Morgunblaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 6
Janus Arn Guðmundsson janus@mbl.is „Nú liggur faglegt mat fyrir, en enn má deila um forsendurnar sem verkefnastjórnin gaf sér og hvaða þætti þeir tóku fyrir við matið. Við erum ósáttir með vinnubrögð verk- efnastjórnarinnar við gerð þess- arar rammaáætlunar,“ segir Guð- mundur Valsson, framkvæmdastjóri Suðurorku, að- spurður um hvort hætt hafi verið við áform Suðurorku um gerð 150 MW virkjunar í Skaftárhreppi, eft- ir útkomu úr öðrum áfanga rammaáætlunar. Áætlað er að sú fjárfesting muni nema um þrjátíu og sex milljörðum króna. Stórir kostir raðast illa Hann segir umhverfisáhrif af nokkrum smærri virkjunum geti verið meiri en af stærri virkjunar- kostum. „Það er viðhorf okkar að stórir kostir raðist illa í ramma- áætlun. Í henni er ekkert tillit tek- ið til stærðar virkjunarkostsins, hagkvæmni og loftmengunar,“ seg- ir hann og bætir við: „Loftmengun frá vatnsaflsvirkjunum er hverf- andi miðað við loftmengun frá jarðvarmavirkjunum.“ Hann segir þá þó bjartsýna á að stjórnmálamenn muni sjá þjóð- hagslegan hag í nýtingu stórra virkjunarkosta. Búlandsvirkjun er númer 42 af 66 út frá sjónarhóli nýtingar og númer 25 út frá sjónarhóli vernd- unar, skv. skýrslu um rammaáætl- un sem kom út síðastliðinn þriðju- dag. „Ég er ósammála þessu mati þegar ég sé náttúrperlu ekki vega neitt eða breyta niðurstöðu eða mati faghópanna sem unnu að þessari rammaáætlun,“ segir hann. Hann segir að ef bornar séu saman einkunnir Búlandsvirkjunar og Skaftárvirkjunar, þá sé munurinn lítill. „Það er miður að sjá þetta, þar sem augljóst er að Bú- landsvirkjun snertir ekki Langasjó líkt og Skaft- árvirkjun myndi gera.“ Keyptu rannsóknargögn af Landsvirkjun Suðurorka, sem er í eigu einka- aðila að hálfu leyti, náði á sínum tíma samkomulagi við stóran hluta landeigenda í Skaftárhreppi um vatnsréttindi, en Landsvirkjun hóf markvissar rannsóknir á vatnafari, aurburði og öðrum virkjanaþáttum árið 1994. Þegar Suðurorka náði samkomulagi um kaup á vatnsrétt- indum við stóran hluta landeig- enda, varð það til þess að Lands- virkjun seldi Suðurorku rannsóknargögn sín. Í kjölfarið veitti Orkustofnun síðan Suður- orku rannsóknarleyfi til tíu ára hinn 8. júlí 2010. Að lokum segir hann samn- ingana við landeigendur, sem Suð- urorka hefur gert, byggða á öðrum grunni en samningar sem Lands- virkjun gerir. „Samningarnir sem við höfum gert, byggjast á greiðslu hlutdeildar í raforkusölu og hækka verulega þegar á samningstímann líður.“ Ósáttur við vinnubrögð verkefnastjórnar  Nýútgefin skýrsla um rammaáætlun gæti haft áhrif á framtíð Búlandsvirkjunar 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2011 Sprækir krakkar voru á ferð í bátsferð á kanó í sumarblíðu á Rauðavatni í útilífsskóla Árbúa í gær. Á fjórða tug krakka á aldrinum átta til tólf ára taka þátt í tveggja vikna útlífsnámskeiði í sumar þar sem þeir fá að spreyta sig í hinum ýmsu útilífsíþróttum, leikjum og öðru undir leið- sögn Árbúaskáta í Árbæjarhverfi. Meðal annars eru farnar bátsferðir, kennt klifur, sig, útieldun, stangveiði, rötun og farið í náttúruskoðun, sund, skátaleiki og óvissuferðir. Mikil áhersla er lögð á útivist og endar námskeiðið með einnar náttar útilegu. Morgunblaðið/Ómar Sprækir krakkar spreyta sig á útilífsnámskeiði Árbúa Meistaranemi í jarðeðlisfræði við Háskóla Ís- lands fékk fyrst- ur manna ígræddan barka úr gerviefni og stofnfrumum á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Maðurinn heitir And- emariam Teklesenbet Beyene og verður að öllum líkindum útskrif- aður af sjúkrahúsinu í dag. Beyene var með krabbamein í barka og aðgerðin markar tíma- mót, en barkinn er búinn til úr gerviefni og stofnfrumum manns- ins og við slíkar aðstæður þarf ekki að bíða líffæragjafar. Meistaranemi við HÍ fékk ígræddan barka Ari Edwald, for- stjóri 365, vill ekki upplýsa um af hverjum krafa á hendur Hjálmi, aðaleigandi Birt- íngs, var keypt, en 365 miðlar eignuðust 47% hlut í Hjálmi í janúar síðast- liðnum þegar kröfu á Hjálm var breytt í hlutafé. Þetta kemur fram á vef Við- skiptablaðsins. Greint var frá því í gær að 365 miðlar ehf. hafi eignast um þriðj- ungshlut í Birtíngi, stærsta útgef- anda tímarita á Íslandi. Hlutinn á 365 ehf. í gegnum félagið Hjálm, aðaleiganda Birtíngs. „Ég ætla ekki að gefa það upp. Þetta er bara krafa sem við áttum á Hjálm og ég sé ekki ástæðu til að fjalla um það opinberlega. Við töldum verðmæti kröfunnar aukast með því að nýta þennan breytirétt. Þetta er mat á því hvernig við myndum hámarka verðmæti kröfu sem við áttum á þetta félag,“ sagði Ari í samtali við Viðskiptablaðið. Einnig kemur fram að Hreinn Loftsson vilji held- ur ekki upplýsa um við hvern upp- haflegi lánssamningurinn var gerð- ur. Upplýsa ekki um kröfu 365 miðla Ari Edwald Öll olíufélögin hækkuðu verð á elds- neyti um sex krónur síðdegis og í gærkvöldi. Fyrst riðu á vaðið stóru félögin en sjálfsafgreiðslustöðv- arnar fylgdu síðar í kjölfarið. Hagkvæmast í gærkvöldi var að taka bensín hjá Orkunni en þar kost- ar lítrinn af 95 oktana bensíni 237,1 kr. og af dísilolíu 240,1. Ögn dýrara var hjá Atlantsolíu en þar kostaði lítri af 95 oktana bensíni 237,2 og af dísilolíu 240,2 kr. Hver lítri af 95 oktana bensíni kostaði 237,6 hjá Olís og N1 en 238,8 hjá Shell. Eldsneyti hækkaði um sex krónur í gær Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is Þingflokkar beggja stjórnarflokkanna funduðu í fyrrakvöld og samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins voru fyrstu drög í undirbúningi fyrir fjárlagagerð fyrir árið 2012 á dagskránni á báð- um fundunum. Fjárlagagerð stendur nú yfir fyrir næsta ár og frumvarp mun liggja fyrir um miðjan næsta ágúst. Fjárlaganefnd hefur jafnframt fundað reglu- lega síðustu daga og mun halda því áfram næstu daga og vikur að sögn nefndarmanna. „Þetta á allt saman eftir að skýrast betur en það þarf að endurskoða þennan ramma, til dæmis með tilliti til nýafstaðinna kjarasamn- inga. Þeir þurfa að rúmast innan rammans þó ekki séu fleiri þættir teknir til greina. Það þarf að endurskoða rammann og reyna að halda í þessa efnahagsáætlun,“ sagði viðmælandi Morgunblaðsins úr VG í gær. „Málið er svo sem ekki komið lengra í bili en það er ljóst að það mun ekki verða auðveldara að koma saman fjár- lögum fyrir árið 2012 eins og við höfðum vonað.“ Hvernig skal auka tekjur Á fundi þingflokks Samfylkingarinnar var farið yfir pólitískar forsendur fjárlagagerðar- innar. Að sögn heimildarmanna var rætt um hvaða leiðir ætti að fara að því að auka tekjur ríkissjóðs: auka skattheimtu, boða frekari nið- urskurð eða leita annarra leiða án þess að seilast ofan í vasa almennings og fyrirtækja. Á fundi ríkisstjórnarinnar í gærdag fór fjár- málaráðherra yfir stöðu vinnu að ríkisfjármál- um. Að sögn Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur, upplýsingafulltrúa fjármálaráðuneytis, kynnti ráðherra einungis lauslega á fundinum að vinna við fjárlög væri hafin. Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Stein- grímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, að halli á rekstri ríkissjóðs kæmi meira fram á fyrri hluta ársins en hinum seinni og að forsendur fjárlaga á yfirstandandi ári, 37 milljarða króna halli, stæðust. Nýir kjarasamningar og skuldbinding- ar sem þeim tengjast hafa hins vegar sett strik í reikninginn fyrir seinni hluta árs. Óreglulegur kostnaður ríkissjóðs hefur jafnframt hlaðist upp og óvissa er um hvort markmið um jöfnuð í rík- isfjármálum árið 2013 náist. „Fjárlög 2012 ekki auðveldari“  Þingflokkar beggja stjórnarflokkanna funduðu í gær um ríkisfjármálin  Ljóst að endurskoða þarf rammann vegna óreglulegs kostnaðar og kjarasamninga  Ráðherra kynnti vinnu á ríkisstjórnarfundi Fundað Fjárlaganefnd Alþingis fundar nú reglulega. „Ég mun aldrei selja landið mitt, þetta kippir stoðum undan at- vinnu hér í aðalatvinnugrein sveitunga minna, sem er bú- skapur,“ segir Heiða Guðný Ás- geirsdóttir, bóndi á Ljótar- stöðum. Hún segir hvern grastopp fullnýttan. „Ég lifi bara á mínum sauðfjárbúskap,“ segir hún og bætir við að heilt yfir sé frekar meiri andstaða við verkefnið meðal heimamanna. „Þessi fram- kvæmd fórnar fleiri störfum en hún mun skapa, það er alveg á hreinu.“ Ekki eru allir á því að selja LANDEIGENDUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.