Morgunblaðið - 24.06.2011, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2011
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Unglingarnir sem taka þátt í nám-
skeiðum Útivistarskóla Lands-
bjargar á Gufuskálum læra eitt-
hvað nýtt á hverjum degi og reyna
á þolmörk líkama og hugar. Flest
koma vegna áhuga á útivist og
björgunarstörfum og víst er að
áhuginn eflist. Þá eignast þátttak-
endur nýja vini, jafnvel úr fjar-
lægum landshlutum.
„Það er verst að ekki skuli fleiri
af vinunum hafa komið. Þeir vildu
ekki missa daga úr vinnunni. Það
er leiðinlegt því ekki gefast mörg
svona tækifæri,“ segir Björn Egg-
ertsson frá Þernunesi í Fjarða-
byggð. Hann tekur þátt í starfi
unglingadeildar björgunarsveitar-
innar í Neskaupstað en þar stundar
hann nám við Verkmenntaskólann.
Þátttakendur í öðru af þremur
grunnnámskeiðum Útivistarskólans
voru úr þremur unglingadeildum,
af Kjalarnesi og Akranesi, auk
Neskaupstaðar. Námskeiðin eru
einnig opin ófélagsbundnum ung-
lingum, á aldrinum 14 til 18 ára.
„Ég hef verið í unglingadeild og
finnst það gaman og við ákváðum
að fara saman nokkrar vinkonur til
að prófa,“ segir Kristín Ósk
Björnsdótir á Akranesi. „Mér
fannst þessi námskeið spennandi
og langaði að fara á eitt. Ég safnaði
saman nokkrum vinum mínum úr
björgunarsveitinni,“ segir Ragnar
Ásgeirsson af Kjalarnesi.
Á námskeiðinu er blandað saman
fræðslu og leik. Farið er yfir
grunnatriði ferðamennsku en einn-
ig ýmis atriði sem björgunarsveit-
arfólk þarf að kunna skil á, eins og
til dæmis bjargsig, klifur, fyrstu
hjálp og siglingu björgunarbáta.
Flest ungmennin hafa kynnst
þessum störfum að einhverju leyti
áður en fá æfingu á námskeiðinu og
nýjar áskoranir. Öll reikna þau
með því að nýta þekkinguna þegar
þau ganga upp í björgunarsveitina í
sinni heimabyggð. Þau bæta því við
að námskeiðið sé skemmtilegt og
stundum erfitt að sofna á kvöldin
vegna þess hversu mikið fjör sé í
hópnum.
Sýktur af bakteríunni
Fimm leiðbeinendur eru á nám-
skeiðunum sem 20 til 25 sækja.
Framhaldsnámskeið eru seinna í
sumar, í Þórsmörk, og er vel bókað
á þau. „Vonandi verður þetta til að
smita þau af björgunarsveitarbakt-
eríunni,“ segir Einar Eysteinsson
leiðbeinandi. Hann starfar jafn-
framt sem leiðbeinandi í leitar-
tækni við Björgunarskóla Lands-
bjargar. „Eldri frændur mínir
sýktu mig af bakteríunni og ég
reyni að sýkja yngri skyldmenni.
Starf í björgunarsveit undirbýr fólk
fyrir lífið. Maður lærir að takast á
við óvæntar aðstæður. Auk þess er
þetta góður félagsskapur,“ segir
Einar.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kapphlaup við klukkuna Hlaup á drumbi er liður í að fá þátttakendur til að venjast öryggisbúnaði og treysta honum. Tíminn er mikilvægur en þeir sem fara of geyst og grípa í línuna fá refsistig.
Áskoranir á
hverjum degi
Þyngdarlögmálinu storkað Björn Eggertsson gengur niður lóðréttan vegg, eins og ekkert sé sjálfsagðara.
Á sjó Krakkarnir fengu siglingu með björgunarbát Lífsbjargar á Rifi.
Upprennandi Björn Eggertsson,
Ragnar Ásgeirsson og Kristín Ósk
Björnsdóttir nutu lífsins.