- bragði. Útför Björns fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 21. júní 2011, og hefst athöfnin kl. 13.30. Kristjánsdóttur frá Blönduósi, f. 3. september 1915, d. 10. janúar 1994. Foreldrar hennar voru Kristján Júl- íusson, f. 20. mars 1892, d. 28. janúar 1986 og Margrét Guðrún Guð- mundsdóttir, f. 12. ágúst 1897, d. 8. desember 1974. Börn þeirra eru Sigurbjörg Guðný, f. 3. janúar 1951, gift Guðbrandi Jóhannssyni, f. 23. maí 1949, d. 20. ágúst 2005, Ólöf Gunnlaug, 21. janúar 1952, maki Eyþór Sævar Jó- hannsson, f. 27. mars 1944, Pálmi Helgi, f. 10. mars 1953, kvæntur Hjördísi Sigurbjörgu Hauksdóttur, f. 5. janúar 1952, Magga Kristín, f. 12. febrúar 1956, gift Birni Snæbjörnsyni, f. 29. janúar 1953, Birna Aðal- björg, f. 6. janúar 1957, gift Helga Helgasyni, f. 23. sept- ember 1948, Guðmundur, f. 24. október 1959, kvæntur Rósu Knútsdóttur, f. 20. júní 1959. Barnabörnin eru 22 og barna- barnabörnin eru 43. Fyrir átti Guðmunda, Jón Einarsson, f. 29. júlí 1936, Guðlaugu Krist- Í dag kveð ég tengdapabba minn, hann Björn Guðmundsson, eða Bjössa eins og hann var ávallt kallaður. Þegar ég kom inn í fjöl- skylduna þá tók maður eftir hin- um mikla hlýleika sem frá Bjössa kom. Það var ekki hávaðinn og lætin þó að eitthvað gengi á held- ur voru öll mál leyst í rólegheit- unum og ekki var málrómurinn svo hár en maður þurfti oft að hvá til að heyra hvað hann sagði. Bjössi þurfti allt sitt líf að berj- ast fyrir sínu, hann átti erfiða æsku þurfti snemma að vinna mikið og það gerði hann alla sína ævi. Ekki var sérhlífninni fyrir að fara og oft finnst mér að ýmsir sem nutu hans þjónustu hefðu mátt launa honum betur en gert var. Bjössi hugsaði fyrst og fremst að halda sjó og að hans fjölskylda gæti haft í sig og á, það tókst með mikilli vinnu og ekki var svefninn alltaf langur því það þurfti að nota tímann vel í sólar- hringnum til að láta hlutina ganga upp. Hann hafði sjaldan tíma til að lyfta sér upp, fara í ferðalög til að sjá landið það var ekki mikill peningur til svoleiðis hluta. Lífshlaup hans byggðist á erfiði, erfiðleikum og útsjónar- semi þess sem þarf að skipu- leggja hlutina til að allt gangi upp. En hagur þeirra sem minnst hafa var honum hugleikinn og í umræðunni var mjög gott fyrir mig að heyra hans skoðanir og oft brýningu í mínu starfi. Það sem Bjössi bar mest fyrir brjósti var fjölskyldan og ekki síst börnin og ég tala ekki um barnabörnin en fyrir þau hafði hann alltaf tíma til að spjalla og leika sér enda var hann alltaf aufúsugestur og veitti mikla gleði þó að hægt færi. Hann hafði þó áhugamál þótt ekki væri mikill tími. Hann hafði gaman af því að safna bókum, gömlum húsgögnum og hlutum og honum fannst ekkert dýrmæt- ara en það sem var mjög gamalt. Reyndar fannst okkur sumum að þetta væri oft bara drasl en í hans augun var þetta gersemi sem yrði svakalega fínt þegar búið væri að gera þetta upp. Bækur og tímarit voru honum dýrmæt og það var með ólíkindum hvað hann var vel lesinn í því sem hann átti miðað við þann tíma sem hann hafði til að sinna þessu. Oft ræddum við Bjössi lands- og bæjarmálin og voru það oft mjög góðar umræður en það var í einu skiptin sem mér fannst hann skipta skapi því að honum fannst ávallt að það væri verið að keyra þetta þjóðfélag í öfuga átt. Það væri verið að fórna þeim sem ver væru settir fyrir þá sem betur mega sín. Hann var sannur vinstrimaður og í raun mjög rót- tækur í sínum skoðunum en ekki var hann mikið að sækja fundi eða koma sínum skoðunum á framfæri. Hann þáði aldrei að ég keyrði hann á kjörstað því í bíl með framsóknarmanni færi hann ekki á kjörstað þó að ég keyrði tengdamömmu meðan hún var á lífi. Nei, Bjössi gekk bara á sínum eigin fótum. En minningin um þreyttan verkamann sem allt sitt líf þurfti að strita við mismunandi aðbúnað og atlæti mun ekki gleymast í minningu þeirra sem kynntust honum. Ég vil að lokum þakka þér fyr- ir góða leiðbeiningu og hvatningu í gegnum tíðina því að það sem þú sagðir var af raunverulegri reynslu og því fylgdi hlýhugur og festa. Björn Snæbjörnsson. Ljósið flæðir enn um ásýnd þína: yfir þínum luktu hvörmum skína sólir þær er sálu þinni frá sínum geislum stráðu veginn á. Myrkur dauðans megnar ekki að hylja mannlund þína, tryggð og fórnarvilja – eftir því sem hryggðin harðar slær hjarta þitt er brjóstum okkar nær. Innstu sveiflur óskastunda þinna ennþá má í húsi þínu finna – þangað mun hann sækja sálarró sá er lengst af fegurð þeirra bjó. Börnin sem þú blessun vafðir þinni búa þér nú stað í vitund sinni: alla sína ævi geyma þar auðlegðina sem þeim gefin var. Þú ert áfram líf af okkar lífi: líkt og morgunblær um hugann svífi ilmi og svölun andar minning hver – athvarfið var stórt og bjart hjá þér. Allir sem þér unnu þakkir gjalda. Ástúð þinni handan blárra tjalda opið standi ódauðleikans svið. Andinn mikli gefi þér sinn frið. (Jóhannes úr Kötlum) Guð geymi þig elsku afi. Unnur, Guðbjörg, Snæbjörn og fjölskyldur. Þegar við systurnar vorum litl- ar stelpur var allt eitthvað svo einfalt og öruggt, alveg eins og bernskan á að vera. Við alltaf svo kátar, sætar og fínar, elskuðum dúkkur og dúkkuvagna og trúð- um því að allt væri hægt að lækna með rjómaís eða einum kossi á ennið. Á þessum árum voru afi og amma til staðar, litli afi og stóra amma eins og þau voru alltaf köll- uð af okkur systkinunum og þannig héldum við að það yrði alltaf. En svo liðu árin og amma lést árið 1994 og við fyrir löngu búnar að gera okkur grein fyrir því að það væri ekki hægt að lækna allt með kossi eða rjómaís. Við vissum að sú stund kæmi að afi myndi kveðja okkur líka alveg eins og amma. Hins vegar vissum við ekki að við ættum eftir að njóta þeirra forréttinda að fá að hafa afa hjá okkur öll þessi ár. Hann á 92. aldursári og við komn- ar yfir fertugt og afi því búinn að vera fastur punktur í tilveru okk- ar öll þessi ár. Fyrir það erum við þakklátar. Afi var jarðbundinn maður, samviskusamur og ósérhlífinn. Hann var sérstaklega barngóður og þó svo afi hafi ekki verið mikið fyrir mannamót og verið fámáll í fjölmenni átti tveggja manna tal mjög vel við hann. Oftar en ekki snérist umræðan um húsgögn og þá oft þau sem hann hafði verið að bólstra eða gera upp eða þá að verið var að ræða um bækur. Afi var nefnilega mjög laghentur og dundaði sér við bólstrun og að gera við húsgögn og eigum við og börnin okkar muni eftir afa sem skipa sérstakan sess í hjörtum okkar. Afi var líka mikill safnari, m.a. mikill bókasafnari og átti hann mörg þúsund bækur og þegar við heimsóttum hann í Múlasíðuna þá sýndi hann okkur iðulega bækur sem honum hafði áskotn- ast og þá mátti sjá glitta í blik í augum hans. Þó svo afi hafi verið orðinn gamall og lúinn og við höfum al- veg gert okkur grein fyrir því að það styttist í kveðjustund þá er það samt einhvern veginn þannig að þegar stundin rennur upp þá kemur einhver tómleikatilfinn- ing, maður er einhvern veginn aldrei tilbúinn. En við yljum okk- ur við minningarnar um litla afa sem nú hefur hitt stóru ömmu og við kveðjum þig með kvæði eftir Davíð Stefánsson sem okkur finnst eiga svo vel við á þessari stundu. Nú fækkar þeim óðum, sem fremstir stóðu, sem festu rætur í íslenskri jörð, veggi og vörður hlóðu og vegi ruddu um hraun og skörð, börðust til þrautar með hnefa og hnúum og höfðu sér ungir það takmark sett: að bjargast af sínum búum og breyta í öllu rétt. (Davíð Stefánsson) Hvíl í friði, elsku afi. Gréta Björk og Ingibjörg. Elsku langafi, takk fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Ó, Jesús, bróðir besti og barnavinur mesti, æ, breið þú blessun þína á barnæskuna mína. Mér gott barn gef að vera og góðan ávöxt bera, en forðast allt hið illa, svo ei mér nái’ að spilla. Það ætíð sé mín iðja að elska þig og biðja, þín lífsins orð að læra og lofgjörð þér að færa. (Páll Jónsson.) Ástarkveðjur, Lena María, Linda Margrét, Eyþór Daði og Egill Þór. Björn Guðmundsson HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Ástkær dóttir mín og systir okkar, SIGRÍÐUR SIGTRYGGSDÓTTIR, Vesturbrún 17, andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 15. júní. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 22. júní kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Þroskahjálp. Elín Sigurðardóttir, Sigurlaug Anna Sigtryggsdóttir, Erla Sigtryggsdóttir og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, KRISTJÁNS FRIÐRIKS KRISTINSSONAR, sem lést á nýrnadeild Landspítalans fimmtudaginn 2. júní. Starfsfólki skilunardeildar Landspítalans og starfsfólki deildar 13E eru færðar sérstakar kveðjur og þakklæti fyrir einstaka umönnun og kærleiksríka framkomu. Guð blessi ykkur öll. María Lúðvíksdóttir, Sigríður Rósa Kristjánsdóttir, Jónas Pétursson, Örvar Þór Kristjánsson og barnabörn. ✝ Elskulegur sonur minn, bróðir minn, mágur og frændi, BRAGI KRISTJÁNSSON, Sólvallagötu 9, Keflavík, lést á Sjúkrahúsinu í Keflavík föstudaginn 17. júní. Útförin fer fram í kyrrþey. Guðbjörg Þórhallsdóttir, Baldur Kristjánsson, Svala Björgvinsdóttir, Sigríður Baldursdóttir, Sif Baldursdóttir. ✝ Móðir mín og systir, HAFDÍS GUÐRÚN HAFSTEINSDÓTTIR, varð bráðkvödd á heimili sínu sunnudaginn 12. júní. Jarðarför fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 23. júní kl. 15.00. Esther Ír Steinarsdóttir, Ingvar Hafsteinsson, Ásbjörn Kristinsson. ✝ Systir okkar og mágkona, INGIBJÖRG VALGEIRSDÓTTIR FERRENTINO, f. 29.06.1925, Altamonte Spring, Flórída, Bandaríkjunum, lést í heimabæ sínum fimmtudaginn 16. júní. Jarðsett verður í New York. Sigríður Þóra Valgeirsdóttir, Guðrún J. Valgeirsdóttir, Auður Gunnarsdóttir. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma, systir og mágkona, INGIBJÖRG JÓNASDÓTTIR, sem lést mánudaginn 13. júní, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 23. júní kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarkort Land- spítala, s. 543 1000. Anna Þóra Björnsdóttir, Gylfi Björnsson, Sigríður Ólafsdóttir, Árni Rafnsson, Svava Hjaltadóttir, Guðný Jónasdóttir, Jónas Haraldsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ BJARNI STEINGRÍMUR SIGURÐSSON, Skúlabraut 16, Blönduósi, andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 15. júní. Jarðarförin fer fram í kyrrþey. Börn, tengdabörn og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, JÓHANNA LILJA GUÐNADÓTTIR, Hólmgarði 44, Reykjavík, andaðist á heimili dóttur sinnar og tengda- sonar fimmtudaginn 12. maí. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug. Guðfinna Kjartansdóttir, Dagbjartur Þór Sigurbrandsson, Stefán Þór Kjartansson, Elísa Júlía Sigursteinsdóttir, Jón Guðnason, Margrét Guðnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.