Morgunblaðið - 21.06.2011, Page 32

Morgunblaðið - 21.06.2011, Page 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 2011 Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Fyrsta íslenska hrollvekjan var frumsýnd fyrir tveimur árum, Reykjavík Whale Watching Massacre (RWWM), og hefur nú ferðast víða um heim. Myndin fjallar um túrista í hvalaskoð- unarferð sem lenda í vandræðum á hafi úti. Vélarbilun verður í bátn- um og til aðstoðar koma hval- veiðimenn. Þar mætast þeir, hvala- friðunarmenn og hvaladráparar. Hvalveiðimennirnir taka til við að drepa friðarsinnana og hefjast nú splatter-lætin. Þessari mynd um slátrun túrista var slátrað af ís- lenskum gagnrýnendum. Þórarinn Þórarinsson kallaði hana þvælda moðsuðu og Bergsteinn Sigurðsson lýsti henni sem mynd sem veit ekki hvað hún vill vera. Þórarinn gaf henni eina og hálfa stjörnu, Berg- steinn gaf henni tvær stjörnur og Sæbjörn hjá Morgunblaðinu gaf henni tvær og hálfa. Myndin var frumsýnd í Japan á dögunum og var henni mjög vel tekið. Gagnrýnendur lofuðu hana og aðsókn er þokkalega góð. Hin mikla athygli sem hún fékk í Japan er að hluta til skýrð með vinsæld- um japönsku leikkonunnar Nae sem leikur stórt hlutverk í mynd- inni en hrósið sem leikstjórinn og framleiðendurnir fá er ekki ein- göngu hægt að skýra með því. Í samtali við Morgunblaðið frá Japan sagði annar framleiðend- anna, Ingvar Þórðarson, að Jap- anir skildu myndina, þeir föttuðu húmorinn í myndinni. Fyrir skömmu birtist ítarleg grein í tímaritinu Ritið eftir Guðna Elísson, prófessor í bókmennta- fræði við Háskóla Íslands, sem fjallar um RWWM og viðtökur myndarinnar. Í greininni fjallar hann almennt um sambærilegar kjötmyndir og viðtökur á þeim í gegnum tíðina. Hann segir við- tökur gagnrýnenda á RWWM hafa komið á óvart og ekki síst það samhengi sem gagnrýnendur settu myndina í og það sé spurning hvort þær túlkunarleiðir sem þar má merkja séu í öllum tilvikum réttmætar. Hann segir að stór hluti nautnarinnar við að horfa á svona hryllingsmyndir felist í því að persónurnar, jafnt fórnarlömb sem morðingi, séu suðþekkjanlegar staðalmyndir þar sem endurtekningaráráttan sé mikil. „Slægjan krefst beinnar þátttöku áhorfandans, sem sýnir írónískan skilning sinn á greininni með því að fagna klisjum jafn innilega og frumlegum augnablikum,“ skrifar Guðni. Í greininni gagnrýnir hann gagnrýnendur myndarinnar, eig- inlega slátrar þeim sem slátruðu slægjunni. Hann vitnar í grein Ás- geirs H. Ingólfssonar sem skrifaði um hinar slæmu viðtökur og telur hann vera nær eðlilegri meðhöndl- un á myndinni þegar Ásgeir skrif- ar: „Réttara sé að skoða hroll- vekjur sem húmorískt leikhús fáránleikans sem sýni okkur mann- skepnuna í sínu hlálegasta ljósi …“ Guðni segir þó að viðbrögð gagn- rýnenda megi að hluta til skýra vegna rangrar kynningar aðstand- enda myndarinnar. Þannig hafi við- tal við leikstjóra myndarinnar, Júl- íus Kemp, fyrir frumsýninguna gefið í skyn að þeir væru að fjar- lægjast hrollvekjuna og að um ein- hverskonar listaverk væri að ræða en Júlíus sagði meðal annars í þessu viðtali: „Við ákváðum því að gera mjög vandaða mynd eftir góðu handriti og finnst ekki við hæfi að tengja okkur við þessa teg- und mynda, splattera og B- myndir.“ Ef horft er til þessara orða leikstjórans sýnir Guðni gagn- rýnendunum skilning, en að öðru leyti virðist hann telja þá á algjör- um villigötum enda sé um fyndna og góða splatter-mynd að ræða. Hrollurinn meiri í Japan en á Íslandi  Íslensk hrollvekja gengur vel í Jap- an  Íslenskir gagnrýnendur gagn- rýndir af prófessor  Splatter-myndin sem vildi verða listaverk Uppstillt Leikstjórinn Júlíus Kemp og framleiðandinn Ingvar Þórðarson ásamt hinni frægu japönsku leikkonu Nae. Hrollvekjuhúmor „Japanir skilja myndina, þeir fatta húmorinn í myndinni,“ sagði Ingvar Þórðarson. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Í kvöld mun Ólöf Arnalds halda sól-stöðutónleika á Café Flóru, í grasa-garðinum í Laugardal, kl. 22:00, en húsið verður opnað hálf- tíma fyrr. Aðgangseyrir er 2000 krónur og hefur Ólöf Arnalds útbúið sérstaka dag-skrá fyrir tón- leikana en að hennar sögn er uppi- staðan lög eftir hana, „en svo ætla ég að velja einhver lög eftir aðra sem fólk þekkir og tengjast sumr- inu og sólinni, jafnvel fá fólk til að syngja saman,“ segir Ólöf í samtali við Morgunblaðið. Aðspurð hvern- ig það hafi komið til að hún haldi þessa tónleika segir hún að Páll Óskar hafi verið með svona tón- leika á sumarsólstöðum í mörg ár en í ár hafi hann ekki getað haldið þá. „Þá hafði Marissa sem rekur kaffihúsið samband við mig og bað mig að taka þetta að sér. Mér fannst það mjög gaman því ég held mikið uppá þennan stað. Það er svo spennandi að vera með tón- leika í þessum fallega garðskála seint um kvöld þegar allt er orðið svona bjart.“ Næsta plata Þar sem tónlist Ólafar er svo innileg og lágstemmd á maður erf- itt með að ímynda sér hana spila í stórum hljómleikahöllum en finnst hún einmitt henta á svona litlum, kósý stöðum. Hún segist samt hafa hitað upp fyrir aðra á stórum tón- leikum og er ekki á því að það henti eitthvað betur, „það er bara öðruvísi, en ekkert endilega betra eða verra,“ segir Ólöf. Aðspurð hvernig gangi með næstu plötu segist hún ætla að taka hana upp í september. „Ég er búin að semja lögin fyrir hana en er ennþá að bræða með mér hvaða hljóm ég vil ná fram. Einsog ég vinn þetta þá hef ég lögin sem mest í kollinum á mér og þegar ég er búin að ganga með þau í langan tíma þá fer ég að prófa þau við gít- arinn og þessháttar. Þetta er sem- sagt allt á frumstigi nema að lögin eru til. Mér finnst samt sennilegt að hljómurinn verði unninn með söng og gítar sem kjarnann. En mig langar til að fara í rannsókn- arvinnu með röddina. Svo verður hún öll á ensku, það er öðruvísi en síðast,“ segir Ólöf. Sólstöðutónleikar Ólafar Arnalds  Búin að semja lögin fyrir næstu plötu sem verður tekin upp í september  Á eftir að ákveða hljóminn á næstu plötu Ljósmynd/Vera Pálsdóttir Sólstöðutónleikar Ólöf Arnalds, sem var valin tónhöfundur ársins í fyrra fyrir plötuna sína Inn undir skinni, verður með tónleika í kvöld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.