Morgunblaðið - 24.06.2011, Síða 20

Morgunblaðið - 24.06.2011, Síða 20
BAKSVIÐ Andri Karl andri@mbl.is Í slandsbanka var í gærmorg- un synjað með úrskurði Hér- aðsdóms Reykjaness um að taka með beinni aðfarargerð fellihýsi úr vörslu konu sem gerði við bankann bílasamning til fjár- mögnunar þess en sótti síðar um greiðsluaðlögun. Í úrskurðinum segir að gera verði ráð fyrir því að nauða- samningur til greiðsluaðlögunar taki einnig til kröfu Íslandsbanka. Farið var yfir úrskurðinn í Íslandsbanka í gær en ekki tekin ákvörðun um hvort hann verði kærður. Töluvert hefur verið fjallað um aðgerðir fjármögnunarfyrirtækja gegn einstaklingum í greiðsluaðlögun en í flestum bílasamningum er ákvæði sem kveður á um að rifta megi samn- ingum ef leitað er eftir nauðasamn- ingum. Hafa aðgerðirnar verið gagn- rýndar en ekkert lát hefur verið á þeim. Tekur til kröfu bankans Í umræddu máli er um að ræða bílasamning gerðan árið 2006 upp á rúma milljón og var hann í þremur er- lendum gjaldmiðlum. Konan sem samninginn gerði fékk heimild til að leita nauðasamnings til greiðsluaðlög- unar í febrúar á síðasta ári. Íslands- banki lýsti til umsjónarmanns kröfu upp á rúmar 1,4 milljónir króna. Í apr- íl sama ár fékk konan símskeyti þar sem henni var tilkynnt að samning- num hefði verið rift samkvæmt heim- ild í samningnum og þess krafist að konan afhenti fellihýsið. Rúmum mánuði síðar var stað- festur nauðasamningur sem konan gerði við kröfuhafa þess efnis að hún fengi eftirgjöf 50% samningskrafna sinna og greiðslufrest eftirstöðva samningskrafna í 36 mánuði frá stað- festingu nauðasamningsins. Héraðsdómur segir í úrskurði sínum, að samkvæmt samningnum hafi Íslandsbanka verið heimilt að rifta samningi, án fyrirvara, s.s. þar sem konan leitaði eftir gerð nauða- samninga. „Framhjá því verður hins vegar ekki litið að [Íslandsbanki] hafði áður lýst kröfu vegna nauðasamninga [konunnar] og […] staðfesti Héraðs- dómur Reykjaness nauðasamning á grundvelli samningsfrumvarps.“ Þá segir að gera verði ráð fyrir að nauðasamningur til greiðsluaðlögunar taki til kröfu Íslandsbanka nema sýnt sé fram á annað, og það hafi ekki verið gert. Var kröfu Íslandsbanka því hafnað. Fordæmi fyrir aðra Lögmaður konunnar er Sævar Þór Jónsson. Hann telur að ef Hæsti- réttur staðfesti úrskurðinn – verði hann á annað borð kærður – geti hann haft fordæmi fyrir einstaklinga í sömu stöðu. „Búið er að afgreiða umtals- verðan fjölda af greiðsluaðlögunar- málum og fjármálafyrirtækin hafa verið að vísa til þessarar greinar í lánasamningi þar sem tæki eru tekin af fólki af því að það hefur leitað nauðasamninga. Ég myndi því segja að í þessum tilvikum muni þetta hafa víðtæk áhrif.“ Spurður hvort einstaklingar í sömu sporum sem látið hafa tæki sín af hendi til fjármálafyrirtækja eigi rétt á þeim aftur, segir Sævar að vel verði að fara í gegnum það. „Þetta getur sett nauðasamninga í uppnám því ekki má mismuna kröfuhöfum. Þeir verða að fá jafnt upp í sínar kröf- ur. Annar getur ekki fengið 70% á meðan hinn fær 20%.“ Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, sagði að við fyrstu sýn virtist málið einstakt og því væri efast um fordæm- isgildi þess. Hins vegar væri verið að fara yfir það innan bankans. Morgunblaðið/Ernir Fellihýsi Héraðsdómari sagði í úrskurði sínum að Íslandsbanki væri bund- inn af nauðasamningum og gæti því ekki tekið fellihýsið af konunni. Fær ekki fellihýsi frá konu í greiðsluaðlögun 20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Nánast samahvert litiðer í at- vinnumálum hér á landi blasir mikill vandi við. Í Morg- unblaðinu í gær var fjallað um stöðu verklegra framkvæmda og verktaka og þar er ástandið alvarlegt svo vægt sé til orða tekið. Verkleg- ar framkvæmdir í samgöngu- málum, sem hafa verið veiga- mikill þáttur í starfsemi fjölda verktaka, hafa nánast verið lagðar af. Á sviði stóriðju er líka allt í frosti þar sem rík- isstjórnin fylgir þeirri stefnu að hindra uppbyggingu þeirra sem áhuga hafa en lýsa um leið vilja til að leyfa uppbyggingu á ein- hverju öðru. Segja má að stefnu stjórnvalda í þessum mála- flokki verði best lýst sem eitt- hvað annað-stefnu, sem er skelfilegt þegar horft er til þess að gert er ráð fyrir að hag- vöxtur næstu ára muni að veru- legu leyti byggjast á slíkum framkvæmdum. Verði eitthvað annað-stefnunni framfylgt áfram er ljóst að ekki þarf að hafa áhyggjur af hagvexti á næstu misserum og þar með þarf ekki að velta fyrir sér hvernig atvinnustigið mun þróast. Eitt hjálpar þó mælingum á atvinnustigi, ef svo má segja, en það er sú afleiðing af eitthvað annað-stefnunni að þúsundir Íslendinga hafa flutt úr landi. Í þessum hópi er fjöldi iðn- aðarmanna, en einnig annarra, svo sem lækna. Um læknaskort hefur einmitt verið fjallað í Morgunblaðinu síðustu daga. Læknar hafa marga kosti víða um heim og þurfa ekki að láta bjóða sér upp á þá afarkosti sem rík- isstjórnin hefur ákveðið að setja landsmönnum. Hér á landi mæta þeir nú því viðmóti að Jóhanna Sigurðardóttir eigi að vera hæst launuð á landinu og þeirra sem ekki hlíta því bíði ofurskattar. Læknar búa líka við það að nýsköpun á sviði heilbrigðismála í einkageir- anum er illa tekið og fæti brugðið fyrir hugmyndir sem kynnu að skapa fleiri læknum áhugaverð tækifæri. Verktakaiðnaðurinn og heil- brigðisgeirinn eru þannig tvö ólík svið atvinnulífsins sem líða hvort með sínum hætti fyr- ir eitthvað annað-stefnu stjórnvalda í atvinnu- og efna- hagsmálum. Þessi svið eru að sjálfsögðu ekki þau einu þar sem stefna stjórnvalda eyðir störfum í stórum stíl. Sam- bærileg dæmi mætti nefna af flestum greinum atvinnulífs- ins, þar sem barist er við að halda starfseminni gangandi þrátt fyrir neikvætt viðhorf ríkisstjórnarinnar. Það ástand sem ríkir í at- vinnumálum skrifast nær al- farið á núverandi ríkisstjórn. Hún hefur haft ærinn tíma til að hleypa krafti í atvinnulífið eða í það minnsta að hætta að þvælast fyrir nýsköpun og at- vinnuuppbyggingu. Vandi at- vinnulífsins er hins vegar sá að innan ríkisstjórnarinnar skortir allan skilning á því hvað þarf til að skapa verð- mæti og hleypa krafti í at- vinnulífið. Því miður er sá vandi þess eðlis að lítil von er til að hann leysist í bráð. Ríkisstjórnin er á móti öllum hug- myndum um atvinnusköpun} Eitthvað annað-stefnan í atvinnumálum Lengi hefurverið þekkt að íslenskir emb- ættismenn, stund- um með vilhalla vildarmenn úr fræðasamfélaginu með sér, fara með sérsjónarmið sín til alþjóðlegra stofnana og þaðan koma þau óbreytt og stimpluð eru þau túlkuð sem mikil tíð- indi. Ótal dæmi eru úr ís- lenskri dægurumræðu þessu til staðfestingar. Þegar veiði- leyfagjaldsumræðan stóð sem hæst komu reglubundnar yfir- lýsingar frá alþjóðlegum stofnunum um það gæluverk- efni krata. Nú síðast var pantað álit um stórkostlega hækkun virðisaukaskatts á matvæli. Steingrímur J. treystir sér ekki til að bæta þeim svikum ofan á öll hin án utan- stefnu. Bæta á verst setta fólkinu ofurskattlagningu á nauðsynjar með „tilfærslum“ til að það verði ekki verr sett. Ljósvakamiðl- arnir leiðitömu voru til þjón- ustu reiðubúnir og gleyptu áróðurinn hráan. Yrðu þýð- ingarmestu nauðsynjar hækk- aðar í topp með skattlagningu myndu allir græða alveg rosa- lega fyrir vikið. Þess var ekki getið að mun einfaldara er við fjárlagagerð að draga úr „til- færslum“ en að breyta skatt- kerfinu. Því miður er fjarri því að treysta megi ASÍ í máli eins og þessu enda voru mót- bárur talsmanns samtakanna aðeins til málamynda. Sérviskan að heim- an kemur heim aftur eftir stuttan stans} Gamlar aðferðir E in af mínum uppáhaldstilvitnunum kemur frá vísindaskáldsagnahöf- undinum Robert Heinlein. Laus- lega þýdd hljómar hún eitthvað á þessa leið: „Í gegnum mann- kynssöguna hefur hið venjulega ástand mann- kynsins einkennst af sárri fátækt. Framfarir sem leyfa fólki að bæta úr þessu ástandi – hér og þar, öðru hverju – eru afrakstur vinnu af- skaplega lítils minnihluta, sem er gjarnan fyrir- litinn og oft fordæmdur af öllu rétthugsandi fólki, sem nær alltaf setur sig upp á móti þess- um minnihluta. Í hvert skipti sem þessum örsmáa minnihluta er bannað að skapa eða hann (eins og stundum gerist) er rekinn út úr samfélaginu, sekkur fólk aftur niður í hina öm- urlegu fátækt. Þetta ferli er kallað „óheppni“.“ Skýringarnar á þessari andúð hinna rétt- hugsandi á raunverulegum skapandi stéttum eru eflaust margvíslegar og flóknar. Í sumum tilvikum byggjast þær á hatri og í öðrum á öfund. Þá má aldrei vanmeta inn- byggða íhaldssemi fólks. Ef dagurinn í dag er ekki ná- kvæmlega eins og gærdagurinn eru margir tilbúnir að for- dæma þá sem bera ábyrgð á breytingunum, þótt þær séu almennt til hins betra. Við sjáum mörg dæmi um þetta á Íslandi í dag. Hver sá sem hefur verið nógu iðjusamur eða snjall til að skapa sér og sínum meiri auð en hinum rétthugsandi þykir eðlilegt er fordæmdur, skattlagður og í sumum tilvikum sparkað úr líkamsræktarstöðvum eða skemmtistöðum. Eina fólkið sem virðist hafa siðferðilega heimild til að vera með yfir milljón krónur í mánaðarlaun er opin- berir starfsmenn – enda eru þeir riddarar rétt- lætisins í hugum hinna rétthugsandi. Sá fámenni hópur sem hatur rétthugsunar- innar beinist að þessa dagana eru þeir sem hafa atvinnu sína af sjávarútvegi. Hinir rétt- hugsandi eru staðráðnir í að kalla yfir landið enn meiri „óheppni“ en þeir hafa nú þegar gert með skattastefnu sinni og munu ekki verða ánægðir fyrr en ein af örfáum arðbærum at- vinnugreinum þjóðarinnar verður komin á ríkisstyrktan vonarvöl. Í þessu sambandi var gaman að sjá stjórnar- liða í sjávarútvegsnefnd taka Barack Obama sér til fyrirmyndar um daginn. Deilt hefur ver- ið á Bandaríkjaforseta fyrir að leita ekki sam- þykktar þingsins fyrir stríðinu í Líbíu, en lög- um samkvæmt á hann að gera það innan 60 daga frá upphafi átaka. Lögfræðingar um allt stjórnkerfið sögðu honum að slík skylda væri fyrir hendi, en Obama gafst ekki upp fyrr en hann fann lögfræðing sem var tilbúinn að rökstyðja að stríðið í Líbíu væri ekki stríð og því væri ónauðsynlegt að tala við þingið. Hagfræðiskýrslan, sem sjávarútvegsnefnd lét vinna vegna kvótafrumvarpsins, var stjórnarliðum ekki að skapi því rökstuðningur hennar gekk gegn þeirra markmiðum. Í stað þess að taka rökum ætlar meirihlutinn að láta gera nýja hagfræðiskýrslu og mun eflaust láta gera slíkar skýrslur þangað til við verðum nógu „óheppin“. Bjarni Ólafsson Pistill Fyrirsjáanleg óheppni STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Einstaklingar sem njóta greiðsluskjóls mega ekki greiða af lánum sínum. En af hverju mega þeir greiða? Greiða má allt sem tengist nauð- synlegum daglegum rekstri heimilisins og bíls, s.s. fast- eignagjöld, hússjóð, tryggingar vegna fasteignar og bíls, hita, rafmagn og síma. Hvers vegna reyna fjármögn- unarfyrirtækin að taka til sín tæki þegar einstaklingur er í greiðsluskjóli? Í flestum bílasamningum er ákvæði sem heimilar fyrirtækj- unum að rifta samningi ef skuld- ari óskar eftir greiðslustöðvun, leitar eftir gerð nauðasamnings eða eftirgjöf skulda að öðru leyti. Hver er skilningur UMS á þessum aðgerðum? Á vefsvæði UMS segir að kröfu- höfum sé óheimilt að krefjast eða taka við greiðslum meðan viðkomandi skuldari nýtur greiðsluskjóls. Þá sé þeim óheimilt að gjaldfella skuldir, framkvæma kyrrsetningu, krefj- ast löggeymslu í eigum umsækj- anda eða fá eigur umsækjanda seldar nauðungarsölu. Spurt&svarað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.