Morgunblaðið - 29.06.2011, Qupperneq 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG OG
LÍSA ÆTLUM
ÚT AÐ BORÐA
ÞÁ VERÐ ÉG
BARA EINN HEIMA
MEÐ SKINKUNNI
HVAÐ ER
ÞETTA Í
AFTURSÆTINU?
ÉG ÆTLA
AÐ HAFA ÞETTA
Í MATINN Á
MORGUN
BEETHOVEN VAR
FYRIR STELPUR!
DESEMBER ER FRÁBÆR
MÁNUÐUR, JÓLAANDINN ER
ALLSRÁÐANDI SAMA HVAR
MAÐUR ER Í HEIMINUM
ÉG
ER SAM-
MÁLA!
ER EKKI KOMINN
TÍMI TIL AÐ SKREYTA
TRÉÐ?
SJÁÐU,
ÞAÐ
SNJÓAÐI Í
NÓTT!
ÞAÐ
ER ALLT Á
KAFI Í
SNJÓ!
VIÐ
ÞURFUM EKKI
AÐ FARA Í
SKÓLANN!
VIÐ
ÞURFUM EKKI
AÐ FARA Í
SKÓLANN!
EN...
VIÐ ÞURFUM
HVORT SEM ER
EKKI AÐ FARA Í
SKÓLA
JÁ...
ÞAÐ ER
REYNDAR GÓÐUR
PUNKTUR
AF HVERJU
ER EKKERT HIP-HOP
Á PLÖTUSNÚÐS-
LISTANUM ÞÍNUM?
ÉG HELD
AÐ ÞETTA FÓLK
MYNDI EKKI FÍLA
HIP-HOP
EN PABBI, ÞETTA ER
TUTTUGASTA OF FYRSTA
ÖLDIN, ÞAÐ FÍLA ALLIR
HIP-HOP
ÞETTA ER LJÓSAHÁTÍÐAR-
BALL, ÉG GET EKKI SPILAÐ NEITT
MEÐ VAFASÖMUM TEXTA
ÞÚ GETUR BARA
RAPPAÐ YFIR ÞÁ KAFLA
SJÁLFUR
HÉR KOMA KÓNGULÓAR-
MAÐURINN OG SANDMAN, ERU
ÞEIR AÐ VINNA SAMAN?
EINS GOTT AÐ ÞÚ TÓKST
TRYGGINGUNA OKKAR MEÐ
HVAR ER
PABBI!?
EKKI
ÆTLARÐU AÐ
MEIÐA HANA?
ÉG ER
KOMINN TIL AÐ
SÆKJA HANA!
JÁ,
ÞÚ HELDUR
ÞAÐ!
Bromma
Sumarið 1946 leigði
Flugfélag Íslands Liber-
ator-sprengjuflugvél
sem búið var að breyta í
farþegavél. Vélin flaug
m.a. milli Stokkhólms og
Reykjavíkur. Ytra lenti
hún á Bromma-flugvelli
sem er 8 km fyrir norð-
vestan miðborg Stokk-
hólms. Fyrir nokkrum
árum kvartaði þýskt
flugfélag vegna þess að
það fékk ekki að fljúga
milli Berlínar og
Bromma. Stjórnarnefnd
EB úrskurðaði á þann veg, að þar
sem Bromma-flugvöllur væri fyrir
innanlandsflug (regional airport)
væri heimilt að fljúga þangað frá öll-
um flugvöllum innan EES. Sam-
kvæmt þessum úrskurði er öllum
flugfélögum heimilt að fljúga milli
Reykjavíkur og annarra borga og
bæja í Evrópu ef þar finnst nothæfur
flugvöllur. Þetta eru góðar fréttir fyr-
ir þá sem eiga erindi til Evrópu, það
að vakna síðla nætur til þess eins að
fara til Keflavíkur og hanga þar virð-
ist því úr sögunni.
Við Reykjavíkurflugvöll þarf að
reisa nothæfa flugstöð. Fyrir mörg-
um árum var talað um að nota Um-
ferðarmiðstöðina fyrir innanlands-
flugið samhliða afgreiðslu
langferðabíla. Við
Njarðargötu gegnt
Öskju er svæði sem
hæglega má nýta fyrir
flugstöð, N-S flugbraut-
inni verður lokað ekki
seinna en árið 2016, þá
má nota norðurendann á
henni fyrir flugvéla-
stæði, og hluta sem
akstursbraut út á A-V
brautina sem yrði lengd
til vesturs.
Nú er Harpa komin í
rekstur, milljarðar sem
þarf að borga af, það
þýðir að afla þarf tón-
leikagesta utan úr heimi,
leið til þess er að selja tónleikapakka
með beinu flugi til Reykjavíkur. Frá
flugstöð á horni Hringbrautar og
Njarðargötu er Harpa í göngufæri og
ekki hægt að villast.
Gestur Gunnarsson
tæknifræðingur,
Flókagötu 8.
Týndar grifflur
Grifflur týndust, gullitað garn, á Ak-
ureyri, hugsanlega við Hagkaup. Vin-
samlega hringið í síma 893-8366.
Ást er…
… þegar hann lætur þér
líða eins og prinsessu.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Handavinna, smíði, út-
skurður kl. 9. Heilsugæsla kl. 10-11.30. Op-
inn púttvöllur.
Bólstaðarhlíð 43 | Tískusýning, sölusýn-
ing 30. júní kl. 13. Uppl. í s. 535-2760
Dalbraut 18-20 | Handavinna kl. 9, versl-
unarferð í Bónus kl. 14.40.
Dalbraut 27 | Opin handavinnustofa kl. 8-
16.
Eftirlaunadeild símamanna | Sumarferð
verður 13.-17. ágúst. Ekið um Sprengisand
til Goðafoss, gist á Stöng í Mývatnssveit.
Mývatn, Dettifoss, Hljóðaklettar, Ásbyrgi,
Húsavík, Akureyri (2 nætur). Hringferð um
Eyjafjarðarsveit, könnunarferð um Ak-
ureyri. Svarfaðardalur, Dalvík, Ólafsfjörður,
Héðinsfjörður, Siglufjörður, Skagafjörður,
gist á Bakkaflöt í Tungusveit. Ekið til
Reykjavíkur. Nánari upplýsingar gefur
Ragnhildur í síma 551-1137 eða 898-4437.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, félagsvist kl. 13 og við-
talstími FEBK kl. 15-16.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Jónshús opnað kl. 9.30, brids kl. 13.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Molasopi og spjall í Króknum kl.
10.30. Opinn handavinnud. án leiðbein-
anda. Vatnsleikfimi kl. 18.30. Púttvöllur.
Félagsstarf Gerðubergi | Opið kl. 9-
16.30, vinnustofur opnar, m.a. fjölbreytt
handavinna og tréútskurður. Spilasalur
opinn frá hádegi. Frá og með 1. júlí verður
lokað v/sumarleyfa starfsfólks. Uppl. um
starfsemina á staðnum og í s. 575-7720.
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Kaffi og rabb kl. 10. Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 11. Brids kl. 13, kaffi og samvera.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, Helga
fótafræðingur er á staðnum, tímapantanir
í síma 698-4938. Púttvöllur er opinn alla
daga. Lokað verður vegna sumarleyfa frá
4. júlí, opnum aftur 8. ágúst, en við verð-
um með kaffi og blöðin liggja frammi á
meðan sumarleyfið er.
Hraunsel | Bingó kl. 13.30, vatnsleikfimi
kl. 14.40.
Hvassaleiti 56-58 | Félagsmiðstöðin er
opin kl. 8-16. Matur kl. 11.30. Gönguferð
um nágrennið kl. 14, kaffi kl. 14.30. Böðun
f. hádegi, hársnyrting, fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50. Listasmiðjan opin. Hádegisverður og
síðdegiskaffi. Fótaaðgerðastofa og hár-
greiðslustofa. Hæðargarður er lokaður frá
og með 4. júlí til 3. ágúst.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó á æf-
ingasvæðinu við Kópavogslæk kl. 13.
Norðurbrún 1 | Félagsvist kl. 14-16.
Skemmtifélag eldri borgara | Ferð um
niðursveitir Árnessýslu. Leiðsögumaður
Guðjón R. Jónasson. Farið frá Aflagranda
kl. 8.30, Vesturgötu kl. 8.35, Lækjartorgi
kl. 8.40, Mjódd kl. 8.55, Hraunbæ kl. 9.
Pantanir og upplýsingar í s. 775-1340.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Fé-
lagsmiðstöðin opin, hárgreiðslu- og fóta-
aðgerðastofan opnuð. Dansað við undir-
leik Vitatorgsbandsins kl. 14. Opið fyrir
alla.
Atli Harðarson sendi Vísnahorn-inu kveðju í gær: „Þegar ég las
vísnaþáttinn í Morgunblaðinu áðan
rifjaðist upp vísnagáta sem ég setti
einu sinni saman (hún er, ásamt
fleiri gátum, á vefsíðunni http://
this.is/atli/gatur.htm). Gátan er
svona:
Í vist er oftast vont að fá,
veður kennd við elritré,
langir og með ljósin á,
leita þeir að týndu fé.“
Lausnina á gátunni er að finna í
lok þáttarins. Þættinum barst limra
Sigurðar Jónssonar tannlæknis með
yfirskriftinni „Náttúruskoðarinn“:
Ef gangandi um fjöruna fer ég,
fátt sé ég markvert, það sver ég.
Veit ekkert um þara,
en það sýnir bara,
að þvílíkur þöngulhaus er ég.
Og Sigurður orti að morgni:
Ég vaknaði sjálfsagt um sjöleytið
sænginni undir hlýju.
Ætlaði að hlýja mér örlítið
en áttaði mig klukkan tíu.
Kristján Eiríksson réð gátu Atla í
upphafi þessa pistils með svofelld-
um orðum:
Af hundum spila hef ei not,
hundar elris þeyta vindum,
hundar lýsa horn og skot,
hundar smala bóndans kindum.
Úr því talið berst að hundum
þekkja vinir Vísnahornsins Elvis,
hagmæltan hund Sigurðar Ingólfs-
sonar. Segir enn af ferðum hans í
kveðju Sigurðar: „Elvis stundi
þessu upp rétt í þessu:
Í fjöllunum hanga þeir huganum nær,
þessir helhvítu draugar og rumar
sem lúra á öllu sem Ísland ei fær,
sem er alþjóðadraumur um sumar.
Hann tók það fram að þetta ætti
bæði við snjóinn í fjöllunum og
þingmenn. En ég skildi ekki neitt
og fór barasta í bað.“
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af vísnagátu og
náttúruskoðara