Morgunblaðið - 24.06.2011, Page 18

Morgunblaðið - 24.06.2011, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2011 Hækkanir á heimsmarkaðsverði hrávöru, auk lág- vaxtastefnu helstu seðlabanka heims undanfarin ár, eru farnar að koma fram í verðbólgu víða um heim. Í gær birtu indversk yfirvöld tölur sem sýndu að vísi- tala matvælaverðs hefur hækkað um tæp tíu prósent á ársgrundvelli í síðustu mælingu. Verðbólga mælist einnig há í Kína. Opinberar mælingar sýna árs- verðbólgu rétt undir 6% í Kína og rétt eins og í Ind- landi hefur hún verið viðvarandi undanfarin ár. Hins vegar telja margir sérfræðingar að mælingar kín- verskra stjórnvalda, ásamt víðtækum verðlags- höftum, leiði til þess að verðbólgan sé vanmetin stór- kostlega í opinberum mælingum. Sumir sérfræðingar hafa reiknað út að raunveruleg verð- bólga í Kína sé á bilinu 15-20% á ársgrundvelli um þessar mundir. Þungar byrðar verðbólgunnar á herðum fólks um heim allan Reuters Hvítlaukur Verkamenn afferma hvítlauk á grænmetismarkaði í indversku borginni Ahmedabad. STUTTAR FRÉTTIR ... ● Eigendur Town & City Pub Company Limited, sem meðal annars rekur veit- ingahúsakeðjurnar Yates og Slug and Lettuce, hafa samþykkt samruna Town & City við Stonegate Pub Company Limited. Við fjárhagslega endur- skipulagningu í júlí 2009 urðu Kaup- þing og Commerzbank ráðandi hlut- hafar í Town & City. Í tilkynningu frá skilanefnd Kaupþings kemur fram að rekstur T&C hefur gengið vel þrátt fyrir erfiðar markaðsaðstæður. Stonegate var stofnað af evrópska fjárfestinga- félaginu TDR Capital. Sameinað félag mun kallast Stonegate Pub Company Limited og verður TDR Capital aðaleig- andi félagsins. Kaupþing og Commerz- bank munu vera minnihlutaeigendur og á meðal lánardrottna sameinaðs félags. Eftir samrunann verður Stonegate stærsta einkarekna veitingahúsakeðja Bretlands. Kaupþing kemur að pöbbasameiningu ● Aflaverðmæti ís- lenskra skipa nam 37,4 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins 2011 sam- anborið við 36,4 milljarða á sama tímabili 2010. Afla- verðmæti hefur því aukist um einn milljarð eða 2,8% á milli ára, samkvæmt Hagstofunni. Aflaverðmæti botnfisks var í lok mars orðið 23,3 milljarðar og dróst saman um 15,4% frá sama tíma í fyrra. Verðmæti þorskafla var um 13,8 millj- arðar og dróst saman um 9,6% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam tæpum 3,4 milljörðum og dróst saman um 28,7%, en verðmæti karfaaflans nam 2,8 milljörðum, sem er 27,6% sam- dráttur frá fyrstu þremur mánuðum ársins 2010. Verðmæti ufsaaflans dróst saman um 14,9% milli ára, í 1,2 millj- arða króna. Aflaverðmæti íslenskra skipa jókst lítillega Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Bjarni Bjarnason, forstjóri Orku- veitu Reykjavíkur, vill að OR fari aftur til upprunans, þegar veit- urnar voru vel reknar og fóru ekki um víðan völl, eins og hann orðaði það á ársfundi OR. Veiturnar hafi á þeim tíma vitað til hvers var ætl- ast af þeim og fóru varlega með fé almennings. Hann sagði að OR ætti við ákveðinn ímyndarvanda að etja og að svo virtist sem hún hefði undanfarin ár ekki alveg vit- að hvert hlutverk hennar væri. Bjarni sagði OR vera veitufyrir- tæki og að grunnstarfsemi hennar væri að afla vatns og rafmagns og veita því til almennings. Orkuveit- an sé því ekki fjárfestingarfélag í verkefnum erlendis, ekki háskóli og ekki valdastofnun. Sagði hann að höfuðstöðvar Orkuveitunnar að Bæjarhálsi 1 „andi frá sér völdum“ og gætu allt eins verið húsnæði ráðherranefndarinnar í Brussel. Þessu tengt, en einnig sem hluti af hagræðingarðgerðum í rekstri fyrirtækisins, stendur til að selja ýmsar eignir OR og sagði Bjarni að allar eignir, sem ekki væru tekjumyndandi og væru ekki hluti af grunnstarfsemi fyrirtækisins, væru í raun til sölu. Þar á meðal eru höfuðstöðvarnar sjálfar, Perl- an og ýmsar aðrar fasteignir í eigu OR. Þá á að spara 15 milljarða króna á næstu fimm árum með því að draga mjög úr fjárfestingu, þar á meðal viðhaldi. Sagði hann að þetta gæti haft nei- kvæð áhrif á veitukerfin, en bilunum yrði alltaf sinnt. Sagði hann að þessar aðgerð- ir ættu að koma OR í gegnum þann fjárhags- vanda sem fyrirtækið er í nú ef ekki komi til frekari utanaðkom- andi áföll. Orkuveitan aftur til uppruna  Forstjóri OR segir fyrirtækið hafa fjarlægst grunnstarfsemi sína á síðustu árum og eiga við ímyndarvanda að stríða  OR eigi að einbeita sér að veitustarfsemi Seðlabankar að- ildarríkja evru- svæðisins eru í viðræðum við banka og önnur fjármálafyrir- tæki um að þau endurfjármagni þau grísku ríkis- skuldabréf sem eru í þeirra eigu þegar þau falla í gjalddaga. Samkvæmt frétt Reu- ters myndu bankar samkvæmt þessu kaupa ný fimm ára ríkis- skuldabréf sem myndu bera 5,8% fasta vexti, en það eru sömu vextir og lán björgunarsjóðs ESB bera Af þessu er ljóst að um umtals- verða niðurgreiðslu á vöxtum er að ræða. Markaðsvextir á grískum ríkisskuldabréfum til fimm ára eru nú um 20% og skuldatrygg- ingaálagið ríflega 2.000 punktar. Álagið endurspeglar væntingar markaðarins um að það séu yfir- gnæfandi líkur á því að gríska rík- ið lendi í greiðslufalli á næstu fimm árum. Mikil spenna er í Grikklandi. Rætt um vaxtanið- urgreiðslu  Bankar fjármagni gríska ríkið að hluta                                           !"# $% " &'( )* '$* ++,-./ +.,-+0 ++.-.+ 11-203 1+-2.+ +0-34+ +50-44 +-/54, +.5-33 +4/-43 ++4-+1 +.,-41 ++3-+4 11-+// 1+-+/5 +.-2+/ +5.-2/ +-//20 +./-,/ +4,-+, 112-5,01 ++4-/ +.4-20 ++3-,+ 11-123 1+-12, +.-240 +5.-/1 +-///3 +.,-23 +4,-4+ Hafin er úttekt á sögu og rekstri Orkuveitunnar og á þriggja manna óháð rannsóknarnefnd meðal annars að rannsaka ástæður þess að OR er í jafn al- varlegum fjárhagsvanda og raun ber vitni. Kom þetta fram í máli Jóns Gnarr borgarstjóra á ársfundi OR í gær. Mark- miðið er að læra hvað vel var gert og hvað ber að forðast. Niðurstöður eiga að liggja fyrir í mars 2012. Læra af mistökunum RANNSÓKNARNEFND OR Jón Gnarr borgarstjóri. Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Ívar Páll Jónsson ivarpall@mbl.is Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi í gær að ekki væri hægt að höfða skaðabótamál gegn samheitalyfja- fyrirtækjum fyrir ríkjadómstólum vestra, vegna þess að ekki væri var- að við aukaverkunum á umbúðum. Samkvæmt frétt Reuters voru fimm dómarar af níu á því að dæma bæri samheitalyfjafyrirtækjunum Actavis og Teva í vil og sneru þar með við dómi áfrýjunardómstóls í málinu. Claudio Albrecht, forstjóri Acta- vis, fagnar dómnum. „Hann er mikil- vægt skref í átt að bættri neytenda- vernd og áframhaldandi aðgengi almennings að samheitalyfjum á við- ráðanlegu verði,“ segir hann í yfir- lýsingu. Samheitalyfjafyrirtæki framleiða lyf sem eru eins og frumheitalyfja- fyrirtæki settu upphaflega á mark- að. Samkvæmt reglum bandaríska lyfjaeftirlitsins, FDA, er þeim skylt að setja sömu merkingar á lyfjaum- búðir og frumheitalyfjafyrirtækin setja. Meirihluti dómsins var á þeirri skoðun að þær reglur kæmu í veg fyrir að hægt væri að höfða skaða- bótamál gegn samheitalyfjafyrir- tækjunum fyrir ríkjadómstólum vegna skorts á merkingum. Kona að nafni Julie Demahy höfð- aði mál gegn Actavis og hélt því fram að fyrirtækið hefði átt að vara við hættunni á því að hún fengi tauga- sjúkdóm af notkun lyfs gegn brjóst- sviða, ógleði og uppköstum. Önnur kona höfðaði sambærilegt mál gegn þremur öðrum fyrirtækjum. Banda- rísk stjórnvöld lýstu yfir stuðningi við konurnar og héldu því fram að fyrirtækin hefðu getað sóst eftir því að fá að breyta merkingunum. Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmir Actavis og Teva í vil  Ekki má höfða mál í einstökum ríkjum Bandaríkjanna vegna ónægra viðvarana Morgunblaðið/Sigurgeir S Actavis Dómurinn felur það í sér að samheitalyfjaframleiðendur þurfa að- eins að birta sömu upplýsingar um lyf sín og frumframleiðendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.